„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gefum okkur tíma fyrir hlé

Gefum okkur tíma fyrir hlé
Ingrid Kuhlman

Eftir Ingrid Kuhlman

Þegar mikið er að gera og verk­efnin hlað­ast upp höfum við oft til­hneig­ingu til að pína okkur áfram. Í stað þess að líta upp með reglu­bundnum hætti sleppum við því að taka kaffi­hlé, snæðum sam­loku við skrif­borðið í hádeg­inu á meðan við svörum tölvu­póstum og forð­umst að verja dýr­mætum tíma í spjall við vinnu­fé­lag­ana. Þetta er ekki besta leiðin til að takast á við vinnu­á­lag. Norsk rann­sókn sýndi sem dæmi að fólk sem vinnur óslitið er sjö sinnum lík­legra til að glíma við and­lega og lík­am­lega kvilla en þeir sem taka reglu­leg hlé yfir dag­inn. Fólki í fjar­vinnu er sér­stak­lega hætt við að sitja of lengi við. Hádegið er full­kom­inn tími til að næra sig og gefa heil­anum hvíld fjarri vinnu­stöð. Fyrir þá sem sitja fyrir framan skjá megnið af deg­inum er þar að auki nauð­syn­legt að hvíla augun. Regluleg hlé auka afköst og úthald en það skiptir máli hvernig við verjum þeim.

*Betra er að taka nokkrar styttri pásur fyrir hádegi en eina langa eftir hádegi. Rann­sóknir sýna að þannig náum við að við­halda og end­ur­heimta and­lega og lík­am­lega orku.

*Forðumst það í pásum að sinna verk­efnum sem krefj­ast and­legrar orku svo sem að skoða per­sónu­lega tölvu­pósta og sam­fé­lags­miðla eða vafra um á net­inu. Jafnvel þó að þessi atriði séu ekki vinnu­tengd eyða þau orku þar sem heil­inn fær ekki nauð­syn­lega hvíld.

*Gott er að hlaða batt­er­íin með því að eiga sam­veru­stund með vinnu­fé­lög­unum. Rann­sóknir sýna að mann­leg sam­skipti eru áhrifa­rík­ari leið til að draga úr til­finn­inga­legri þreytu en að skoða sam­fé­lags­miðla.

*(Teygju)æfingar, önd­unaræf­ingar eða stuttur göngutúr í hádeg­inu geta gefið orku og í raun­inni meiri orku en að sitja fyrir framan skjá­inn og horfa á upp­örvandi mynd­band. Tölvu­for­ritið Teygju­hlé, sem hægt er að sækja á síðu Embættis land­læknis, getur aðstoðað við að minna mann á að taka reglu­lega hlé frá tölv­unni eða annarri kyrr­setu og teygja úr sér.

*Gott er að æfa sig í því að vera í núinu á milli verk­efna, t.d. á leið­inni inn í fund­ar­her­bergið, á meðan beðið er eftir kaff­inu eða áður en starfs­manna­fund­ur­inn hefst.

*Hug­leiðsla í nokkrar mín­útur getur gert krafta­verk í því að minnka streitu og fylla á and­legu birgð­irnar. Með því að staldra við og draga djúpt and­ann náum við að núll­stilla hug­ann.

Grein­ar­höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Þekk­ing­ar­miðl­unar, FKA-kona, og með meistara­gráðu í hag­nýtri jákvæðri sál­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pistill

Bakdyramegin á bannaðar myndir
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Bak­dyra­megin á bann­aðar myndir

Ein helsta skemmtun okkar púkanna á Flateyri var að fara í bíó í Sam­komu­hús­inu. Tvisvar í viku voru sýn­ingar á blóma­tíma bíó­ferð­anna. Á sunnu­dögum voru barna­sýn­ingar og á fimmtu­dags­kvöldum voru myndir sem á stundum voru harð­bann­aðar yngri en 16 ára. Ég hef lík­lega verið orð­inn 11 ára þegar þörf okkar krakk­anna í þorp­inu til að kom­ast á bann­aðar myndir varð...
Íslendingar kunna ekki væntingastjórnun
Skoðun

Brynjar Birgisson

Íslend­ingar kunna ekki vænt­inga­stjórnun

Ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég á til að synda á móti straumnum þegar kemur að skoð­unum á knatt­spyrnu en ég ein­fald­lega næ ekki utan um þær hug­leið­ingar að íþrótta­blaða­menn og aðdá­endur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu telji árangur Åge Hareide með lands­liðið ekki nógu góðan. Í raun er talað um það innan knatt­spyrnu­heims­ins að öruggt sé að Norð­mann­inum verði sagt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu