„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Á páskadagsmorgni reis ég upp frá dauðum“

„Á páskadagsmorgni reis ég upp frá dauðum“
Davíð Þór Jónsson Mynd: Reynisson

Davíð Þór Jónsson, prestur í Laug­ar­nes­kirkju, talar hér um pásk­ana, prests­starfið, ein­eltið, alkó­hól­is­mann, grínið, Bleikt og blátt, ást­ina og það hvernig trúin getur breytt mönnum. Hann talar líka um páskaunga í ýmsum litum.

Mið­viku­dags­kvöld fyrir páska. Klukkan rúm­lega níu. Andlit Davíðs Þórs Jóns­sonar, prests í Laug­ar­nes­kirkju, birt­ist á skjánum. Dökkgrár veggur fyrir aftan hann.

„Ég gleymdi að við vorum víst búin að lofa bíó­kvöldi og ís af því að það væri komið páska­frí en þetta er allt í lagi. Ég fékk að hafa mig afsak­aðan og fara afsíðis.“

Eig­in­kona hans, Þórunn Gréta Sig­urð­ar­dóttir tón­skáld, og börn þeirra, þriggja og fimm ára, horfa á bíó­mynd­ina og borða ís án fjöl­skyldu­föð­ur­ins.

Davíð Þór hafði fyrr um dag­inn messað. Það er útvarps­messa sem var svo flutt á Rás 1 á skír­dag sem bar upp á 1. apríl og sem hægt er að hlusta á og lesa á síðu kirkj­unnar. „Kulnun Júdasar.“ Þar segir meðal ann­ars:

En spurn­ingin er aftur á móti full­gild: Ef Jesús þurfti að deyja á krossi til að geta risið upp í mætti og dýrð til að frelsa okkur … var þá Júdas ekki að vinna gott verk? Var hann ekki hand­bendi Guðs í fram­gangi hjálp­ræð­is­verks­ins?

Svarið er nei.

Sagan um Rauð­hettu hefði varla verið í frá­sögur fær­andi ef eng­inn úlfur hefði verið í skóg­inum – en það gerir úlfinn samt ekki að góða gæj­anum í sög­unni.

Sömu­leiðis er áreið­an­legt að í Hogwarts hefði verið dauf­leg vist fyrir Harry Potter og félaga ef Volde­mort hefði hvergi verið á sveimi, en samt er auð­vitað frá­leitt að ætla að gera úr „honum sem ekki má nefna“ eitt­hvað annað en rakið ill­menni.

Júdas brást.

Júdas sveik Jesú.

Hann var ekki með í ráðum um neitt, hann vissi ekki betur en að hann væri að fram­selja vin sinn til dauða – fyrir pen­inga.

Fyr­ir­bærið upp­risa
Við tölum um pásk­ana.

„Það er talað um að pásk­arnir séu stærsta hátíð krist­in­dóms­ins en þeir hafa nátt­úr­lega vikið fyrir jól­unum og það er engum vafa und­ir­orpið að jólin eru nátt­úr­lega stærsta hátíðin núna en pásk­arnir nátt­úr­lega snú­ast um upp­ris­una. Um sigur lífs­ins á dauð­anum. Og það er engin til­viljun að pásk­arnir eru á þeim árs­tíma þegar þeir eru alveg eins og jólin. Við höfum alltaf haldið þessar stóru hátíðir miðað við vetr­ar­sól­stöður og sum­ar­sól­stöður og svo jafn­vægur að vori og jafn­dægur að hausti. Á vetr­ar­sól­stöðum fögnum við sigri lífs­ins á dauð­anum – að ljósið kemur í heim­inn aftur. Og á vor­jafn­dægrum er byrjað að vora og lífið er byrjað að spretta upp úr jörð­inni og það kall­ast nátt­úr­lega á við upp­risu Jesú Krists og hvernig hann reis upp af gröf sinni eins og gróður jarðar rís upp úr mold­inni.“

Sr. Davíð Þór Jónsson segir að þegar hann hefur verið að predika á páskum þá leggi hann út frá upp­ris­unni og hvað það er mik­il­vægt að trúa á upp­risu.

„Þá meina ég ekki endi­lega sem ein­hvern sögu­legan, ein­angr­aðan atburð fyrir 2000 árum heldur fyr­ir­bærið upp­risu af því að ann­ars er ekk­ert til neins. Allt væri unnið fyrir gýg – við verðum að trúa því að dauð­inn hafi ekki loka­orðið. Dauðinn sé ekki loka­svarið. Og ég vil líka nefna upp­risu manns­ins til mann­legrar reisnar og sæm­andi lífs. Að hann hætti að skríða í duft­inu og láti traðka á sér en rísi upp og beri höf­uðið hátt eins og guðs­börnum sæmir.“

Terminator-myndir

Davíð Þór er spurður hvaða máli pásk­arnir skipti fyrir hann per­sónu­lega.

„Ég ólst ekki upp við mikla trú eða kirkju­rækni. Þegar ég var ung­lingur fannst mér föstu­dag­ur­inn langi vera ömur­leg­asti og leið­in­leg­asti dagur í heimi. Það mátti ekki nokkurn skap­aðan hlut. Fólk átti bara að vera heima og láta sér leið­ast þennan dag. Það var varla hægt að hitta vini sína. Það var nátt­úr­lega páska­frí og það mátti ekk­ert.

Fyrir mér eru pásk­arnir ann­ars tími með fjöl­skyld­unni; eða voru það þangað til ég vígð­ist sem prestur og þetta varð anna­tími hjá mér. Þeir þýddu páska­frí, maður bauð fólki í mat og gat svona aðeins slakað á á þessum tíma sem er nokkurn veg­inn mitt á milli jóla­frís og sum­ar­frís. Maður fékk eina viku til að aðeins hvíla lúin bein og hlaða batt­er­íin.

Þórólfur útveg­aði mér ágætis páska­frí

Þegar ég varð síðan prestur ákvað ég að reyna að hug­leiða kross­fest­ing­una og kross­dauð­ann öðru­vísi þannig að ég var einu sinni með Term­inator-mara­þon í Laug­ar­nes­kirkju þar sem við vorum að skoða hvernig kross­fórn­ar­þemað er notað í Term­inator-mynd­unum og í raun og veru Mess­í­asar­þemað sem slíkt. Ég sýndi fyrstu Term­inator mynd­ina, Judgement Day, og Salvation. Jafnvel heiti mynd­anna er sótt í trú­ararf­inn. Það supu nú ein­hverjir hveljur yfir því.“

Núna verður engin messa fyrir utan fyrr­nefnda útvarps­messu: Kulnun Júdasar.

„Þórólfur útveg­aði mér ágætis páska­frí og við urðum að hætta við allt sem við vorum að gera. Allt nema útvarps­mess­una. Við erum með kyrrð­ar­kvöld á mánu­dags­kvöldum þar sem við treystum okkur til að virða fjölda­tak­mark­anir og fjar­lægð­ar­mörk en að öðru leyti urðum við að loka sjopp­unni og fresta ferm­ingum. Það var reyndar sjálf­hætt vegna þess að öll ferm­ing­ar­börnin í sókn­inni, 44 að tölu, fóru nýlega í sótt­kví. Þannig að Laug­ar­nesið virð­ist vera í ein­hverjum brennid­epli þess­arar fjórðu Covid-bylgju.“

Term­inator-myndir. Davíð Þór er spurður hvort hann sé óhefð­bund­inn prestur.

Séra Davíð Þór var drykkju­maður sem hætti á föstu­dag­inn langa. Mynd Róbert Reyn­is­son

„Ég held að ég sé í raun og veru alls ekk­ert eins óhefð­bund­inn og margir halda. Ég hef til dæmis ekki orðið var við að prestar hneyks­list mikið eða súpi hveljur yfir mér. Einstaka risa­eðlur gera það. En ég er í góðu sam­bandi við kollega mína og eng­inn þeirra nefnir við mig að ég sé á villi­götum og þegar ég geri eitt­hvað svona sem mér finnst vera frum­legt og skemmti­legt og er kannski svo­lítið nýstár­legt þá fæ ég ekki annað en hvatn­ingu og stuðn­ing frá þeim. Svona 95%. Það eru alltaf ein­hverjir fílu­púkar í öllum hópum. Ég held að presta­stéttin njóti ekki sann­mælis. Ég held að fólk geri sér rang­hug­myndir um kollega mína – að þeir séu allir voða­lega stífir, upp­skrúf­aðir og háheilagir og það megi ekki hlæja eða segja dóna­brand­ara nálægt þeim án þess að þeir fornem­ist. Þetta er alrangt. Þetta er hresst og skemmti­legt fólk og yfir­leitt með ágætan húmor.“

Eineltið

Davíð Þór bjó í Reykja­vík fyrstu 10 ár ævinnar og var glatt og ham­ingju­samt barn. Hann flutti með fjöl­skyldu sinni til Hafn­ar­fjarðar og þá breytt­ist allt þar sem hópur stráka í skól­anum fór að leggja hann í ein­elti þegar hann var 11 ára.

„Í árgang­inum sem ég var í voru drengir sem áttu mjög erfitt.“

Davíð Þór segir að hóp­ur­inn hafi verið ógn­valdur á skóla­lóð­inni og að hann sjálfur og nokkrir aðrir hafi legið vel við höggi.

„Sumir fóru síðar út í mikla óreglu og jafn­vel ofbeldi og einn stytti sér aldur. Svo voru í hópnum strákar sem ég held að séu sið­blindir.“

Hann segir að ein­eltið hafi ágerst jafnt og þétt.

skóla­taskan mín var fyllt með snjó og snjó troðið inn á mig og ég var lam­inn

„Þetta byrj­aði með orðum, svo var farið að sitja fyrir manni á leið­inni heim úr skól­anum, skóla­taskan mín var fyllt með snjó og snjó troðið inn á mig og ég var lam­inn. Hann má eiga það dreng­ur­inn sem lamdi mig að hann bað mig síðar afsök­unar á því.“

Davíð Þór segir að hann hafi tvö til þrjú síð­ustu árin í grunn­skóla eig­in­lega keypt sig lausan undan ein­elt­inu með því að verða í raun og veru óalandi og óferj­andi.

„Ég varð allt í einu svalur í huga þeirra sem voru að leggja mig í ein­elti af því að ég fór að stel­ast til að reykja úti á skóla­lóð­inni með þeim, ég fór að brjót­ast inn eins og þeir og rífa kjaft við full­orðna. Og ég fór að taka þátt með þeim í að leggja hina í ein­elti sem lágu vel við höggi. Ástæðan fyrir því að ég lagði í ein­elti var að ég var öruggur á meðan; þá var ekki verið að leggja mig í ein­elti. Ég taldi sjálfum mér trú um að það væri afrek hjá mér að vera kom­inn í hóp ger­end­anna. Ég varð í raun og veru vand­ræðaung­lingur og sem ung­lingur fékk ég fyrir inn­brot tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm. Þá varð ég svo­lítið hræddur og sneri við blað­inu í raun og veru.“

Grunn­skól­anum lauk síðan og Davíð Þór fór í Flens­borg­ar­skól­ann í Hafn­ar­firði og umgekkst ekki meira strák­ana sem voru í klíkunni. Þá breytt­ist allt.

„Ógn­vald­arnir voru horfnir úr lífi mínu.“

Davíð Þór seg­ist skamm­ast sín fyrir eitt og annað þegar hann líti til baka og segir að sér hafi liðið illa og verið með sam­visku­bit þegar hann var að leggja í ein­elti. Hann nefnir einn strák sem hann seg­ist hafa hringt í og beðið afsök­unar fyrir nokkrum árum.

„Hann tók því ekki vel og ég held að það hafi verið svo­lítið van­hugsað hjá mér að hringja í hann. Við kvödd­umst alveg sáttir en ég hafði á til­finn­ing­unni að þetta sím­tal hafi verið hringt til þess að láta mér líða betur en ekki honum. Mér leið betur að því leyti að ég var alla­vega búinn að gera honum grein fyrir því að ég sæi það núna að þetta hefði ekki verið í lagi.“

Davíð Þór seg­ist hafa fyrir nokkrum árum gengið í gegnum býsna ítar­lega sjálfs­skoðun og gert svo­lítið upp for­tíð sína.

„Eineltið var sann­ar­lega stór hluti af þeirri áfalla­sögu minni sem alkó­hól­ismi minn spratt af ein­hverju leyti af. Sú upp­lifun að vera útskúf­aður og eyða stórum hluta ung­lings­ára sinna í það að upp­lifa sig ekki sam­þykktan af jafn­ingjum sínum skilur auð­vitað eftir eitt­hvað tóm inni í manni; ein­hvern djúpan skort sem er mjög auð­velt að reyna að fylla upp í eins og með áfengi, fíkni­efnum, kyn­lífi, fjár­hættu­spilum eða hverju sem fólk grípur í til þess að hugga sig.“

Davíð Þór lærði mikið af því að vera bæði þol­andi og ger­andi og seg­ist vera vak­andi fyrir svona töktum þegar ung­lingar koma til hans í ferm­ing­ar­fræðslu.

„Það sem ég lærði líka af þessu er að það sem raun­veru­lega krefst styrk­leika og hug­rekkis er að þora að vera góður. Það er auð­velt að brynja sig í ein­hverjum töffara­skap og vera svo mik­ill gæi að maður getur varla staðið í lapp­irnar og það sé ekki hægt að eiga heið­ar­legar og ein­lægar sam­ræður við mann án þess að maður svari með skæt­ingi út í hött eða með ein­hverjum stælum. Það er ekki styrk­leiki. Það er þvert á móti rosa­lega mikið veik­leika­merki. Þá er við­kom­andi ekki stór og sterkur heldur lít­ill, hræddur og aumur.“

Alkó­hól­ism­inn
Jú, hann fór að drekka meira en góðu hófi gegndi og fylgdi flaskan honum í um ald­ar­fjórð­ung.

„Ég las ein­hvers staðar og hef heyrt að menn hafa verið að gera rann­sóknir á alkó­hól­isma og reyna að velta fyrir sér hvað sé þar á bak við; hvað orsakar alkó­hól­isma og hvort hann sé með­fæddur eða áunn­inn. Það eru ýmsar skoð­anir á þessu og sjálfum þótti mér þetta aldrei vera áhuga­verð pæl­ing vegna þess að það breytir engu um með­ferð alkó­hól­isma hvort hann sé áunn­inn eða með­fæddur. Ég hef miklu meiri áhuga á hvernig maður trítar alkó­hól­isma heldur en að vita hvernig hann er til kom­inn. Og við kunnum að tríta hann.

Ég las svo nýlegar kenn­ingar um að alkó­hól­ismi orsak­ist af trauma í æsku eða bernsku. Allir alkó­hólistar eiga það sam­eig­in­legt. Fólk hefur verið að skoða hvort það sé gegn­um­gang­andi alkó­hól­ismi í ein­hverri ætt og þá sé lík­legt að börnin verði alkó­hólistar. Það er kannski ekki af genetískum ástæðum heldur er lík­legt að barnið hafi orðið fyrir ein­hverju æskutrauma; ein­hverri höfnun eða ofbeldi. Höfnun er ekk­ert annað en and­legt ofbeldi. Og það að verða fyrir ein­elti er nátt­úr­lega félags­legt ofbeldi og er trauma. Það er höfnun. Það er verið að segja að það gildi um við­kom­andi aðrar reglur en aðra í sam­fé­lag­inu. Að við­kom­andi sé ekki full­gildur með­limur í hópnum. Þannig að þegar ég fór að skoða alkó­hól­isma minn, horfa aftur í tím­ann og velta því fyrir mér hvernig ég kom mér upp alkó­hól­isma þá er í raun og veru eina traumað sem ég get horft á og sagt „já, ég varð fyrir trauma eða traumat­ískrei reynslu“ ein­eltið sem ég var lagður í í Víði­staða­skóla. Það er þar með ekki sagt að barn sem er lagt í ein­elti verði þar með alkó­hólisti vegna þess að margir sem verða fyrir trauma í æsku verða ekki alkó­hólistar. Þannig að þetta er að ein­hverju leyti ein­stak­lings­bundið. En ég virð­ist vera einn af þessum ein­stak­lingum sem þurfti eða var með ein­hverja vöntun, skort, inni í mér sem varð til að ég þurfti vegna þess­arar höfn­unar jafn­aldra minna að finna svona miður heilsu­sam­legar aðferðir til að fylla upp í þetta gat inni í mér sem það skildi eftir.“

Hann seg­ist hafa verið ham­ingju­söm fylli­bytta í 20 ár.

„Vanda­málið er að ég var fylli­bytta í 25 ár. Alkó­hól­ismi minn var svo­lítið eins og Richters-skal­inn og far­sóttin; það var veld­is­vöxtur. Hann versn­aði jafnt og þétt og marg­fald­að­ist þannig að leiðin hafði legið hægt niður á við ansi lengi og ég myndi segja að síð­asta árið hafi nán­ast verið lóð­rétt hjá mér. Það kom fyrir oftar en góðu hófi gegndi að ég þurfti að rétta mig af á morgn­ana. Ég var mjög skap­styggur, eirð­ar­laus og óánægður. Ég var á þeim stað að ég þurfti eig­in­lega að vera mar­iner­aður; ég sagði stundum að ég væri eins og smjörvi: Símjúkur. Ég var ekki túrafyllu­byttu­karl sem hélt sér edrú á hnef­anum í ein­hverjar vikur og fór svo á fyllirí og brjál­að­ist. Ég gat haft stjórn á drykkj­unni minni og ég gat notið drykkju minnar en ég gat bara ekki gert þetta hvort tveggja sam­tímis. Ann­að­hvort var ég að njóta hennar og þá hafði ég enga stjórn á henni eða að ég hafði stjórn á henni og þá var ég í and­legri erf­ið­is­vinnu við að halda aftur af mér og var að gera allt annað en að skemmta mér.

Drykkjan var orðin það mikið vanda­mál að hún var byrjuð að bitna á sam­bandi mínu við mína nán­ustu. Þetta stjórn­leysi, þessi þrá­hyggja, var farið að bitna bæði á afköstum mínum og gæðum vinnu minnar. Síðasta árið var ég orð­inn óvinnu­fær. Ég var í þannig vinnu að ég fékk ekki mán­að­ar­laun heldur greitt fyrir hvert verk sem ég lauk. Ég held að ég hafi síð­asta árið hrapað um 75% í launum. Ég var far­inn að skila fjórð­ungi af því sem ég hafði skilað einu eða tveimur árum áður ein­fald­lega af því að ég átti erfitt með að ein­beita mér. Ég var veikur, ég svaf lengi fram eftir á morgn­ana og hafði lítið úthald; of litla ein­beit­ingu til að sitja við tölv­una klukku­stundum saman og skrifa og þýða. Ég þurfti að rétta mig af og þá gat ég ekki notað haus­inn í að skrifa eitt­hvað skyn­sam­legt þannig að þetta var orðið mikið vanda­mál og ég átt­aði mig á því undir það síð­asta að það var ekki spurn­ing hvort heldur hvenær ég yrði ekki lengur í tölu lif­enda.“

Davíð Þór er spurður hvort hann hafi prófað eitt­hvað annað en áfengi.

„Já. En mig langar ekki til að tala um það. Þú mátt hafa svarið „já“ enda væri leitun að alka af minni kyn­slóð sem gæti hrein­skiln­is­lega svarað þeirri spurn­ingu neit­andi. Um suma hluti vil ég ekki tala; fólk sem mér þykir vænt um gæti lesið þetta.“

Hann fór á sitt síð­asta fyllirí föstu­dag­inn langa árið 2005. Hann fór á Vog dag­inn eftir.

„Svo á páska­dags­morgni þá reis ég upp frá dauðum en ég vakn­aði þá í fyrsta skipti edrú í mjög langan tíma. Þannig tengi ég pásk­ana við mína eigin per­sónu og upp­risu frá dauðum.“

Til­viljun?

„Ég veit það ekki. Já, ég held nú að þetta sé til­viljun. Til­vilj­anir geta verið býsna merk­ing­ar­þrungnar og tákn­rænar. Ég var á Vogi í 10 daga og svo fór ég beint á Stað­ar­fell. Gettu hvaða dag ég kom með rút­unni í bæinn úr með­ferð­inni á Stað­ar­felli. Það var 40 dögum eftir páska; á upp­stign­ing­ar­dag.“

Davíð Þór er spurður hvað hann hafi lært af því að hafa gengið götu drykkju­manns­ins.

„Ef maður gerir sama hlut­inn aftur og aftur og gerir sömu til­raun­ina aftur og aftur og er alltaf jafn­hissa að fá alltaf sömu nið­ur­stöðu þá er það skil­grein­ingin á geð­veiki. Það er það sem ég hef lært af þessu og nátt­úr­lega líka að það er ljós við end­ann á göng­unum. Fyrsta eina og hálfa árið eftir að ég hætti að drekka var ég að glíma við mikil frá­hvörf og oft og tíðum erf­iða fíkn.“

Hann nær í tölv­una sína og byrjar að gúggla.

„Látum okkur sjá. Það var 2005 sem ég hætti að drekka; páska­dagur var 27. mars árið 2005 þannig að það eru 16 ár síðan. Ég missti af edrúafmæl­inu mínu um dag­inn; það var fyrir fjórum dögum. Ég var bara of mikið að hugsa um eitt­hvað annað. Þetta er kannski eitt­hvað bata­merki. Ég get alla­vega sagt að ég sé búinn að vera edrú í 16 ár. Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið glaður, ham­ingju­samur og frjáls í 16 ár en ég hef verið laus við fíkn í 14 og hálft ár.“

Hann seg­ist aldrei finna fyrir löngun í áfengi.

„Og það sem meira er – í dag er áfengi non issue í mínu lífi. Ég er ekk­ert að hugsa um það á dag­inn að ég sé alkó­hólisti og megi ekki drekka. Ef mér er boðið áfengi þá bara hrekk ég ósjálfrátt í kút eins og það sé verið að ota að mér log­andi eldi.“

Messuvín. Hvað með að ganga til alt­aris og bjóða upp á messu­vín?

„Ég er alfarið á móti því að áfengi sé haft um hönd í alt­ar­is­göngum, enda er það ekki gert í minni kirkju af því að vín getur alveg verið vín þótt það sé ekki brenni­vín. Málið er að það sé heil­agur andi í vín­inu en ekki vín­andi. Mér finnst nán­ast verið að setja Satan í vínið með því að hafa etanól í því. Það er gert ráð fyrir að þetta sé safi vín­við­ar­ins og mér finnst ekki vera í lagi að bjóða upp á heil­agt sakra­menti vit­andi vits að tíunda hvert sókn­ar­barn gæti verið með ofnæmi fyrir því. Við kaupum óáfengt mat­reiðslu­vín sem er rauð­vín en með 0% vín­anda. Ég veit að víða er not­aður ríbena­safi sem er bara vín­berja­safi. Ég var einu sinni austur á landi þar sem ég þurfti að messa og það var ekk­ert messu­vín til í kirkj­unni og ekk­ert óáfengt vín eða mat­reiðslu­vín til í búðum. Það end­aði á því að ég fann eitt­hvað sem hét rús­ínu­safi; eru ekki rús­ínur bara þurrkuð vín­ber? Þannig að þá hlýtur eitt­hvað að vera af ávexti vín­við­ar­ins í rús­ínusafanum. Og alt­ar­is­gestir dreyptu á rús­ínusafa.“

Davíð Þór segir að þegar upp sé staðið þá sé gildi alt­ar­is­göng­unnar tákn­rænt.

„Það er merk­ing hennar fyrir okkur sem skiptir máli. Það er ekk­ert hókus pókus að eiga sér stað.“

Stundum gengur Davíð Þór til alt­aris í öðrum kirkjum þar sem messu­vín er áfengt.

„Þegar mér er réttur kaleik­ur­inn þá finn ég spíra­ó­þverr­ann upp úr honum. Það gæti eins verið að rétta mér máln­ing­ar­þynni af því að maður verður svo næmur á þessa ólykt. Þetta er eins og kemískur rotn­un­ar­keimur. Það er óskap­lega óaðl­að­andi að finna þessa lykt út úr fólki og af fólki. Þá legg ég putta á vör­ina og segi „nei, takk“.“

Grínarinn

Davíð Þór hefur glatt margan land­ann í hlut­verki grín­ar­ans en hann og Steinn Ármann voru árum saman Rad­íus­bræður. Á Wikipedia er þetta að finna:

„Rad­íus­bræður var sviðsnafn Davíðs Þórs Jóns­sonar og Steins Ármanns Magn­ús­sonar þegar þeir tróðu saman upp með fram­sæknu gríni á fyrri hluta tíunda ára­tug­ar­ins. Rad­íus­bræður komu fyrst fram með útvarps­þátt­inn Radíus á Aðal­stöð­inni. Síðar áttu þeir þátt í gerð sjón­varps­þátt­anna Limbó í leik­stjórn Óskars Jón­as­sonar. Þeir þættir urðu skamm­lífir en RÚV hætti fram­leiðslu þeirra eftir tvo þætti. Síðar voru þeir með eigin þætti og stutt atriði í Dags­ljósi til 1995. Árið 1995 gerðu þeir þætt­ina Radíus, 12 þátta sketsa­röð með þeim tveim.“

Ég held að ég sé í raun og veru alls ekk­ert eins óhefð­bund­inn og margir halda. Ég hef til dæmis ekki orðið var við að prestar hneyks­list mikið eða súpi hveljur yfir mér. Einstaka risa­eðlur gera það.

Davíð Þór segir að það að ger­ast grín­ari hafi að ein­hverju leyti verið þörf til þess að sanna sig og vera áber­andi.

„Ég var með leik­list­ar­bakt­eríu sem ung­lingur; ég ætl­aði að verða leik­ari þegar ég yrði stór. Ég fór þrjú ár í röð í 16 manna hóp­inn í Leik­list­ar­skóla Íslands án þess að kom­ast inn. Ég átti Íslands­met í því að verða ekki leik­ari eða verða næstum því leik­ari.

Við Steinn Ármann vorum bestu vinir á þessum tíma og höfðum verið það síðan um ferm­ingu og horfðum við mikið á Monty Python sem var allt önnur vídd af gríni heldur en við þekktum. Og svo kynnt­umst við uppi­standi. Það var línan í uppi­standi að vera rosa­lega grófur, fara rosa­lega langt yfir strikið, klæm­ast og hæð­ast að kyn­hneigð manns­ins alveg mis­kunn­ar­laust. Það var ein­hver partur af þess­ari upp­reisn gegn tepru­skapnum og bæl­ing­unni sem þessir grín­arar eins og Eddie Murhpy, Billy Connolly og Andrew Dice Clay gerðu; partur af upp­reisn­inni gegn þess­ari bæl­ingu og tepru­skap sem við vorum aldir upp í. Þetta er efni sem væri púað niður af sviði í dag fyrir að vera allt of gróft. Allt of dóna­legt og allt of mikil kven­fyr­ir­litn­ing. Það er staður og stund fyrir allt grín og þetta þótti eiga erindi þá. Við Steinn vorum ekki að finna neitt upp. Við urðum fyrir beinum áhrifum frá Eddie Murphy, Billie Connolly og Andrew Dice Clay og við vorum kannski bara fyrstu íslensku grín­ar­arnir sem vorum á þeirri línu.“

Upphafið voru leik­þættir fyrir skóla­fé­laga á kvöld­vökum í skíða­ferða­lögum í 9. bekk og bolt­inn fór að rúlla.

„Við þýddum Monthy Python sketsa yfir á íslensku og lékum þá á skóla­skemmt­unum. Eitt leiddi af öðru og Steinn fékk útvarps­þátt og fékk mig með sér til að fífl­ast. Og það hitti svo mikið í mark að á einu sumri urðum við þjóð­þekktir grín­arar og allir elsk­uðu okkur. Það var ævin­týra­let hvað við slógum í gegn í raun og veru. Hvað þetta var vin­sælt. Við renndum bara blint í sjó­inn að vera með skemmtun.“

Þeir byrj­uðu svo að hafa atvinnu af þessu. Davíð Þór var þá byrj­aður í guð­fræði­námi við Háskóla Íslands og ákvað að hætta í nám­inu þar sem þetta var orðið of mikið.

„Ég var orð­inn „grand old man“ í mínu fagi, uppi­stand­inu, 27 ára gam­all. Þetta var rosa­lega gaman og við lögðum mik­inn metnað í þetta og fram­leiddum nýtt efni. Við vissum að við myndum ekki geta keyrt á sama prógrammi í Reykja­vík mánuð eftir mánuð. Í raun og veru vorum við hug­sjóna­menn. Okkur fannst við vera miklu meira en ein­hverjir brand­ara­karlar. Við vorum bar­áttu­menn fyrir bættu og betra gríni á Íslandi.“

Hann við­ur­kennir að það hafi stundum verið erfitt að fá hug­myndir að brönd­urum og gríni.

„Ég man alveg eftir stundum þar sem við Steinn sátum niðri í kjall­ara hjá honum, gengum um gólf og börðum hausnum í vegg­inn til að fá hug­myndir. Það gat verið erfitt að fá hug­myndir. Við vorum rokk­stjörnur í gríni og rokk­stjörnur skjót­ast upp á stjörnu­him­in­inn og eru þar í ein­hvern tíma og svo fer að halla undan fæti. Við fundum það smám saman. Við Steinn erum svo litlir business-karlar. Þetta fór að verða erf­ið­ara og erf­ið­ara og það dróst jafnt og þétt úr aðsókn og við þurftum að hafa meira fyrir þessu. Við vorum ekki eins ferskir. Það var farið að vera meiri vinna að halda þessar skemmt­anir og aug­lýsa þær og það voru færri að koma. Og við ákváðum að hætta að vera með skemmt­anir en við mættum ef ein­hver hringdi í okkur og pant­aði okkur og þá mættum við á stað­inn. Þannig unnum við í ein­hver ár.“

Þetta ævin­týri stóð yfir í um ára­tug.

Sókn­ar­prest­ur­inn er spurður um upp­á­halds­brandar­ann.

„Það er ekki hægt að eiga upp­á­halds­brand­ara. Ég heyrði brand­ara í sjón­varp­inu í gær sem mér fannst vera fynd­inn og hann er það síð­asta sem ég hló að. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur fann enda­þarms­hita­mæli í brjóst­vas­anum og sagði: „Æ, nú er penn­inn minn ein­hvers staðar í rass­gati.“ Mér þótti þetta vera fyndið.“

Hann hlær.

Hvað með húmor í messum?

„Ég er með húmor þegar það á við. Ég er ekk­ert að elt­ast við það. Ég reyni að vera ekki leið­in­legur og fyndni er oft gott trix í mál­flutn­ingi. Fólk hlustar á það sem sagt er ef manni tekst að gera skondið það sem sagt er. Ég reyni það en ég er ekk­ert að elt­ast við það.“

Bleikt og blátt

Davíð Þór drakk og drakk og glímdi um tíma við kuln­un­ar­ein­kenni og þannig leið honum þegar hann árið 1997 tók við rit­stjórn tíma­rits þar sem lögð var áhersla á eró­tík, kyn­líf og fræði­greinar því tengdu. Það var Bleikt og blátt.

„Ég var með útvarps­þátt sem ég var búinn að vera með ansi lengi. Ég var far­inn að hata vinn­una mína. Ég var orð­inn svo leiður á henni og leiður á vinnu­fé­lög­unum. Ég var orð­inn leiður á því að vera alltaf sprelli­karl og ég var orð­inn leiður á því að mega ekki eiga vondan dag án þess að það væri í beinni útsend­ingu. Allt í einu bauðst mér þarna þægi­leg inni­vinna þar sem ég yrði ekki í sviðs­ljós­inu en feng­ist samt við eitt­hvað svo­lítið krassandi og pró­vóka­tíft. Ég tók við blað­inu í hálfu starfi og kom það út sex sinnum á ári. Það stóð til að hætta að gefa það út en það var ákveðið að gefa því séns. Ég rit­stýrði blað­inu í fjögur ár og þegar ég hætti var Bleikt og blátt sölu­hæsta tíma­ritið á Íslandi og kom út 14 sinnum á ári. Ég var þá kom­inn í 100% vinnu og með aðstoð­ar­rit­stjóra í 50% starfi. Ég gekk þess vegna frá Bleiku og bláu mjög stoltur vegna þess að það var alger success-saga frá því ég tók við blað­inu og hætti á því.“

Það að rit­stýra Bleiku og bláu var eins og að rit­stýra hverju öðru tíma­riti.

„Margir héldu að ég væri alla daga með nakið fólk að stýra ljós­mynda­tökum. Það var minnsti þátt­ur­inn í vinn­unni. Ég var yfir­leitt ekki við­staddur ljós­mynda­tökur og sótt­ist ekk­ert sér­stak­lega eftir því. Blaðið var 52 síður og af þeim voru 16 síður með ljós­myndum. Það var annað áhuga­vert efni í blað­inu svo sem áhuga­verðar greinar um kyn­vit­und og rann­sóknir á kyn­ferð­is­málum. Ég man að ég skrif­aði grein um must­er­isvændi í Forn-Ísrael og ég man sér­stak­lega eftir því að við vorum að birta greinar um trans­fólk og „kynátt­un­ar­vanda“ þess; eini vandi þessa fólks er sam­fé­lagið. Ekki kynátt­unin. Þannig að þetta fólk á ekki við vanda­mál að stríða heldur er það sam­fé­lagið sem á við vanda­mál að stríða gagn­vart þessu fólki.“

Sex tölu­blöð á ári upp í 14 tölu­blöð á ári. Hvernig fór Davíð Þór að þessu?

„Það var þetta attitude. Þetta var það að blaðið gerð­ist mál­gagn. Það var akt­ú­elt. Það fjall­aði um mál­efni líð­andi stundar. Kynlíf var orðið sölu­vara á þessum tíma og hvert ein­asta glans­tíma­rit var með kyn­líf á for­síð­unni svo sem til að vekja athygli á greinum í blöð­unum. Ég fór að birta greinar um efni sem þessi blöð birtu ekki. Ég sýndi líka fram á að dóna­leg­asti lík­ams­part­ur­inn væri and­litið; ég birti myndir þar sem sást framan í fólk sem var ekki gert áður. Þá var myndin allt í einu orðin miklu dóna­legri og það er ástæða fyrir því en um leið og það sést framan í fólkið þá er þetta orðið eró­tískt. Þá eru þetta orðnar mann­eskjur. Ein­stak­lingar. Fram að því höfðu þetta bara verið kjöt­skrokkar. Bara anató­mía. Þannig að ég gerði Bleikt og blátt að eró­tísku tíma­riti.“

Ástin

Davíð Þór á fimm börn á aldr­inum 3-37 ára og fimm barna­börn á aldr­inum 2-12 ára. Hann eign­að­ist sitt fyrsta barn, dóttur, þegar hann var 18 ára.

„Ég veit voða­lega lítið hvernig það var að eign­ast barn fyrir 37 árum. Ég var ekk­ert mikið til staðar. Það var voða­lega skrýtið að verða þá faðir. Ég í raun og veru frík­aði svo­lítið út gagn­vart því, sér­stak­lega af því að móðir hennar kynnt­ist fljót­lega mjög góðum manni og eign­að­ist með honum aðra dóttur sem er mjög nálægt dóttur okkar í aldri. Sjálf­sagt er ég bara að ímynda mér þetta en mér leið alltaf svo­lítið eins og aðskota­dýri á heim­ili þeirra, alls ekki vegna þess að þau hafi látið mér líða þannig heldur ein­vörð­ungu vegna míns eigin óör­yggis gagn­vart hlut­verki mínu. Hvað var ég að troða mér upp á þessa ham­ingju­sömu fjöl­skyldu? Þannig að sam­band mitt við elstu dóttur mína var eig­in­lega ekki neitt fyrr en hún varð ung­lingur og við gátum farið að hafa milli­liða­laus sam­skipti; ekki í gegnum for­eldra hennar. Hún fór að eiga frum­kvæði að því að bera sig eftir því að eiga í sam­skiptum við mig. Það sýnir bara hvað hún er stór­kost­leg mann­eskja og vel upp alin að hún skyldi yfir höfuð hafa áhuga á því vegna þess að það var ekki af því að ég hafði gert neitt til að eiga það skilið frá henni. Við höfum verið ágætir vinir frá því hún var ung­lingur.“

Davíð Þór eign­að­ist síðan tvö börn á árunum árin 1990 og 1991 með fyrri eig­in­konu sinni, dreng og stúlku, en þau slitu sam­vistum þegar yngra barnið var tveggja ára.

Davíð Þór flaug rúm­lega þrí­tugur til Egils­staða til að skemmta nem­endum Mennta­skól­ans á Egils­stöðum. Ung mennta­skóla­stúlka, Þórunn Gréta Sig­urð­ar­dóttir, fékk það verk­efni að sækja hann út á völl, skutla honum síðan á hótel og aka honum síðan út á flug­völl dag­inn eftir. „Það er 16 ára ald­urs­munur á milli okkar; ætli hún hafi ekki verið 17-18 ára. Ef ein­hver hefði sagt mér þá að þessi mennta­skóla­stelpa ætti eftir að verða konan mín og móðir tveggja barna minna þá hefði ég nú senni­lega rekið upp stór augu. Jú, jú, það fór ágæt­lega á með okkur.“

Árin liðu. Mörg ár. Davíð Þór var í sam­búð og í íbúð í næsta stiga­gangi við Kapla­skjóls­veg
flutti ungt par. Það var Þórunn Gréta og þáver­andi sam­býl­is­maður hennar.

„Leiðir okkar lágu mjög oft saman. Við hitt­umst og spjöll­uðum og ég mundi alveg eftir þess­ari stelpu en það kvikn­aði eng­inn eldur á milli okkar, enda bæði í sam­búð með öðrum mann­eskjum.“

Og tím­inn leið. Árin liðu. Það slitn­aði upp úr sam­bandi Davíðs Þórs og þáver­andi sam­býl­is­konu hans. Hann starf­aði á þessum tíma sem yfir­þýð­andi á tal­setn­ingu á barna­efni og það vant­aði þýð­endur. Þórunn Gréta, sem þá var orðin ein­hleyp, sótti um einn dag­inn.

við ákváðum að prófa að láta á það reyna að verða kærustupar.

„Ég lét hana fá prufu­þátt til að þýða. Svo fékk ég svona ljóm­andi fína þýð­ingu frá henni til baka, þess­ari smá­stelpu, rétt rúm­lega tví­tugri. Ég sá að hún var greini­lega bráð­vel gefin, vel máli farin og mik­ill húmoristi vegna þess að það voru alls konar orða­leikir og ég valdi þátt með til­liti til þess að það væru gildrur í honum. Það var mikið rætt um kýr í þessum þætti og það reyndi á þýð­and­ann að kunna að beygja orðið kýr. Þórunn Gréta fór að vinna hjá mér og varð einn af mínum upp­á­halds­þýð­endum. Svo ein­hvern veg­inn hægt og rólega í gegnum það varð til vin­skapur. Og svo gerð­ist það án þess að ég átt­aði mig á því þá var mér farið að þykja óstjórn­lega vænt um þessa stelpu, ég var far­inn að sakna hennar, ég var far­inn að hlakka til að hitta hana og ég var far­inn að hugsa mikið um hana þegar við vorum ekki saman. Ég sagði einum vini mínum frá þessu og sagði að það væri frá­leitt að hún hefði áhuga á mér ef ég færi að reyna við hana af því að við værum svo góðir vinir. Þá sagði hann að ég væri í raun­inni að ljúga að henni með því að segja henni ekki hvernig mér liði. Ég stundi því upp úr mér þegar ég hitti hana að ég héldi að ég væri bál­skot­inn í henni. Þá kom í ljós að hún hafði verið að glíma við svip­aðar til­finn­ingar og hugs­anir og við ákváðum að prófa að láta á það reyna að verða kærustupar. Við fórum svo að búa saman nokkrum mán­uðum síðar og núna erum við gift og eigum tvö börn sem fædd­ust 2016 og 2018.“

Davíð Þór er spurður hvað ástin sé í huga hans.

„Ástin er kær­leik­ur­inn á öllum sviðum ein­hvern veg­inn. Kær­leik­ur­inn er það sem gerir lífið þess virði að lifa því. Fólk sem elst upp við skort á kær­leika kemur miklu skemmd­ara út í lífið heldur en fólk sem elst til dæmis upp við nær­ing­ar­skort. Við þurfum kær­leika til að verða heil­brigðar mann­eskjur. Ég hef velt ást­inni voða­lega lítið fyrir mér. Ástin er eitt­hvað sem maður finnur að er til staðar þegar það kemur. Ég er ekk­ert viss um að sam­band okkar Þórunnar Grétu hafi byrjað í ein­hverri ofboðs­legri ást. Það byrj­aði á hrifn­ingu, okkur lík­aði vel hvoru við annað, við skemmtum okkur vel saman, við vorum á sömu bylgju­lengd og með svipuð við­horf, lífs­við­horf, og húmor. Okkur leið vel saman og sóttum í að vera saman og ákváðum að byrja saman á föstu af því að við áttum svo vel saman. Ég held að ástin hafi búið sig til sjálf upp úr því. Ég meina – maður þarf að þekkja mann­eskju ansi vel áður en maður fer að elska hana. Þannig að þegar við vorum farin að þekkja hvort annað nógu vel og vorum ekki bara lengur hrifin af hvort öðru þá er kannski hægt að tala um að það sem væri á milli okkar héti ást. Æ, ég kann ekki að svara þess­ari spurn­ingu.“

Davíð Þór er spurður hvort hann sé róm­an­tískur.

„Nei, ég er það ekki að eðl­is­fari. Jú, nú þegar þú segir það þá fór ég reyndar út í búð í síð­ustu viku og sá rauðar rósir og kippti með einum vendi heim af því að það var svo langt síðan ég hafði gert það. Svo hafði frum­sýn­ing­unni á óper­unni hennar Þórunnar Grétu verið frestað öðru sinni út af Covid svo hún þurfti á smá­upp­örvun að halda. Þannig að ég á þetta alveg til. Ég segi ekki að það sé reglu­legt en það er ekk­ert gjör­sam­lega út úr karakter fyrir mig að koma með blóm­vönd upp úr þurru.“

Faðerni Jesú
Séra Davíð Þór Jónsson, prestur í Laug­ar­nes­kirkju, er lífs­reyndur maður og sú lífs­reynsla gagn­ast honum í starfi.

„Ég finn það hvað per­sónu­leg reynsla mín af alkó­hól­isma, glíman við hann og reynsla mín af þeim bata sem ég hef náð hjálpar mér mjög mikið en af því að ég er opin­skár um þetta þá treysta mér margir sem glíma við það sama. Og það er eng­inn að herma upp á mig brand­ara sem fóru yfir strikið á sínum tíma eða eru að nefna Bleikt og blátt. Það þýðir ekk­ert að ætla að fara 25 eða 30 ár aftur í tím­ann og heim­færa kúltúr dags­ins í dag upp á þá tíma vegna þess að þá var svo margt í gangi sem yrði ekki liðið í dag en sem áttu sér eðli­legar skýr­ingar. Ég held að ungt fólk í dag átti sig ekki á því hvað mín kyn­slóð var alin upp við mik­inn tepru­skap og bæl­ingu. Það þurfti bara að gera upp­reisn gegn því á 9. og 10. ára­tug síð­ustu aldar. Og eins og alltaf þegar upp­reisnir eru gerðar þá er farið aðeins yfir strikið af því að það er einu sinni eðli striks­ins að maður veit ekki hvar það er fyrr en maður er kom­inn yfir það.“

Davíð Þór var á sjónum vet­ur­inn 1990 þegar hann fékk áhuga á því að læra guð­fræði.

„Ég hafði kynnst guð­fræð­inni í gegnum gamlan skóla­bróður minn sem hafði verið í guð­fræði­námi og ég fór svo í guð­fræði haustið 1991. Ég fann ekki þörf hjá mér til að verða prestur fyrr en árið 2012. Ég fór í guð­fræði vegna brenn­andi áhuga á náms­efn­inu og ætl­aði mér aldrei að verða prestur. Svo breytt­ist það þegar ég kynnt­ist prestum og prests­starf­inu. Ég fann köllun þegar ég var ráð­inn eftir útskrift austur á land og gekk í verk sem ég mátti sem óvígður maður. Köllunin eig­in­lega birt­ist fyrst og fremst í því að þarna var ég í starfi þar sem menntun mín og hæfi­leikar gætu nýst.“

Davíð Þór er spurður hvernig trúin geti breytt mönnum.

„Það fer eftir mönn­unum. Ef um er að ræða ofbeld­is­fullan mann sem þarf að finn­ast hann vera miklu betri en aðrir þá er trú mjög góð aðferð til að fá úrás fyrir þær kenndir. Þannig að spurn­ingin er hvernig fólk vill breyt­ast. Að hverju það vill verða. Trúin er mjög góð aðferð til að breyta sér en hver og einn á mikið val um hver sú breyt­ing verður. Ég vildi breyta mér í frjálsa og ham­ingju­sama mann­eskju með sín sið­ferð­is­legu við­mið á hreinu sem væri reiðu­búin að þjóna náung­anum í kær­leik. Ég ætla ekki að full­yrða að mér hafi tek­ist það. En stundum á ég góða daga þar sem ég hef náð að labba heim úr vinn­unni og hugsað með mér að í dag þjón­aði ég ein­hverjum til­gangi sem var svo­lítið mikið stærri en ég sjálfur. Og það er góð til­finn­ing. Það er eins og að upp­lifa sig sem lif­andi lim á lík­ama Krists eins og segir í Bibl­í­unni.“

Hann er stundum í hlut­verki sálu­sorg­ara en margir bera sorgir sínar og líðan á borð við prest­inn sinn.

„Það hefur þau áhrif á mig að ég er að vissu leyti miklu þakk­lát­ari fyrir mitt líf af því að ég geri mér grein fyrir því að það er langt frá því að vera sjálf­gefið að maður sé með heil og óbrotin sam­skipti við sína nán­ustu. Og ég geri mér svo­lítið far um að standa vörð um það. Ég er miklu með­vit­aðri um ekki bara að það sé gott og mik­il­vægt að sam­skipti okkar séu í lagi og maður sé í sátt við guð og menn heldur geri ég mér líka betur grein fyrir því hvað getur borið út af. Þannig að ég held að ég sé líka var­kár­ari.

„Ég keypti í gær fjögur páska­egg

Svo er það líka að ég held að maður í mínu starfi brenni mjög hratt upp sem ætlar að vinna öll þau verk sem honum eru falin í sínum eigin krafti, af sinni eigin getu og með sínum eigin hæfi­leikum. Í ákveðnum verk­efnum hefur mér fund­ist æðri máttur hafa borið mig uppi í gegnum þau talandi um hvernig trúin breytir manni.“

Jesús Kristur er sagður hafa verið ein­get­inn. Sr. Davíð Þór er spurður út í skoðun hans á því.

„Mér finnst vera fárán­legt að hugsa til þess að hann hafi verið ein­get­inn. Mér finnst það ekki skipta neinu máli. Hann var fátækur og lífið úr honum var murkað á hroða­legan hátt en guð minn almátt­ugur að hann hafi verið ástands­barn; það er nú einum of mikið. Hverju breytir það hver líf­fræði­legur faðir Jesús var? Faðerni Jesús er eins og orsakir alkó­hól­isma; eitt­hvað sem skiptir engu máli. Það breytir engu þótt við vissum það. Við vitum allt um Jesús sem við þurfum að vita til þess að gera hann að leið­toga lífs okkar. Og ef það eyði­leggur fyrir ein­hverjum að hann hafi átt líf­fræði­legan föður þá er við­kom­andi ein­hvers staðar á mjög vondum stað í sínum við­horfum til ja, síns eigin holds – ef holdið er svona ógeðs­legt. Þá þarf við­kom­andi að fara að skoða eigin við­horf til eigin kyn­vit­undar.“

Davíð Þór seg­ist vona að hann sé til­tölu­lega víð­sýnn og umburð­ar­lyndur maður.

„Ég hef verið á þannig stöðum að ég veit að fólk á þannig stöðum er ekki endi­lega vont fólk þótt það sé í vondum málum. Og ég er kannski maður sem er svo­lítið að reyna að leggja sig fram um að gera síð­ari hluta starfsæv­innar að yfir­bót yfir fyrri hlut­ann.“

Hann hlær.

„Ég er 56 ára og ég á 11 ár eftir af starfsæv­inni. Það er minna eftir af henni en er búið.“

56 ára faðir tveggja ungra barna sem eru farin að sofa en klukkan er orðin rúm­lega 23 á mið­viku­dags­kvöldi fyrir páska.

Séra Davíð Þór er spurður út í páska­egg.

„Ég keypti í gær fjögur páska­egg. Eitt á mann. Við fáum öll jafn­stór egg. Þau eru númer fjögur, 350 grömm. Eitt er með bleikum unga, eitt með grænum unga, eitt með gulum unga og eitt er með svörtum unga en hann er ofan á páska­eggi úr dökku súkkulaði.“

Þórunn Gréta vill dökkt súkkulaði.

„Ég geri ráð fyrir því að ég fái gula ung­ann. Ég þyk­ist vita að dóttir mín muni velja þann bleika og mér finnst senni­legt að sonur minn velji þann græna frekar en þann gula.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu