„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brúnka án sólar og vandamála

Margir nota brúnku­krem til að fá hraust­legra litaraft. Árang­ur­inn verður oft ekki eins og maður hefði helst kosið og sumir kvarta undan því að húðin verði mis­lit þegar til lengri tíma er litið. Það er auð­velt að forð­ast þessi vanda­mál ef brúnku­krem er notað á réttan hátt.

Áður en brúnku­krem er borið á lík­amann er gott að fara í heita og góða sturtu. Það bæði mýkir og hreinsar húð­ina en einnig er gott að skrúbba húð­ina vel með korna­kremi. Þetta er gert til að fjar­lægja allar dauðar húð­frumur því þær hafa til­hneig­ingu til að drekka í sig kremið sem gerir það að verkum að brúnku­kremið dreif­ist ekki jafnt yfir húð­ina og því geta komið mis­litir blettir. Húðin er einnig fljót­ari að drekka í sig kremið ef hún er laus við þurrar og dauðar húð­frumur. Best er að nota fín­kornótt skrúbbkrem því þau eru áhrifa­meiri.

Ef húðin er mjög þurr eftir baðið er gott að bera á hana góða húð­mjólk og leyfa henni að þorna vel inn í húð­ina. Mælt er með því að nota húð­mjólk sem inni­heldur frísk­andi jurtir, eins og til dæmis sítrónu eða myntu. Ef húðin er þurr sum­staðar en ann­ars staðar ekki er næsta víst að þurru blett­irnir taka á sig annan lit en hinir.

Veldu brúnku­krem frá við­ur­kenndu merki og helst eitt­hvað sem þú hefur notað áður.

Margir nota hanska til að bera á sig brúnku­krem en þeir sem kjósa að gera það ekki ættu að þvo sér vel um hend­urnar strax og þeir eru búnir að bera kremið á sig. Reyndu síðan að bera kremið jafnt og vel yfir allan kropp­inn. Sumum þykir betra að nota froðu en krem og enn aðrir kjósa klúta. Þsnyrt­ingað er líka hægt að blanda þessu svo­lítið saman og bera fyrst á sig brúnku­krem en laga síðan bletti með klút­unum. Klút­arnir henta mjög vel ef fólk vill verða brúnt í and­liti og margir segja að þeir séu það besta sem hægt sé að nota á fót­legg­ina.

Nokkur ráð sem vert er að hafa í huga:

  • Passaðu að raka fót­legg­ina og tryggja að bik­iní­línan sé eins og þú vilt hafa hana áður en þú berð á þig brúnku­krem. Hárin drekka í sig kremið og upp­lit­ast en hvítir blettir mynd­ast í kringum hvert hár. Þegar þú berð brúnku­krem á and­litið skaltu reyna að forð­ast að láta það fara í augna­brún­irnar því bæði upp­lit­ast þær við það og eins getur kremið sest í kekki undir hár­unum og skapað ljóta bletti.
  • Notaðu brúnku­krem aðeins einu sinni í viku til að byrja með. Þá er auð­veld­ara að ná einmitt þeim lit sem þú óskar eftir. Þegar húðin er orðin vön efn­inu og þér hefur tek­ist að fá þann húð­lit sem þú vilt halda er óhætt að nota kremið tvisvar til þrisvar í viku.
  • Berðu kremið á með löngum, hægum strokum. Þannig dreif­ist það jafnar og betur um og þornar hraðar inn í húð­ina.
  • Greiddu hárið vel frá and­lit­inu því ann­ars getur það klesst kremið og skilið eftir rákir þegar það er fjar­lægt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu