„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hafsteinn er búinn að missa fjögur börn: „Skugginn eltir mann alltaf uppi“.

Hafsteinn er búinn að missa fjögur börn: „Skugginn eltir mann alltaf uppi“.
Haf­steinn Númason hefur þurft að þola meira en flestir. Mynd; Róbert Reyn­is­son

Haf­steinn Númason þekkir bæði and­legan og lík­am­legan sárs­auka. Hann hefur sigrað Bakkus, skilið tvisvar, misst fjögur börn og lent í slysi þar sem hann missti annað augað. Hann er sjö­tugur leigu­bíl­stjóri sem býr í leigu­í­búð fyrir aldr­aða en dvelur stundum í húsi í Serbíu. Þar er bjart­ara á vet­urna en skugg­inn eltir hann samt. 

Hafsteinn fæddist í Reykjavík árið 1951 – árið þegar lagið „Unforgettable“ með Nat King Cole var vinsælt. Aðstæður móður hans voru erfiðar og gaf hún hann til ættleiðingar. Hjón að vestan komu suður til að ná í nýfædda barnið sitt og á Patreksfirði ólst drengurinn upp í nálægð fjallanna og hafsins bláa hafsins.

Góð æska

„Ég átti mjög góða æsku. Í svona sjávarþorpi hafði maður fjöllin og fjöruna sem þá var leiksvæði. Við krakkarnir vorum í allavegana leikjum. Við vorum með bíla og gerðum vegi. Svo var það fjaran; þegar maður eltist þá var farið í fjöruna og búinn til fleki til að sigla á. Ég og vinur minn sátum einhver vor yfir ánum yfir burðinn. Það var líka mikið ævintýri. Við fórum stundum í ferðalög út úr bænum; eitthvað að labba upp á fjöll. Svo vorum við að stelast niður á höfn sem var harðbannað. Það farið niður á bryggju; það var oft spennandi að fara þangað að veiða kola á sumrin. Ég man eftir því þegar fór að dimma á haustin; þá var farið í leiki á túnunum. Krakkarnir hópuðust saman. Það var farið í fallin spýta, hlaupa í skarðið og allavegana svona leiki. Yfir. Útilegumannaleik. Það var allt mögulegt. Svo var maður stundum eitthvað að prakkarast. Gera at. Við vorum að hrekkja fólk. Það var tiltölulega saklaust en það var ekkert vel liðið.“

Hann hlær.

Ættleiddur

Haf­steinn segir að for­eldrar sínir hafi leynt því fyrir honum að hann væri ætt­leiddur.

„Það vissu þetta nátt­úr­lega allir í litlu þorpi. Mér var strítt á þessu. Það kom fyrir og þá urðu stundum slags­mál. Ég var kall­aður töku­barn. Ef krakkar þurftu að ná sér niðri á mér þá var ég kall­aður töku­barn. Það vafð­ist fyrir mér hvort þetta væri satt eða ekki; ég vildi ekki spyrja. Maður var hræddur við svarið svo maður lok­aði þetta allt inni. Maður byrgði allt inni“.

Hann fór ungur að drekka og segir að fullur hafi hann farið að röfla um þetta og þá hafi for­eldrar hans stað­fest það að hann væri ætt­leiddur.

„Blóð­móðir mín hafði svo sam­band við mig þegar ég var 16 ára og ég hitti hana þegar ég var 19 ára. Það var skrýtið þegar hún hringdi fyrst. Og ég var dálítið fros­inn. Maður vissi ekki hvernig maður ætti að taka þessu og ég var svo­lítið lengi að melta þetta – að átta mig á því hvað var að ger­ast eftir sam­talið. Þegar svona ger­ist þá nær maður því kannski ekki alveg fyrr en seinna meir. Ég kom oft til hennar í gegnum árin og við spjöll­uðum saman. Það fór vel á með okkur. Föður minn, rétta föður minn, hitti ég þegar ég var 25 ára og við urðum mjög góðir vinir. Við náðum vel saman. Maður var búinn að velta svo mörgu fyrir sér og alla­veg­ana þegar maður var lít­ill. Það var svo­lítið skrýtið en samt gott að hitta þau og þau vildu allt fyrir mig gera. Eftir að ég hitti mömmu þá var voða skrýtið að eiga allt í einu fjögur systk­ini af því að ég ólst upp sem ein­birni“.

Þögn.

„Það var voða skrýtið. Það skiptir rosa­lega miklu máli að vita for­tíð sína og upp­runa. Ég hafði velt þessu mikið fyrir mér áður og þá var ég með alls konar grillur. Það var stundum sagt við mig að blóð­móðir mín hefði verið kana­mella og ég hafi verið gef­inn. Það var voða skrýtið og óþægi­legt. En það var gott að svo var ekki. Ég vildi á þeim tíma ekki heyra svörin. Maður var hræddur við þau. Eftir að ég hitti svo blóð­for­eldra mína þá var ég alltaf í góðu sam­bandi við þau en ég hefði ekki getað lent á betra fólki en for­eldrum mínum sem ætt­leiddu mig. Þau vildu allt fyrir mig gera og ég gat ekki haft það betra.“

Á sjó

Jú, hafið bláa hafið. Það tog­aði í Hafstein. Hann fór fyrst sex eða sjö ára gam­all á róður með pabba sínum.

„Þá vildi hann að við drægjum saman en það kom ekki til greina. Ég varð að hafa mitt alveg sér og það varð að vikta það sér. Ég var alltaf voða­lega þver. Lét mig aldrei.“

Svo skall þorska­stríðið á.

„Ég man eftir að hafa séð varð­skipin fyrir utan. Það var voða ævin­týra­legt að sjá þau. Manni fannst þetta vera svo stórt.“

Þeir voru margir sjó­menn­irnir í sjáv­ar­pláss­inu Pat­reks­firði.

„Maður stefndi í upp­hafi á að fara á sjó­inn. Sjómenn á þessum tíma þóttu vera miklir menn og maður var að remb­ast við að vera ein­hver stór karl; það þóttu vera hörku­menn sem voru á sjó og það þótti vera mesta skömm að geta ekki farið á sjó­inn. Og ég fór strax á sjó­inn þegar ég gat. Ég var 16 ára. Þá fór ég túr sem messagutti á milli­landa­skipi; Mæli­felli. Við fórum til Antwerpen og þaðan til Noregs og svo komum við upp á Aust­fjörð­unum. Síðan fórum við norður fyrir land og lönd­uðum þar. Við vorum með áburð.“

Ungur sjó­maður og allt lífið framundan.

Háseta vantaði á bát

Hann fór þennan eina túr á Mæli­fell­inu og svo fór hann að vinna sem háseti á báti. Háseta vant­aði á bát.Haf­steinn var á sjónum í um 30 ár.

„Ég byrj­aði 1967 og hætti í jan­úar 1995. Með smá­hléum; ég vann í fisk­verkun ein­hverja vetur en var svo á ver­tíð. Það þótti vera topp­ur­inn að fara á síld­ina. Þá fórum við norður í haf. Ég var á nokkrum bátum á síld. Það var gaman. Svo var ég á loðnu­ver­tíðum. Þegar loðnan var búin þá var farið á net. Svona var það í nokkur ár. Svo fór ég yfir til Rík­is­skipa og var á Esjunni í tvö ár. Ég slas­að­ist í einum túrnum; ég braut á mér hnéð – hnjálið­inn – og var frá vinnu í sex mán­uði. Ég náði mér aldrei. Svo fékk ég slit­gigt í hnéð. Það komu síðar meiðsli fram í annarri hend­inni; afl­taugin fór í klemmu þannig að ég var eig­in­lega far­inn að missa stjórn á fingr­unum. Þá fór ég í aðgerð út af því og þá var ég frá vinnu í tvö ár. Þetta var á árunum 1977-1979. Þá var ég kom­inn með heim­ili; konu og barn en ég kvænt­ist fyrri kon­unni minni árið 1978. Svo fór ég að vinna á eyr­inni hjá Hafskip og fór eftir það á sjó­inn hjá þeim og var í nokkur ár. Brenni­vínið var farið að há mér; ég bara drakk. Það end­aði á því að ég eyði­lagði hjóna­bandið með þessu; ég drakk frá mér hjóna­bandið og allt saman. Ég var settur af hjá Hafskip út af fylliríi. Ég var þá búinn að fara í eina með­ferð en hún dugið ekki neitt. Svo eftir að ég var settur af þá sögðu þeir að ef ég færi í með­ferð þá gæti ég talað við þá aftur“.

Jú, Haf­steinn fór aftur í með­ferð árið 1985 og er búinn að vera edrú síðan.

„Þá fór ég aftur á sjó­inn. Ég fór á bát hjá vini mínum. Var á rækju. Var stýri­maður en ég er með 1. stigið frá Stýri­manna­skól­anum og er með 200 tonna rétt­indi“.

Svo var það rækju­bát­ur­inn Haffari þar sem Haf­steinn var stýri­maður fyrst og síðan háseti. Og loks tog­ar­inn Bessi en þar var hann þar til hann hætti á sjónum árið 1995. Örlaga­ríka árið 1995.

Bakkus

Brenni­vínið. Helvítis brenni­vínið eins og sumir segja. Haf­steinn heldur að hann hafi verið 14 ára þegar hann fékk sér fyrsta sopann. Jafnvel yngri. Það var aðal­lega brugg og séni­ver fyrstu árin.

„Maður gat þá farið á böllin og maður fékk stundum sopa hjá eldri strák­unum. Ég man að mér fannst þetta vera alveg hrylli­lega vont. Og oft kúg­að­ist ég. Það lá við að ég ældi þessu en maður gat ekki verið minni maður en hinir; maður varð að geta drukkið. Svo end­aði á því að maður komst á spen­ann“.

16 ára gam­all gat hann farið að panta sér brenni­vín frá „rík­inu“. Hann drakk til að verða meiri maður. Og til að losna við feimn­ina.

„Maður þorði öllu þegar maður var undir áhrifum. Maður var feim­inn við stelpur og maður þorði ekk­ert að gera fyrr en maður var orð­inn drukk­inn. Svo þegar maður var undir áhrifum þá fór manni að líða vel. Þá varð maður svo mik­ill maður og hættur að vera feim­inn. Maður hélt að maður væri voða mik­ill kall.“

Þegar ég kom í land var ég vanur að vera fullur

Drykkjan jókst með árunum og segir Haf­steinn að hann hafi ekki kunnað sér hófs í drykkj­unni. Hann próf­aði meira en brenni­vín. Hass. LSD. Spítt.

„Hassið var ekki fyrir mig; ég var alltaf að drekka mig frá feimni og drekka í mig kjark en ég lok­að­ist þegar ég reykti hass. Fór inn í sjálfan mig. Ég pru­faði einu sinni LSD; ég fór einu sinni suður með mönnum sem voru í dópi – spítti. Og ég var í viku með þeim á spítti og að drekka. Maður var út úr rugl­aður. Ég svaf ekki í viku og þurfti ég eig­in­lega að sofa í viku eftir þetta. Þegar ég kom í land var ég vanur að vera fullur og fara á kvenna­far en þegar maður var á þessu spítti þá gleymdi maður öllu því og var bara spít­t­aður. Og það var ekki fyrir mig. Ég vildi heldur vera fullur og vera á kvenna­fari“.

Hann hlær. Hann seg­ist oft hafa verið settur í stein­inn; lög­reglan sótti hann stundum út úr drukk­inn hingað og þangað og bara á víða­vangi og setti hann í stein­inn. „Ég drakk þangað til ég valt út af. Ég var eins og kálfur á spena. Yfir­leitt drakk maður sig dauðan. Maður drakk sig út úr. Maður hafði engar bremsur. Þetta smáá­gerð­ist og versn­aði. Ég man að fyrir um 25 árum þá var ég fullur í mánuð. Og í rest­ina var ég far­inn að vera fullur í vinn­unni. Ég var þá á milli­landa­skipi. Ég náði að leyna því eins og ég gat. Ég hélt mér á mott­unni í vinn­unni en ég var kannski að skjóta á mig einum bjór í hádeg­inu; maður varð að drekka eftir klukku til að fara ekki yfir um og meika dag­inn. Mér var farið að líða illa með þetta og átti mjög erfitt. Þá var hjóna­bandið farið í mol­ana. Svo fór ég í með­ferð en ég var ekki til­bú­inn; ég veit ekki hvort ég hafi verið að reyna að laga heim­il­is­á­standið. Ég fór svo aftur á sjó­inn, var edrú í hálfan mánuð og þá var ég byrj­aður aftur að drekka. Svo skildum við. Ég var orð­inn einn. Þá loks­ins end­aði á því að ég gafst upp end­an­lega og fór í með­ferð aftur. Ég hef ekki drukkið síðan.“

Kominn á botninn

Það var sem sé árið 1985 eins og þegar hefur komið fram. Hann seg­ist hafa verið kom­inn á botn­inn.

„Maður drakk og lífið var orðið ömur­legt. Það var ekk­ert gaman að vera fullur. Ég var hættur að verða fullur; ég bara drakk þangað til það slokkn­aði á mér. Það var engin skemmtun orðin lengur. Ég var skil­inn og bjó fyrir austan fjall, í Hvera­gerði, og sat þar einn og drakk. Bæði dag og nótt. Ég drakk til að geta sofnað aftur. Mér fannst ég vera búinn að klúðra líf­inu svo gjör­sam­lega. Það var eig­in­lega ekk­ert til að lifa fyrir. Mér fannst best að ég myndi bara fara. En ég þorði aldrei að taka eigið líf. Ég hugs­aði mikið um það en það vant­aði bara herslumun­inn. Einu sinni var ég þó að nóttu til með hníf í hendi og ætl­aði að skera mig á púls en það varð ekki af því. Ég var kom­inn á botn­inn. Ég var búinn að fá nóg. Þetta var ekk­ert líf. Þetta var hel­víti. Ég var búinn að missa fjöl­skyld­una og allt; ég átti ekki neitt og var orð­inn atvinnu­laus. Það var engin fram­tíð. Maður var búinn að missa alla lífslöngun. Mig lang­aði ekki til að lifa. Þá lang­aði manni ekki einu sinni til að bjarga sér. Maður vildi ekki hitta vin­ina eða neina af því að ég skamm­að­ist mín fyrir að vera bara aum­ingi. Ég var svo illa hald­inn. Ég var eina nótt­ina á fylliríi en þá var ég búinn að vera fullur í meira en mánuð. Ég sat einn með flösku sem ég drakk úr og tveir menn dauðir rétt hjá mér. Fyllirís­dauðir. Þá voru komnar svo miklar sjálfs­morð­spæl­ingar í mig. Allt í einu kom eitt­hvað yfir mig; ég hringdi í lög­regl­una og bað þá um að taka mig. Þeir voru komnir eftir smá­stund. Ég fór með þeim út í bíl og upp á stöð. Ég sagði að ég væri að bíða eftir plássi á Vogi og svo var ég settur í klefa með öðrum fylli­byttum til að sofa úr mér. Ég var spurður morg­un­inn eftir hvort ég vildi ekki bíða aðeins af því að von væri á áfeng­is­varn­ar­full­trúa og var ég spurður hvort ég vildi ekki tala við hann. Ég var til í það. Ég var ekk­ert boru­brattur. Áfeng­is­full­trú­inn tal­aði við mig, hann hringdi síðan upp á Vog og var mér ekið þangað í lög­reglu­bíl“.

Meðferð

Jú, Haf­steinn fór í með­ferð á Vogi og hefur síðan verið edrú. Hann fór á Stað­ar­fell eftir að hafa verið á Vogi og segir hann að hann og fleiri hafi oft farið til kvöld­bæna í kirkj­unni á staðnum.

Haf­steinn og móðir hans.

„Ég sat þar eitt kvöldið og mér leið voða­lega illa. Ég horfði á alt­arið og þá kom allt í einu eins og þytur í gegnum haus­inn á mér. Það kom eitt­hvað fyrir mig í kirkj­unni þar og ein­hvern veg­inn náði ég áttum. Ég get ekki lýst því. Það var eitt­hvað sem skeði. Það var eins og það færi allt í einu eld­ing í gegnum haus­inn á mér. Ég breytt­ist svo­lítið við það. Þetta var voða skrýtið. Einhvern veg­inn hugs­aði ég öðru­vísi eftir þetta. Ég fór að pæla í hlut­unum. Ég hef mikið verið laus við áfeng­islöngun eftir þetta“.
Hann seg­ist halda að þetta hafi verið eitt­hvað yfir­nátt­úru­legt.
„Áfengi er ekki fyrir mig. Það er ágætt fyrir marga. En fyrir mig er það dauði. Ég ræð mínu lífi á meðan áfengi er í flösk­unni en um leið og ég opna stút­inn og smakka þá ræð ég engu. Þá er ég vilja­laust verk­færi.“

Hrefna, Kristján og Aðalsteinn

Haf­steinn gekk í hjóna­band árið 1978 og eign­að­ist hann tvær dætur með þeirri konu, Jóhönnu Helgu og Valgerði. Hjónin skildu árið 1984.

„Þetta var mikið áfall. Það var rosa­lega erfitt að fara í gegnum skiln­að­inn. Mjög erf­iðar til­finn­ingar. Ég reyndi að loka á þetta og bara drakk“.

Haf­steinn fann ást­ina aftur. Hann hitti Berg­lindi Maríu Krist­jáns­dóttur árið 1986 þegar hann var búinn að vera edrú í rúmt ár og þau giftu sig nokkrum árum síðar.

„Allt varð bjart á ný og gaman.“
Þau bjuggu í Súðavík. Hjónin eign­uð­ust þrjú börn. Hrefna Björg fædd­ist árið 1987. Kristján Númi fædd­ist árið 1990 og Aðal­steinn Rafn árið 1992.

Börn Haf­steins.

„Hrefna var ótta­legur grall­ari. Hún var mik­ill strákur í sér en samt voða­lega blíð og voða­lega hænd að mér. Hún lék sér mikið úti. Við vorum með íslenskan hund, tík sem hét Tinna, og einu sinni dubb­aði Hrefna hann upp í dúkku­föt, lagði hann í vagn og keyrði hund­inn í vagn­inum sem lét sér það vel líka“.

Hann hlær.

„Það var fyndið að sjá tík­ina í dúkku­fötum og með húfu liggj­andi í vagn­inum. Það sást niður að bryggju frá hús­inu okkar og þegar ég kom í land kom tíkin stundum eins og rak­etta niður eftir, stökk upp á herðar á mér og sat þar. Og þannig labb­aði ég með hana heim“.
Svo var það Kristján.
„Kristján var svo rólegur. Hann var svo gömul sál. Hann var svo mik­ill nákvæmn­is­maður. Það þurfti allt að vera hár­ná­kvæmt. Akkúrat. Hann var meira inni en Hrefna. Hann var jafn­vel í dúkku­leik. Hann átti litla elda­vél og þótt­ist vera að elda og baka.

Steini var oft kall­aður „litli sam­úr­æ­inn“. Hann var allur í vopnum; sverðum og hífum. Hann var svo mik­ill grall­ari. Einu sinni í brjál­uðu veðri, þegar ég var á sjónum, henti hann nær öllu dót­inu út um glugg­ann og mamma hans þurfti að fara út í myrkri og ná í það.

Það var alltaf mikið fjör þegar ég kom í land; þá var allt á öðrum end­anum á heim­il­inu. Allur flokk­ur­inn hékk á mér þegar ég kom. Þá var eitt­hvað gert og sunnu­dags­mat­ur­inn var hafður þegar ég kom í land sem var yfir­leitt á mánu­degi.“

Hélt í litlu hend­urnar þeirra þangað til þeir voru sofn­aðir

Haf­steinn var vanur að svæfa börnin þegar hann var í landi.

„Ég sat þá á kolli á milli rúma strák­anna og þeir vildu að ég héldi í hend­ina á sér. Ég teygði mig því á milli rúmanna og las og fór með bæn­irnar og svo varð ég að sitja kyrr þangað til þeir voru sofn­aðir“.

Haf­steinn segir að það hafi aðal­lega verið Fað­ir­vorið og „þessar venju­legu kvöld­bænir“ eins og Vertu guð faðir faðir minn og Jesú bróðir besti.

Svo var það dag­ur­inn sem Haf­steinn Númason sá litlu börnin sín þrjú í síð­asta skipti. Það var í jan­úar árið 1995.
„Þetta var ósköp venju­legur dagur. Ég var heima. Það var fín­asta veður.“
Haf­steinn sett­ist á koll­inn á milli rúma litlu sona sinna um kvöldið. Las fyrir þá. Bað með þeim. Bauð þeim góða nótt. Hélt í litlu hend­urnar þeirra þangað til þeir voru sofn­aðir.

„Þeir voru hvor með sinn bangs­ann.“

Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frels­ar­ans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.

„Hrefna fékk að vaka lengur af því að hún ætl­aði að kveðja pabba sinn. Hún hafði ham­ast ein­hvers staðar í laumi við að klára rauðan trefil sem hún prjón­aði með putta­prjóni og það var eins og hún væri hálf­feimin að gefa mér hann um kvöldið. Ég var svo ánægður með tref­il­inn. Ég vafði honum um háls­inn á mér. Hún kvaddi mig frammi í and­dyri; ég faðm­aði hana, kyssti og kvaddi og lok­aði síðan á eftir mér og gekk með tref­il­inn á mér um borð. Ég tók hann svo af mér og stakk honum í vas­ann. Þetta var bara eins og venju­lega nema að ég fékk þennan trefil. Mér datt aldrei í hug að þetta væri í síð­asta skipti sem ég kvaddi börnin mín“.

Snjóflóð
Togarinn, Bessi, lét úr höfn.
„Það var brjálað veður síð­asta dag­inn á mið­unum. Maður gat ekki sofið á frí­vakt­inni. Það voru svo mikil læti. Við fórum undir það sem við köllum Hótel Grænu­hlíð,“ segir Haf­steinn en skip leita stundum vars undir Grænu­hlíð á Ísa­fjarð­ar­djúpi eða Hótel Grænu­hlíð eins og svæðið er stundum kallað þegar veður er mjög vont. „Við lágum undir Grænu­hlíð í vari. Maður treysti sér ekki inn því það var fjara og tog­ar­inn risti það djúpt.“
Hann vann úti um nótt­ina og hugs­aði um fríið sem fram undan var en þá ætl­aði hann að njóta þess að vera heima og gera eitt­hvað með fjöl­skyld­unni.
„Það var svo brjálað veður þessa nótt að maður heyrði hvið­urnar koma niður fjallið. Þær öskr­uðu. Þetta er það stór tog­ari að hann lagð­ist yfir 20 gráður á hlið­ina undan veðr­inu. Þegar hvið­urnar skullu á skip­inu þá var svo mik­ill súg­ur­inn að maður fékk hellu fyrir eyrun.“
Þögn.
„Ég hafði aldrei upp­lifað þetta áður. Ekki svona veður.“
Þögn.

„Skip­stjór­inn kall­aði í okkur um morg­un­inn og sagði að við færum ekki inn strax. Svo kom stýri­maður niður í borð­sal og sagði að það hefði fallið snjó­flóð á Súðavík.“
Þögn.
„Hann sagði hvar það hefði komið niður. „Þá hefur það lent á mínu húsi,“ sagði ég og benti þeim á mynd í borð­salnum og sýndi þeim hvernig það hefur runnið en stýri­mað­ur­inn sagði að snjó­flóðið hefði lent á frysti­hús­inu en húsið mitt var fyrir ofan það. Það gat ekk­ert farið niður nema að hafa farið líka yfir húsið mitt. Ég fór upp í brú og skip­stjór­inn hringdi í land. Ég náði sam­bandi við svila minn og hann sagði mér hvernig staðan væri. Húsið væri farið. Linda væri fundin en börnin týnd“.
Þögn.
„Það var svarta myrkur uppi í brú en það var smá­ljós frá tækj­unum en þegar ég heyrði þetta þá varð myrkrið algjört. Ég sá ekki neitt. Skip­stjór­inn kom og studdi mig í sófa sem var þarna og ég sett­ist niður. Ég var búinn að segja honum hvað hafði skeð. Ég sá ekki neitt. Það var alger­lega svart“.
Þögn.
„Ég var þarna í dálít­inn tíma og svo fór ég niður í borð­sal til strák­anna og sagði þeim hvað hefði skeð. Þeir urðu felmtri slegnir. Svo var eins og þeir vissu ekki hvernig þeir ættu að akta; það var eins og þeir forð­uð­ust mig. Svo voru þeir allir horfnir úr borð­salnum og ég sat þar einn. Ég fór svo niður og inn í klefa. Ég var með mynd af krökk­unum þar og tók ég mynd­ina í hend­ina og sat þar og grét“.
Þögn.
„Ég vissi ekk­ert hvað ég ætti að gera. Karlinn hafði áður sagt að hann þyrði ekki að fara inn af því að ef eitt­hvað kæmi fyrir þá myndi hann loka einu björg­un­ar­leið­inni sem til var. Ég var alveg sam­mála honum og skildi þetta vel þótt ég vildi fara í land. Ég skildi að það þurfti að halda höfn­inni opinni. Ég vafraði svo um og var kom­inn inn á yfir­manna­gang. Þar var skápur sem var fullur af flot­göllum og var ég að spá í að taka einn gall­ann og fara í hann en tog­ar­inn var alveg upp við höfn­ina að reyna að lýsa í land og það voru komnir fleiri tog­arar sem hafði verið kallað í til að lýsa líka. Ég var að hugsa um að stökkva í sjó­inn í flot­gall­anum og synda í land en svo hætti ég við það vegna þess að ef ég gerði það þá myndu þeir reyna að ná mér og þá myndi skipið kannski stranda og loka fyrir inn­sigl­ing­una. Svo ég varð að vera kyrr Þannig að ég missti ekki alveg glór­una“.
Haf­steinn fór síðan á gúmmí­báti ásamt einum skips­fé­laga sínum yfir í annan bát sem sigldi að bryggju.

Þögn.

„Það er skrýtið. Þegar svona er þá verður maður dof­inn. Maður verður bara magn­laus“.

Snjó­flóðið sem féll á Súðavík þennan dag, um hálf­sjö að morgni 16. jan­úar, er eitt mann­skæð­asta snjó­flóð Íslands­sög­unnar. 14 manns lét­ust í snjó­flóð­inu. Þar af átta börn. Um 10 manns slös­uð­ust. 12 var bjargað úr flóð­inu. Snjó­flóðið var um 400 metra breitt. 18 íbúð­ar­hús urðu fyrir flóð­inu sem og sjö önnur hús þar sem voru fyr­ir­tæki eða stofn­anir. Á fjórða hund­rað björg­un­ar­sveit­ar­manna tóku þátt í björg­un­ar­að­gerðum.

Börnin dáin

Haf­steinn fór í frysti­húsið í bænum þar sem fólk hafði safn­ast saman.

„Það var tekið á móti mér í and­dyr­inu. Svo þegar ég labb­aði aðeins lengra þá sá ég inn í mat­sal­inn. Þá sá ég yngsta son minn uppi á borði. Hann lá þar hvítur. Bara á bleiunni sinni. Ég labb­aði til hans. Tók í hend­ina á honum. Ísköld“.

Brostin rödd.

Haf­steinn hafði haldið í litlu hönd­ina hans – hans sem sofn­aði með bangs­ann sinn í fang­inu. Þá var höndin hlý.
Haf­steinn grætur.

Aðal­steinn hafði fund­ist á lífi en það var ekki hægt að bjarga honum.
Löng þögn.

„Það sá ekk­ert á honum,“ segir Haf­steinn loks brost­inni röddu. „Hann var ekki neitt slas­aður að sjá. Þá kom Þor­steinn yfir­læknir og tók utan um mig. Svili minn var þarna líka“.
Haf­steinn hitti svo konu sína, Lindu.
„Hún var slösuð; hún lenti í flóð­inu og var föst undir braki en hún gat rifið sig upp. Hún bað mig um að fara að leita. Ég ætl­aði að fara út en ég mátti það ekki, enda hefði ég ekki komið að neinu gagni. Ég var út úr kort­inu.“

Þögn.

„Þá voru hin börnin týnd. Þau fund­ust ekki fyrr en dag­inn eftir. Þau voru þau síð­ustu sem fund­ust.“
Haf­steinn segir að hann hafi reynt að styðja og hjálpa Lindu og fleirum; hann seg­ist hafa reynt að vera sá sterki þótt hann hafi verið jafn­hjálp­ar­vana og aðrir.

„Það hvolfdist yfir mig ofboðs­leg brenni­vínslöngun. Ég get svarið það að hefði ég haft flösku þá hefði ég þambað úr henni í einum teyg. En nei, börnin höfðu aldrei séð mig drukk­inn og ég ætl­aði ekki að sverta minn­ingu þeirra með því að drekka út á þetta“.

Þögn.

„Þetta voru hel­vítis átök“.

Fjöldi manns fékk aðhlynn­ingu á sjúkra­hús­inu á Ísafirði og segir Haf­steinn að fólk hafi haldið utan um hvert annað og að það hafi hjálpað mikið.
„Það kom áfallateymi en mér fannst þeir ekki ráða við neitt. Ég fékk eitt við­tal“.

Líkin voru svo flutt með varð­skipi suður en Haf­steinn og fleiri fóru suður í almennu flugi.

„Það var svo­lítið nöt­ur­legt að koma út úr vél­inni fyrir sunnan. Flug­stöðin í Reykja­vík var troð­full af fólki. Við vorum eins og við­undur sem allir voru að skoða. Voða óþægi­legt. Það var eins og við værum ein­hver sýn­ing­ar­dýr“.
Jarð­ar­för barn­anna þriggja fór fram frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík. Og Haf­steinn reyndi áfram að vera sá sterki.

„Maður hefur fest í því að vera sá sterki en maður er ekk­ert sterk­ari en hver annar. Maður fór bara afsíðis og grenj­aði þar“.

Þrjár litlar, hvítar kistur.

„Ég man að það var spilað á trompet lagið „Söknuður“ með Villa Vill.
Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,

Og heldur ósjálf­bjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður.
Verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan dag­inn kemur nótt.

Ég harma það, en samt ég verð að segja.
Að sum­arið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,

Er rökkvar, ráðið stjörnu­mál,
Gengið saman hönd í hönd,
Hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
Sameinað
Beggja sál.

Horfið er nú sum­arið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
Nú einn ég sit um vetr­ar­kvöld.
Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan dag­inn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,

Að sum­arið líður allt of fljótt.
Ég gái út um glugg­ann minn.

Hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýn­ist ég sjái þig.
Ég rýni út um rif­urnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá nap­urt er.
Það næðir hér
Og nístir mig.

(Texti: Vil­hjálmur Vil­hjálms­son.)

Missti fjórða barnið

Hjónin fluttu suður. Þau fóru í tíma hjá sál­fræð­ingi og var sagt að þau þyrftu ekki að borga sjálf heldur yrði not­ast við pen­inga sem tengd­ist söfnun eftir snjó­flóðið.

„Eftir tvo til þrjá tíma varð sál­fræð­ing­ur­inn rosa­lega vand­ræða­legur og sagði að því miður væri þetta ekki rétt; við þyrftum að borga. Við hefðum kannski átt að halda áfram en af því að það var logið að okkur þá hættum við. Við urðum að gera allt ein eftir að við komum suður. Það var eng­inn til að hjálpa okkur. Og allt sem náð­ist fram varð ég að berj­ast fyrir með kjafti og klóm“.

Haf­steinn segir að það sé bull að fjöl­skyldan hafi búið á öruggu svæði á Súðavík.
„Ég barð­ist í fimm ár við vind­myllur. Ég vildi fá heið­ar­lega rann­sókn á því hvað gerð­ist og út af hverju. Ég vissi öll svörin. Mér fannst það hins vegar ekki vera í mínum verka­hring að ákæra. Það sem gerð­ist þennan morgun var bara hryll­ingur. Það var búið að vara við fyrir nótt­ina en það var ekki hlustað á það. Það var skrifað upp á að þetta væri öruggt svæði en það var póli­tísk mála­miðlun. Þetta sner­ist um pen­inga. Þorpið er núna á öruggu svæði,“ segir hann en eftir snjó­flóðið var byggt ann­ars staðar í bænum.

Súðavík á fal­legum degi.

Hann hefur farið nokkrum sinnum til Súða­víkur eftir snjó­flóðið.

„Mér finnst vera vont að koma þangað. Það var erfitt fyrst en betra eftir því sem ég kem oftar.“

Hjónin keyptu svo hús í Mos­fellsbæ og tveimur árum eftir snjó­flóðið eign­uð­ust þau dóttur.
„Þá kvikn­aði á sól­inni en hún varð aldrei jafn­björt. En það var æðis­leg til­finn­ing að halda á henni í fang­inu. Ótrúleg. Maður varð að passa sig á að sitja ekki yfir vögg­unni allan dag­inn“.
Hann hlær.

„Íris Hrefna er svo­lítið lík systur sinni. Ægilegur grall­ari.“

Hjónin eign­uð­ust svo aðra dóttur, Birtu Hlín. Syst­urnar fengu ungar að vita um systk­ini sín á himnum.

„Það er líka sorg hjá þeim. Þær syrgja líka.“

Skilnaður og dótturmissir

Hjónin Haf­steinn og Linda skildu svo árið 2013.

„Það var mjög erfitt.“

Leiði Jóhönnu Helgu, elstu dóttur Haf­steins.

Dóttir Haf­steins af fyrra hjóna­bandi, Jóhanna Helga, lést árið 2006 af völdum krabba­meins.

„Það var mjög erfitt. Ég neit­aði að trúa því þegar ég frétti að hún ætti eitt ár eftir ólifað. Ég fór í afneitun“.

Sorgin. Nístandi sorgin. Hvernig hefur Haf­steinn tek­ist á við hana?

„Ég veit það ekki. Ég held ég hafi lítið tek­ist á við hana. Ég held að það sé eitt­hvað meira að koma fram núna. Að ég sé að gefa eftir. Ég er orð­inn meyr­ari. Ég á það til að fara að gráta upp úr þurru. Eftir þetta allt saman hefur lífið aldrei orðið eins. Það er alltaf ein­hver skuggi. Það slokkn­aði á sól­inni eftir snjó­flóðið. Þó það kvikni á henni þá hefur hún aldrei skinið jafn­skært. Ég þarf ekki nema að sjá eitt­hvað smá­at­riði í bíó­mynd; það þoli ég ekki og brotna. Sorgin er eins og hnútur í brjóst­inu á manni. Og sál­inni líka. Það er bara drungi. Doði. Eins og búið sé að dempa ljós. Maður sér ekki birt­una. Maður vill stundum helst leggj­ast niður og breiða upp fyrir haus. Maður vill vera einn og loka sig af sem er ekki gott“.

Dauðinn

Haf­steinn er spurður hvað dauð­inn í sé í huga hans.

„Fyrir mér er hann færsla yfir á annað til­veru­stig. Eftir allt þetta er ég hættur að spá í dauð­ann. Hann kemur bara þegar hann á að koma. Ég ótt­ast ekki lengur að deyja en ég gerði það áður. Ég fór stuttu eftir snjó­flóðið með flugi vestur á Ísafjörð og mér leið djöf­ul­lega við lend­ing­una. Þá horfði ég á fjallið og hugs­aði bara: „Ok, flott, ef við hröpum þá er ég dauður og þá fæ ég að hitta krakk­ana. Gott mál.“ Og ég fann ekki fyrir hræðslu. Það hefði bara verið fínt að fara. Og ég er hérna ennþá. Ég mun hitta krakk­ana, þau koma og taka á móti karl­inum þegar hann kemur“.

Haf­steinn trúir á líf eftir dauð­ann og hann hefur farið til miðla. Það þarf þó ekki alltaf miðla til.

„Við Linda fórum til Portúgal nokkrum mán­uðum eftir snjó­flóðið. Íslensk kona sem var þar líka sagði mér einn dag­inn að það væri alltaf stelpa að skott­ast í kringum mig. Hún lýsti Hrefnu og hún lýsti klipp­ing­unni á henni; það var búið að klippa hana stutt og það hafði eng­inn séð mynd af henni með þá klipp­ingu. Nokkrum dögum síðar kom þessi kona aftur til mín og sagð­ist ekki fá neinn frið. Hún sagði að stelpan væri alltaf að gera svona með putt­unum,“ segir Haf­steinn og hreyfir fingur sína. „Hún sagði að hún skildi þetta ekki. Hún sagði að þetta væri eitt­hvað í sam­bandi við mig. Ég sagði að þetta gæti verið putta­prjón og þá sagði konan að það væri það; hún væri 100% viss. Mér fannst þetta vera voða skrýtið. Svo varð ekk­ert meira úr þessu. Við Linda fórum svo heim og nokkrum dögum síðar tók ég sjó­gall­ann minn upp úr tösku sem var búinn að vera þar síðan ég kom heim af tog­ar­anum. Ég sá að það var bunga á öðrum vas­anum. Ég fór í vas­ann og dró upp rauða tref­il­inn sem dóttir mín hafði gefið mér í síð­asta skipti sem ég sá hana en þá hafði hún ham­ast allan dag­inn við að prjóna hann með putta­prjóni. Ég mundi ekk­ert eftir þessu. En svo allt í einu sat ég fros­inn með tref­il­inn“.

Þögn.

„Það gæti ekki verið sterkara.“

Hrefna vildi gefa pabba sínum trefil þar sem honum var oft kalt á sjónum.
„Kunningi minn var skyggn og hann sagð­ist oft sjá hana hjá mér í bílnum.“
Þögn.
„Mér finnst það vera gott.

Haf­steinn seg­ist svo hafa séð dóttur sína sem lést í snjó­flóð­inu í minn­ing­ar­at­höfn sem haldin var 20 árum eftir snjó­flóðið.

„Það var minn­ing­ar­at­höfn í Guð­ríð­ar­kirkju og sat ég á fremsta bekk ásamt Lindu og bisk­upnum. Fjalla­bræður sungu svo fal­legt lag þegar athöfnin var byrjuð. Ég er svo lag­laus að ég get ekki sungið það. Það hafði svo ofboðs­leg áhrif á mig að ég var að brotna. Ég var að fara að gráta. Vegg­ur­inn fyrir aftan alt­arið er úr gleri og þegar ég leit upp þá var eins og það væri tjald dregið fyrir og ég leit á dóttur mína og hún var orðin full­orðin; það var eins og hún kæmi fram fyrir tjaldið sem kynnir. Hún veif­aði til mín hlæj­andi með annarri hend­inni. Ég sá hana í augna­blik. Og ég hrein­lega fraus. Ég gleymdi allri sorg. Ég var út úr kort­inu það sem eftir var athafn­ar­innar. Hún var í hvítum kirtli og það var prakk­ara­svipur á henni. Það var eins og hún hefði stolist til að láta mig sjá sig. Svo heyrði ég í fullt af fólki á bak við tjaldið á meðan ég sá hana. Það var eins og kliður; fólk að tala saman. Þetta var sek­úndu­brot“.

Stórslasaður

Áföllin hafa verið mörg. Sárs­auk­inn mik­ill – bæði and­legur og lík­am­legur sárs­auki. Haf­steinn lenti í bílslysi árið 2001.

„Ég ákvað að taka einn dag í frí og fara í lax­veiði. Ég ók bílnum í beygju í átt­ina að Hell­is­heiði frá Þrengsla­veg­inum þegar hvell­sprakk hægra megin að framan. Bíllinn byrj­aði að rása á veg­inum. Það var mikil umferð á móti og ók stór flutn­inga­bíll á móti mér. Það var ann­að­hvort að lenda framan á honum eða fara út í hraun. Og ég valdi hraunið. Andlitið kurl­að­ist; það fór allt í köku. Það stendur í lækna­skýrslu að hvert ein­asta bein hægra megin í and­lit­inu hafði kurl­ast og mest öll bein vinstra megin líka. Svo ég var í góðu mauki. Þá missti ég augað. Hægra augað. Þegar þeir komu að mér lá það niður á kinn. Ég var ekki beint fal­legur. Ekki beint frýni­legur. Ég var alblóð­ugur. Það var svo skrýtið að ég rot­að­ist ekki. Ég gat sagt til nafns þegar þeir spurðu hver ég væri. En ég var fastur í bílnum og þeir þurftu að klippa mig lausan. Ég var það tæpur að þeir treystu mér ekki með sjúkra­bíl í bæinn og var ég sendur í þyrlu og var mér sagt eftir á að það væri bara gert í algerri neyð. Ég var að drukkna í eigin blóði og þufti að skera mig í háls­inn til að þræða mig. Annað lungað hafði fallið saman og rif­bein voru brotin. Þá braut ég annað hnéð. Og annan úln­lið­inn. Og ég var úr axl­ar­lið. Þeir þorðu ekki að hreyfa við mér þar sem þeir héldu að ég væri með mænu­skaða. Það tók síðan um níu tíma að púsla saman á mér and­lit­inu; ég er miklu breið­leit­ari í dag heldur en ég var“.
Haf­steinn seg­ist hafa verið kol­rugl­aður á spít­al­anum.
„Ég var út úr rugl­aður, út úr dóp­aður og kol­brjál­aður. Ég var brjál­aður í skap­inu. Ég vildi bara kom­ast heim. Ég reyndi einu sinni að strjúka og not­aði sem hækju flösku­sta­tífið sem ég var með. Ég var einn dag­inn kom­inn að lyft­unni með brotið hné og ætl­aði heim en sem betur fer fór raf­magnið af spít­al­anum þannig að ég komst ekki í lyft­una“.
Hann hlær.
Hann segir að slysið hafi haft áhrif á minnið.
„Ég er svo gleym­inn.“
Haf­steinn segir að lík­am­legu kval­irnar séu ekki neitt miðað við þær and­legu.
„Þær eru bara „pís of keik“.

Skugginn

Haf­steinn hefur farið reglu­lega til geð­læknis eftir snjó­flóðið. Þyng­lyndi hrjáir hann. Hann segir að hann hafi verið far­inn að finna fyrir því í drykkj­unni; fyrir snjó­flóðið.
„Þegar ég er þung­lyndur þá vill maður helst ekki gera neitt. Maður vill helst vera heima hjá sér. Þegar mér líður illa þá kaupi ég mér eitt­hvað slikk­erí og leggst í át. Það er erfitt þegar fer saman sorg og þung­lyndi. Maður getur eig­in­lega ekki skil­greint þetta. Þetta er svipað. Það er erfitt að sjá ein­hverja bjartar hliðar á líf­inu“.

Haf­steinn missti bíl­prófið fyrir mörgum árum vegna drykkju en hann fékk það aftur. Var náð­aður. Hann hefur starfað sem leigu­bíl­stjóri und­an­farin ár og ætlar að halda því áfram þótt hann sé orð­inn sjö­tugur. Honum finnst vera betra að fara út á meðal fólks hvað þetta varðar heldur en að vera mikið heima í íbúð­inni fyrir aldr­aða sem hann leigir.
„Ég ætla að halda áfram að vinna. Ég kann ekk­ert annað. Þetta er til að brjóta upp dag­inn. Ég nenni ekki að sitja hér og drep­ast“.

Missti húsið

Hann átti hús á sínum tíma en hætti að greiða af því lánin eftir hrunið og hann má ekki eiga neitt þess vegna. Hann er með aðgang að húsi í Serbíu þar sem hann hefur dvalið á vet­urna und­an­farin ár – nema síð­asta vetur vegna Covid-19. Honum finnst vera gott að kom­ast í burtu. Fara í annað umhverfi.

„Ég læt mér leið­ast þegar ég er í Serbíu. Er ekki að gera neitt. Það er ágætt að breyta til. Veturnir þar eru styttri og meiri dags­birta. Maður er bara í róleg­heit­unum þar. Ég fer kannski í göngutúr í skóg­inum og spjalla við fólk á kaffi­húsum. Stundum skrepp ég yfir til Bosníu. Það er voða næs að vera þarna. Þetta er sum­ar­bú­staða­hverfi“.
Hann kemst í annað umhverfi en:
„Skugginn eltir mann alltaf uppi. Það dugir ekk­ert að vera á enda­lausum flótta“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu