„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sævar upplifði alkóhólisma, vanrækslu og kynferðislega misnotkun: „Æska mín farin og barnið dáið“

Sævar upplifði alkóhólisma, vanrækslu og kynferðislega misnotkun: „Æska mín farin og barnið dáið“

„Þeir sögðu aldrei neitt við mig, ég var eins og eitt­hvert drasl sem hafði verið notað og síðan fleygt. Ég man litið eftir hvað ger­ist eftir þetta annað en það að ég klæddi mig í fötin og leiddi hjólið mitt heim. Ég gat ekki hjólað til baka, ég var svo illa far­inn. Strax þá var ég breyttur og annað en barn. Ég var orð­inn fórn­ar­lamb. Æska mín farin og barnið dáið. Aðeins tóm skelin eftir,“ skrifar Sævar Þór Jónsson lög­maður í bók sinni, Barnið í garð­inum, þar sem hann rekur erf­iða æsku sem lituð var af alka­hól­isma, van­rækslu og kyn­ferð­is­legri mis­notkun.

Var búinn að brynja mig

„Bókin er búin að vera að malla í mér í ein­hver ár en lengi vel fannst mér þetta ekki vera saga til að segja. Ég var búinn að brynja mig og gerði mér ekki grein fyrir að ég hafði lifað óhefð­bundnu lífi. Þetta var minn veru­leiki,“ segir Sævar í sam­tali við Mannlíf.

Í bók­inni lýsir Sævar upp­vexti í skugga alka­hól­isma for­eldra, ein­ver­unni og skömminni. Hann var síðan mis­not­aður kyn­ferð­is­lega af þremur ókunn­ugum ein­stak­lingum í skúr vest­ast í Vest­ur­bænum, aðeins átta ára að aldri.

„Þegar barn lendir í áföllum grípur sjálfs­bjarga­við­leitn­inin í taumana og það fennir yfir áföllin. Það þýðir þó ekki að þau fylgi manni ekki. Sagan byrj­aði í upp­hafi sem óður til kvenn­anna í lífi mínu sem voru mér svo mik­il­vægir föru­nautar í æsku. Mig lang­aði að segja sögu þeirra og smám fór svo margt að rifj­ast upp sem ég þurfti að vinna úr. Frá­sögnin er hjálp­ar­tæki í þeirri vinnu.“ Sævar segir að auð­vitað hafi hann einng átt ynd­is­lega tíma í æsku. „Það voru margir lífskúnstnerar í Vest­ur­bænum og dásam­legt að vera nálægt fjör­unni og sjónum. Minn bati felst í því að sjá einnig björtu hluta for­tíð­ar­innar, það var margt fal­legt í henni líka þótt ég við­ur­kenni og opni á áföllin“.

Fjölskyldan ósátt

Foreldar og systk­ini Sævars hafa tekið útgáfu bók­ar­innar illa og er Sævar ekki í sam­skiptum við þau í dag. Hann tekur því af skiln­ingi og æðru­leysi og er engum reiður.

„Ég var við­bú­inn við­brögðum innan fjöl­skyld­unnar og er þeim auð­vitað sorg­mæddur. Ég hef þurft að syrgja fjöl­skyldu mína og það er erfitt. Það er aftur á móti eðli­legt þegar maður segir svona sögu. Ég elska fólkið mitt en ég hef líka rétt á því að segja mína sögu eins og ég upp­lifði hana. Þau hafa einnig sinn rétt á að hafa aðrar skoð­anir. Við höfum öll okkar til­gang og verk­efni í líf­inu og ég þarf að hugsa um mitt nærum­hverfi og bera ábyrgð á eigin lífi.“

Sævar sem barn. Æska hans var lituð áföllum.

Sævar segir að nán­ustu aðstand­endur vilji gleym­ast í umræð­unni um kyn­ferð­is­af­brot.

„Það þarf að tækla fjöl­skyld­urnar, aðstand­endur er hluti af áfall­inu og þeir eiga oft erfitt með að vinna úr því. Þetta getur orðið tabú og ég fékk oft að heyra af hverju ég væri að rifja upp hlut­ina eftir öll þessi ár. Þetta  snýst allt um að opna umræð­una og segja hlut­ina eins og þeir eru, sama hvort liðin eru tíu og fjöru­tíu ár. Það er mik­il­vægt að opna sig og geta talað opin­skátt um hlut­ina til að takast á við áföll.“

Tvær brotnar sálir

Bóka­skrifin reynd­ust Sævari erfið og þeir tímar komu að hann vildi bakka frá verk­efn­inu.

„Það komu þær stundir að ég taldi ég mig ekki getað gefið bók­ina út. Hún var búin að taka það mik­inn toll af mér and­lega. Það þyrmdi yfir mig og ég hefði aldrei getað getað klárað nema fyrir stuðn­ings Lárusar Sigurðar Lár­us­sonar, eig­in­manns míns og með­höf­undar. Ég beit á jaxl­inn og vissi að ég vildi láta bók­ina frá mér“.

Sævar og Lárus höfðu búið saman í sautján ár þegar Sævar opn­aði sig við hann um áföll æsku sinnar og þeir tók­ust í sam­ein­ingu á við bóka­skrifin.

„Auðvitað vissi hann brota­brot, hann vissi að hluta til um ástæð­una fyrir minni van­líðan, hvernig fjöl­skyldu­að­stæður og áföll höfðu mótað mig. Það sem ég held að hafi hjálpað okkur var að við vorum tvær brotnar sálið í leit að stuðn­ingi og gátum leitað í styrk­leika hvers ann­ars. Brotin okkar tvö smullu saman eins og jing og jang en fullar skýr­ingar á til­finn­inga­lífi mínu komu ekki fyrr en ég fór að opna á þetta. Ég þurfti að líta til baka yfir ævi mína og spyrja í hvað ég hefði eytt öllum þessum árum? Hvað var ég að tala um og skipti það ein­hverju máli? Hvernig mann­eskja væri ég í dag ef ég hefði tæklað þetta öðru­vísi og fengið stuðn­ing?“

Sævar telur að reynsla hans í barn­æsku hafi mótað hann sem for­eldri.

„Reynslan nýt­ist syni okkar og hefur gert mig að betra for­eldri. Ég er svo þakk­látur fyrir að njóta stunda með syni okkar, stunda sem ég fékk ekki að upp­lifa sem barn. Það er ekki sjálf­gefið að verða faðir í líf­inu og ég er óend­an­lega þakk­látur að hafa hlotið þetta tæki­færi. For­eldra­hlut­verkið er besta gjöf sem ég hef fengið í líf­inu“.

Fólk hefur haft á orði við Sævar að bókin sé erfið en jákvæð bar­áttu­saga.

„Fyrir mér er þetta bara saga um lífið, lífið mitt. Þetta eru engar skraut­bók­menntir og ég er að afhjúpa sjálfan mig með því að segja sann­leik­ann. Ég er afar þakk­látur þeim sem hafa stigið fram og tjáð mér að sagan hafi hjálpað sér og haft jákvæð áhrif. Það gerir fórn­ar­kostn­að­inn þess virði, að koma áleiðis hversu mik­il­vægt er að tjá sig og opna á umræð­una“.

Hann segir bók­ina ekki vera hetju­sögu. „Þetta er saga ein­stak­lings sem er að miðla ákveð­inni reynslu og koma því áleiðis að lífið getur verið svo gott ef maður er góður við sjálfan sig. Maður er oft sjálfum sér verstur. Ég hef átt við áfall­streituröskun að stríða, og hef unnið með því og lært á sjálfan mig jafnt í einka­lífi sem og starfi. Ég hef þurft að fara í sjálfs­skoðun, við­ur­kenna hluti fyrir sjálfum mér og ná að koma auga á jákvæðu hlut­ina í líf­inu.

Taka litla barnið innra með mér í sátt.

Ég er fylli­lega sáttur við hlut­ina í dag. Svo sér maður hvað fram­tíðin ber í skauti sér þegar þar að kemur. Eitt skref í einu,“ segir Sævar Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu