„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sögð kjörkuð að mála nakta kvenlíkama

Níu ára lenti hún í slysi og missti sjón á vinstra aug­anu. Hún lá á sjúkra­húsi í þrjá mán­uði og varð að liggja sem mest á bak­inu til að bjarga aug­anu. Þá kvikn­aði áhugi hennar á mynd­list­inni því ekki hafði hún mikið annað fyrir stafni en teikna og mála. Ólöf Jóna Guð­munds­dóttir er nú komin á full­orð­insár og er útsprung­inn mynd­list­ar­maður. 

Ólöf segir að árið 2007 hafi verið komið að því að skipta um starfs­vett­vang því mál­verkið kall­aði svo sterkt á hana. „Þá var ég  búin að vera í Mynd­list­ar­skóla Kópavogs í málun í tíu ár og varð ein­fald­lega að fara í mynd­list­ina. Ég fékk mér vinnu­stofu á Korp­úlfs­stöðum á vegum Sambands íslenskra mynd­list­ar­manna og byrj­aði bara að mála. Tekj­urnar hrundu en mikið var ég ham­ingju­söm! Ég hef síðan þá málað og málað og stundum eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn en mynd­irnar hafa hlotið góðar við­tökur. Ég hef selt þær í Gallerí Thors í Hafn­ar­firði, sem við rákum nokkrar konur, Gallerí List og síð­ustu fimm árin hef ég rekið Art­gall­ery101 ásamt 15 öðrum lista­konum við Laugaveg 44. Það var mik­ill upp­gangur hjá okkur þegar landið var opið ferða­mönnum en þá var 70% af söl­unni til þeirra. Við erum einnig með net­síð­una www.artgallery101.is þar sem við seljum líka.“

Hver eru þín helstu mótív í list­inni og hvað ertu að reyna að fanga?

„Ég er að reyna að fanga augn­blikið,“ segir Ólöf bros­andi og heldur áfram: „Einu sinni sagði karl­maður við mig að ég hlyti að vera mjög kjörkuð að mála bera konu­lík­ama. Ég veit ekki hvað var í hans huga en fyrir mér er konu­lík­am­inn fal­leg­asta formið í mynd­list­inni og slag­ur­inn við það gefur mér mesta kikkið. Oft eru bölv­aðar vit­leysur í mynd­unum mínum og það verður bara að hafa það, enda er ég eng­inn snill­ingur í konu­lík­am­anum.“

Aðspurð seg­ist Ólöf ekki vita hvers vegna konu­lík­am­inn sé svona sterkur í hennar huga. „Ef til vill er það vegna þess að ég vann svo lengi við að setja upp síður með fal­legum konum á Nýju Lífi eða þá að móð­ur­miss­ir­inn hafi haft þessi áhrif á mig, nú eða vegna þess að ég er kona! Ætli það sé ekki bara sam­bland af öllu þessu,“ segir hún meðal ann­ars í áhuga­verðu við­tali í nýj­ustu Vikunni, tryggðu þér ein­tak eða áskrift.

Myndir: Hákon Davíð Björnsson og úr einkasafni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

listamaður

Bandarískur rithöfundur kaupir Laugaból: „Margir draumar sem við viljum láta verða að veruleika“
Innlentlistamaður

Banda­rískur rit­höf­undur kaupir Laugaból: „Margir draumar sem við viljum láta verða að veru­leika“

Banda­ríski rit­höf­und­ur­inn Leslie Schwartz er búin að kaupa Laugaból í Arn­ar­firði. Leslie Schwartz, 61 árs banda­rískur rit­höf­undur og rit­lista­kenn­ari, hefur fest kaup á hinu glæsi­lega Lauga­bóli í Arn­ar­firði. Ætlun hennar er að opna þar gesta­vinnu­stofur fyrir lista­menn og rit­höf­unda. Leslie Schwartz Mannlíf ræddi við Leslie og spurði hana út í kaupin. „Við keyptum hið fal­lega Laugaból til að opna þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu