„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rúrik lítur á sexí sem hrós: „Ef ég fer að sýna stjörnustæla þarf einhver að pikka í öxlina á mér”

Rúrik lítur á sexí sem hrós: „Ef ég fer að sýna stjörnustæla þarf einhver að pikka í öxlina á mér”

„Ég er eng­inn dans­ari í grunn­inn, var alveg týndur í þessum heimi. Tók reyndar skildu­önn í skóla þar sem grunn­skrefin voru kennd. En það það var eins og danskan, allt gleymt við útskrift,“ segir Rúrik Gíslason, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, fyr­ir­sæta og nú kepp­andi í hinum gríð­ar­lega vin­sæla sjón­varps­þætti „Let’s dance” í Þýska­landi.

Þátt­ur­inn er byggður upp á afar vin­sælum, breskum sjón­varps­þætti, þar sem atvinnu­dans­arar eiga að kenna þekktu fólki að dansa sem síðan eiga að keppa viku­lega. Rúrik hefur fengið mikið lof fyrir dans­færni sína.

Kynþokkafyllsti knattspyrnumaðurinn

„Þetta er bara afleið­ing mik­illar vinnu. Að baki 90 sek­úndna broti af dansi eru 60 klukku­tímar af stans­lausum æfingum frá morgni til kvölds. Ég fæ frí á laug­ar­dögum og þá er ég yfir­leitt í mynda­tökum,” segir Rúrik, nýkom­inn af dansæf­ingu. „Við erum að æfa frekar erf­iðan dans sem kannski liggur ekki eins vel fyrir mér og fyrri dansar, en þetta kemur með æfing­unni.“

Rúrik stimpl­aði sig ræki­lega inn þegar hann spil­aði með lands­lið­inu gegn Argent­ínu á heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu árið 2018. Og ekki ein­göngu vegna færni hans með knött­inn heldur flykkt­ist kven­fólk að skjánum og fljótt flaug um inter­netið að hér væri um að ræða kyn­þokka­fyllsta knatt­spyrnu­mann heims. Á tveimur dögum fóru fylg­is­menn hans á Instagram hans úr 30.000 og í 330.000. Enginn var meira hissa en Rúrik.

Rúrik sló í gegn á vell­inum.

Rúrik dró sig í hlé frá knatt­spyrnu í fyrra, aðeins 32 ára að aldri, en hefur haft meira en nóg að gera.

Rússinn keyrir mig áfram

Hann er búinn að slá í gegn sem knatt­spyrnu­maður og fyr­ir­sæta. Nú er hann að slá í gegn sem dans­ari. Hvernig kom það til?

„Ég fékk til­boð um að koma í þátt­inn í fyrra en þá var ég í kafi í bolt­anum svo ég afþakk­aði. Þegar ég hætti því komst ég að því að til­boðið var enn á borð­inu. Og ég ákvað bara að skella mér. Ég bjóst við að þetta yrði erfitt og gaman en þetta er ennþá erf­ið­ara og ennþá meira gaman en ég hefði nokkurn tíma ímyndað mér. Eins og í öllu öðru verður maður að leggja sig allan fram til að gera vel og hafa gaman að hlut­unum.“

Rúrik æfir dans frá 8:30 á morgn­ana og stundum til kl. 20 á kvöldin. Og þá er eins gott að hann sé í því góða formi sem hann er. „Þetta er mega­mikil vinna og Rússinn minn keyrir mig áfram. Ég læri sífellt meira í hverri viku af henni.” Þar er hann að visa til dans­fé­laga síns, Renata Lusin. „Hún er ótrú­lega fær dans­ari og okkur kemur vel saman. Hún segir, sem betur fer, mig mjög þægi­legan í sam­vinnu enda hef ég fullan skiln­ing á því að hún er fag­mað­ur­inn og ég læt hana um stjórn­ina. Okkur kemur afar vel saman og ég er mjög þakk­látur að fá tæki­færi til að vinna með svona reyndum dans­ara og kenn­ara.“

Rúrik ásmt dans­fé­laga sínum, Renata.

Rúrik er ótrú­lega jarð­bund­inn og rólegur yfir allri þeirri athygli sem hann hefur hlotið. Honum finnst fyndið að vera spurður um stjörnustimp­il­inn. „Ef ég fer að sýna stjörnu­stæla þarf ein­hver að pikka í öxl­ina á mér.”

Gaman að stuða fólk

Að sögn Rúriks höfðu sumir efa­semd­arraddir um þátt­töku hans í danskeppn­inni. „Kannski varð það frekar til þess að ég tók þátt. „Ég vil ekki festa mig, heldur víkka sjón­deild­ar­hring­inn, læra og gera nýja hluti. Kynnast nýju fólki sem er að gera öðru­vísi hluti en ég er vanur. Það er einmitt það sem er svo gaman við að taka þátt í danskeppn­inni, ég að hitta fólk fólk með ólíkan bak­grunn, alls staðar að úr heim­inum. Það er ómet­an­leg reynsla.

Mér leið­ist þegar fólk setur sjálft sig og aðra í kassa. Það er dálítið gaman að stuða fólk og gera eitt­hvað óvenju­legt og nýtt eða kjána­legt, eitt­hvað sem gæti hugs­an­lega veitt fyll­ingu í líf­inu. Það er hvatn­ing að vera smá rebel. Skoðanir ann­arra eiga aldrei að setja bremsu á líf manns.“

Rúrik er að slá í gegn í dans­inum.

Rúrik segir það óþarfi fyrir fólk að hafa skoðun á öllu. „Stundum spyr ég sjálfan mig af hverju ég hafi skoðun á ein­hverju sem kemur mér ekk­ert við. Það sem skiptir mig máli er að fólkið mitt, fólkið sem skiptir mig veru­lega máli, sýni stuðn­ing og jákvæðni. Og þau gera það.“

Rúrik hlaut ein­róma lof fyrir síð­asta þátt þar sem hann og Renata dönsu jive. Það má sjá hér

Engin rómantík

Breska útgáfan af þátt­unum hefur fengið orð á sig fyrir sam­bands­slit enda hefur það gerst oftar en einu sinni að kenn­arar og nem­endur hafi tekið saman. Það er mikil nánd að dansa við aðra mann­eskju 60 klukku­tíma á viku. Hvað segir Rúrik um það? Honum finnst það fyndið. „Ég hef heyrt af þessu en ég er ákaf­lega vel staddur í þeim efnum og Renata líka. Maðurinn hennar er reyndar innan keppn­innar og hefur gefið okkur góð ráð allt í gegnum ferlið. Hann gefur heldur ekk­ert eftir og er góður gagn­rýn­andi.“

Kærasta Rúriks er brasil­íska fyr­ir­sætan Nathalia Soliani. „Hún er ynd­is­leg stelpa, bæði góð og fal­leg.” Hann segir þau vera orðin því vön að vera í fjar­sam­bandi. „Vinna okkar beggja kallar á mikil ferða­lög. Hún getur því miður ekki komið til mín þar sem ég hef ekki fasta búsetu í Þýska­landi. En við erum alltaf í sam­bandi.“

Rúrik ásamt kær­ustu sinni, Nathalia.

Fullbókaður í fyrirsætustörf

Á milli dansæf­inga er Rúrik full­bók­aður í fyr­ir­sætu­störf. ,,Ég hef mjög gaman af því. Ég er með samn­ing við nokkur merki en er mjög pikkí á fyrir hvaða merki ég vinn. Ég kýs að vinna með merkjum sem eru flott og trú­verðug og ýta undir mitt brand. Til dæmis hefur sam­starf mitt með 66 gráður Norður staðið yfir í mörg ár og verið skemmti­legt og spenn­andi. Ég er afar þakk­látur fyrir að vera í þeirri stöðu að fá mikið af fyr­ir­spurnum og til­boðum og geta valið og hafnað.“

Rúrik er eft­ir­sótt fyr­ir­sæta.

Þegar minnst er á Rúrik kemur orðið sexí oft fyrir. Ein leit á Google sannar það. Hvernig er að heyra það sífellt að maður sér sexí? Rúrik hlær að því. „Ég er oft spurður að þessu. Hvort það geri lítið úr mér sem ein­stak­ling. Ég lít ekki svo á, ég lít bara á það sem hrós. Það sem ger­ist líka þegar fólk kynn­ist mér er að það upp­götvar að ég er frekar tjilll­aður og rólegur gæi sem reyni að sigla lygnan sjó. Ísland gerði mig jarð­bund­inn. Við erum fámenn þjóð þar sem allir stælar eru illa séðir. Ég er stoltur af hvernig aðrar Evr­ópu­þjóðir líta á Íslend­inga. Við erum hel­víti flott þjóð með flottar hugs­anir og gildi.“

Rúrik segir það erfitt að vera stöðugt spurður um sjálfan sig. „Stjórn­mála­maður ræðir póli­tík, ég er alltaf spurður um sjálfan mig. Hvernig er enda­laust hægt að tala um sjálfan sig? Það er auð­velt að klúðra því.“

Nú hefur Rúrik hlotið ein­róma lof fyrir dans­færni sína. Heldur hann að þau Renata geti unnið keppn­ina? „Það væri skrítið að spá sjálfum sér sigri. En mér finnst æðis­lega gaman og vil svo gjarnan vera í þætt­inum eins lengi og ég get,” segir Rúnar Gíslason, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður, fyr­ir­sæta og dans­ari. Og fer að hvíla sig, enda æfing snemma í fyrra­málið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu