„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mohamad horfði ítrekað upp á dauðann ellefu ára: „Mamma grét á leiðinni til Selfoss“

Mohamad horfði ítrekað upp á dauðann ellefu ára: „Mamma grét á leiðinni til Selfoss“
Mohamad Moussa Al Hamoud. „Þegar ég var 11 ára þá fannst mér ég vera eins og tví­tugur. Ég sá dauða menn.“

Mohamad Moussa Al Hamoud er 19 ára Sýr­lend­ingur sem búið hefur hér á landi í nokkur ár. Á Selfossi. Hann kom hingað með stöðu kvótaflótta­manns með fjöl­skyldu sinni en þau fluttu svo úr landi eftir um eitt ár nema að Mohamed kom svo aftur. Hér vill hann búa. Hann talar hér meðal ann­ars um þær minn­ingar sem hann á um stríðið í heima­land­inu, tím­ann í Líbanon þar sem hann á barns­aldri fór að vinna á rak­ara­stofu, Ingó og Bubba, hrútspunga og draumana.

Hann er glað­legur. Og hann talar ótrú­lega góða íslensku miðað við að hafa búið hér á landi í örfá ár. Meira að segja fram­burð­ur­inn er ótrú­lega góður. Næstum því full­kom­inn.

Mohamad er sonur hjón­anna Yousra og Moussa. Hann er elstur í systk­ina­hópnum, en hann á eina systur og þrjá bræður, og fædd­ist í Aleppo í Sýrlandi. „Við áttum stórt hús í Aleppo og líka stórt land og hús í sveit­inni og einn frændi minn sá um það en við vorum alltaf í borg­inni. Pabbi og frændi minn unnu meðal ann­ars við að mála og tengja raf­magn í nýbyggðum húsum. Mamma var heima­vinn­andi,“ segir Mohamad og bætir við að hún sé frönsku­kenn­ari að mennt. „Ég var stundum að hjálpa pabba og frænda mínum alveg frá því ég var um 10 ára; þegar maður var í sum­ar­fríi í Sýrlandi þá varð maður að gera eitt­hvað. Það var ekk­ert í boði að vera heima og vera bara í ein­hverjum tölvu­leik. Það var bara harkan sex. Ég kann ýmis­legt sem ég gerði hjá þeim. Ég er ánægður með að kunna smá. Það er fullt af krökkum sem kunna ekki neitt og eru bara í tölvu­leikjum og gera ekki neitt.“

Hann seg­ist hafa verið mjög klár í skóla. „Í Sýrlandi getur maður fallið í 1. bekk, 2. bekk… Það er alvöru þar. Ég var smá óþekkur en ég var mjög dug­legur í skól­anum og gerði allt upp á 10. Draum­ur­inn var alltaf að verða læknir. Ég var ekk­ert að spá í að verða rak­ari. Ég hafði aldrei áhuga á því.“

Hvað með áhuga­málin í æsku? Jú, fót­bolti. „Ég var alltaf í fót­bolta í frí­mín­útum og eftir skóla. Ég er líka í fót­bolta á Selfossi og er mér búið að ganga þokka­lega. Ég er samt ekk­ert alveg ánægður en þetta kemur.“

Ég sá dauða menn

Svo skall stríðið á. Stríðið í Sýrlandi. Mohamed var þá 11 ára. Og lífið breytt­ist. Allt breyt­ist.

„Ég var 11 ára þegar skól­arnir lok­uðu og allt fór í steik út af stríð­inu.

Ég man alveg eftir því þegar stríðið braust út. Þetta var svo­lítið skrýtin til­finn­ing þegar skólar og allt lok­aði. Maður gat til dæmis ekki farið út úr hús­inu eftir klukkan sjö. Maður heyrði mikið af hljóðum. Pabbi gat ekki unnið lengur. Það var svo mikil hætta. Hann var mjög tæpur einu sinni að fá skot í haus­inn. Þetta var svo­lítið tæpt. Þetta var ekki gaman.

Ég man ann­ars ekki mikið eftir stríð­inu af því að við fórum svo snemma eftir að það byrj­aði. Ég fylgist voða­lega lítið með því núna. Ég nenni ekki að fylgj­ast með því af því að ég hef ekki einu sinni tíma fyrir það.“

Hann man eftir húsa­rústum – húsum sem sprengjur höfðu fallið á. „Þar sem afi og amma í ætt­inni hennar mömmu bjuggu var allt í steik. Það var verið að sprengja lög­reglu­stöð­ina; þeir voru mest þar. Það voru snæper – leyniskyttur – að fela sig. Þeir voru alltaf að leika sér að skjóta. Menn voru hræddir við að keyra fram hjá. Þetta var voða­lega erfitt. Þetta var mjög erfitt. Ég var smá hræddur en maður þroskast strax þegar maður fer í gegnum eitt­hvað svona. Þegar ég var 11 ára þá fannst mér ég vera eins og tví­tugur. Ég sá dauða menn.

Þetta var ógeðs­lega óþægi­leg til­finn­ing. Allir sem voru orð­inir 18 ára áttu að fara í her­inn og sumir dóu. For­eldrar sumra vita ekki einu sinni af þeim. Þetta er ekki gaman. Núna er Sýrland að reyna að koma sér aðeins í gang en þetta mun taka langan tíma.“

Blóð á götunni

Ætt­ingjar bjuggu í Líbanon og þangað fór fjöl­skyldan árið 2012 þegar Mohamed var 10 ára.

„Á leið­inni frá Aleppo sá ég blóð á göt­unni. Ég sá blóð en ég sá ekki mann­eskj­una sjálfa. Ég vissi að þetta væri dauður maður. Ég hugs­aði um það í smá­stund en svo bara þurfti ég að gleyma því. Það er ekki hægt að hugsa um þetta lengur. Maður á ekki að hugsa um það lengur. Maður getur ekki gert neitt í þessu.“

Fjöl­skyldan komst til Líbanon og bjó fyrst hjá fóð­ur­bróður Mohamed i Beirút áður en for­eldrar hans fundu hús í bæ nokkrum í um klukku­tíma akst­urs­fjar­lægð frá borg­inni.

„Mér fannst þetta mjög skrýtið. Mér fannst það ekki vera þægi­leg til­finn­ing að fara frá hús­inu sem ég ólst upp í og koma sér inn í nýja menn­ingu, nýtt land og nýtt umhverfi. Þetta var svo­lítið erfitt í byrjun. Við byrj­uðum frá núlli eig­in­lega. Ég var ekki byrj­aður að vinna eða neitt. Ég var bara 11 ára. Svo fóru mamma og pabbi að vinna og fengu smá pen­ing og við fengum líka hús og allt þetta. Þetta var smá erfitt. Ég gat ekki verið í fót­bolta mikið þar. Ég fór að venj­ast þessu og átti mikið af vinum. Maður var að reyna að koma sér í nýtt kerfi, nýtt umhverfi. Nýtt fólk. Þetta gekk mjög vel. Þetta var engin breyt­ing fyrir mig. Kannski fyrir mömmu og pabba – þau eru full­orðin. Alltaf þegar maður er að fara frá land­inu sínu þá er maður orð­inn útlend­ingur. Samt tölum við sama tungu­mál og Líbanir. Samt fann maður að maður var ekki frá þessum stað.“

Mohamed segir að fjöl­skyldan hafi ann­ars haft það mjög gott í Líbanon. „Við lifðum eins og Líbanir.“ Fjöl­skyldan var þar á skrá sem Sýr­lend­ingar sem höfðu flúið stríðið og fór pabbi hans að vinna við það sama og hann hafði gert í Aleppo.

Mohamed hætti í skóla þegar hann var 14 ára. „Ég gat ekki verið í skóla í Líbanon af því að það var svo ógeðs­lega dýrt fyrir mömmu og pabba. Mamma og pabbi höfðu ekki efni á því að ég væri í skóla. Það er dýr­ara eftir því sem krakkar eld­ast. Mamma og pabbi voru að borga fyrir eina systur mína 2000 doll­ara á ári. Þetta er eins og að borga milljón á ári fyrir einn nem­anda sem er til dæmis í 5. bekk.“

„Það er fólk sem hætti að koma á rak­ara­stof­una þegar það heyrði að ég ynni þar. Það hætti bara að koma. Ég er ekki með sprengjur. Ég var bara 15 ára, sko, þegar ég kom til Íslands.“

Ákveðið var að Mohamed færi til föð­ur­bróður síns í Beirút sem vinnur þar sem rakai. Hann hjálp­aði til á rak­ara­stof­unni í fyrstu – sóp­aði gólf og tók til. „Ég var alltaf með full­orðnum mönnum. Ég reyndi að haga mér eins og þeir. Með því að vera hjá frænda mínum þá þroskað­ist ég mikið við að vinna svona starf. Ég þurfti alltaf að vera í flottum fötum og hreinn. Alltaf fínn. Og líta vel út. Hann var svo­lítið harður við mig. Hann keypti föt handa mér. Hann var eig­in­lega eins og pabbi minn. Hann átti ekki konu. Hann er orð­inn 32 ára og ég er alltaf þakk­látur fyrir hann. Ég tala meira við hann í dag heldur en mömmu og pabba. Af því að hann kenndi mér það sem ég get lifað af. Hann er enn góður við mig og spyr mig alltaf hvort mig vanti pen­ing. Hann er alltaf til staðar.“

Mohamed segir að rak­ara­stofan hafi oft verið opin eftir mið­nætti og mestum tíma sínum varði hann þar. „Við fórum stundum að sofa klukkan þrjú um nótt­ina og opn­uðum dag­inn eftir klukkan 10. Ég byrj­aði þá að taka til og gera allt til­búið á stof­unni. Ég lét svo mömmu og pabba fá launin sem ég fékk. Ég þurfti ekki neitt. Frændi minn borg­aði allt fyrir mig; mat­inn, fötin og allt sem mig lang­aði í.“

Mohamed vinnur nú á rak­ara­stofu á Selfossi og ætlar að klára sveins­prófið. „Ég er að læra þetta núna í Fjöl­braut og á eitt ár eftir og svo fer ég í Tækni­skól­ann í Reykja­vík. Mér finnst vera mjög skrýtið að læra að klippa með því að lesa bækur; það er ekki hægt nema út af ein­hverju sjampó­dæmi og ein­hverri efna­fræði. Frændi minn leyfði mér að fara að klippa krakka þegar ég var búinn að vera hjá honum í um eitt ár. Það fór smá í steik fyrst. Svo próf­aði ég áfram og varð aðeins betri. Ég var 13 ára þegar ég byrj­aði að vinna sjálfur – að klippa heilan haus og skegg og gera þetta alveg upp á 10. Ég fékk eig­in­lega mjög góð laun eins og núna. Og maður þurfti ekki að klára neitt sveins­próf.“

Þau urðu sex í fjöl­skyld­unni í Líbanon þar sem yngta systkinið, drengur, fædd­ist þar.

Til Íslands

„Það var leið­in­leg til­finn­ing að vita af ástand­inu í Sýrlandi. Húsið okkar í Aleppo varð fyrir sprengju. Við vorum alls ekki ánægð. Okkur leið dálítið illa. En við hættum að spá í það. Við vorum ekki að spá í að búa í Líbanon lengur. Planið var alltaf að fara heim eftir stríðið. Við vorum ekki að spá í að fara til útlanda „í gegnum sjó­inn“ til Evrópu,“ segir Mohamed og á þar við hæl­is­leit­endur sem velja að fara sjó­leið­ina á litlum bátum. „Svo hætti ég að spá í Sýrlandi. Mér leið bara illa. Maður þurfti að halda áfram og gera eitt­hvað.

Við vorum skráð hjá UNICEF af því að það þurftu allir að skrá sig. Og mamma og pabbi fengu barna­bætur hjá þeim af því að þau áttu svo stóra fjöl­skyldu. Við fengum smá pen­ing.“

Svo var hringt í for­eldra hans.

„Okkur var fyrst boðið að fara til Ameríku. Ég held það hafi verið 2015. Mamma og pabbi sögðu að við hefðum það mjög gott og að við værum ekk­ert að spá í þetta. Við vorum alls ekki að spá í að fara til útlanda. Það var nóg fyrir okkur að fara frá Sýrlandi. Svo var hringt í okkur frá Íslandi og mamma og pabbi sögðu „nei, við erum ekk­ert að spá í þetta“. Við gátum verið áfram í Líbanon; okkur var boðið til Íslands. Það var hringt frá Íslandi, fatt­arðu. Svo var hringt í þriðja skipti og pabbi sagði að þau ætl­uðu aðeins að hugsa þetta og sagði að þau myndu hringja þegar þau væru til­búin. Svo ákváðu mamma og pabbi að breyta til og gera eitt­hvað nýtt og þau vildu prófa en það end­aði svo­lítið illa. Það var voða­lega gott að vera í Líbanon og ég vildi aldrei fara og koma hingað. Ég er mann­eskja sem finnst ekki gaman að ferð­ast mikið. Mig langar ekki mikið að ferð­ast á milli. Maður er búinn að byggja upp en svo er alltaf farið frá þeim stað; það er svo­lítið erfitt. Ég var búinn að vera að vinna og eign­ast mikið af vinum og allt þetta. Ér réð ekki neinu. Ég fór frá Líbanon þegar ég var 15 ára en mamma og pabbi ákváðu svo að fara til Íslands. Núna er ég hérna. Mamma og pabbi vildu gera eitt­hvað nýtt. Það var ekk­ert annað. Við þurftum ekki á því að halda.“

Mohamed seg­ist ekk­ert hafa vitað um Ísland áður en boðið kom. Það var gúgglað til að kynn­ast land­inu. Landi og þjóð. „Við horfðum á myndir. En þegar myndir eru gúgglaðar þá kemur það flottasta. Sólskin og gott veður.“ Svo var lent í Keflavík í sept­em­ber árið 2017. „Mamma grét á leið­inni til Selfoss. Hún sá bara hraun og ekk­ert var eins og hún var vön. Það var ekki akkúrat veðrið. Ekki ferða­veður. Mamma er stundum eins og 15 ára stelpa. Ég var næstum því far­inn að gráta líka.

Í byrjun vorum við aðeins að reyna að venj­ast. Þetta var skrýtið fyrir pabba. Það var allt eins. Maður vakn­aði og gerði ekki neitt. Við áttum ekki bíl eða neitt. Við vorum að reyna að byggja okkur upp. Fyrst var þetta smá erfitt fyrir mig. Ég hélt ég myndi eiga erfitt með að eign­ast vini. En þetta er búið að ganga ótrú­lega vel. Núna er ég ekk­ert að spá í þetta. Ég á fullt af vinum.

Ég fór í skóla, 9. bekk, og byrj­aði að læra íslensku. Ég hugs­aði að ef ég ætla að vera hérna þá verð ég að læra tungu­málið og ef ég ætla að vinna þá verð ég að læra tungu­málið og ná þessu alveg 100%. Ég byrj­aði að læra íslensku og horfði á mynd­bönd og fór á æfingar og hlust­aði á hvernig þjálf­ar­inn talar og hreim­inn. Það segja flestir við mig að ég sé ekki með hreim,“ segir Muhamed en hann hefur ótrú­lega gott vald á íslensk­unni eins og þegar hefur komið fram.

Mohamed fór að vinna á Rak­ara­stofu Björns og Kjartans á Selfossi þegar hann var 16 ára og er þar núna nemi. Kjartan og Ingunn, kona hans, tóku síðar Mohamed í fóstur og er hann núna einn af fjöl­skyld­unni.

Mér leist ekkert á þetta

For­eldrum Mohamed leið ekki vel á Íslandi og eftir um eitt ár ákváðu þeir „að fara og gera eitt­hvað annað“. „Þau höfðu ekk­ert unnið hérna og fengu fjár­hags­lega aðstoð frá hinu opin­bera sem kvótaflótta­menn. Og ég fór með þeim til Ham­borgar í Þýska­landi. Mér leist ekk­ert á þetta. Ég var kom­inn í fót­bolta hér og var í vinnu og skóla. Ég var kom­inn á fyrstu önn í fjöl­braut; ég tók fyrstu önn hér og svo fór ég.

Ég var í Þýska­landi í hálft ár. Frænka mín býr þar. Við vorum hjá henni. Ég fór ekki mikið út úr húsi. Maður þekkti ekki neitt. Ég var eig­in­lega alltaf heima. Þetta var erfitt tungu­mál, þýska.

Kjartan var alltaf í sam­bandi við mig; hann vildi fá mig aftur til að vinna hjá sér. Ég tal­aði við mömmu og pabba og sagði að ég vildi hugsa um sjálfan mig út af því að þau voru ekki alveg viss hvað þau vildu gera. Mamma og pabbi vilja alltaf breyta til og það leist mér aldrei á. Ég vissi að ég ætti flotta fram­tíð og gæti unnið við þetta starf hvar sem er. Þegar ég ákveð að gera eitt­hvað þá geri ég það og ég vil vera betri en hinir. Það var planið að koma hingað. Ég vildi fara að vinna aftur og hitta vini mína og allt þetta.

Ég ákvað að fara aftur til Íslands og ég kom aftur einn í júní 2019. Ég er búinn að vera hjá Kjartani og Ingunni núna í næstum því tvö ár eig­in­lega. Þau eru núna eig­in­lega eins og mamma og pabbi. Þetta er mjög gott fólk. Mamma og pabbi Kjartans eru eins og amma og afi minn og ég kalla þau ömmu og afa. Ég á ekki afa en ég á tvær ömmur en ég hef svo lítið sam­band við þær. Þannig að mér líst mjög vel á þetta.“

For­eldrar Mohamed fóru svo frá Þýska­landi og búa núna í Tyrk­landi þar sem þau vinna. „Ég veit ekki hvað þau ætla að gera. Ég tala svo sjaldan við þau. Ég bara hef ekki tíma. Það er svo ógeðs­lega mikið að gera hjá mér í skól­anum, á fót­bolta­æf­ingum og í vinn­unni.“

„Við vorum alls ekki að spá í að fara til útlanda. Það var nóg fyrir okkur að fara frá Sýrlandi. Svo var hringt í okkur frá Íslandi og mamma og pabbi sögðu „nei, við erum ekk­ert að spá í þetta“.

Borðar ekki hrútspunga

Það er aug­ljóst að Mohamed líður vel. Hann virkar ham­ingju­samur.

„Mér líður miklu betur en áður. Ég hef eign­ast allt sem mig langar og ég er búinn að vera að læra og vinna. Ég kaupi allt með eigin pen­ingum.“

Honum þykir vænt um Ísland. Sér­stak­lega Selfoss. Og honum þykir vænt um nýju fjöl­skyld­una sína. Íslensku fjöl­skyld­una.

„Kjartan og Ingunn eru svo gott fólk. Mér þykir vænt um þau. Ég bý í bíl­skúrnum þeirra en ég bjó í eitt ár í hús­inu hjá þeim.“

Íslensku­kunn­áttan ber á góma. Mohamed segir að sumum finn­ist vera skrýtið hvað hann hafi náð góðum tökum á tungu­mál­inu eftir svona stuttan tíma. „Ég ákvað að verða betri en allir hinir. Ég ætla að rústa þessu.“ Hann brosir. „Í íþróttum er maður alltaf með mark­mið; þú verður að ná mark­miði. Og mark­miðið er að vera betri en allir hinir. Fattarðu? Ég ætla bara að reyna eins langt og ég get.“

Hann seg­ist ekk­ert vera að spá í Sýrlandi eins og þegar hefur komið fram. Segist ekki nenna því lengur. „Fólk reynir að spyrja um Sýrland en ég reyni að losa mig undan því. Ég nenni ekki að tala um það. Það er fólk sem veit ekki neitt um þetta en vill spá og vita. Ég reyni bara strax að snúa mér út úr.“ Hann kímir. Og tala um eitt­hvað annað? „Já.“

Sýrlensk menn­ing er ólík þeirri íslensku. „Þú veist að ég er múslími. Ég er ennþá að biðja og geri allt sem á að gera. Ég á að biðja fimm sinnum á dag en ég get ekki gert það svo oft. Þegar ég er búinn í vinn­unni fer ég heim, fer í sturtu, hreinsa mig og geri allt fínt. Þá fer ég að biðja og lesa ein­hverja bók sem ég á að lesa. Mér líður ógeðs­lega vel eftir það. Ég fer svo að biðja og geri það sem á að gera. Það er skylda að gera það. Það halda sumir að þetta sé strangt,“ segir hann og á við Íslam. „Þetta er alls ekki þannig. Sumir þurfa að læra meira um trú­ar­brögð. Þetta er ekki flókið; maður á ekki að ljúga, maður á ekki að stela og maður á að gera allt upp á 10. Annars fer allt í steik hjá manni.“

Hann tal­aði um „ein­hverja bók“ og á þar auð­vitað við Kóraninn.

„Hefur þú lesið þá bók?“ spyr hann.

Blaða­maður segir svo ekki vera.

„Ég var að klára 450 blað­síður af þess­ari bók.“

Hann stendur upp og nær í Kóraninn.

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég les bók­ina alveg. Mér leið svo vel á eftir. Kóraninn er eld­gömul bók. Sumir þurfa að lesa þessa bók og átta sig á af hverju við erum múslímar. En ég má ekki tala um eitt­hvað sem ég veit ekki. Ég má ekki tala um það af því að ég veit ekk­ert hvernig á að útskýra fyrir fólki af því að ég kann ekki einu sinni að útskýra það á mínu tungu­máli af því að ég er ekki búinn að læra það. Þetta er alveg nám. Þetta er 10 ára nám held ég til að útskýra það. Það má ekki bara útskýra eitt­hvað bull. Það er alger­lega bannað.“

Mohamed er spurður hvort hann hafi orðið fyrir for­dómum á Íslandi vegna trúar sinnar. „Það er fólk sem hætti að koma á rak­ara­stof­una þegar það heyrði að ég ynni þar. Það hætti bara að koma. Ég er ekki með sprengjur. Ég var bara 15 ára, sko, þegar ég kom til Íslands. Ég er ekki að segja að það séu bara Íslend­ingar sem séu svona. Þetta er út um allan heim. Þetta er fólk sem heldur að það sé klár­ara. Það er alls ekki klárt. Það hefur ekki lært um neitt. Það hefur ekki áttað sig á því hvernig trúin er eða af hverju við erum múslímar. Það heldur að múslímar séu að sprengja eins og sýnt er í sjón­varp­inu. Hvað heitir þetta?“

ISIS.

„Já, það er ekki Íslam,“ segir hann með áherslu. „Ég verð bara að segja það. Pabbi átti kristna vini í Sýrlandi og ég fatt­aði fyrir tveimur árum að þeir væru krist­innar trúar. Við vorum aldrei svona. Við spáðum aldrei í svona í Sýrlandi. Það var ekki svo­leiðis. Það voru allir saman í kirkj­unni og allir saman í mosk­unni. Það var ekk­ert verið að spá í eitt­hvað svona. Við hugsum aldrei um for­dóma. Við hugsum um að við séum öll ein fjöl­skylda. Ekkert annað. Það þarf að læra svona.“

Kynna sér hlut­ina.

Hann talar um hátíðir múslíma og seg­ist fara í mosku í Reykja­vík eftir Ramadan. „Það er smá­há­tíð. Annars þegar maður býr í ein­hverju landi á maður að gera það sem fólk þar gerir og taka þátt. Núna tek ég þátt í þessu öllu saman,“ segir hann um íslenskar hátíðir. „Ég verð ekki að gera það en mér finnst gaman að vera með. Það væri ein­hvern veg­inn leið­in­legt ef ég væri ekki með, sér­stak­lega þegar ég bý hjá íslenskri fjöl­skyldu sem er að verða fjöl­skyldan mín. Konu­dagur, páskar og þorra­blót. Ég var á þorra­blóti í fyrra. Þetta var svo­lítið skrýtið. Ég var yngstur þarna. Ég dans­aði við fullt af konum 50+. Og ég kann ekk­ert að dansa.“ Hann kímir. „Ég fékk mér hrútspunga. Það fannst mér ógeðs­legt. Ég verð að segja það. Þetta var eins og plast. Ég fann ekk­ert bragð af þessu. Kjartan plat­aði mig til að fá mér og ég ætla aldrei að fá mér aftur hrútspunga. Hann ætl­aði líka að plata mig til að fá mér hákarl en ég sagði nei takk. Lyktin af þessu er ekki í lagi. Ég fékk mér bara einu sinni. Og ég ætla aldrei að gera það aftur.“

Hann borðar hangi­kjöt „Mér finnst það mjög gott með hvítu sós­unni,“ segir hann og á við upp­stúf. „Ég fæ mér hangi­kjöt á annan í jólum.“

Mohamed seg­ist borða allan íslenskan mat nema hrútspunga.

Hann er spurður hvort hann borði stundum arab­ískan mat. „Ég fékk arab­ískan mat hjá fjöl­skyldu á Íslandi og fékk í mag­ann. Maginn er búinn að venja sig á ákveðið matar­æði.“ Það er íslenskur matur.

Tónlist berst í tal. Íslensk tón­list. „Ég hef mjög gaman af Gumma Tóta og Ingó. Mér finnst gaman að hlusta á Bubba Morthens, Helga Björns og alla þessa menn. Toppmenn. Ég nenni ekki að hlusta á íslenskt rapp. Mér finnst það alveg glatað. Ég verð að segja það.“

Sýr­lend­ing­ur­inn Mohamed sem elskar Ísland og sér­stak­lega Selfoss veit hvað hann vill.

„Ég ætla að vinna og kaupa mér hús hérna á Selfossi. Í mið­bænum. Í nýja mið­bænum. Vonandi ein­hvern tím­ann.“

Tíminn líður og það stytt­ist í að Muhamed þurfi að mæta á fót­bolta­æf­ingu í Hvera­gerði.

Við kveðj­umst en fyrst er honum þó sagt að hann fái við­talið til yfir­lestrar svo allt verði á hreinu þegar það svo birt­ist.

„Það væri geggjað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu