„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heiða gleðst yfir lausn bróður síns úr fangelsi: „Ég þurfti að horfa á eftir báðum bræðrum mínum

Heiða gleðst yfir lausn bróður síns úr fangelsi: „Ég þurfti að horfa á eftir báðum bræðrum mínum
||||||

„Hann hringdi í mig að morgni dags núna í apríl og sagð­ist vera laus. Ég var orð­laus. Við grétum mikið saman í því sam­tali. Hann saknar Gísla óskap­lega og er með sam­visku­bit gagn­vart allt og öllu en hann er edrú og að standa sig vel. Honum líður vel miðað við allt sem á hefur gengið,“ segir Heiða Þórðar, eldri systir bræðr­anna Gísla Þórs Þór­ar­ins­sonar og Gunnars Jóhanns Gunn­ars­syni.

Vinir Gunnars sem hafa stutt við bakið á honum hafa tekið honum fagn­andi. Myndin var tekin nokkrum dögum eftir að hann var lát­inn laus í april.

Gunnar var dæmdur í 13 ára fang­elsi í Noregi í fyrra fyrir að að að hafa skotið Gísla bróðir sinn til bana af yfir­lögðu ráði. Málið fór yfir á næsta dóm­stig sem úrskurð­aði að ekki hefði verið um ásetn­ing að ræða og lækk­aði dóm­inn í 5 ár. Sökum langrar ein­angr­un­ar­vistar hefur Gunnari verið sleppt á meðan að norsk yfir­völd íhuga hvort sækja eigi málið frekar fyrir Hæsta­rétti.

Bíð eftir ákvörðun um hæstarétt

„Norð­menn­irnir hafa staðið sig stór­kost­lega og haldið vel utan um hann. Hann er líka mjög þakk­látur þeim sem hafa staðið við bakið á honum, bæði vinum og þeim fjöl­skyldu­með­limum sem hafa stutt hann. Það skiptir mestu að hann og börnin hans komi heil út úr þess­ari reynslu.“ Hún seg­ist ekki vita hver næstu skref séu í mál­inu. Ég hef lifað og hrærst í þessu í tvö ár, rokkað upp niður til­finn­ing­ar­skal­ann en og eins og aðrir verð ég að bíða og sjá til hvort málið verður tekið fyrir í Hæsta­rétti.”

Heiða var níu ára þegar Gísli fædd­ist, órjúf­an­legur partur af lífi hennar frá fyrsta degi, á heim­ili sem ein­kennd­ist af óstöð­ug­leika af völdum geð­rænna erf­ið­leika og alkó­hól­isma. „Hann var bara bestur. Óskap­lega vand­aður og fal­legur maður og minn helsti stuðn­ings­að­ili í líf­inu gegnum öll mín full­orð­insár”.

Fjórum árum síðar kom Gunnar í heim­inn og móð­ur­eðlið tók völdin í Heiðu sem þá var að kom­ast á ung­lingsár. Hún minn­ist beggja litlu bræðra sinna með mik­illi hlýju.

„Það getur eng­inn sett sig í mín spor, né spor Gunna eða allra hinna sem eftir lifa. Ég þurfti að horfa á eftir báðum bræðrum mínum þegar þetta gerð­ist og fékk engan stuðn­ing frá systk­inum okkar sem kröfð­ust þess að ég lok­aði á Gunna, sem ég tók ekki í mál. Ef ég elska ein­hvern fer ég alla leið”.

Bræð­urnir Gísli og Gunnar ásamt móður þeirra systk­ina.

Læt ekki buga mig

Heiða er ákveð­inn í að láta þennan harm­leik ekki buga sig.

„Ég hef verið reið, grátið og verið í upp­námi en þetta verður auð­veld­ara. Ég er búin að missa marga, báða for­eldra mína og annan bróður en frá­fall Gísla var mesta áfall sem ég hef per­sónu­lega gengið í gegnum. Heiða segir þetta sér­staka stöðu að hafa verið í.

„Ég lá bara í rúm­inu fyrstu dag­ana eftir frá­fall Gísla og ældi vatni. Ég var lömuð. Ég er ekki týpan til að vera mikið í að tala, það er mitt mat að það séu nógu margir sem hafa áhuga á að tala um sjálfa sig frekar en að hlusta á aðra. Mér fannst ég aftur á móti þurfa að koma í við­talið sem Mannlíf tók við mig á sínum tíma til að tala máli litla bróður míns og þagga niður í dóm­stóli göt­unnar sem kom fram skýr­ast fram í kommenta­kerf­unum. Sumt fólk virt­ist hafa ríka þörf til að hafa sam­band við mig til að til­kynna mér að Gunni hefði fengið allt of vægan dóm. Blá­ó­kunn­ugt fólk úti í bæ sem þekkir hvorki haus né sporð á neinu okkar hefur kallað bróður minn morð­ingja. En ég hef alltaf litið svo á að um slys hafi verið að ræða“.

Bræð­urnar Gunnar og Gísli voru nánir vinir.

Rangfærslur í fjölmiðlum

Heiða hafði verið í dag­legu sam­bandi við báða bræður sína svo dögum skipti áður en harm­leik­ur­inn átti sér stað. „Gunni hafði verið með hót­anir í garð Gísla og ég var að tala hann til, svo og Gísla sem sagði mér að hann væri far­inn að bera til­finn­ingar til konu Gunna. Þetta var fljót­afgreitt í fjöl­miðlum og farið með marga vit­leys­una en stað­reyndin er sú að þetta var aldrei alvar­legt sam­band hjá þeim Gísla. Ég hef aldrei séð, talað við eða hitt þessa konu. Ég spurði hann hvort hann væri á leið­inni að fara að búa með henni en hann sagði mér nú fljótt að róa mig,“ segir Heiða.

Heiða hefur ekki fengið aðstoð fag­manna við að vinna úr áfall­inu.

„Ég gerði það ekki heldur þegar að mamma dó en ég hef fengið mikla hjálp frá góðum vinum. Ég hef náð ákveð­inni sátt en lífið verður aldrei nokkurn tíma eins. Það besta sem við getum gert núna er að heiðra minn­ingu Gísla með því að kom­ast sem heilust frá þessu,“ segir Heiðar Þórðar sem ætlar að fara bjart­sýn og glöð inn í sum­arið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu