„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Reikningsskil Björns Inga í #MeToo byltingunni: „Þetta var maður sem ég vildi ekki vera lengur“

Reikningsskil Björns Inga í #MeToo byltingunni: „Þetta var maður sem ég vildi ekki vera lengur“

„Ég er búinn að vera mjög hugsi yfir umræð­unni und­an­farna daga og stíg þess vegna fram til að gera mín reikn­ings­skil,“ segir Björn Ingi Hrafns­son í sam­tali við Mannlíf. Hann segir að það væri ekki heið­ar­legt að þegja bara og vona að þetta gangi yfir.

Eins og alþjóð veit hefur mikil umræða skap­ast í sam­fé­lag­inu und­an­farna daga um sam­skipti kynj­anna og áreiti sem konur hafa orðið fyrir af hálfu karl­manna. Hefur þetta verið kallað önnur #metoo bylt­ing og fór hún af stað eftir að Mannlíf opn­aði umræð­una í tengslum við meint brot Sölva Tryggva­sonar fjöl­miðla­manns.

Fjöl­margar konur hafa und­an­farið sagt frá ofbeldi eða áreiti sem þær hafa orðið fyrir í sam­fé­lag­inu á und­an­förnum árum. Meðal þeirra sagna eru sögur um að Björn Ingi hafi mis­notað valda­stöðu sína sem rit­stjóri og útgef­andi gagn­vart kven­kyns starfs­mönnum og áreitt þær með óvið­eig­andi hætti í ein­hverjum til­vikum.

Björn Ingi segir þessa umræðu mik­il­væga og hann vilji leggja sitt af mörkum með því að stíga fram og ræða sinn þátt í slíkum aðstæðum og áfeng­is­vanda­mál sem hann hafi glímt við um nokk­urra ára skeið og náð loks bata fyrir tveimur árum. Hann segir að það sé í anda AA-fræð­anna að gera reikn­ings­skil und­an­bragða­laust, en fara ekki í felur eða bjóða upp á ódýrar afsak­anir eða afneitun, þótt það sé vita­skuld freist­andi og liggi að mörgu leyti í mann­legu eðli.

„Það er sagt að sann­leik­ur­inn geri menn frjálsa, svo það er best að vera bara maður sjálfur. Og við­ur­kenna þegar maður er ekki í lagi og taka sig á. Ég náði sem betur fer að sigr­ast á þessum sjúk­dómi og þakka fyrir það á hverjum degi að vera ekki lengur á þessum vonda stað. Að segja og gera hluti sem maður sér eftir; muna ekki eftir öllu sem gerð­ist kvöldið áður eða verða sér til skammar með fram­komu. Koma af fjöllum þegar maður heyrir eitt­hvað sem maður sagði kvöldið áður, alveg út úr heim­inum. Allir alkó­hólistar þekkja þessa glöt­uðu til­finn­ingu og ég náði með Guðs hjálp og góðra manna að kom­ast á annan og betri stað. Að halda sér þar er mikil vinna sem á sér stað á hverjum degi, en þannig getur maður verið heil­brigður og til staðar fyrir fólkið sitt og sjálfan sig. Ég tek bara einn dag í einu og þakka fyrir að sofna alls­gáður og án þess að vakna með kvíða­hnút í mag­anum. Ég hvet alla sem eiga við þetta vanda­mál að stríða að leita sér hjálpar, því ekki er drykkjan aðeins slæm fyrir mann sjálfan og allt fólkið manns, heldur hefur þetta víðar áhrif og það sem umræðan und­an­farið hefur sýnt, er að karl­mönnum ber að koma betur fram við konur . Ég var því miður kom­inn í þá stöðu að vera fulli leið­in­legi gaur­inn og þar vildi ég ekki vera. Ég vil aldrei fara aftur í það hlut­verk. Ég við­ur­kenndi van­mátt minn og leit­aði mér aðstoðar og fékk hana hjá SÁÁ og félögum mínum í AA-sam­tök­unum,“ bætir Björn Ingi við.

Hann segir að vanda­mál dag­legs lífs séu flókin og oft erfið. Fólk sé undir miklu álagi í einka­lífi og starfi og verk­efnin virð­ist óyf­ir­stíg­an­leg. Þá sé þekkt leið að deyfa til­finn­ingar sínar með áfengi eða öðrum hug­breyt­andi efnum; flýja raun­veru­leik­ann og kenna öllum öðrum um það sem miður fer. Hann hafi engin und­an­tekn­ing verið á því, en honum hafi orðið ljóst í bata­ferl­inu að það sé rangt að allt hafi verið öðrum að kenna. Fyrsta skrefið sé að byrja á sjálfum sér, játa eigin bresti og við­ur­kenna að maður hafi verið á rangri braut. Með því að ein­beita sér að sjálfum sér og takast á við eigin bresti eftir and­legum leiðum hafi hann hætt að leita að ódýrum afsök­unum eða kenna öðrum um.

„Það er svo skrítið, að stundum er sagt að flestum finn­ist erf­ið­ara að breyta sjálfum sér en öllum heim­inum og það er mikið til í því. En ég vildi breyta mér; ég vildi ekki vera fulli leið­in­legi gaur­inn á barnum eða í partý­inu og vinn í því dag­lega, með því að hreyfa mig, með því að íhuga og fara með bænir, þar á meðal Æðru­leys­is­bæn­ina, þar sem lögð er áhersla á að æðru­leysi sé ótta­leysi. Guð er beð­inn um að gefa manni æðru­leysi til að sætta sig við það sem maður fær ekki breytt, kjark til að breyta því sem maður getur breytt og vit til að greina þar á milli.“

Björn Ingi seg­ist skamm­ast sín fyrir margt sem hann hafi sagt og gert undir áhrifum og vill biðja alla þá afsök­unar sem hann hafi sýnt óvið­eig­andi hegðun undir áhrifum eða sem virkur alkó­hólisti. Maður sé ekki bara alkó­hólisti fullur, heldur alltaf. Öll hegðun sé því marki brennd. Hann vilji líka biðja fjöl­skyldu sína afsök­unar og hann seg­ist vinna í því að fyr­ir­gefa sér og þakka fyrir batann á hverjum degi, í stað þess að rífa sig niður og vera fastur á vondum stað. Hann segir að áfeng­is­vanda­málið hafi sundrað allt of mörgum fjöl­skyldum hér á landi og um allan heim.

„Við getum ekki breytt öðrum, jafn­vel þótt við óskuðum þess, en maður breyt­ist bara ef maður er til­bú­inn til þess sjálfur. Maður fattar ekki bara allt í einu einn dag­inn að maður sé alkó­hólisti. Maður er búinn að vita það lengi og reyna að hætta. Taka viku- eða mán­að­ar­hlé hér og þar, stjórna drykkj­unni. Það er von­laust ef maður er alki. Maður ræður engu við þær aðstæður. Það er fíknin sem ræður. Við getum ekki heldur breytt for­tíð­inni eða fram­tíð­inni og núið er það eina sem við höfum. Ég hef sýnt konum óvið­eig­andi hegðun blind­fullur og vit­laus og það er ömur­legt. Ég vil segja það hér, en ekki víkj­ast undan því. Og ég bið þær ein­læg­lega afsök­unar. Það var erfitt og sárs­auka­fullt að við­ur­kenna það, en jafn­framt algjör­lega nauð­syn­legt. Ég hvet aðra karl­menn, því þeir eru margir, sem hafa svip­aða sögu að segja að stíga fram og taka ábyrgð og biðj­ast afsök­unar. Vinna í eigin brestum og vanda­málum. Og einnig konur sem þannig koma fram við karl­menn. Hvort heldur sem er. Við viljum ekki vera þarna og það er hægt að takast á við vanda­mál sín og verða betri maður. Það er eng­inn ósigur fólg­inn í því að við­ur­kenna að maður sé ófull­kom­inn og gall­aður. Við erum það öll. En það er slæmt að horfast ekki í augu við það og halda sínu striki áfram, enda þótt maður viti að það sé ekki í lagi og valdi sár­indum,“ segir hann enn­fremur.

Björn Ingi á Viljanum, eins og hann er gjarnan kall­aður, segir að það sé frelsi að tjá sig með þessum hætti þótt það sé erfitt. Hann seg­ist verða að við­ur­kenna eigin mis­gjörðir, ann­ars sé hann ekki alkó­hólisti í bata. Hann sé fjög­urra barna faðir, leggi áherslu á fjöl­skyld­una og þess vegna verði hann að taka ábyrgð. Og það verði aðrir að gera líka, eigi þessi umræða nú að skila árangri. „En ég get bara byrjað á mér. Ég ræð ekki því hvað aðrir gera. Ég gerði mis­tök og ég sé eftir þeim. Ég vil leggja mig allan fram um að vera betri útgáfa af sjálfum mér í fram­tíð­inni. Þetta er bar­átta, einn dag í einu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu