„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Að koma hugmynd í framkvæmd – hvað þarf til?

Að koma hugmynd í framkvæmd – hvað þarf til?
Kolbrún Magn­ús­dóttir

Eftir / Kolbrúnu Magn­ús­dóttur

Flest okkar fáum við margar hug­myndir á dag, hvort sem það snýr að því að leysa verk­efni, vanda­mál eða jafn­vel hug­mynd að ein­hverju nýju og spenn­andi tæki­færi. Fæst okkar taka þó þessar hug­myndir og láta þær verða að verueika, heldur höldum við áfram að gera eins og við erum vön án þess að veita því mikla athygli.

Það er ekki nóg að hafa frá­bæra hug­mynd heldur er lyk­ill­inn að koma henni í fram­kvæmd sem er oft talið erf­ið­asta skrefið. Má því segja að hug­myndir séu til einskis nýtar ef þeim er ekki hrint í fram­kvæmd. Það jákvæða í stöð­unni er að allir geta þróað með sér færn­ina til að fram­kvæma hug­myndir sínar og láta þær verða að veru­leika.

Mik­il­vægt að vera með­vit­aður um hvert þú beinir kröftum þínum svo þú lendir ekki í „við­bragðs­ferli“ þar sem þú bregst sífellt við. Þú vilt frekar leggja áherslu á að hafa frum­kvæði og stýra ferð­inni. Sjálfs­vit­undin skiptir miklu máli en þar eru allar okkar venjur hvort sem þær eru góðar eða slæmar. Sjálfs­vit­undin er eins og hver annar vöðvi sem þarf að æfa og virkja á með­vit­aðan hátt.

Skipulag er lyk­il­at­riði þegar kemur að því að koma hug­mynd í fram­kvæmd og er það skipu­lagið sem veitir þér sam­keppn­is­for­skot.

Það er ekki væn­legt til árang­urs að sitja á hug­mynd­inni í ein­rúmi. Að virkja með þér fólk sem vegur upp á móti þínum styrk­leikum er mik­il­vægt, komdu þér upp góðu tengsla­neti og deildu hug­mynd­inni þinni. Þannig eykur þú lík­urnar á því að hug­myndin öðlist drif­kraft og verði að veru­leika.

Endanleg gæði og umfang afurðar end­ur­spegl­ast í hæfni okkar í for­ystu­hlut­verk­inu. Þrátt fyrir mik­il­vægi skipu­lags og hlut­verk sam­fé­lags­ins veltur árang­ur­inn á því hversu vel þér tekst að leiða verk­efnið.

Ekkert er jafn­lík­legt til að drepa nýja hug­mynd og okkar eigin tak­mark­anir, því þær eru mun öfl­ugri en þær ytri. Okkar eigin vani getur hæg­lega komið í veg fyrir að við náum góðum árangri, það er okkur ekki eðl­is­lægt að streit­ast gegn okkar eigin eðli. Því er mik­il­vægt að hafa sjálf­saga, aðlög­un­ar­hæfni, mark­sækni, hæfn­ina til að sýna frum­kvæði og bjart­sýni til að kom­ast áfram með hug­mynd­ina. Þá skiptir máli að búa yfir þraut­seigju, hafa seiglu og úthald sem og aga og sjálfs­stjórn til að halda áfram þó svo það virð­ist ekk­ert ganga.

Fram­vinda aðgerða­skrefa getur færst úr stað á hraða snigils­ins sem gerir það að verkum að við verðum óþol­in­móð, sjáum ekki árang­ur­inn strax og hug­myndin um að gef­ast upp og hætta læð­ist aftan að okkur. En það eru einmitt litlu skrefin sem vega þyngst. Sýndu því þol­in­mæði, árang­ur­inn gæti verið hinum megin við hornið.

Mark­þjálfun vinnur með þér við að finna réttu svörin, koma auga á nýja mögu­leika, móta leið­ina og ná auknum árangri í lífi þínu og starfi með mark­vissri sam­tals­tækni, hvatn­ingu og stuðn­ingi. Í raun má segja að mark­þjálfi sé eins og einka­þjálf­ar­inn sem þú hittir í rækt­inni nema í mark­þjálfun vinnum við með aðra vöðva­hópa.

Höfundur er mark­þjálfi og félagi í FKA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu