„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?

Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?

Umsjón/ María Erla og Guðný Hrönn

Hönn­un­ar­Mars hefst á morgun, 19 maí, og er þetta í 13. sinn sem hátíðin er haldin. Við­burð­ur­inn er stærsta hönn­un­ar­há­tíð lands­ins. Við heyrðum í nokkrum hönn­uðum sem sýna á Hönn­un­ar­Mars í ár og spurðum þau meðal annasr út í hvað þau ætla að sjá.

Sigmundur Freysteinsson fatahönnuður

Hvað ert þú að sýna á HönnunarMars?

Síð­ast­liðið ár hef ég gert til­raunir á rúm­lega 40 mis­mun­andi lit­un­ar­efnum frá plöntum, þangi og mat­ar­úr­gangi. Afurðin er grein­ar­góður gagna­grunnur nátt­úru­lita úr íslensku umhverfi sem verður sýndur á Hönn­un­ar­Mars. Mark­miðið með rann­sókn­inni er að kanna mögu­leika íslenskrar textíllit­unnar sem umhverf­is­vænan val­kost fyrir fram­leiðslu á nútíma­hönnun. Sýningin verður á Hönn­un­ar­safni Íslands og þar verður hægt að sjá hversu fjöl­breytta liti má ná fram með nátt­úru­legu lit­ar­efni úr íslensku umhverfi.

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

Ég reyni alltaf að fara á fjöl­breyttar sýn­ingar á Hönn­un­ar­Mars til að fá góða inn­sýn í hvað hönn­uðir Íslands eru að fást við. Ég er spenntur að sjá hvaða sýn­ingar verða hjá textíl- og fata­hönn­uðum í ár. Einnig er ég for­vit­inn að sjá hvort sýn­ingar verða öðru­vísi í ár vegna þess að flest verkin verða unnin á tímum COVID en því geta fylgt ýmsar tak­mark­anir.

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

Fyrir mér er Hönn­un­ar­Mars upp­skeru­há­tíð hönn­uða á Íslandi. Það er frá­bært að hafa vett­vang þar sem hönn­uðir geta komið saman og kynnt ný verk­efni. Einnig finnst mér gaman og hvetj­andi að sjá hversu mikil gróska er í land­inu í mis­mun­andi greinum hönn­unar.

Viktor Breki Óskarsson leirlistamaður

Hvað ert þú að sýna á HönnunarMars?

Verk­efnið er sam­starf milli Hann­es­ar­holts og Mynd­lista­skól­ans í Reykja­vík. Hann­es­ar­holt er veit­inga­staður og sýn­ing­ar­rými stað­sett á Grund­ar­stíg í Miðbæ Reykja­víkur. Sam­starfið felst í því að hanna disk og eld­fast mót í formi skálar fyrir veit­inga­stað­inn en einnig er sett upp sýn­ing í rým­inu sem varpar ljósi á sköp­un­ar­ferlið.

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

Það eina sem ég hef neglt niður er Studioh50. Samtal á milli leirs og efnis, ég hlakka mikið til. Svo mun for­vitnin draga mig áfram þegar nær dregur.

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

Mér finnst Hönn­un­ar­Mars hjálpa mér per­sónu­lega við að upp­götva hvað er að ger­ast í list­sköpun og vöru­hönnun á Íslandi á ári hverju. Ég er ekki nógu dug­legur að sækja sýn­ingar í það heila en Hönn­un­ar­Mars hefur gefið mér svo­lítið spark í rass­inn.
Í stóra sam­heng­inu vona ég einnig að ég muni geta notað Hönn­un­ar­Mars til þess að koma minni sköpun á fram­færi á kom­andi árum.

Þórdís Erla Zoëga myndlistarmaður

Mynd/ Sunna Ben

Hvað ert þú að sýna á HönnunarMars?

„Ég og mað­ur­inn minn, Kristján Jón Pálsson, erum með nýstofnað hönn­un­ar­stúdíó sem heitir Stúdíó Flötur. Stúdíó Flötur vinnur á mörkum mynd­listar og hönn­unar og leggur áherslu á fleti. Varan sem við erum að vinna í núna eru sér­hann­aðar vín­ylmottur sem koma í tak­mörk­uðu upp­lagi og eru núm­er­aðar og árit­aðar. Þær eru hugs­aðar sem lista­verk á gólf, en einnig er hægt að hengja þær upp á vegg. Sýningin okkar á Hönn­un­ar­Mars heitir Funky terrazzo þar sem að mott­urnar eru undir áhrifum frá terrazzo-flísum, en þær geta sam­an­staðið af í raun­inni hverju sem er á vín­ylmottuflet­inum. Við hönnum bæði okkar eigin mottur undir for­merkjum Stúdíó Flatar og svo fáum við lista­mann­inn Áslaugu Í.K. Frið­jóns­dóttur og hönn­un­ar­dúóið And Anti Matter, en Þórey Björk Hall­dórs­dóttir og Baldur Björns­son skipa það, til að hanna sínar eigin terrazzo-lista­verkamottur í tak­mörk­uðu upp­lagi. Við­burð­ur­inn er hald­inn á Hafn­ar­torgi í Pop up-rým­inu þar sem pílu­stað­ur­inn SKOR er með starf­semi sína.“

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

„Ég er mjög spennt fyrir sýn­ing­unni Sjón­ar­horn með Hönnu Dís Whitehead og Guðmundi Úlf­ars­syni. Það er eitt­hvað mjög áhuga­vert við sam­starf þeirra þar sem að þau vinna út frá letri á mjög skap­andi hátt í mörgum miðlum. En svo hlakka ég til að sjá rest­ina af dag­skránni!“

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

„Þetta er geggjað tæki­færi til að koma hug­myndum sínum á fram­færi og að sjá allt sem er að ger­ast í hönnun á Íslandi í dag.“

Valdís Steinarsdóttir hönnuður

Hvað ert þú að sýna á HönnunarMars?

„Verk­efnið SniðMót er rann­sókn á nýrri aðferða­fræði við fram­leiðslu á fatn­aði. Í stað þess að klippa út efni og sauma á hefð­bund­inn hátt er not­ast við tví­vítt form sem nátt­úru­legu fljót­andi efni er hellt í. Þegar efnið hefur þornað er það tekið úr mót­inu og þá er flíkin að mestu til­búin, ein­ungis þörf á lít­ils háttar frá­gangi. Mótið er í raun hannað eins og púsl. Þannig er hægt að breyta snið­inu að vild, meðal ann­ars er hægt að breyta stærð og sniði á flík­inni eftir því hvernig mót­inu er raðað saman. Þegar not­and­inn hefur fengið nóg af flík­inni eða vill breyta til getur hann brætt hana og hellt efn­inu aftur í mótið. Þá hefur not­and­inn mögu­leika á því að breyta mót­inu og nýta efnið til að búa til nýja flík. Ég mun líka sýna Myglu­prent­ara sem ég hef verið að vinna að í sam­starfi við hönn­uð­ina Arnar Inga og Sigrúnu Thorlacius. Við höfum verið að skoða hvernig hægt er að nýta myglu sem eins konar líf­rænt blek til að prenta á líf­rænt efni.“

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni?

„Ég er mjög spennt að sjá Stúdíó Fléttu, sýn­ing­una Hlutverk í Ásmund­ar­sal, sam­starfið hjá Hönnu Dís Whitehead og Guðmundi Úlf­ars­syni og sýn­ing­una Fylgið okkur í Gerð­ar­safni.“

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

„Mér þykir mjög vænt um Hönn­un­ar­Mars. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægur partur af vinnu hönn­uða að miðla verkum sínum til almenn­ings og Hönn­un­ar­Mars gefur okkur sviðs­ljósið til að gera það.“

Ragna Sara Jónsdóttir, eigandi hönnunarfyrirtækisins FÓLK

Mynd/ Saga Sig

Hvað eruð þið að sýna á HönnunarMars?

FÓLK verður í ár með fjöl­breytta sýn­ingu á Hafn­ar­torgi, nán­ari til­tekið á Tryggva­götu 25. Við verðum í frá­bæru horn­rými sem er rúm­gott og gefur okkur tæki­færi á að sýna bæði þær vörur sem við erum að hanna, fram­leiða og selja nú þegar undir vöru­merk­inu FÓLK Reykja­vík en einnig munum við gefa inn­sýn í hönn­unar- og þró­un­ar­ferlin okkar sem við vinnum í sam­starfi við bæði hönn­uði og fram­leið­endur.

Í ár erum við með fókus á end­ur­vinnslu og hringrás margs konar hrá­efnis og höfum verið að vinna í þróun ásamt spenn­andi hönn­uðum sem við erum að vinna í fyrsta skipti með, en það eru Tinna Gunn­ars­dóttir, Stúdíó Flétta og Ragna Ragn­ars­dóttir. Allt eru þetta frá­bærir og hæfi­leik­a­ríkir hönn­uðir sem hefur verið virki­lega spenn­andi að vinna með. Einnig munum við sýna glæ­nýja hönnun eftir þá hönn­uði sem við höfum verið að vinna með síð­ustu tvö til þrjú ár, en það eru Jón Helgi Hólm­geirs­son, Ólína Rögnu­dóttir og Theodóra Alfreðs­dóttir. Við erum mjög spennt að sýna ykkur afrakstur þessa hönn­un­ar­sam­starfs.

Við munum einnig bjóða upp á hönn­un­ar­spjall í nokkur skipti yfir Hönn­un­ar­Mar­s­inn þar sem við veitum inn­sýn í sam­starf hönn­uða og vöru­merkis, þró­un­ar­ferlið og áherslu okkar á sjálf­bærni og hringrás hrá­efna.

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

Eins og alltaf þá verður án efa fjöl­breytt fram­boð af spenn­andi sýn­ingum og við­burðum á Hönn­un­ar­Mars. Það er alltaf spenn­andi að kíkja í Epal, á Hönn­un­ar­safnið og í Fischer. Þá er ég sér­stak­lega spennt fyrir að kíkja á sýn­ing­una Samtal hjá Studio H50, íslenska glerið hjá Kristínu og Fléttu og taka rúnt­inn niður í bæ og kíkja á sem flesta staði til að gera sem mest af nýjum upp­götv­unum.

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

Fyrir íslenskt hönn­un­ar­vöru­merki sem hannar og þróar allar sínar vörur frá grunni í sam­starfi við íslenska hönn­uði þá hefur Hönn­un­ar­Mars afar mikla þýð­ingu. Bæði veitir hátíðin almenn­ingi og unn­endum hönn­unar tæki­færi á að fá inn­sýn í störf hönn­uða og skap­andi ferla. En einnig veitir það okkur tæki­færi til að sýna dag­leg við­fangs­efni okkar á spenn­andi hátt og fanga þannig athygli bæði almenn­ings, arki­tekta, nýrra sölu­að­ila og síð­ast en ekki síst inn­lendra sem erlendra fjöl­miðla, sem er afar mik­il­vægt fyrir okkur.

Hulda Katarína Sveinsdóttir og Hera Guðmundsdóttir, listakonur og hönnuðir hjá Studio H50

Hvað eruð þið að sýna á HönnunarMars?

Við í Studio H50 verðum með sýn­ing­una Samtal sem er lif­andi sýn­ing á verk­efni í þróun; sam­tal íslenskra jarð­efna, þör­unga og textíls þar sem hrá­efnið og eig­in­leikar þess stýra ferl­inu. Verk­efnið er í grunn­inn rann­sókn á mögu­leikum þess að þróa vist­vænan gler­ung fyrir keramík úr ösku þör­unga og íslenskum jarð­efnum, en það teygir anga sína líka í fleiri áttir. Sýningin fer fram á vinnu­stof­unni okkar sem stað­sett er á Hverf­is­götu 50, 101 Reykja­vík.

Hvað ætlið þið að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

Við erum gíf­ur­lega spenntar fyrir sam­starfs­verk­efnum eins og sýn­ingu Studio Hönnu Whitehead og Guð­mundar Úlf­ars­sonar, Sjón­ar­horn, en það er alltaf áhuga­vert þegar ólíkir pólar mæt­ast. Eins hlökkum við til að sjá sýn­ing­una hjá Studio Valkea sem vinnur með sápur í mjög áhuga­verðu upp­lif­un­ar­tengdu sam­hengi.

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir ykkur?

Það frá­bæra við Hönn­un­ar­Mars er vett­vang­ur­inn sem hátíðin skapar fyrir sam­töl á milli hönn­uða og sýn­ing­ar­gesta – það að geta myndað nýjar teng­ingar og kynnt sig og sínar hug­myndir á sama tíma. Við höfum báðar sýnt á Hönn­un­ar­Mars áður, hvor í sínu lagi, með full­kláruð verk­efni svo við erum mjög spenntar að sjá í hvaða far­veg hátíðin mun leiða verk­efni sem enn þá verða í mótun þegar að opnun kemur.

Aníta Hirlekar fatahönnuður

Mynd/ Þórdís Reynis

Hvað ert þú að sýna á HönnunarMars?

„Ég er ótrú­lega spennt að frum­sýna og kynna gler­augna­línu sem ég hann­aði í sam­starfi við breska merkið Cutler and Gross í London.  Gler­augna­línan er hönnuð fyrir konur og ein­kenn­ist af sterkum lita­sam­setn­ingum, en við lögðum mikla áherslu smá­at­riðin í hönn­un­inni. Gler­augun eru fram­leidd á Ítalíu og eru hand­gerð en þau ríma vel við lit­ríku sum­ar­lín­una okkar. Það verður hægt að máta og forp­anta í verslun Kiosk Granda og verður línan til sölu þar.“

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

„Ég er ótrú­lega spennt að sjá nýj­ustu lín­una frá MAGNEU sem verður einnig í Kiosk Granda. Og svo er ég alltaf spennt fyrir Ásmund­ar­sal.“

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

„Mér finnst svo mik­il­vægt að taka þátt í Hönn­un­ar­Mars og sjá hversu mikið hönn­un­ar­grein­arnar á Íslandi hafa farið vax­andi. Það er svo mikil sköp­un­ar­flóra í land­inu og ein­stakt tæki­færi að sjá hug­mynda­flugið hjá fólki og hæfi­leik­ana.“

Hanna Dís Whitehead, hönnuður

Hvað ert þú að sýna á HönnunarMars?

„Ég er með tvær sýn­ingar á Hönn­un­ar­Mars. Önnur þeirra heitir Sjón­ar­horn og er fram­hald á sam­starfi mínu við let­ur­hönn­uð­inn Guðmund Úlf­ars­son. Sýningin verður í Harbin­ger. Þar sýnum við sam­tal sem við höfum átt úr tví­vídd í þrí­vídd og aftur til baka. Svo er ég með einka­sýn­ingu í salnum í Norræna hús­inu. Þar er ég að leika mér að því að leyfa mynstrum að ráða formum. Sú sýn­ing heitir Umskipti og má á henni meðal ann­ars sjá stóla, vasa, borð og teppi.“

Hvað ætlar þú að sjá á hátíðinni og hvers vegna?

„Dag­skráin þegar þetta við­tal er tekið er ekki alveg komin út en ég hef verið að fylgj­ast með mörgum verk­efnum á Instagram. Ég kíki t.d. pott­þétt í Hann­es­ar­holt á mjög metn­að­ar­fulla sýn­ingu þar á vegum nem­enda í textíl og keramík í Mynd­lista­skól­anum í Reykja­vík, Hera og Hulda í Studio 50 á Hverf­is­götu eru að gera spenn­andi til­raunir með íslenskan leir og gler­ung úr þör­ungum, það er alltaf eitt­hvað flott í Ásmund­ar­sal og ekki spurn­ing að ég athuga hvað Studio Flétta, Valdís Steinars og Gæla studio hafa verið að bralla. Ég reyni að kíkja líka alltaf í Epal þar er vana­lega fjöl­breytt úrval af alls kyns hönnun. Í raun er ég svo hönn­un­ar­þyrst að ég reyni að sjá sem mest alveg sama hvort það er tengt fata­hönnun, graf­ískri hönnun, vöru­hönnun eða ein­hverju öðru.“

Hvaða þýðingu hefur HönnunarMars fyrir þig?

„Hönn­un­ar­Mars er upp­skeru­há­tíð hönn­uða á Íslandi. Þar er tæki­færi til að hitta fólk sem er að brasa það sama og þú allt árið um kring. Það er líka tæki­færi á að eiga gott sam­tal við aðra gesti hátíð­ar­innar um verk­efnin sín og fá inn­blástur af öðrum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & híbýli

Landsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ
MannlífiðHús & híbýli

Lands­liðs- og marka­drottn­ing selur í Mos­fellsbæ

Berglind Björg Þor­valds­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, og Kristján Sig­urðs­son hafa ákveðið að selja heim­ili sitt í Mos­fells­bænum. Berglind hefur á und­an­förnum ára­tug verið ein besta knatt­spyrnu­kona lands­ins og algjör marka­drottn­ing. Þá hefur hún spilað 72 lands­leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiða­blik eftir að for­ráða­menn Vals létu Berg­lindi vita...
Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu
MannlífiðHús & híbýli

Litrík og skemmti­leg heim­ili í nýja blað­inu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum. Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni....
Deiglumór, áhugaverð heimildabók um leirlist á Íslandi 1930–1970
Mannlífið

Deiglu­mór, áhuga­verð heim­ilda­bók um leir­list á Íslandi 1930–1970

Í ár kom út bókin Deiglu­mór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970. Í bók­inni er farið yfir sögu leir­list­ar­innar sem hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og segja má að sé órjúf­an­legur hluti af menn­ingar- og lista­sögu heims­ins. Hugtakið deiglu­mór er fornt orð yfir leir og vitnar í notkun hans á Íslandi til deiglu­gerðar á öldum áður. Sú saga er fallin...
Handgerð og eftirtektarverð sojakerti
Mannlífið

Handgerð og eft­ir­tekt­ar­verð soja­kerti

Kerti í alls konar birt­ing­ar­formum hafa verið vin­sæl upp á síðkastið; svo sem lík­ams­kerti og snún­ings­kerti og því óvenju­legri því skemmti­legri að okkar mati. Mynd / soyar Við rák­umst á þetta breska vöru­merki, soyar, sem býður upp á úrval soja­kerta í alls konar útfærslum og litum. Mynd / soy­ar­Mynd: Höfundur ókunnur Kertin eru hand­gerð úr soja­vaxi, eit­ur­efna­laus og vegan. Glæddu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður