„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigrar og sorgir Sigurjóns M: Hitti Jón Ásgeir á leynifundi í bakhúsi

Sigrar og sorgir Sigurjóns M: Hitti Jón Ásgeir á leynifundi í bakhúsi
„Þegar ég tók við sem frétta­stjóri þá var svo mikið aga­leysi að þá þurfti ég að vera grimmi frétta­stjór­inn til að búa til eitt­hvað vinnu­ferli.“ Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sigurjón Magnús Egilsson, þekktur sem sme, talar hér meðal ann­ars um mögu­legan langafa sinn í móð­ur­ætt, Kristján IX Dana­kon­ung, óþektk­ina í barna­skóla, sjó­mennsk­una, blaða­mennsku­fer­il­inn, alkó­hól­is­mann, lífs­vilj­ann sem minnk­aði eftir mót­or­hjólasl­syið og sál­ina sem logar. 

Sigurjón Magnús Egilsson er sonur Guðrúnar R. Guð­munds­dóttur og Egils heit­ins Hansen sem er lát­inn. Föðurafi hans, Hinrik, var danskætt­aður. Hann talar svo­lítið um ætt­ina og talið berst að þeirri sögu­sögn að afi hans í móð­ur­ætt, Karl Karlsson, hafi verið laun­sonur Krist­jáns IX Dana­kon­ungs sem hafi átt hann áður en hann varð kon­ungur. 

„Þetta er svo­lítið deilu­mál. Langamma mín eign­að­ist dreng, Karl Karlsson, og hún upp­lýsti aldrei hver pabb­inn væri en sagði þó einum afkom­anda sínum, ég man ekki hver það var, að það hafi verið Kristján, krón­prins Dana, síðar Kristján IX Dana­kon­ungur. Þetta er mikið til­finn­inga­mál. Við viljum alveg meina að þetta sé svona,“ segir Sigurjón sem seg­ist fyrst hafa heyrt um þetta þegar hann var ung­lingur. „Það er þá blátt blóð í okkur. Þetta var við­kvæmt mál innan fjöl­skyld­unnar eða á meðal barna Karls. Kynslóð mín hefur hins vegar gaman af þessu. Við brosum að þessu. Ég kann vel við Danmörku. Bara alveg virki­lega. Við gerum hins vegar ekki til­kall til dönsku krún­unnar.“

Úr skónum!

Sigurjón bjó fyrstu árin í Hafn­ar­firði.

„Við áttum heima á mjög sér­stökum stað fyrstu æviár mín. Þetta var hálf­gert ævin­týri. Við bjuggum í lít­illi ris­í­búð við Kross­eyr­ar­veg í Hafn­ar­firði. Nágrann­arnir voru ynd­is­legir og nábýlið mikið. Við vorum fjórir bræð­urnir – Haf­steinn, ég, Egill og Gunnar Smári – og á neðri hæð­inni bjó ekkja með þrjú börn sem við lit­umst nán­ast á eins og frændsystk­ini. Það var sam­eig­in­legt kló­sett og snyrt­ing. Þetta var algjör­lega án árekstra. Hús, sem stóð neðar í göt­unni, var mjög sér­stakt og var há girð­ing í kringum garð­inn. Það mátti eng­inn koma inn í þennan garð nema við bræð­urnir. Þar bjuggu hjón. Konan var alltaf kölluð Ella Dabb en hún var Davidsen. Maðurinn hennar, Bergur, var sjó­maður á foss­unum hjá Eim­skipa­fé­lag­inu. Þetta var svo spenn­andi. Hann hafði verið í sigl­ingum og þarna var til svo mikið af leik­föngum sem við höfðum aldrei séð áður. Og varla enn. Þetta var alger ævin­týra­heimur. Við fengum að leika okkur með leik­föngin en það var ekki allt. Þau áttu líka talandi páfa­gauk sem hét Vargas af því að Beggi hafði keypt hann í Brasilíu þegar hann var að sigla þangað og þá var Vargas for­seti Brasilíu. Þegar maður kom inn til þeirra kall­aði Vargast alltaf „úr skónum“. Þetta var skemmti­legt. Stór­kost­legt.“

Sigurjón segir að svo hafi komið mikið rót á fjöl­skyld­una. „Við fluttum í húsið Sólberg sem er í Set­bergs­land­inu þar sem nú er Set­bergs­hverfið. Þá var þetta strjál­býli. Það voru örfá hús þarna. Og þaðan fluttum við svo til Reykja­víkur. Rótið var svo mikið á okkur að ég fór í fimm barna­skóla til að klára gagn­fræða­prófið.“

Faðir Sig­ur­jóns var drykk­felldur og skildu for­eldrar hans þegar Sigurjón var 13 ára og flutti Guðrún með syn­ina fjóra til Sel­tjarn­ar­ness þar sem þau bjuggu í um þrjú ár. Hún kynnt­ist öðrum manni sem hún gift­ist og eign­að­ist með honum son, Kristján Rúnar Krist­jáns­son. „Líf okkar breytt­ist eðli­lega og við bræð­urnir fjórum fórum allir að heiman sem tán­ingar. Við vorum nán­ast börn.“

Villingur og lúði

Sigurjón náði sér í pen­ing á æsku­ár­unum með því að safna mið­stöðv­arofnum í fjör­unni og selja þá. „Þá var fyr­ir­tæki við Ánanaust sem hét Járn­steypan. Málm­ur­inn í mið­stöðv­arofn­unum hét pottur og þeir keyptu pott, þennan málm, á eina krónu kílóið. Þá henti fólk bara ofn­unum í fjör­una og ég var að draga þetta upp úr fjör­unni og fór með í Járn­steypuna. Svo þegar ég var búinn að hreinsa fjör­una þar þá þurfti ég að fara lengra og þá fór ég til Péturs Hoff­manns, þess fræga manns sem var að selja glingur á Lækj­ar­torgi. Hann átti stóran hand­vagn sem hann geymdi í Alliance-hús­inu og ég bað hann um að lána mér hann. Þetta var stór tré­vagn mál­aður í fána­lit­unum. Ég hreins­aði síðan fjör­una frá Gróttu og inn í Kletts­vík af ofnum og seldi fyrir krónu kílóið. Þetta var ég að dunda mér við 12 ára eða eitt­hvað svo­leiðis. Ég hef alltaf verið orku­mik­ill. Sumum finnst ég nú vera full fyr­ir­ferð­ar­mik­ill. Eða hefur þótt það.“

Sigurjón var erf­iður í skóla. Ofboðs­lega erf­iður í skóla.

„Ég gerði allt sem ég átti ekki að gera og ekki það sem ég átti að gera. Ég var til mik­illa vand­ræða. Ég var svona trúður. Ég var alger trúður. Þetta var tómt vesen. Ég sneri út úr og þras­aði og þrætti. Ég gekk fram af skóla­stjór­anum oftar en einu sinni. Honum var illa við mig og mér við hann.“

Sig­ur­jóni leið illa í skól­anum. „Ég átti í sjálfu sér ekk­ert erfitt með að læra en það var ekk­ert gert í mál­inu þegar ég lét svona. Mér var bara refsað með því að reka mig úr tíma eða ég var sendur til skóla­stjór­ans. Skóla­kerfið var ekki full­komn­ara en þetta. Ég var bara fífl. Ég var bara rek­inn til og frá.

Sigurjón M. Egilsson. „Mamma kom til dyra og þá voru komnir menn frá barna­varna­nefnd til að sækja mig. Það átti að senda mig á Breiðu­vík.“

Svo var einu sinni bankað heima. Mamma kom til dyra og þá voru komnir menn frá barna­varna­nefnd til að sækja mig. Það átti að senda mig á Breiðu­vík. Mamma harð­neit­aði. Það var grátur og mikil læti. Það end­aði með því að mamma gerði við þá sam­komu­lag um að fresta þessu. Ég varð síðar upp­hafs­mað­ur­inn að skrif­unum um Breiðu­vík. Breiðu­vík­ur­málið er eig­in­lega stóra málið mitt í blaða­mennsku.“

Fjöl­skyldan flutti í Ljós­heima þegar Sigurjón var á síð­asta ári í grunn­skóla og hann fór í Voga­skóla. Þá breytt­ist allt.

„Það var eins og hendi væri veifað. Þá kynnt­ist ég allt öðru­vísi fólki og þá var ég ekki með neina for­tíð. Kom for­tíð­ar­laus á nýjan stað. Hægt var að velja val­fög og ég fór í leik­list. Það var ynd­il­sega gaman. Hreint frá­bært. Það var merki­legt fyrir mig sem hafði verið vill­ingur og lúði. Þetta gjör­breytti öllu. Við sömdum okkar eigið leik­rit og ég var val­inn til að leika aðal­hlut­verkið. Ég er lag­laus og þurfti að syngja. Og það sprungu allir úr hlátri þegar ég byrj­aði að syngja. Ég kann ennþá ljóðið sem ég söng og ég syng það stundum í mínu lag­leysi.“

Grét söltum tárum

Sigurjón var 17 ára. Farinn að vinna. 

„Ég var í ágætis starfi sem þótti þá fyrir svona vit­leys­inga eins og mig; ég var sendi­sveinn á bíla­verk­stæði og var á fínum Bronco-jeppa að send­ast eftir vara­hlutum og var ekk­ert að velta fyrir mér neinni fram­tíð. Aldrei. Félagi minn, sem hafði ekki klárað gagn­fræða­skól­ann, hætti eftir 3. bekk en ég kláraði 4. bekk. Hann hafði farið þá á ver­tíð og hann vildi endi­lega fá mig með sér á sjó­inn. Það vant­aði mikið af mönnum á báta að það var listi á skrif­stofu LÍU. Háseta vantar á bát. Og svo voru taldir upp bátar.“

Ég nota hornið á hand­klæð­inu

Og Sigurjón fór til Ólafs­víkur 18 ára gam­all til að fara á sjó­inn.

„Mér var vísað upp á her­bergi í ver­búð­inni þar sem voru fjórar kojur. Her­manna­kojur. Mjög nöt­ur­legt. Eitt borð. Og bara þrír naglar til að hengja fötin á. Ég kom síð­astur inn þannig að ég þorði ekki að nota nagla. Ég fór að taka upp úr pok­anum mínum um kvöldið og þá kom yfir mig ofboðs­legur kvíði. Ég fór til kon­unnar sem var með ver­búð­ina og mötu­neytið sem hét Jóhanna Met­ús­al­ems­dóttir. Fín kona. Ég spurði hvort ég mætti hringja til Reykja­víkur. Nei, það mátti ég ekki. Ég var voða aumur. Svo kall­aði Jóhanna í mig og sagði að ég mætti hringja. Ég hringdi í mömmu og sagði að ég væri ekki með neinn þvotta­poka. Þá sagði mamma við mig setn­ingu sem ég gleymi aldrei. Hún sagði: „Siggi minn, sjó­menn nota hornið á hand­klæð­inu.“ Og það fannst mér alveg geggjað. Síðan hef ég ekki notað þvotta­poka. Ég nota hornið á hand­klæð­inu.“

Sigurjón var sjó­maður í 12 ár. „Það var eitt­hvað rót á Agli bróður, sem er tveimur og hálfu ári yngri en ég, og hann kom líka vestur. Við vorum ver­búð­ar­menn. Við áttum mest heima í ver­búðum. Við vorum ver­búð­ar­strákar seinni tán­ings­árin. Þetta hefur eflaust mótað okkur mikið. Ég hugsa það. En við vorum mjög sjálf­bjarga en við höfðum allir mjög tak­markað bak­land. Þetta var töff tími og mót­aði okkur sem krakka. Auðvitað var ég bara krakki. 

Ég sneri mér bara undan og grét

Þetta var oft erfitt. Þetta var svo­lítið töff. Ég var svo óharðn­aður þegar ég fór fyrst á sjó­inn. Mér leið illa til að byrja með. Mér var oft kalt; litlir ung­lingsputtar og þá voru bát­arnir ekki yfir­byggðir. Janúar. Kuldinn. Myrkrið. Einn að heiman. Og menn að bölsót­ast við mann ef maður lagði sig ekki nógu mikið fram. Mér fannst menn­irnir vera mis­kunn­ar­lausir við mig. Harðir. Ég grét oft, sko, án þess að þeir sæju. Ég sneri mér bara undan og grét af því að mér leið svo illa þarna. 

Ég ætl­aði aldrei aftur á sjó­inn eftir þessa fyrstu ver­tíð. Ég ætl­aði með stakk­inn minn upp á bryggju þegar ver­tíð­inni væri lokið og kveikja í honum. Ég var marg­bú­inn að segja þetta við strák­ana. Svo þegar við vorum að klára að ganga frá eftir ver­tíð­ina þá kom skip­stjór­inn til mín og sagði að við myndum byrja aftur strax eftir 17. júní. „Þú kemur þá,“ sagði hann. „Já,“ sagði ég. Og svo bara hélt ég áfram. Ég var á þessum báti í fjögur ár. Og ég var í alls sex ár hjá þess­ari útgerð. Þegar upp var staðið kunni ég mjög vel við þetta allt. Svo fór ég að fara á aðra báta fyrir hærri hlut. Þannig að þetta gekk ágæt­lega.“

Sigurjón er spurður hvað sé eft­ir­minni­leg­ast frá sjó­manns­ferl­inum.

„Það er sorg­legt. Ég var einu sinni stýri­maður og við vorum á leið­inni í land. Ég var kom­inn heim þegar húsið var bara barið að utan og ég fór til dyra. Þar stóð vöru­bíl­stjóri sem sagði að ég yrði að koma af því að einn bát­ur­inn hafði ekki skilað sér. Við fórum út að leita. Þessi nótt var alveg ömur­leg,“ segir hann með áherslu. „Hún var svo köld. Fimm menn, sem ég þekkti, drukkn­uðu. Þetta var svo kalt og þetta var svo vont. Þetta var alveg ógeðs­legt. 

Við komum í land undir morgun og ókum fram hjá húsi skip­stjór­ans sem fórst auk þess sem einka­sonur hans hafði líka farist. Ekkjan var úti í glugga alveg hágrát­andi og krafs­aði í rúð­una. Bróðir hennar hélt utan um hana. Þessi mynd hverfur aldrei úr huga mínum. Aldrei. Ég sé þetta enn fyrir mér.“

„Mér líður ennþá stundum illa and­lega. Lífs­vilj­inn er mis­sterkur.“

Sigurjón er spurður hvað sjór­inn sé í huga hans. „Ég kunni afskap­lega vel við að vera sjó­maður. Ég var alveg ákveð­inn í að það yrði ævi­starfið mitt. Ef ég á erfitt með að sofna þá fer ég í hug­anum út á sjó. Þá er ég að draga línu eða eitt­hvað. Ég finn þá þessa fal­legu, þægi­legu hreyf­ingu sem getur líka verið alveg mis­kunn­ar­laus. Sjórinn við Ísland er svo tær. Hann er svo fal­legur; eins og að vera til dæmis að draga línu í góðu, björtu veðri og sjá ein­hverja tugi metra niður í hafið. Þetta er svo hreint og tært. Ég sé margt mjög fal­legt við sjó­mennsku.“

Í blaðamennsku

Sigurjón hóf nám við Stýri­manna­skól­ann árið 1986 en lauk aldrei því námi.

„Skólinn var með útibú í Ólafsvík. Ég fór einu sinni í prent­smiðju í bænum vegna þess að mig vant­aði papp­írs­örk til að skrifa reikni­for­múlu inn á sem ég hafði búið mér til um stöð­ug­leika skipa. Kenn­ar­inn hafði beðið mig um að sýna fleirum for­múl­una. 

Prent­miðju­eig­end­urn­irnir voru þeir Ævar Guð­munds­son, Ólafur Arnfjörð og Kristján Pálssson, útgerð­ar­stjóri og síðar bæj­ar­stjóri og þing­maður. Við fórum að spjalla og Kristján spurði mig hvort bróður minn væri blaða­maður. Þá var Gunnar Smári blaða­maður á Helg­ar­póst­inum. Þá spurðu Ævar og Óli hvort ég vildi ekki eiga Ólsarann sem var hér­aðs­frétta­blaðið sem þeir áttu en höfðu ekki haft tíma til að skrifa í eða gefa út. Ég þáði Ólsarann og varð svo frétta­rit­ari DV sem varð síðar til þess að Ellert B. Schram bauð mér vinnu sem blaða­maður.

Mér þótti það vera algert ævin­týri að vinna hjá DV. Þetta var eins og ungur knatt­spyrnu­maður væri að fá til­boð frá Arsenal eða eitt­hvað. Mér fannst þetta alveg geggjað.“

Sigurjón er beð­inn um að gera fjöl­miðla­fer­il­inn upp.

„Hann er svo langur, maður. Ég flutti sem sé suður til að verða blaða­maður hjá DV árið 1987. Ég not­aði aldei milli­nafnið mitt, Magn­ús­ar­nafnið, fyrr en ég gerð­ist blaða­maður til að búa til skamm­stöf­un­ina sme; þetta var allt úthugsað hjá mér til að það væri hægt að lesa skamm­stöf­un­ina. Ekki se heldur sme. Mér fannst það vera flott­ara. Ég var alltaf kall­aður sme eftir þetta þegar greinar eftir mig voru merktar.

Ég var settur strax í fréttir hjá DV. Ég man að þegar ég var nýbyrj­aður þá sátum við á fundi og var búið að úthluta verk­efnum til allra og ég, nýlið­inn, var eftir. Frétta­stjóri spurði hvort ég gæti ekki skrifað um bíla­stæða­vand­ann í mið­borg­inni. Ég sagð­ist geta gert það og bætti við að ég hefði lesið ein­hver furðu­skrif um að það vildi ein­hver bíla­stæði undir Aust­ur­völl. Þá horfði Jónas Krist­jáns­son rit­stjóri á mig og sagði: „Það var ég.“ Og ég horfði á hann og sagði að mér fynd­ist það vera jafn­und­ar­legt fyrir því. Þá sá ég að hann brosti með aug­unum. Ég er alveg viss um að ef ég hefði ekki svarað honum þá hefði ég ekki orðið blaða­maður. En þarna sá ég að honum leist á mig af því að ég svar­aði fyrir mig. Og síðan átti ég far­sælan feril á DV og lík­aði mjög vel. Ég hafði svo gaman af þessu. Ég vann mjög mikið og bara naut þess alger­lega í botn. Nema að Elías Snæland Jónsson, sem var frétta­stjóri, var svo­lítið erf­iður við mig fyrst. Það var allt ómögu­legt sem ég gerði og alltaf eitt­hvað vesen. Einn morg­un­inn stóð ég fyrir framan DV-húsið við Þverholt 11 og hugs­aði með mér hvort ég ætti að fara inn eða fara út á sjó. Hvað átti ég að gera? Svo ákvað ég að fara inn og gera þetta að ævi­starfi. Ég fór inn og hélt áfram í blaða­mennsk­unni. Ég hef aldrei efast. Aldrei. Svo end­aði það á því að Elías varð einn af mínum upp­á­halds­yf­ir­mönnum. Hann var harður maður og ég lærði mikið af honum.“

Gunnar Smári, bróðir Sig­ur­jóns, var ráð­inn rit­stjóri Pressunnar og segir Sigurjón að hann hafi boðið sér vinnu sem rit­stjórn­ar­full­trúi. „Ég fór þangað og var í miklu stuði. Ég skúbb­aði mikið og þetta var flott rann­sókn­ar­blaða­mennska. Þetta var mjög gaman. Ég var alltaf í vinn­unni. Alltaf. Þá var yngri sonur minn alltaf að kvarta yfir því að ég væri aldrei heima. Svo var aug­lýst eftir frétta­mönnum á frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins og hann sagði að ég yrði að sækja um. Og ég gerði það. Og var ráð­inn. Það var geggjað. Það var algjör­lega geggjað. Atli Rúnar Hall­dórs­son hafði verið í póli­tík­inni og hann tók sér frí þegar ég var kom­inn og þá var Davíð nýbú­inn að mynda rík­is­stjórn og ég var orð­inn frétta­maður Rík­is­út­varps­ins í póli­tík­inni og var á fleygi­ferð um allt. Ég stóð mig mjög vel. En þetta var svo illa borgað. Það var alveg ömur­legt.“

Grimmi fréttastjórinn

Aftur bauð Gunnar Smári bróður sínum vinnu. „Ég hitti hann einu sinni á Hard Rock í hádeg­inu og hann lagði fyrir framan mig blað með tölum á sem Pressan bauð mér fyrir að koma aftur. Ég gat ekki annað en þegið það. Þetta voru svo miklu hærri laun. Og ég fór þangað. Þá höfðu orðið eig­enda­skipti á Press­unni og þetta var allt öðru­vísi en áður. Mér leist ekki á þetta. Mér fannst við líka vera farin að teygja okkur of langt eftir frétta­efnum og ég bara fíl­aði ekki breyt­ing­arnar.“

Sigurjón hitti Jónas Krist­jáns­son á förnum vegi sem bauð honum starf hjá DV og fékk hann hærri laun en áður með því að fá mikla yfir­vinnu­laun. „Þetta gekk vel og þá var ég í ofboðs­lega miklu stuði. Ég skúbb­aði mikið. Sér­stak­lega í póli­tík­inni. Það var geggjað, sko. Geggjað. Ég þurfti að hafa svo mikið fyrir þessu og það gekk svo margt upp hjá mér. Og ég naut trausts víða. Þar átti ég ótrú­lega merki­legan kafla í póli­tískum skrifum. Ég kynnt­ist stjórn­mála­mönnum af góðu og illu. Þetta var æðis­legur tími. Svo var skrúfað fyrir alla yfir­vinnu á DV og þá var ég kom­inn á grunn­laun sem voru galin. Og ég gat ekki sætt mig við þetta.“

„Það var grátið á rit­stjórn­inni hjá okkur dag eftir dag og við sem fjöll­uðum mest um málið vorum stundum ger­sam­lega búin á því. Þetta var svo sárs­auka­fullt.“

Það vant­aði rit­stjóra á sjó­manna­blaðið Víking og Sigurjón fékk það starf og vann við það í sjö ár. 

„Össur Skarp­héð­ins­son hringdi í mig. Hann var þá rit­stjóri á Alþýðu­blaðiu og spurði hvort ég vildi ekki verða frétta­stjóri. Þegar Alþýðu­blaðið var svo lagt niður var ákveðið að ég færi aftur á DV en það var verið að sam­eina þetta allt saman og leggja niður blöð. Það var hins vegar ekki staðið við það sem sagt hafði verið og ég nennti þessu ekki og hætti.“

Sigurjón vann síðan hjá Frétta­blað­inu og varð hann fljót­lega frétta­stjóri og síðar frétta­rit­stjóri. „Þetta var á miklum upp­gangs­tíma. Veistu, ég fór hvorki í bíó né leik­hús í held ég sex ár. Ég var að vinna. Ég vann og ég vann og ég vann. Ég var alltaf að vinna. Þegar ég tók við sem frétta­stjóri þá var svo mikið aga­leysi að þá þurfti ég að vera grimmi frétta­stjór­inn til að búa til eitt­hvað vinnu­ferli. Sumir hafa ekki fyr­ir­gefið mér enn. Sumir eru ennþá reiðir við mig út af þessu. Ég var harður. Ég læsti hús­inu klukkan níu á morgn­ana þannig að þeir sem komu of seint þurftu að banka til að kom­ast inn. En það var ekk­ert annað að gera. Þetta var alger­lega von­laust dæmi. Við ætl­uðum aldrei að ná að skila blöðum af því að það vant­aði efni. Þetta var allt í rugli.

Jónas Krist­jáns­son vann þar í hálft ár sem rit­stjóri sem mér fannst frá­bært. Við unnum saman í hálft ár, ég og Jónas, og ég fletti upp í honum, ég leit­aði til hans og lærði af honum. Ég tók þetta eins og ég væri í háskóla með Jónas Krist­jáns­son á skrif­stofu hjá mér alla daga. Mér fannst það frá­bært. Enda ber ég ekki eins mikla virð­ingu fyrir nokkrum öðrum eins og honum í þessum bransa. Hann var svo nákvæmur. Ég get nefnt dæmi. Þegar ég kom af sjónum og var orð­inn frétta­blaða­maður hjá DV þá var ég ekki nógu góður í tíð­unum; ég er ekki mennt­aður maður – ég er „drop out“ úr stýri­manna­skóla. Ég rugl­aði saman tíðum. Þá var bara unnið í því. Jónas og Ásgrímur heit­inn Pálsson, sem var yfir­maður próf­arka­deildar, unnu í því að laga tíð­irnar hjá mér.“

Sigurjón var gerður að frétta­rit­stjóra þegar Kári Jónasson var ráð­inn rit­stjóri. „Ég var nú svo­lítið spældur þá. Ég vildi verða rit­stjóri. En ég sætt­ist á þetta. Ég var í fínu starfi – ég stjórn­aði orðið allri frétta­deild­inni. 

Svo kom Þor­steinn Pálsson og þá missti ég svo­lítið það frelsi sem ég hafði haft þegar Kári var. Kári var allt öðru­vísi maður. Með honum fór ég mínu fram. En Þor­steinn var öðru­vísi. Frelsi mitt sem frétta­rit­stjóra varð minna, ég kunni illa við það. Þannig að ég bara hætti.“

Breiðavíkurmálið

Sigurjón varð rit­stjóri á Blaðinu. „Það var litli ljóti and­ar­ung­inn í þessu en náði frá­bærum árangri; eða ég og aðrir starfs­menn. Við fórum fram fyrir Moggann í lestr­ar­könn­unum sem var alger­lega geggjað. Mér fannst hins vegar vanta bilið milli aug­lýs­inga­deildar og rit­stjórnar sem ég þoldi ekki. Ég þoldi ekki að aug­lýs­inga­deildin væri að spyrja blaða­menn um hvað þeir væru að fara að skrifa til að reyna að selja aug­lýs­ingar út á efnið. Þetta voru enda­lausir árekstrar. 

Svo end­aði það á því að ég hitti Jón Ásgeir á leyni­fundi. Þetta er eina skiptið sem ég hef fundað með honum. Það var leyni­fundur í bak­húsi. Það var rosa­lega flott. Þar bauð hann mér samn­ing ef ég kæmi og yrði rit­stjóri hjá DV. Og ég þáði það.“

DV var þá viku­blað sem Sigurjón segir að hafi gengið frekar illa. „Og í bulli og þvælu héldum við þeirri áæltun að breyta DV í dag­blað sem við hefðum aldrei átt að gera en það þurfti að bæta við mann­skap sem var ekki gert nægi­lega. Þetta var algjör­lega ómögu­legt. Við eyðilögðum alger­lega frá­bært dæmi.“

Sigurjón vann með öðrum á DV á þessum tíma að skrifum um Breiða­vík­ur­málið. Hann segir að ísinn hafi þá verið brot­inn með umfjöll­unum um Breiðu­vík sem og önnur heim­ili – Kumb­ara­vog, Bjarg og Sil­unga­poll. „Strák­arnir sem voru sendir í Breiðu­vík voru sviptir öllu. Þeir voru sviptir menntun. Þetta mál var ömur­legt. Það var grátið á rit­stjórn­inni hjá okkur dag eftir dag og við sem fjöll­uðum mest um málið vorum stundum ger­sam­lega búin á því. Þetta var svo sárs­auka­fullt. Við vorum fyrir þessar umfjall­anir valin rann­sókn­ar­blaða­menn árs­ins árið 2007. Ég held að af mörgu sem ég hef unnið í kringum fjöl­miðla þá sé þetta magn­að­ast af öllu. Mér hlýnar að innan þegar fólk sem var farið illa með fær sann­girn­is­bætur. Breiðu­vík­ur­málið er upp­hafi að þeim bótum.“

Sigurjón fór svo að vinna á Mannlífi sem var í eigu sömu útgáfu og fór að skrifa um efna­hags­mál. Hann fékk svo árið 2008 verð­laun sem rann­sókn­ar­blaða­maður árs­ins fyrir þá vinnu. „2007 og 2008 voru svo­lítið merki­leg ár í minni blaða­mennsku.“

„Þetta var bara ömur­legt. Ég hugs­aði oft með mér hvort ég ætti ekki bara að vera drykkju­maður. Það var ein­hvern veg­inn auð­veldasta leiðin.“

Hann byrj­aði síðan með útvarps­þátt­inn Sprengisand á Bylgj­unni árið 2008 og var með hann í sjö og hálft ár. „Þetta var oft vin­sæl­asti útvarps­þáttur vik­unnar. Vinsælli heldur en fréttir RÚV. Það var mikið hlustað á þátt­inn og vitnað í hann til og frá. Svo var mér farið að leið­ast. Það voru breyt­ingar á stjórn 365 og ég not­aði fyrsta tæki­færi til að fara út. 

Síðan hef ég verið með vef­mið­il­inn minn, midjan.is, og svo er ég nýbú­inn að kaupa tíma­ritið Heima er bezt. Ég er orð­inn eldri borg­ari og Heima er bezt er dásam­lega fal­legt. Ég sit órak­aður og óklipptur og er með frá­bæra vinnu­að­stöðu heima hjá mér. Ég á hund­inn Lopa og fer með hann út að ganga á morgn­ana og seinni part­inn. Það eru rit­stjórn­ar­fund­irnir mínir með honum. Ætli þetta sé ekki það síð­asta sem ég geri í blaða­mennsku. Ég hugsa það.“

Sigurjón keypti midjan.is fyrir nokkrum árum síðan. „Mér fannst ég hafa verið plat­aður. Ég borg­aði allt of mikið fyrir þetta. Miðjan mín er ein­hvern veg­inn öðru­vísi vefur. Ég nenni ekki að vinna venju­legar fréttir. Ég vinn upp úr þing­skjölum og fund­ar­gerðum borg­ar­innar og þannig. Svo skrifa ég greinar og birti greinar eftir aðra. Net­mið­ill­inn midjan.is gefur ekki mikla pen­inga. Ég er eins og fjár­bóndi. Ég byrja morg­un­inn á því að gefa á garð­ann. Ég set eitt­hvað inn á midjan.is. Svo fer ég að snúa mér að Heima er bezt. Svo fer ég út að ganga og hugsa um Heima er bezt. Svo kem ég úr göngut­úrnum, fer í sturtu og byrja að skrifa. Núna er ég til dæmis að skrifa upp úr gömlu tölu­blaði grein um börn Fjalla-Eyvindar. Ég vissi ekki að hann hefði átt börn. Mér finnst þetta vera skemmti­legt. Mér finnst þetta vera flottar sögur. Ég elska þetta.“

Sigurjón er til í að selja midjan.is af því að það er orðið svo mikið að gera hjá honum. Ef ein­hver vill kaupa.

„Ég ætla að halda áfram að óbreyttu fram yfir kosn­ingar ef ég sel ekki. Ég er búinn að bjóða Fram­sókn­ar­flokknum að kaupa midjan.is; ég hef ekki sagt neinum frá þessu. Ég er búinn að skrifa bæði Sigurði Inga og Lilju Alfreðs­dóttur tvisvar sinnum af því að Fram­sókn­ar­menn segja að fram­tíðin ráð­ist á miðj­unni; þá spyr ég af hverju þau kaupi ekki Miðjuna. Þetta er frá­bært lén fyrir þá sem segja að fram­tíðin ráð­ist af miðj­unni. Kannski kemur svar frá þeim með vor­skip­inu.“

„Ég grét oft, sko, án þess að þeir sæju. Ég sneri mér bara undan og grét af því að mér leið svo illa þarna.“

Alkóhólisti

Sigurjón eign­að­ist sitt fyrsta barn 21 árs og eign­að­ist þrjú börn með tveimur konum á fimm árum. Eina stúlku og tvo drengi. „Dóttir mín er hálf­systir strák­anna og þrátt fyrir að þau hafi ekki alist upp saman þá eru þau miklir vinir í dag. Það er mitt mikla lán í líf­inu að eiga börnin mín og hvernig hefur spil­ast úr með þau.“ Þögn. „Nú líður mér illa þegar ég tala um þetta.“

Hvers vegna?

„Æi. Stundum skamm­ast ég mín. Ég var fáviti. Brást fólki. Ég hafði ekk­ert sam­band við stelpuna lengi vel. Ég stóð mig illa og það má segja að þetta hafi gengið illa hjá mér lengi. Krakk­arnir mínir þekkt­ust ekki lengi vel. En svo þegar það loks­ins varð þá hefur ræst betur úr því en ég hefði nokkurn tím­ann þorað að dreyma um. Eldri sonur minn og dóttir­inn búa bæði úti í Stokk­hólmi og þar er vin­skapur og á milli barn­anna þeirra. Það er svo snið­ugt að þau eiga jafn­gamla stráka og jafn­gamlar dætur. Þau er vina­fólk og það gleður mig mjög mikið. Ég er glaður með börnin mín og barna­börn.“

Drykk­felldur. Jú, Sigurjón er alkó­hólisti. 

Hann man eftir fyrsta sop­anum. Hann seg­ist hafa verið smá­polli þegar nágranni hans, sem var ári eldri, stal víni frá pabba sínum og þeir smökk­uðu. „Við vissum ekki hvað þetta var. Þá vorum við bara óvitar og okkur þótti þetta vera ógeðs­legt.“

Svo var hann um 15 ára. Hann og félagar hans voru á Lamba­staða­túni á Sel­tjarn­ar­nesi og voru með brenni­vín í flösku. Ein­hverja blöndu. „Ég fann vel á mér. Og þegar ég kom heim þá man ég að mamma var alveg ofboðs­lega reið og henti mér ofan í bað­kerið og spraut­aði yfir mig köldu vatni.“

Svo ágerð­ist drykkjan hægt og bít­andi.

„Frelsið sem fólst í því að vera á ver­tíð tengd­ist því að þar var engin mamma. Þá gat ég bara átt mína pen­inga. Ég gat pantað mér áfengi með póst­inum. Og þá var eng­inn til að hafa eft­ir­lit með mér; ekki nema skips­fé­lag­arnir – eldri menn um borð sem höfðu nú stundum áhyggjur. Ein­hverra hluta vegna drakk ég oft illa og var á tíma­bili nefndur „dáni“.“ Ástæðan er að Sigurjón dó oft brenni­víns­dauða.

Sigurjón og fyrri kona hans skildu eftir 17 ára hjóna­band og hann segir að þá hafi hann aukið drykkj­una. „Þá var ég eig­in­lega búinn að missa öll tök á þessu án þess að við­ur­kenna það.“

Hann fór langt niður í drykkj­unni. „Þetta var bara ömur­legt. Ég hugs­aði oft með mér hvort ég ætti ekki bara að vera drykkju­maður. Það var ein­hvern veg­inn auð­veldasta leiðin. Þegar maður er fullur þá virð­ist vera svo langt í edrú­mennsk­una og þá finnst manni auð­veld­ari leið að vera bara áfram fullur. Ég gat ekki hugsað mér lífið án áfengis. Ég held að það sé þannig með flesta alkó­hólista. Ég náði aldrei að stjórna því hvenær ég hætti að drekka eftir að ég fékk mér í glas. Ég var algjör­lega búinn að missa tökin á því. Ef ég drakk þá vissi ég aldrei hvenær ég næði landi aftur. Jú, ég gat verið undir áhrifum ein­hverja daga í röð. Það var þannig. Þetta varð stjórn­laust. Maður stjórn­aði þessu ekki neitt.“

Sigurjón hafði í mörg ár verið í blaða­mennsku og svo þegar hann varð rit­stjóri tíma­rits og vann einn að því gat hann falið drykkj­una meira.

Svo breytt­ist lífið. „Ég kynnt­ist núver­andi kon­unni minni og hún hag­aði sér öðru­vísi í kringum mig þegar ég var illa fyrir kall­aður. Hún lét mig bara finna fyrir því án þess að segja neitt heldur bara hvað varð­aði fram­komu hennar gagn­vart mér.“

„Þá horfði Jónas Krist­jáns­son rit­stjóri á mig og sagði: „Það var ég.“ Og ég horfði á hann og sagði að mér fynd­ist það vera jafn­und­ar­legt fyrir því. Þá sá ég að hann brosti með aug­unum. Ég er alveg viss um að ef ég hefði svarað honum þá hefði ég ekk­ert orðið blaða­maður.“

Byrjun árs 1997. Sigurjón var í baði og fór að hugsa sinn gang. Honum fannst þetta ekki vera hægt. „Ég tók ákvörðun um að fara í með­ferð. Ég stökk upp úr bað­inu, kall­aði á kon­una mína og sagð­ist ætla að fara í með­ferð og hringdi svo í bróður minn, Gunnar Smára, sem var þá búinn að vera edrú í rúmt ár. Ég veit ekki hvernig honum tókst að kom­ast heim til mín á einni sek­úndu. Við fórum eftir það dag­lega saman á alka­fundi þangað til ég fór í með­ferð.“

Sigurjón hefur verið edrú síðan

„Ég er breyskur og brot­hættur maður. Það verður að bera virð­ingu fyrir því að í mér er alkó­hólisti. Ég hef lært það. Ég nálg­ast hann með varúð. Stóra málið er að vera í bata og vera í sam­bandi við fólk sem er eins ástatt um.

Það kemur ekki til greina að snúa til baka. Þetta er annað líf og betra.“

Lífsviljinn er missterkur

Lífið er alls konar. Og áföllin gera ekki boð á undan sér.

Sigurjón lenti í mót­or­hjólaslysi fyrir nokkrum árum. „Það var 2015. Eða 2016. Ég man ekki hvort það var. Það var hel­vítis rass­gat. Ég datt niður í mal­bikið. Skall í mal­bik­inu, braut fimm rif­bein, annað lungað lagð­ist saman og annað herða­blaðið möl­brotn­aði og greri svo vit­laust saman. Það eru miklir áverkar sem fylgja þessu og ég næ aldrei bata. Ég er með skemmdar taugar sem fram­kalla mik­inn sárs­auka og stundum er ég bara mjög slæmur og get ekk­ert unnið. Ég hef stundum engan mátt í hægri hendi og alls ekki hægri hand­legg. Ég legg hend­ina stundum upp á lykla­borðið og stundum svara fing­urnir á hægri hendi ekki alltaf. Ég hlæ stundum að mér af því að allar áslátt­ar­vill­urnar eru hægra megin á lykla­borð­inu; hugs­unin nær ekki niður í fing­urna. Sam­bandið rofnar.“

Sigurjón M. Egilsson. „Mamma kom til dyra og þá voru komnir menn frá barna­varna­nefnd til að sækja mig. Það átti að senda mig á Breiðu­vík.“

Sigurjón segir að verkirnir séu það versta. „Þeir geta verið miklir. En svo er ég Pollý­anna í mér. Ég ólst upp við það að þegar maður kvart­aði þá sagði mamma að þeir sem ættu bágt ættu bág­ara en ég. Og það eru sumir sem eiga mikið bág­ara en ég svo sem þeir sem eru með krabba­mein eða hjarta­sjúk­dóma. Ég veit alveg hvað er að mér. Ég veit að það er ekki lækn­ing við því. Ég tek hins vegar eins lítið af verkja­lyfjum og ég get vegna þess að ég er alkó­hólisti.“

Sigurjón og eig­in­kona hans voru tvo vetur á Spáni en hann von­aði að verkirnir myndu minnka við að vera í hit­anum. Verkirnir voru til staðar en voru þó minni. Hann segir að næð­ingur fari verst með sig. „Fyrri vet­ur­inn var dásemd. Það voru stutt­buxur og stutt­erma­bolur í des­em­ber og jan­úar. Seinni vet­ur­inn var ekki eins góður. Ekki eins hlýr. Svo kom Covid og við komum heim fyrr en við ætl­uðum.“

Hann var stundum í golfi á Spáni og fer stundum í golf á Íslandi þrátt fyrir verk­ina og mátt­leysið í hægri hendi. „Ég næ stundum ekki að klára golf­hring­inn. Stundum spil­aði ég kannski þrjár til fjórar brautir. Stundum klára ég. Stundum kláraði ég vit­andi það að ég ætti að vera hættur en hélt áfram til að vera ekki eins og fýlu­poki. “

Verkirnir hafa áhrif á sál­ina.

„Af því að annað lungað lagð­ist saman þá var ég lagður inn á hjarta- og lungna­deild og þar var Tómas Guðjarts­son, þessi frá­bæri læknir, sem sagði að þetta hafi verið þungt högg fyrir lík­amann og líka sál­ina. Hann skor­aði á mig að fara til sál­fræð­ings sem ég gerði. Ég trúi öllu sem svona alvöru­fólk segir. Ég hafði ofboðs­lega gott af því að fara til sál­fræð­ings. Það var bara meiri­háttar. Ég get ekki sagt hvernig mér leið í upp­hafi fyrsta tím­ans. Mér leið svo illa and­lega. Mér líður ennþá stundum illa and­lega. Lífs­vilj­inn er mis­sterkur. Mér hefur aldrei komið til hugar að fremja sjálfs­morð. Ég get það ekk­ert. Það væri svo frekt. Ég gæti það ekki út af öllu fólk­inu mínu. Ég þarf samt oft að hvetja mig áfram. Ég finn svo oft til – og til hvers þá að vera að þessu? Væri ekki betra að fara? Maður þarf að hafa fyrir því að við­halda lífs­vilj­anum. Og þá fer maður að hugsa um barna­börnin.“

Sigurjón er í góðu sam­bandi við barna­börnin. „Ég er penna­vinur þeirra með auk­inni tækni. Bara með svona Messen­ger.“ Hann hlær. „Maður skrif­ast á á Messen­ger.“

Þá kviknaði eldur í einni sál

Sigurjón, sme, er orð­inn 67 ára. Löglegur eldri borg­ari. „Ég er svo sáttur við að eld­ast. Ég sé alveg breyt­ingar á útlit­inu. Ég er að verða sköll­óttur en mér er bara alveg sama um það. Þetta snýst ekk­ert um það. Mér líður bara vel í því sem ég er að gera.“

Þótt bæði lík­ami og sál séu stundum aum þá hugsar hann um heils­una. Hreyfir sig. Gengur.

Jú, hann gengur tvisvar á dag; það eru rit­stjór­ar­fund­irnir með rakk­anum Lopa. 

„Ég geng sjaldan undir um 10 kíló­metrum á dag,“ segir Sigurjón sem fór í maga­ermis­að­gerð fyrir nokkrum árum og létt­ist eftir það um tugi kílóa. Hann segir að það sé gaman að geta keypt föt sem honum líkar og svo er hann far­inn að vera veit­inga­húsa­fær; getur pantað létta fisk­rétti og klárað.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan 18 ára ung­lings­strákur fór vestur til að fara á sjó­inn og grét söltum tárum um borð. sme þykir hafa verið töffari í blaða­mennsk­unni. Í dag situr hann óklipptur og órak­aður heima hjá sér og skrifar um börn Fjalla-Eyvindar.

„Ég er kom­inn í frið­ar­höfn. Ég er búinn að leggja bátnum í frið­ar­höfn.“

Hann stendur upp. Fer fram á gang. Leitar að bók í bóka­hillu.

„Ég er að leita að bók sem mót­aði mig mikið í æsku. Þetta er bók með ljóðum eftir Stein Steinarr. Ljóð sem gjör­breytti lífi mínu eða fékk mig til að taka afstöðu í líf­inu. Steinn Steinarr minn, hvar ertu?·

Hann finnur bók­ina.

„Þetta er ljóð sem ég held mikið upp á sem er í ljóð­safni á blað­síðu 60. Nú ætla ég að lesa það.“

Og Sigurjón les:

Eldsvoði

Það kvikn­aði eldur á efstu hæð,

í einu húsi við Lauga­veg­inn.

Og því verður ekki með orðum lýst,

hvað allur sá lýður varð harmi sleg­inn.

Það tókst þó að slökkva þann slóttuga fant,

því slökkvi­liðið var öðru megin.

Og því verður ekki með orðum lýst,

hvað allur sá lýður varð glaður og feg­inn.

„Svo kemur seinni hlut­inn sem gjör­breytti ung­lingum og hafði mikil áhrif á mig.“

Og Sigurjón les áfram:

En seinna um dag­inn, á sömu hæð,

í sama húsi við Lauga­veg­inn,

þá kvikn­aði eldur í einni sál,

í einni sál, sem var glöð og fegin.

Og eng­inn bjargar og eng­inn veit,

og eng­inn maður er harmi sleg­inn,

þó brenni eldur með ógn og kvöl

í einu hjarta við Lauga­veg­inn.

„Þetta kvæði gjör­breytti hugsun minni. Það kvikn­aði eldur í húsi við Laugaveg og þá kom slökkvi­liðið og það berj­ast allir við að slökkva eld­inn. En þegar það kviknar eldur í sál þá kemur eng­inn. Það er það sem er. Þá bara brennur sálin.“

Það hefur án efa logað í sál Sig­ur­jóns. Oftar en einu sinni.

„Ég er alltaf að hugsa frekar um aðra heldur en mig sjálfan. Ég er ekki í neinni neyð núna.“

Hvað með vesen í skóla, drykkj­una, skiln­að­inn, slysið og and­ega van­líðan?

„Já, ég er ekk­ert ónot­aður maður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu