„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ógeðslegi karlinn á efri hæðinni

Ógeðslegi karlinn á efri hæðinni
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég var erf­iður ung­lingur. Milli okkar mömmu ríkti stríð sem lauk með því að hún rak mig að heiman. Fyrst á eftir reyndi ég að búa hjá pabba en fór fljót­lega að leigja. Leigusal­inn bjó á efri hæð­inni og fljót­lega komst ég að því að hann ætl­að­ist til að fá ýmis­legt fleira en pen­inga fyrir íbúð­ina.

Mamma og pabbi skildu þegar ég var tólf ára og ég kenndi henni alfarið um sam­bands­slitin, enda hafði hún haldið fram­hjá. Í kjöl­farið fluttum við milli hverfa og ég byrj­aði í nýjum skóla og var lögð í ein­elti. Allt þetta var að mínu mati sök mömmu og ég kom eins illa fram við hana og ég gat. Stjúppabba minn hataði ég og sýndi honum algjört til­lits­leysi. Iðulega tal­aði ég ekki við hann dögum og jafn­vel vikum saman og ef hann bað mig um eitt­hvað þver­neit­aði ég að gera það.

Mamma reyndi að fá mig með sér til sál­fræð­ings til að tala um skiln­að­inn og vinna úr þessum til­finn­ingum en ég vildi engan þátt taka í því. Sat bara þögul og fýld á stól þegar þær töl­uðu saman og sagði að mamma hefði hagað sér ömur­lega, karl­inn stjúp­faðir minn væri við­bjóður og ég hefði ekki meira um það að segja. Auðvitað fékk mamma ýmis ráð um hvernig best væri að koma fram við mig og reyna að stjórna ástand­inu. Stundum tókst henni að fara eftir því en þess á milli reidd­ist hún og öskr­aði á mig.

Ofbeldi og öskur

Nokkrum sinnum gekk það svo langt að hún lagði á mig hendur. Í eitt skipti sló hún mig utan­undir eftir að ég hafði kallað hana hóru og sagt að hún væri til­búin að leggj­ast með hverjum sem væri fyrst hún hefði valið stjúp­föður minn. Öðru sinni fleygði hún mér inn í her­bergið mitt og lok­aði mig þar inni. Ég skall utan í hurð­ar­staf­inn í atgang­inum og fékk kúlu á ennið. Þetta voru alvar­leg­ustu til­vikin en nokkrum sinnum tók hún fast í handl­legg­inn á mér og ýtti mér út úr her­berg­inu þar sem við vorum að ríf­ast. Þá hafði hún fengið alveg nóg og lok­aði sig af til að losna við mig. Ég stóð þá fyrir utan lok­aðar dyrnar og garg­aði á hana alls konar sví­virð­ingar.

„á þess­ari stundu leið mér hræði­lega. Mér fannst mamma mín hafa end­an­lega hafnað mér og sár­indi voru djúp­stæð og mikil.“

Nýlega sagði mamma mér að hún hefði alltaf haldið í von­ina um að þetta lag­að­ist og vegna þess að hún vildi ekki tala illa um pabba minn við mig vildi hún ekki tala um hvað hefði valdið því að hún tók saman við stjúpa minn. Systur mínar, yngri og eldri, tóku þessu mun betur og börn stjúpa míns líka. Þau bjuggu hjá mömmu sinni en komu af og til í heim­sókn. Bæði voru orðin það gömul að þau kærðu sig ekki um að dvelja hjá mömmu og pabba sínum. Ég gafst hins vegar ekki upp á reið­inni og veit ekki hvort það hefði ein­hverju breytt ef mamma hefði reynt að útskýra þetta betur fyrir mér. Eftir þrjú ár gafst mamma hins vegar upp.

Þá hafði varla liðið dagur án þess að eitt­hvert upp­þot yrði á heim­il­inu út af ein­hverju tengdu mér. Þess á milli gekk ég um fýld og þung­lynd og vildi ekki taka þátt í neinu. Hún hringdi í pabba og sagði að hann yrði að taka við mér. Svo pakk­aði hún niður föt­unum mínum og ein­hverju dóti og rak mig út í bíl til hans. Nú hefði ég kannski átt að vera him­in­lif­andi fegin að svona fór því allan þennan tíma hafði ég staðið á org­inu að ég vildi ekki búa þarna, vildi ekki vera hjá þeim, þau væru ógeðs­leg og þar fram­eftir göt­unum en á þess­ari stundu leið mér hræði­lega. Mér fannst mamma mín hafa end­an­lega hafnað mér og sár­indi voru djúp­stæð og mikil.

Pabbi ekki fullkominn

Ég fór heim með pabba sem hafði flutt í litla íbúð í gamla hverf­inu okkar og byrj­aði aftur í gamla skól­anum mínum. Þaðan lauk ég grunn­skóla­prófi og það var í sjálfu sér gott því ég gekk aftur inn í gamla bekk­inn minn og vina­hóp­inn þar. Mér leið vel innan um þau en sá fljótt að pabbi, sem ég hafði sett á stall, var ekki sá full­komni og dásam­legi maður sem ég hélt. Hann var ger­sam­lega óábyrgur í fjár­málum. Í byrjun mán­að­ar­ins voru til pen­ingar og þá var haldin veisla í nokkra daga. Pantaðar pizzur, keyptur matur af mat­sölu­stöðum og komið með heim, farið í bíó og keypt alls konar dót. Allir pen­ingar voru svo búnir upp úr miðjum mán­uði og þá lifðum við á hafra­grjónum eða öðru sem leynd­ist í skáp­unum.

Nokkrum sinnum reyndi ég að tala um þetta við pabba en hann vildi ekki hlusta, sagði bara að ég gæti farið til mömmu ef mér lík­aði ekki vistin hjá honum. Það gat ég ekki hugsað mér, fannst það rosa­lega nið­ur­læg­ing að skríða til hennar með skottið á milli lapp­anna. Margt lag­að­ist svo þegar mér tókst að fá vinnu í búð í hverf­inu á laug­ar­dögum. Ég vann svo í ung­linga­vinn­unni sum­arið áður en ég fór í mennta­skóla og þá sá ég um fyrir mitt litla kaup að alltaf væri til matur.

„Karlinn hafði kveikt á kertum og hellt rauð­víni í glös. Á borð­inu voru ostar og nú átti greini­lega að hafa það kósí.“

Pabbi drakk líka tals­vert og þótt ég hefði viljað kenna skiln­að­inum um vissi ég innst inni að helg­ar­fyll­er­íin voru ekk­ert nýtt mynstur. Mamma hafði bara leynt þeim eins mikið og hún gat og við urðum þess vegna ekki eins mikið varar við þau og ég varð þarna.

Misskilið stolt

Auðvitað sleit mamma ekki sam­bandi við mig þótt ég væri farin af heim­il­inu og hún bauð mér oft að koma til þeirra um helgar eða í skóla­fr­íum. Ég neit­aði alltaf að koma. Mér fannst að fyrst hún hefði rekið mig að heiman skyldi ég sann­ar­lega sýna henni að ég gæti staðið á eigin fótum og þyrfti ekki á henni eða karl­inum hennar að halda. En eftir tæp­lega tveggja ára vist hjá pabba gafst ég upp á honum. Ég fann litla íbúð í kjall­ara nágrenni við mennta­skól­ann minn og tók hana á leigu. Ég vann í lík­ams­rækt­ar­stöð á kvöldin og um helgar og gat þannig séð fyrir mér sjálf. Leigan var líka óvenju­lega lág og mér fannst ég hafa himin höndum tekið að hafa fengið hana. Karlinn sem átti hana bjó á efri hæð­inni og virk­aði ósköp vin­gjarn­legur.

Ég var ekki búin að búa þarna lengi þegar karl­inn kom niður að kvöldi til. Hann bauð mér upp til sín að horfa á sjón­varpið. Ég var alveg grun­laus og vildi koma vel fyrir svo ég sagði bara já og fór upp með honum. Þegar þangað kom rak mig í rogastans. Karlinn hafði kveikt á kertum og hellt rauð­víni í glös. Á borð­inu voru ostar og nú átti greini­lega að hafa það kósí. Hann bauð mér að setj­ast í sófann en ég sett­ist í stól. Hvað eftir annað klapp­aði hann á sætið við hlið­ina á sér og bað mig að færa mig til hans en ég neit­aði alltaf. Drakk nokkra sopa af víni, þakk­aði svo fyrir mig og fór niður.

Næstu daga sat hann um mig þegar ég var að koma inn, þvotta­hús­gang­ur­inn og aðgang­ur­inn að íbúð­inni minni voru sam­eig­in­leg og þar stóð hann. Vildi fá að heilsa mér með kossi og þrýsti sér að mér. Ég reyndi fyrst að vera kurt­eis og ýta honum frá mér en þegar það dugði ekki varð ég ákveðn­ari og harð­ari. Þá varð hann reiður og full­yrti að ég hefði átt að vita til hvers væri ætl­ast því leigan var svo lág. Ég til­kynnti þá að ég væri farin. Sama kvöld pakk­aði ég saman og flutti heim til ömmu. Hún gat hins vegar ekki haft mig nema tíma­bundið svo ég neydd­ist til að hringja í mömmu og spyrja hvort ég mætti koma aftur heim til þeirra. Mamma sagði að ég væri vel­komin svo lengi sem við gætum sæst og komið okkur saman.

Þetta varð til þess að við töl­uðum vel og ræki­lega saman. Mamma sagði mér að sam­band hennar og pabba hefði verið orðið mjög slæmt. Hann hélt fram­hjá henni á fyll­er­íum og í raun voru þau búin að ákveða að skilja þegar hún kynnt­ist stjúpa mínum. Hann gaf henni hins vegar hug­rekki til að taka stökkið og fara. Nú þegar ég hafði kynnst skugga­hliðum pabba af eigin raun var ég líka til­bún­ari til að sjá kosti manns­ins sem mamma hafði valið og hann reynd­ist ekki slæmur þegar upp var staðið. Í dag eru hann og mamma mínir bestu vinir og frá­bær amma og afi barns­ins míns.

Líf­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu