„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

MAGNAÐAR MYNDIR – Jón hefur farið sjö sinnum að gosi: „Stundum stendur manni ekki á sama“

MAGNAÐAR MYNDIR – Jón hefur farið sjö sinnum að gosi: „Stundum stendur manni ekki á sama“

„Fólkið þarf alltaf að ganga lengra. Ég held að það sé búið að drepa ríf­lega 100 dróna sem hafa bráðnað í gos­inu. Instagram kyn­slóðin er að reyna að toppa sig í þessu,“ segir Jón Hilm­ars­son ljós­mynd­ari sem hefur farið sjö sinnum að gos­inu í Geld­inga­dölum og er hvergi hættur.

Eld­hraunið er stór­kost­legt sjón­ar­spil.

Jón telur að það hafi nú örugg­lega ein­hverjir farið oftar en hann er hvergi að baki dott­inn. „Þetta er auð­vitað draumur ljós­mynd­ar­ans. Það er aldrei að vita við hverju er að búast í næstu ferð.“

Jón starf­aði við ljós­mynda­leið­sögn áður en Covid far­ald­ur­inn skall á. Þá skellti hann sér í skóla til að klára MBA gráðu sína. Hann byrjað 19. mars að mynda gosið fyrir Vík­ur­fréttir og hyggst halda því áfram.

Yfir­lits­mynd af svæð­inu sem Jón tók sl. mánu­dag og sýnir hraunið að renna niður í Meradali.

Jón er afar áhuga­samur um gosið og fylgist náið með þróun þess.

„Breyt­ing­arnar á gos­inu hafa orðið miklar frá upp­hafi þess. Þegar gígur númer tvö fór af stað var það á mjög skemmti­legum stað fyrir ljós­myndir þar sem hraun­flæðið var fjöl­breytt­ara og mynd­rænna.“

Hann hefur einnig fylst með ferðum fólks að gos­s­töðvum og séð margt og mikið.

„Stundum stendur manni ekki á sama. Það koma tímar sem það eru kannski tutt­ugu drónar að mynda í einu og flug­vélar og þyrlur að svífa yfir. Stundum fara þær ansi lágt að mínu mati. Svo er fólk að elda sér mat þarna í róleg­heitum, fara inn í rásir sem geta lok­ast eða stíga í hraunið. Sumir eru ansi glæfra­legir verð ég að segja. Aðrir ofgera sér.“

Gígur númer 2. Hraunið renna til norð­urs í átt að Geld­inga­dölum.

Jón notar sjálfur mikið dróna við sínar mynda­tökur. „Dróna­mynda­takan hefur vinn­ing­inn. Maður fær betri yfir­sýn við að horfa niður, sér­stak­lega í ljósa­skipt­unum þegar hraun­flæðið er afar fal­legt. Það er orðið erf­ið­ara eftir myrkur þar sem birtan frá gos­inu sjálfu er svo mikil”.

Sjálfur segir Jón sig ekki hafa afrekað það enn að missa dróna.

„Ég reyni að halda mig yfir hraun­inu sjálfur og passa vel upp á hæð drón­ans. Það verður að sýna ábyrgð, sér­stak­lega þar sem ég er þarna sem frétta­maður. Það er engin ástæða til að vera alveg ofan í gosi þegar maður er með dróna. Ég er líka alltaf með gasmæli og grímu, ábyrg hegðun er lyk­il­at­riði“.

Þessa mynd tók Jón þann 10. apríl sl.

Jón hefur bæði gengið upp að gosi og farið með þyrlu.

„Einu sinni fór ég upp með þyrlu en gekk niður. Það gat verið erfitt að ganga þetta með tutt­ugu kíló af dóti af sér en núna get ég ekið í Mer­ar­dali og kom­ist frétta­manna­leið­ina þaðan, hún er hálf­tíma gangur. Það var mik­ill munur þegar að hún opn­aði.“

Jón hefur tekið fjölda mynda beint ofan í hraun­straum­inn.

Aðspurður um hvenær næsta ferð væri áætluð segir Jón að hann fari um leið og færi gefst. „Það er reyndar spáð rig­ingu núna en um leið og henni slotar er ég far­inn aftur. Það má gera ráð fyrir að ég verði þarna þrisvar til fjórum sinnum í viku að mynda.” Hann seg­ist ekki hafa hug­mynd um hve lengi gosið komi til með vera.

„Eins og vís­inda­menn­irnir benda á er alveg ómögu­legt að segja til um það. Dyngju­gos gæti þess vegna verið stöðugt um ókomna fram­tíð.“

Gígur 1 að kvöld­lagi.

Hann sér mikla mögu­leika í gos­inu.

„Það eru margir kostir við svona gos. Auðvitað er gas­hættan til staðar en þetta er ótrú­legt sjón­ar­spil og stór­frétt út um allan heim og gæti auð­veld­lega orðið stór liður í næstu ferða­manna­sprengju. Það hefur aldrei verið önnur eins ljós­myndum í kringum eitt gos. Það er allt á yfir­snún­ingi. Ef þetta heldur áfram svona þarf meira en lög­reglu og björg­un­ar­sveit­ar­menn. Það þarf að koma þessu í eitt­hvað rekstr­ar­um­hverfi. En það er seinni tíma vanda­mál,“ segir Jón.

Meira af stór­feng­legum myndum Jóns má sjá hér og einnig hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu