„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigrún er berdreyminn víkingur sem hræðist kukl: „Margir halda að ég sé stórskrýtin!“

Sigrún er berdreyminn víkingur sem hræðist kukl: „Margir halda að ég sé stórskrýtin!“

„Við konur stóðum að mörgu leiti framar í fornöld. Karlmenn báru mikla virð­ingu fyrir konum sínum enda er aug­ljóst að þú lifir ekki af á nor­rænum slóðum nema að bera virð­ingu fyrir fram­lagi maka þíns. Þetta fór síðan allt til hel­vítis með krist­ini­tök­unni,“ segir Sigrún Björk Ólafs­dóttir, hönn­uður, kvik­mynda­gerð­ar­maður, ætt­fræð­ingur, vík­ingur og bar­áttu­kona fyrir tján­ing­ar­frelsi.

Fortíðin á erindi til okkar

„Sem krakki elskaði ég goða­fræði út af líf­inu. Eftir því sem ég elt­ist fór ég að kynna mér þetta betur og sá að allt bygg­ist þetta á virð­ingu fyrir nátt­úr­unni. Æsirnir eru per­sónu­gerv­ingar og sam­lík­ingar fyrir nátt­úr­una og nátt­úru­fyr­ir­bæri, þetta er elsta kennslu­efni í heimi og á enn mikið erindi til okkar.

Sigrún elskar vík­ingar, hannar í anda þeirra og gerir stutt­myndir.

Sigrún segir sig vera forn­nor­ræna sál í tutt­ug­ustu aldar lík­ama og er að sjálf­sögðu ása­trúar. „Þetta fólk var svo töff! Við erum ekki að sinna þess­ari stór­kost­legu arf­leifð okkar eins og hún á skilið, það eru ein­hverjir að gramsa í þessu en allir í sitt­hvoru horn­inu. Það er líka mikið af hrika­lega hall­æris­legu fólki í þessu út um allan heim. Þetta er fólk sem hefur horft á ser­í­una Vikings, fer í DNA próf, finnur út að það er kannski með eitt pró­sent nor­rænt blóð, vill vera Ragnar Loðbrók og tattú­verar rúnir á haus­inn á sér. Svo eru það hinir sem virki­lega leggja á sig að lesa sér til. Við vitum samt aldrei allt um for­feður okkar, það breyt­ist með hverjum upp­greftri. Alveg hrika­lega spenn­andi!“

Besti hippi í heimi

Sigrún fer árlega á stóra vík­inga­há­tíð í York á Bret­landi að hitta vík­inga­vini sína. „York er eins og Róm Bret­lands enda þeirra gamla höf­uð­borg, þar eru líka 365 pöbbar, einn fyrir hvern dag á árinu! Ég fer líka reglu­lega á lít­inn stað í Noregi sem heitir Gudvagen. Þar er vík­inga­þorp og allt tengt nútím­anum er bannað. Þú getur reyndar fengið und­an­þágu vegna notk­unar á gler­augum eða heyrn­ar­tæki. Þarna er maður kom­inn aftur til forn­aldar, fer í föt þeirra tíma og dansar undir trommuslætti í tungs­ljós­inu alla nótt­ina eins og besti hippi í heimi. Ég elska það.“

Sigrún var beðin um að halda ræðu í vík­ing­brúð­kaupi vinar síns og fór að kynna sér hjóna­bands­lög­gjöf þess tíma. „Veistu að ef karl­maður sýndi á sér geir­vört­una á almanna­færi færði hann svo mikla skömm yfir fjöl­skyld­una að konan mátti ganga út? Nauð­garar voru rétt­dræpir nema að þeir ættu gríð­ar­leg auð­ævi sem konan sam­þykkti að taka sem skaða­bætur. En það þurfti mikið til og konan réð því alfarið sjálf. Einnig var lög­gjöf um það að ef að efnuð kona gift­ist manin þurfti hann að sanna sig í þrjú ár fyrir henni, meðal ann­ars í bólinu, og ef hann stóð sig ekki mátti henda honum eigna­lausum á göt­una. Af hverju er þetta ákvæði ekki í lögum enn í dag?“ segir Sigrún og skelli­hlær.

Þorir ekki kuklinu lengur

Aðspurð að því hvort Sigrún sé göldrótt seg­ist hún ekki halda það. „Eg er aftur á móti afar ber­dreym­inn og gat spáð í allt þegar ég var yngri. Ég gat aldrei útskýrt það samt. Einn dag­inn sá ég fyrir veik­indi í fjöl­skyld­unni sem þó yrðu allt í lagi og skráði mamma allt niður. Sex mánð­uðum síðan grein­ist sonur bróður míns með bráða­hvít­blæði. Hann var fyrsti strák­ur­inn á Norð­ur­löndum til að lifa þessa teg­und hvít­blæðis af. Mamma var alltaf róleg því hún geymdi spá­dóm­inn frá mér en þetta trufl­aði mig mikið, maður á ekki að vera að kukla í þessu. Ég varð hrædd við þetta og hef ekki snert þetta síðan. Hvort þetta voru galdrar veit ég ekki.“

Höfuðfat úr 50 dauðum fiðr­ildum sem Sigrún hann­aði.

Sigrún hannar og fram­leiðir föt undir nafn­inu SigRun Design sem eru undir áhrifum frá íslenskri nátt­úru og vík­inga­tíma. „Ég hanna föt, skó og veski til dag­legra nota og sel á net­inu. Ég var komin með fram­leiðslu­að­ila og smá­sala fyrir hönn­un­ina en þá kom Covid og allt fór í lás. Ég hef líka verið með dramat­ísk­ari hönnun, sýnt á tískupöllum í London og tekið þátt í stórfurðu­legum verk­efnum. Ég nota mikið dauð dýr í alla hönnun og bý til ljósakrónur úr haus­kúpum. Margir halda á ég sé stór­skrýtin!“

Saknar ekki London

Á meðan Sigrún er föst á Íslandi býr hún í veiði­húsi við Stóru-Laxá í Gnúp­verjar­hreppi. ,,Ég hef ekki tölu á hve oft ég hef bókað flug til Bret­lands sem hefur verið aflýst. Ég var föst ásamt systur minni og syni í ein­angrun í London í 85 daga í fyrra og skráði niður dag­ana eins og fangi á vegg­inn úti. Það sem bjarg­aði því var að ég er með stóran pall og veðrið var gott. En ég tók fyrsta flug til Íslands 15. júní í fyrra og gerði sam­komu­lag við vinnu­veit­anda minn um að vera í fjar­vinnu. Í orðs­ins fyllstu merk­ingu. Upp­runa­lega átti ég að fljúga til London mán­að­ar­lega en það hefur ekki gengið eftir. Ekki það að ég sakni London, ég sat í lest 3 tíma á dag í sautján ár til að kom­ast til og frá vinnu. Ég var alveg útbrunnin og komin með ógeð á borg­inni.“

Sigrún hefur alltaf verið í „venju­legri” vinnu með hönn­un­inni. „Ég vann í tíu ár hjá fyr­ir­tæki sem hjálpar aðilum að stofna skóla í Bret­landi. Mennta­kerfið þar er að hruni komið og fólk getur ekki fengið skóla­vist í yfir­fullum skólum fyrir börnin sín. Aðrir skólar er sumir svo lélegir að það er börnum ekki boð­legt. Við unnum með mennta­mála­ráðu­neyt­inu í að vera ráð­gef­andi við stofnun skóla og við hjálp­uðum til að stofna 509 skóla meðan ég starf­aði þar.” Sigrún hætti í því starfi í febr­úar í fyrra og fór að vinna hjá fyrr­ver­andi yfir­manni sínum, blaða­manni sem var að stofna ný sam­tök sem berj­ast fyrir tján­ing­ar­frelsi.

Tekinn af lífi af dómstól götunnar

„Hann er með umdeildar skoð­anir og hafði verið tek­inn af lífi af dóm­stóli göt­unnar fyrir að nefna orðið brjóst í fimm ára gam­alli Twitter færslu sem ein­hver gróf upp. Hann missti lífs­við­ur­væri sitt og var ofsóttur af blaða­mönnum og var síðar gerð kvik­mynd um hann, „How to Lose Friends and Alienate People”. Hann er ein­fald­lega með rödd í sam­fé­lagi sem gerir allt til að brjóta niður tján­ing­ar­frelsið. Hann ákvað að taka þessu ekki sitj­andi og við berj­umst fyrir fólk sem lendir í sam­bæri­legu. Þessi þöggun er mjög ríkj­andi í háskólum, hjá fjöl­miðla­fólki og reyndar öllum þeim sem eru í sviðs­ljós­inu. Þú ert tek­inn af lífi fyrir að horfa í vit­lausa átt. Fólki finnst bara allt í lagi að setj­ast í dóm­ara­sæti, þykj­ast vera yfir annað fólk hafi og níða það niður og ógna vegna þess að það er „rétt­sýnt”  Þetta er klikkað þjóð­fé­lag sem við lifum í. Við erum á leið í ein­hvern nútíma komm­ún­isma sem er þaggar niður í okkur er við erum ekki sam­mála ein­hverri opin­berri línu.“

„Fólk er að missa vinnu og jafn­vel æruna út af engu. Sjáðu til dæmis uppi­stand­ara sem hafa atvinnu af því að gera grín að þjóð­fé­lag­inu. Þeir mega ekki segja eitt­hvað í dag sem var í lagi í gær. Svo er textum breytt, bókum hent og styttur brotnar.“

Löglegt að finnast Ísfirðingar fávitar

„Við erum að gera góða hluti og erum til dæmis með lög­ræði­deild rekna af frjálsum fram­lögum. Ef við teljum að brotið hafi verið á fólki sem leitar til okkar veitum við þeim lög­fræði­að­stoð. Ég held að allur heim­ur­inn þurfi á okkur að halda og við erum komin með sam­starfs­að­ila út um allt. Sem dæmi má nefna að þér á að vera frjálst að segja að allir Ísfirð­ingar séu fávitar, það er ósmekk­legt en ekki lög­brot. Ef þú aftur á móti seg­ist ætla að skjóta alla Ísfirð­ingar ertu að brjóta lög. Vandinn er að mörkin eru orðin svo óljós, það eru net­löggur og dóm­arar út um allt. Hausinn á fólki er orð­inn svo fullur af rugli,“ segir Sigrún Björk og hristir höf­uðið. Hún er á leið­inni á Fjöru­krána þar sem hún gistir þessa dag­ana. Það er eins nálægt vík­ing­unum og hún nær í augna­blik­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu