„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Óðinn fékk Covid-19 og líka nóg af Íslandi: „Samfélagsumræðan illrætt og svæsin“

Jón Óðinn fékk Covid-19 og líka nóg af Íslandi: „Samfélagsumræðan illrætt og svæsin“

„Ég held að þessi Covidfaraldur hafi sýnt okkur ræki­lega hvaða störf skipta máli. Það þarf nýjan sam­fé­lags­sátt­mála þar sem vinna með fólk eru metin hærra en þeirra sem braska með pen­inga,” segir Jón Óðinn Waage fyrr­ver­andi lög­reglu­maður og júd­ó­þjálf­ari til 32 ára.

Jón Óðinn hefur getið sér nafn fyrir afar hnittna og skemmti­lega pistla sem skjóta föstum skotum og er hann óhræddur við að segja sínar skoð­anir. Hann hefur verið búsettur í Svíþjóð síðan haustið 2015.

Húsið hvarf í Hruninu

„Ég var einn af þeim sem fór illa út úr Hruninu. Ég eign­að­ist hús árið 2006 og tók 65% lán. Mín 35% hurfu svo á næstu þremur árum og hjóna­bandið líka. Síðar tók ég ég saman við aðra konu sem var að koma úr alveg eins pakka.” Þau þrauk­uðu í fjögur ár með fimm börn á grunn­skóla­aldri. Lífið var hvert leigu­hús­næðið á fætur öðru. „Árið 2015 vorum við búin að fá nóg af þessu. Konan mín er kenn­ari og gull­smiður og hafði menntað sig í Svíþjóð. Svo það lá eðli­lega við að við flyttum þangað.”

Jón Óðinn hefur verið júd­ó­þjálf­ari til ríf­lega 30 ára.

Jón Óðinn starfar í dag í grunn­skóla. „Ég sé um hóp af krökkum sem allir eru búnir að gef­ast upp á. Þetta eru frá­bærir krakkar en þau passa bara ekki inn í skóla­kerfið sem mis­kunn­ar­laust hefur níðst á þeim. Ég byrj­aði til dæmis með einn þrettán ára gutta sem var sagður hættu­legur. Í dag er hann 18 ára og einn af mínum bestu vinum. Á þessum fimm árum sem ég hef unnið við þetta, hef ég unnið með í kringum þrjá­tíu ein­stak­lingum sem öll hafa kennt mér meira en ég þeim.”

Sem júd­ó­þjálf­ari á Íslandi fékk Jón Óðinn til sín mikið af ein­stak­lingum sem ekki leið vel. „Mér fannst kerfið oft upp­tekn­ara af refs­ingu heldur en hjálp. Og því miður er ég að upp­lifa svip­aða hluti hér í Svíþjóð.”

Skilja ekki verðtryggingu

Aðspurður um mesta mun­inn á að búa í Svíþjóð og á Íslandi segir Jón Óðinn það ekki vera spuningu. „Það er efna­hag­ur­inn. Hér lækka lánin við hverja afborgun. Ég hef reynt að útskýra verð­trygg­ingu fyrir Svíum en þeir eiga erfitt með að skilja hana og trúa mér tæp­lega. Það er líka flest ódýr­ara hér.” Jón Óðinn segir að öðru leiti ekki mikin mun á þessum sam­fé­lögum. „Fólk er almennt ólíkt og ef maður kemur vel fram við aðra fær maður yfir­leitt það sama til baka.

Mín kenn­ing er sú að það hafi orðið stórt sið­rof á Íslandi í kringum 2002 og landið sé að fást við afleið­ingar þess núna. Afleið­ing­arnar birt­ast yfir­leitt í því hvað sam­fé­lags­um­ræðan er orðin ill­rætt og svæsin. Það er sárt að fylgj­ast með því.”

„Það kom þó eitt­hvað út úr þessu þar sem allt bragð­að­ist eins og mold svo ég lagði hell­ing af.”

Covid kennir fólki

Jón Óðinn telur að Covid far­ald­ur­inn hafi sýnt fólki ræki­lega hvaða störf skipti máli. „Fólk þarf að hætta að láta ómerki­lega tæki­fær­is­sinna og hags­muna­potara etja almenn­ingi gegn hvor öðrum.” Hann segir að þar sé hann að vísa til stjón­mála­manna og tals­manna hinna ýmsu sam­taka. „Það er ekk­ert að því að ganga vel í við­skiptum og reyndar nauð­syn­legt fyrir hvert sam­fé­lag. En það þarf að vera með raun­veru­legri fram­legð og sam­fé­lags­legri ábyrgð.”

Sjálfur er Jón Óðinn nýstig­inn upp úr Covid. Hann tók veik­indin út heima hjá sér af hörkunni af íslenskum sið. „Þetta var þriggja vikna orku­leysi, hjarta­verkur, höf­uð­verkur og önd­un­ar­erf­ið­leikar. Það kom þó eitt­hvað út úr þessu þar sem allt bragð­að­ist eins og mold svo ég lagði hell­ing af.”

Samkennd er lykillinn

Hvað telur Jón Óðinn að við þurfum að gera til að skapa betra og rétt­lát­ara sam­fé­lag? „Ég trúi því í ein­lægni að lyk­il­orðið að betri heimi sé sam­kennd. Við þurfum öll, hvert og eitt, að líta inn á við og finna til sam­kenndar. Ef við gerum það komum við betur fram við hvort annað og verðum öll bæði glað­ari og ham­ingju­sam­ari. Voða væmið, en samt satt,” segir Jón Óðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu