„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Málsvörn Björns sem dætur saka um kynferðislega misnotkun: „Ég snerti þær aldrei fyrir neðan mitti“

Málsvörn Björns sem dætur saka um kynferðislega misnotkun: „Ég snerti þær aldrei fyrir neðan mitti“
Björn Matth­í­as­son. Mynd/ Róbert Reyn­is­son

„Ég veit nú ekki alveg hvar ég á að byrja, ætli sé ekki best, já og nauð­syn­legt, að byrja á skiln­að­ar­harm­sögu minni og hennar Ernu, móður stelpn­anna. Þetta var erfitt hjóna­band sem stóð í tíu ár og byrj­aði 1983, end­aði 1993. Samt eign­uð­umst við þessar tvær dætur. Fljót­lega upp úr 1990 byrjar Erna að ásaka mig um kyn­ferð­is­áreitni á eldri dóttur okkar.“

Þetta segir Björn Matth­í­as­son hag­fræð­ingur sem hefur höfðað meið­yrða­mál gegn útgáfu­fé­lagi Stund­ar­innar og öðrum rit­stjóra Stund­ar­innar vegna við­tals sem birt­ist í blað­inu við tvær yngstu dætur Björns.

Í við­tal­inu komu syst­urnar fram nafn­laust og sögðu að Björn hefði mis­notað þær sem börn. Birtust meðal ann­ars brot úr dag­bók­ar­færslum, þar sem önnur systirin, þá níu ára gömul, skrifar að faðir sinn hefði mis­notað hana þegar hún var yngri.

Einnig kom fram að gögn sýndu að yfir­völdum hafi margoft borist frá­sagnir af mis­notkun, en því var haldið fram í grein Stund­ar­innar að þær hefðu verið þving­aðar af sýslu­manni til að umgang­ast föður sinn. Yngri systirin segir meðal ann­ars frá því hvernig faðir hennar hafi mis­notað hana í þving­aðri umgengni. Björn neitar að slík þvingun hafi nokkurn tím­ann átt sér stað og þaðan af síður að hann hafi mis­notað hana.

Nú hefur Björn ákveðið að stíga fram og segja Mannlífi sína hlið á mál­inu. Hann hefur alla tíð lýst yfir sak­leysi sínu.

„Þetta byrjar vegna þess að til hennar, hún var nú mik­ill femínisti hún Erna, kom vin­kona hennar sem átti föður er þá var nýlega lát­inn og hún vildi trúa Ernu fyrir því að pabbi hennar hefði ein­hvern veg­inn mis­höndlað sig eða mis­notað meðan hann var á lífi. En hún gerði aldrei neitt í því og núna þegar hann væri dáinn þyrfti hún að varpa þessum áhyggjum af sér á ein­hvern sem hún trúði og treysti,“ segir Björn.

Björn segir Ernu hafa verið mikla kven­rétt­inda­konu, en hún sat til dæmis í stjórn kven­rétt­inda­fé­lags­ins og bendir á að þetta hafi verið löngu áður en Me Too bylgjan hófst. Björn segir Ernu hafa hlustað á vin­konu sína með mik­illi hlut­tekn­ingu og endað á því að styðja hana.

„Og svo fer hún að hugsa, fyrst þetta getur gerst, svona góður faðir og góð dóttir, getur þetta þá ekki líka verið að ger­ast á mínu heim­ili. Og hún fer fyrst til eldri dóttur minnar, sem þá var 15 ára, og spyr hana hvort pabbi hennar hafi nokkurn tím­ann gert henni eitt­hvað mis­tækt og hún segir nei, ekki neitt, aldrei heyrt svona lagað nefnt.

Syst­urnar á góðri stundu

Síðan fer hún til eldri dóttur okkar, sem þá var þriggja og hálfs árs gömul, og spyr, hefur pabbi þinn nokkurn tím­ann gert þér eitt­hvað?

Ég veit nátt­úru­lega ekki nákvæm­lega hvernig hún orð­aði þetta, hvort hann hefði gert eitt­hvað fyrir neðan mitti. En dóttir þeirra svarar já, hann gerði það. Ég veit heldur ekki hvernig hún lýsti því en þetta varð eins og bens­ín­sprengja inn í hjóna­bandið og þarna byrjar þetta.“

Segir Björn að þá hafi kona hans rokið með dóttur þeirra til lög­regl­unnar, sem hafi bent þeim á að tala við sál­fræð­ing. Lög­reglan er með sál­fræð­ing á sínum vegum sem fer í slík mál og er dóttur þeirra hjóna komið að hjá honum. Sál­fræð­ing­ur­inn tal­aði eins­lega við þau öll fjögur, hann, konu hans og stúlk­urnar og svo skoðað þetta vel, að sögn Björns. Því næst hafi hann kallað þau hjónin á fund þar sem hann til­kynnti þeim að ekk­ert væri í þessu máli sem hægt væri að taka á: „Hann sak­felldi mig ekki en hann sýkn­aði mig ekki heldur. Hann sagði bara, það er ekk­ert bita­stætt í mál­inu og að hann sæi enga ástæðu til að aðhaf­ast neitt frekar,“ segir Björn.

Engu að síður var þetta bara byrj­unin. Björn segir ásak­an­irnar hafa haldið áfram og að á þessum tíma hafi hjóna­bandið verið orðið lélegt. „Það var áfram kynt undir og smám saman varð þetta allt verra og verra. Og til að gera langa sögu stuttu skildum við í júní 1993, eig­in­lega nákvæm­lega 10 árum eftir að við gift­umst,“ segir Björn.

Deilt um umgengnisrétt

Hann segir að eftir skiln­að­inn hafi næsti kafli byrjað. Þá hafi deilur um umgengn­is­rétt haf­ist. Fenginn var félags­ráð­gjafi til að ræða við dæt­urnar. Tekin voru ítar­leg við­töl við stúlk­urnar að sögn Björns og í kjöl­farið hafi félags­ráð­gjaf­inn til­kynnt þeim að ekk­ert óeðli­legt væri við þessar dætur og að ekk­ert hafi komið fram sem benti til þess að þær hefðu verið mis­höndl­aðar.

Eftir það var gert umgengn­is­rétt­ar­sam­komu­lag: „En því miður það stóð aðeins í mjög skamman tíma,“ segir Björn.

Samkvæmt Birni stóð sam­komu­lagið í um það bil einn vetur, en þá rifti Erna því. Leitaði hann strax til sýslu­manns sem vís­aði mál­inu áfram til barna­vernd­ar­nefndar. „Biðin eftir nið­ur­stöðu stóð í ein­hverja mán­uði. Á meðan var engin umgengni,“ segir Björn. Að lokum komst aftur á sam­komu­lag en það stóð heldur ekki lengi.

„Ég elska þær enn þá, ég get ekki lýst því nánar en svo. Ég elska þær bara mjög mikið.“

Það voru gerð fjögur umgengn­is­sam­komu­lög á næstu tíu árum en Björn segir þau öll hafa átt það sam­merkt að stand­ast ekki.

„Kveðst hún fara fram á að vilji dætr­anna verði nú virtur og að þær njóti aðstoðar sýslu­manns­emb­ætt­is­ins við að fá frið fyrir föður sem þær óski ekki eftir umgengni við“

Í öllum til­fellum hélt Erna því fram að Björn hefði mis­höndlað dæt­urnar, en ekk­ert þess­ara til­fella kærði hún og þar af leið­andi gerði barna­vernd­ar­nefnd ekki neitt í að fylgja gruni um mis­höndlun eftir. Hún ein­beitt sér ein­ungis að koma á nýju sam­komu­lagi um umgengni.

„Svo þegar þetta var búið að ger­ast þrisvar eða fjórum sinnum þá sagði ég við sýslu­mann­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þetta gengur ekki lengur, ég verð að fá ein­hvern umgengn­is­úr­skurð því að þessi sam­komu­lög  eru ekki papp­írs­ins virði sem þau eru skrifuð á og það endar með því að sýslu­maður úrskurðar 2002,“ segir Björn.

Í úrskurð­inum kemur meðal ann­ars fram að við fyr­ir­töku máls­ins 19. jan­úar 2001 hafi Erna sagst ekki vilja þvinga börn sín til að umgang­ast föður sinn. Dæturnar voru einnig við­staddar umrædda fyr­ir­töku og lýstu þær því þar yfir að þær hefðu ekki áhuga á að hitta föður sinn. Þarna höfðu dæt­urnar ekki hitt föður sinn síðan í nóv­em­ber 2000.
Stuttu eftir fyr­ir­tök­una flyst Erna ásamt dætrum sínum til Finn­lands, en deil­urnar halda áfram.

Að undirlagi móður

Í bréfi Björns til sýslu­manns­emb­ætt­is­ins þann 22. maí 2001 segir hann að yfir­lýs­ing dætra hans um að vilja ekki hitta hann vera að und­ir­lagi móður þeirra og að ekki væri hægt að trúa henni. Sagði hann jafn­framt að fram í nóv­em­ber hafi dætur hans umgeng­ist hann og fram­koma þeirra gagn­vart honum verið eðli­leg.

Um sum­arið flytj­ast mæðgurnar aftur til Íslands og fengu sér­fræði­ráð­gjöf á vegum emb­ættis sýslu­manns þetta sumar.

Mynd af þeim feðgin­unum frá 1998.

„Með bréfi Ernu, dags. 16. októ­ber 2001, ítrekar hún kröfu sína um að full­trúi sýslu­manns fái upp­lýs­ingar um við­tal sál­fræð­ings við dæt­urnar. Kvað hún sál­fræð­ing­inn hafa sagt sér að þær vildu ekki hitta föður sinn nema í tengslum við ferm­ingar. Þá kvað hún dæt­urnar einnig hafa sett þennan vilja fram við marga sál­fræð­inga og félags­ráð­gjafa sem sýslu­manns­emb­ættið hafi sent þær til und­an­farin tíu ár og vís­aði einnig til fundar við með­ferð þessa máls. Kveðst hún fara fram á að vilji dætr­anna verði nú virtur og að þær njóti aðstoðar sýslu­manns­emb­ætt­is­ins við að fá frið fyrir föður sem þær óski ekki eftir umgengni við.“

„Þær sögðu að allt í lagi væri að hafa umgengni eins og hún hafi verið. Þær vilji ekki loka alveg á föður…“

Þann 30. októ­ber 2001 gefur sál­fræð­ingur emb­ætt­is­ins vitn­is­burð og álit í mál­inu. En þar kemur fram um við­tal við dæt­urnar: „Þær sögðu að allt í lagi væri að hafa umgengni eins og hún hafi verið. Þær vilji ekki loka alveg á föður, segja að hann sé alveg góður við þær og að þeim finn­ist eðli­legt að hann vilji halda sam­bandi. Þær geta hugsað sér að hann megi vera í tölvu­póst­sam­bandi við þær.“

Fram kemur í áliti sál­fræð­ings­ins: „Und­ir­rit­aður setur fyr­ir­vara við vitn­is­burð þennan um vilja stúlkn­anna vegna þess að hann mót­ast af harðri deilu for­eldr­anna og því að í máli þessu hefur mynd­ast ára­löng sjálf­helda í fjöl­skyld­unni eftir að faðir var ásak­aður um sifja­spell. Það mál virð­ist ekki hafa verið til lykta leitt eða hlotið ásætt­an­lega úrlausn fyrir fjöl­skyld­una heldur þró­ast út í harða og langvar­andi umgengn­is­deilu sem ekki sér fyrir end­ann á. Stúlk­urnar hafa lent þar inn á milli og líða fyrir það. For­eldr­arnir ætl­ast til þess að dæt­urnar velji á milli þeirra með því að lýsa yfir vilja sínum en slíkri aðstöðu er almennt reynt að hlífa börnum við. Við þessar aðstæður eiga stúlk­urnar engan góðan val­kost og vafa­samt er að líta svo á að þær hafi frjálsan vilja í stöð­unni. Und­ir­rit­aður telur rétt að virða yfir­lýstan vilja stúlkn­anna en jafn­framt að vilji þeirra sé skoð­aður í ljósi þeirrar stöðu sem þær eru í. Báðir for­eldrar ásaka hitt for­eldrið um hvernig komið er í sam­skiptum innan fjöl­skyld­unnar og krefj­ast úrskurðar sér í vil. Und­ir­rit­aður mælir með því að ef úrskurðað verður þá verði það á þá leið að umgengni verði lítil í fyrstu en mögu­leiki verði á því að hún vaxi ef vel gengur.“

Afrit af gömlu bréfi sem yngri dóttir Björns sendi honum.

Björn segir að í þau fjögur til fimm skipti sem þau hafi farið í hringrás í gegnum sýslu­manns­kerfið hafi eng­inn þar viljað meina að það hefði við ein­hver rök að styðj­ast að hann hefði gert börnum sínum eitt­hvað, ekki einn ein­asti.

Hann seg­ist hafa heyrt það eftir á að það sé mjög algengt í for­ræðis- og umgengn­is­málum að mæður noti það sem öfl­ugt vopn gegn föð­urnum að segja börnin hrædd við hann, hann lemji þau eða káfi á þeim eða annað verra. „Þetta er mjög algengt og er skil­virkt vopn. Þetta er skil­virkt að því leyti að það stoppar umgengni, það er þá farið í skoð­anir eða eitt­hvað fleira og gerir alla umgengni taf­sama sem kemur fyrst og fremst niður á börn­unum sjálfum. Þau missa þá tengsl við pabba sinn. Það er yfir­leitt ekki þannig að svona ásak­anir séu gegn konum, nei, þær eru gegn körlum,“ segir Björn.

„Þær voru mjög hændar að mér“

En hvernig minn­ist Björn sam­bands­ins við dætur sínar?

„Mjög gott sam­band, frá fæð­ingu og þar til við skildum. Líka fyrstu tvö, þrjú árin þar á eftir þá voru þær mjög hændar að mér, þótti gaman að vera með mér, hlakk­aði til að hitta mig, aldrei neitt óþægi­legt og við áttum svo góðar fjöl­skyldu­stundir saman, komu til mín í nokkra klukku­tíma og borð­uðu hjá mér. Eldri systk­inin voru með og það var bara rosa gaman hjá öllum. Svo fer að kárna gam­anið þegar þær verða svona lengi í burtu, umgengni er slitið og þá tekur marga mán­uði að koma henni á aftur. Annars vegar þegar þær fluttu til Dan­merkur, þá leið nú eig­in­lega nærri heilt ár án þess við hitt­umst. Síðan þegar þær fluttu til Finn­lands þegar Erna hóf sam­búð með manni þar í landi, þá skeði það sama, það var nú heldur styttra samt. Og þá, hvernig á ég að orða það, ókunn­uð­ust þær mér, fjar­lægð­ust mig og það breytti þessu sam­bandi. Ef það er nógu langt á milli þá verður það bara þannig, það er ekk­ert annað. En þær voru ánægðar hjá mér oft og mörgum sinnum.“

„Hún flutt­ist þangað um miðjan vetur, tók þær úr skól­anum og einn, tveir og þrír til útlanda“

Samkvæmt Birni flutt­ist móðir dætr­anna tvisvar sinnum með þær til útlanda frá 1993 til 2001. Fyrst hafi þær flust til Dan­merkur í níu mán­uði og síðar til Finn­lands, eins og fram hefur komið. Björn segir um Finn­lands­flutn­ing­inn: „Hún flutt­ist þangað um miðjan vetur, tók þær úr skól­anum og einn, tveir og þrír til útlanda. Án þess að láta nokkurn vita, hún lét mig ekki vita eða neitt heldur bara frétti ég það eftir á úr skól­anum.“

Segir hann litla sem enga umgengni hafa verið eftir að þær snéru aftur heim til Íslands sum­arið 2001. „Yngri dóttir mín vildi halda sam­bandi við mig og gerði það í nokkur ár alltaf öðru hverju, kom til mín og hitt­umst svona. En sú eldri ekki nema þá á afmælum og í ferm­ing­unni hennar en yngri aftur á móti oftar,“ segir Björn.

Eftir stúd­ents­próf flutt­ist yngri dóttir Björns erlendis og segir hann sam­bandið milli þeirra hafi þá rofnað og ekk­ert verið síðan, en hún er enn búsett erlendis.

„Finnst þér hún ekki hryllileg?“

Það var síðan fyrst í jan­úar 2020 að Björn heyrir af við­tali Stund­ar­innar við dætur sínar, sem komið hafði út í lok árs 2018. Var það í kjöl­farið af atlögu gegn honum í fjall­göngu­klúbbi þar sem hann var með­limur.

Björn segir hóp innan klúbbs­ins hafa gefið það út við stjórn­endur að annað hvort væri hann lát­inn fara eða þau færu. Nið­ur­staðan varð sú að Birni var gert að yfir­gefa fjall­göngu­klúbb­inn og honum end­ur­greitt félags­gjaldið.
Síðan hefur hann ekki gengið með þeim. Björn segir frá því að í kjöl­far þess hafi mikil vin­slit orðið sem taki hann reglu­lega sárt.

„Það eru margir sem hafa lesið grein­ina og fyllst hryll­ingi. Hefurðu lesið grein­ina alla? Finnst þér hún ekki hrylli­leg?“ spyr Björn og heldur áfram: „Þeir sem lesa þessa grein hugsa sem svo, þetta er svo ámát­legt að þetta hlýtur að vera satt. Þannig sem liggur í þessu.“

Síðasta sumar seg­ist Björn hafa staðið á tíma­mótum, annað hvort gerði hann eitt­hvað í mál­inu eða legði niður róf­una og léti kyrrt liggja.

Segist hann fyrst hafa reynt að leita sátta­leiðar og sent eldri dóttur sinni bréf þar sem hann óskar eftir að þetta sé tekið fyrir í fjöl­skyld­unni og sátta­leið reynd. Bréfinu var svarað með nafn­lausri færslu inni á Facebook síð­unni Líf án ofbeldis. Og þar undir dul­nefni en í svar­inu segir hann dóttur sína meira eða minna hafa hæðst að sér fyrir bréfa­skrifin. Og segir hann að þar með hafi sú sátta­um­leitun farið í vaskinn.

„Nákvæmara og ógeðslegra en ég hef nokkurn tímann heyrt áður“

Í grein Stund­ar­innar kemur ýmis­legt fram sem Björn seg­ist ekki hafa séð eða heyrt áður. Segist hann ekki muna eftir því að móðir dætr­anna tveggja hafi borið á hann til­tek­inn atburð og segir hann lýs­ing­arnar vera graf­ísk­ari, nákvæm­ari og ógeðs­legri heldur en hann hafi nokkurn tím­ann heyrt áður.

„Það sagði aldrei neinn við mig að ég hefði verið að káfa á þeim þegar ég sagði þeim sögur“

„Það sagði aldrei neinn við mig að ég hefði verið að káfa á þeim þegar ég sagði þeim sögur. Ég sagði þeim tals­vert mikið af sögum, þær vildu að ég sæti með bók og læsi fyrir þær og þá sátu þær á sitt hvorum arm­inum á hæg­inda­stólnum“.

Áréttar Björn að dætur sínar hafi ávallt verið saman þegar þær komu til hans sem börn, það hafi ekki verið fyrr en þær urðu eldri, komnar í fram­halds­skóla, þá hafi yngri dóttir hans stundum komið án eldri systur sinnar. En þannig hafi það verið að ef önnur hafi verið veik, þá kom hvorug þeirra. „Þær voru alltaf tvær. Sem gerir það nátt­úr­lega miklu ólík­legra, hvernig átti það þá nákvæm­lega að ger­ast að ég væri með fing­urna ein­hvern veg­inn í þeim báðum í einum eða önnur væri skilin eftir frammi á meðan, hvernig hefði það átt að geta gerst?“ spyr Björn.

„Því meira sem maður hugsar út í það, því meira absúrd er þessi til­gáta.“

Segir hann þó rétt vera að hann hafi skeint dóttur sinni í einni heim­sókn­inni, en hann hafi ein­ungis þurrkað henni og ekk­ert meira en það. „Ég bar svo sann­ar­lega ekki á hana vaselín eða gerði neitt í þeim efnum. Ég snerti þær aldrei fyrir neðan mitti og þaðan af síður bar ég á þær vaselín eða reyndi að hita­mæla þær í gegnum kyn­færi eða troða vaxlitum upp í kyn­færin. Þetta eru alveg voða­legar lýs­ingar og ef þær hafa farið heim og sagt mömmu sinni að pabbi gerði þetta, þá hefði hún nátt­úru­lega rokið í háa­loft og bein­línis strax til lög­regl­unnar. Það bara gerð­ist ekki og var aldrei,“ segir Björn.

Samkvæmt bréfi frá móður dætr­anna til sýslu­manns sem birt var í Stund­inni kemur fram að Björn hafi árið 1995 ítrekað talið ástæðu til að bera vaselín á kyn­færi yngri dótt­ur­innar, þó hún hafi aðeins komið í kvöld­verð­ar­boð. Þar segir jafn­framt að þetta geti núver­andi sam­býl­is­kona Björns stað­fest.

Björn Matth­í­as­son sýnir gamlar fjöl­skyldu­myndir sem hanga á vegg heima hjá honum. Mynd/ Róbert Reyn­is­son

Umræddri sam­býl­is­konu var Björn kvæntur í 19 ár, eða þar til að hún dó frá honum úr krabba­meini árið 2017. Segist Björn þess full­viss um að hún hafi ekki stað­fest þessa frá­sögn, hún hafi oft­ast verið við­stödd allan tím­ann þegar stúlk­urnar komu í heim­sókn og ekk­ert slíkt hafi átt sér stað.

Dætur hans segja frá því hvernig faðir þeirra hafi setið fyrir þeim og mætt í skól­ann sinn, þrátt fyrir að hafa ekki leyfi til þess. Björn segir nokkuð vera til í þessu.

„Það er þannig að ég kom í skól­ann alveg fyr­ir­vara­laust eða að þeim í frí­mín­útum og allt í einu er ég bara mættur eins og skoll­inn úr sauð­ar­leggnum. Þeim brá, það er alveg rétt, það er nokkuð til í því og þær hafi, ég veit nú ekki hvort það eigi að segja að þær hafi orðið hræddar en þær urðu hvumsa við. Ég man í eitt skipti að yngri dóttir mín tal­aði mjög vel við mig eftir þetta. Svo man ég í annað skiptið að um leið og hún sá mig þá brast hún í grát, hún fór að hágráta á miðjum leik­vell­inum fyrir framan leik­fé­laga sína og gæslu­kon­una sem hljóp strax til og hugg­aði hana og svo hugg­aði ég hana en þá varð mér það líka ljóst að það væri ekki heppi­legt að ég heim­sækti þær þannig, en þá höfðu líka liðið margir mán­uðir þar sem klippt var á alla umgengni. Þetta var raun­veru­lega eina leiðin fyrir mig til að sjá dætur mínar og ég við­ur­kenni eftir á að þetta voru átök, bæði fyrir mig og þær.“

Samkvæmt eldri dóttur hans segir hún hann hafa sagt móður þeirra hafa heila­þvegið þær syst­urnar: „Ég hugsa að ég hafi nú aldrei notað orðið heila­þvottur. En þær voru spurðar eig­in­lega í hvert sinn sem þær komu frá mér, hvað gerð­ist? Gerði hann þér nokkuð? Eitthvað svona. Smám saman hefur það prent­ast inn í þær að það sé eitt­hvað stóral­var­legt á ferð­inni.“

Í grein Stund­ar­innar er jafn­framt sagt frá því að Björn hafi verið ofbeld­is­fullur í hjóna­bandi sínu við Ernu. „Að ég hafi verið ofbeld­is­fullur í hjóna­band­inu,“ segir Björn undr­andi. „Nei ég neita því, ég var aldrei ofbeld­is­fullur, en hins vegar gengu illindin fram og til baka með orðum, það má nátt­úru­lega kalla það orða­of­beldi. Það var ekki lík­am­legt ofbeldi en það voru hróp og köll á milli okkar, já. Að þeim mjög lík­lega áheyr­andi þó að ég held að við höfum bæði reynt að hlífa þeim við því. Það sauð ansi oft upp úr eftir að yngri dóttir okkar fædd­ist í júní 89, þá eig­in­lega byrj­aði að halla veru­lega undan fæti í hjóna­band­inu, en það var allan tím­ann erfitt,“ segir Björn.

Segir hann þessa erf­ið­leika hafa verið jafn mikið sér að kenna og henni, en að hans mati á að skipta slíkum sökum 50%.

„Það er ekk­ert unnið við að segja þetta var allt henni að kenna eða þetta var allt honum að kenna. Svona nokkuð er alltaf báðum að kenna og ég tek á mig helm­ing­inn af því.“

Segir hann þau bæði hafa verið í mik­il­vægum og streitu­vald­andi störfum og að þau hafi bæði unnið eins og skepnur. Við­ur­kennir hann að þetta hafi ekki verið heim­il­is­vin­gjarn­legt umhverfi, eins og hann orðar það sjálfur.

Björn á fyrir fjögur börn frá fyrsta hjóna­bandi sínu, þrjá syni og eina dóttur. Móðir þeirra lést 1981 eftir nær 18 ára hjóna­band. Þau hafa aldrei tekið undir það sem á hann er borið.

„Ef þau hefðu trúað þessum ásök­unum hefðu þau látið lög­regl­una vita. Það er þegn­skylda að láta svona alvar­leg afbrot ganga sína leið, ég er alveg viss um það. Þau eru það full­orðin að þau vita annað eins.“

Segir hann syni sína ekki vera í miklu sam­bandi lengur við yngstu dætur sínar tvær, en þær systur haldi sam­bandi.

Heldur enn í vonina um að sættir náist

„Ég veit ekki hvort hann elskaði okkur eða ekki, það var ekki mjög ljóst af því hvernig hann var að haga sér,“ sagði eldri dóttir Björns í sam­tali við Stundina. Hvernig líður Birni að heyra þessi orð dóttur sinnar?

„Ég elska þær enn þá, ég get ekki lýst því nánar en svo. Ég elska þær bara mjög mikið,“ segir Björn, klökknar og gerir hlé á máli sínu.

„Já ég get ekk­ert sagt við þessu það er, þetta er bara hennar skoðun. En ég reyndi ekki að beita þær neinu and­legu ofbeldi eða neinu ofbeldi. Þvert á móti, ég gerði allt sem ég gat til að hæna þær að mér, en það hefur greini­lega ekki tek­ist þannig það er áreið­an­lega eitt­hvað til í þessum orðum hennar. Því miður. En að ég hafi beitt þær ofbeldi það gerði ég ekki.“

Björn seg­ist hafa leitað ýmissa leiða til að ná fram sáttum við yngstu dætur sínar tvær, til dæmis bað hann fyrir um tveimur árum prest um aðstoð, en án árang­urs. Hann seg­ist þó aldrei gefa upp alla von um að ná sáttum.

„Ég vona alltaf. En það er, ég sé það ekk­ert í sjón­máli, en við verðum öll eldri og þroskaðri og við breytum um skoðun. Ég vona að það ger­ist einn góðan veð­ur­dag, að við getum verið vinir og hagað okkur eins og faðir og dætur. Nú er ég að verða 82 ára, ég á ekki mörg ár eftir og ég bara vona að það ger­ist áður en ég kveð þennan heim,“ segir Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu