„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fiðrildið, dóttir mín

Fiðrildið, dóttir mín
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég elska dóttur mína og hef alltaf haft lúm­skt gaman af því hvernig hún lifir líf­inu. Þrátt fyrir að hún sé alin upp á ofur­venju­legu heim­ili af mjög svo hvers­dags­legum for­eldrum hefur lit­ríkur per­sónu­leiki hennar og val í líf­inu ævin­lega verið á skjön við hið hefð­bundna. Helst dettur mér í hug að ein­hvers staðar í ættum okkar leyn­ist ævin­týra­kvendi og gen hennar hafi öll safn­ast í þessa stúlku sem fer sínar eigin leiðir þvert á almenn­ings­á­litið.

Dóttir mín fór að heiman þegar hún var sextán ára gömul, okkur for­eldr­unum til mik­illar skelf­ingar. Okkur fannst hún of ung og óreynd til þess að standa á eigin fótum en hún stóð fast á sínu. Hún var ekki nema sautján ára þegar hún fór utan til náms og næstu árin var hún á ferð og flugi um allan heim. Oft þótti okkur nóg um flakkið og við reyndum að fá hana til að setj­ast að á einum stað og fara að rækta garð­inn sinn. Við það var ekki kom­andi jafn­vel þótt hún hefði orðið ófrísk og eign­ast lít­inn son. Þá fannst okkur sann­ar­lega að nú yrði hún að breyta svo­lítið um lífs­stíl, hún væri komin með barn á fram­færi og yrði að taka til­lit til þess.

En það er erfitt að kenna hundi að sitja, jafn­vel þótt ungur sé. Það varð úr sonur hennar varð eftir hjá okkur þegar fiðr­ildið móðir hennar hélt af stað í næsta könn­un­ar­leið­angur. Þá var dreng­ur­inn raunar orð­inn þriggja ára og mamma hans kom reglu­bundið heim til Íslands til þess að heim­sækja hann. Af og til komu spenn­andi menn inn í líf hennar er hún er mjög hrif­næm og varð alltaf óskap­lega ást­fangin í hvert sinn. Kærast­arnir áttu það sam­eig­in­legt að vera list­rænir, gáf­aðir og heill­andi en ekki að sama skapi traustir og umhyggju­samir. Þetta olli okkur for­eldrum hennar miklum áhyggjum en hún virt­ist ekki gera sér neinar rang­hug­myndir um þessa menn. Hún vissi að hverjir þeir voru og þegar þeir sviku varð hún leið og sorg­mædd en engan veg­inn nið­ur­brotin. Þetta kom ekki á óvart.

Brúðkaup skipulagt

Með árunum róað­ist hún svo­lítið og þar kom að hún sett­ist að á Íslandi og fór að búa. En sú sam­búð varði ekki lengi, aftur kom óró­leik­inn yfir dóttur mína og hún flutti til útlanda. Í þetta sinn tók hún son sinn með sér og það reynd­ist ansi erfitt fyrir afa og ömmu að sjá á bak honum. Auðvitað áttum við þá ósk heitasta að þessar perlur gætu fest rætur og þyrftu ekki að vera á þessum enda­lausa flæk­ingi. Auðvitað höfðum við mikið sam­band gegnum sam­fé­lags­miðla og með því að hringja þannig að við náðum að fylgj­ast mjög vel með lífi þeirra og fram­förum drengs­ins. Svo kom að því að hún kynnti fyrir okkur nýjan mann í gegnum Skype. Hann var nokkuð þekktur á lista­svið­inu í sínu heima­landi og kom ákaf­lega vel fyrir. Ég fór út og var hjá dótt­ur­syni mínum um tíma svo unga parið gæti farið saman á stað þar sem hann þurfti að dvelja tíma­bundið vegna vinnu sinnar.

Þegar ég var nýkomin heim eftir þessa heim­sókn fékk ég tölvu­póst frá dóttur minni. Hún bað mig vin­sam­leg­ast um að finna fal­lega litla sveita­kirkju á Íslandi og bóka veislu­þjón­ustu, helst í hlöðu í nágrenni hennar því nú ætl­uðu þau að gifta sig. Hún myndi sjá um að bjóða og vænt­an­legur brúð­gumi að borga. Mér fannst þetta bera nokkuð brátt að og var ekki alveg viss um hvort ég ætti að fara af stað eða ekki en nokkrum árum seinna ítrek­aði hún þetta svo ég setti allt á fullt að leita að stað sem myndi geta upp­fyllt þessar óskir. Hann fannst um síðir norður í landi en þá kom annar tölvu­póstur. Dóttir mín taldi að mun betra væri að gifta sig í heima­landi unnust­ans. Þar væri betra veður og vinir og vanda­menn hefðu bara gaman af að ferð­ast til sól­ar­lands til að vera við­staddir brúð­kaup.

Ég hringdi í hana og hún lýsti glöð fyrir mér litlu sveita­kirkj­unni sem þau höfðu fundið saman og sett upp hring­ana utan við. Dásam­lega veit­inga­staðnum þar fyrir neðan þar sem veislan átti að fara fram og litlu hót­eli sem rúma myndi alla vini og ætt­ingja frá Íslandi. Og nú var allt sett á fullt. Boðskortin bár­ust að utan og um fátt annað var meira rætt í fjöl­skyld­unni næstu vikur. Brúð­kaups­dag­ur­inn rann upp svo upp bjartur og fagur. Brúðurin var sann­ar­lega glæsi­leg og fal­leg þegar hún sett­ist í far­þega­sætið við hlið­ina á mér í bíla­leigu­bílnum og við ókum af stað frá heim­ili hennar í átt að litlu kirkj­unni þeirra. Í aft­ur­sæt­inu var dótt­ur­sonur minn og afi hans prúð­búnir og ynd­is­legir, báðir tveir. Mið­stöðin í bílnum var biluð og dag­ur­inn óvenju­lega heitur. Loft­kæl­ingin virk­aði þess vegna ekki. Það lak því svit­inn af öllum þegar á stað­inn var komið þótt brúð­kaups­klæðin væru mesta hýa­lín.

Hamingjan entist ekki

Við stigum út úr bílnum og krull­aðir lokkar, brúðar og móður hennar hengu nú sléttir og daufir niður. Víða mátti sjá svita­bletti á kjólum og jakka­fötum en við vorum komin og inn í kirkj­una var gengið. Þar inni var dásam­lega svalt. Veggir gömlu kirkj­unnar voru þykkir og kaldur steinn­inn hélt hit­anum úti og rétt eins og hann varði fyrir kulda á vet­urnar. Maðurinn minn leiddi dóttur mína upp að alt­ar­inu til móts við mann­inn hennar til­von­andi. Brúð­gum­inn brosti ham­ingju­samur og ástin ljóm­aði af þeim báðum. Ég man ég hugs­aði með með að ég vildi óska þess að ham­ingja þeirra ent­ist og allt yrði þeim til happs og gleði. Líklega deila allar mæður þess­ari ósk á brúð­kaups­degi barna sinna en mér fannst ég þurfa að vera enn bæn­heit­ari en aðrar konur í sömu stöðu í ljósi sögu dóttur minnar. Ég vissi sem var að fiðr­ildið mitt myndi ekki leyfa neinum að klippa af sér væng­ina.

„Dag nokkurn hringdi sím­inn minn á borð­inu í vinn­unni. Ég svar­aði og í fyrstu skildi ég ekki hvað gekk á. Ég heyrði bara ekka og kjökur. Litli dreng­ur­inn minn, barna­barnið mitt var í sím­anum. Stjúpi hans hafði tekið brjál­æðiskast og gengið í skrokk á móður hans.“

Ég vildi óska þess að sagan end­aði vel eins og gömlu ævin­týrin en því miður er það ekki svo. Fljót­lega kom í ljós að mað­ur­inn sem dóttir mín hafði valið var ólíkt fyrri kærustum hennar, ekki ábyrgð­ar­laus drauma­ving­ull og lista­maður heldur ákaf­lega strangur og kröfu­harður fag­maður. Hann var vel­stæður vegna dugn­aðar í starfi sínu og því miður jafn­harður í einka­líf­inu og utan þess. Ætlast var til þess að dóttir mín hugs­aði um heim­ili þeirra, stórt og glæsi­legt hús með sund­laug og tvö­földum bíl­skúr, eld­aði handa honum mat, væri óað­finn­an­legur gest­gjafi og stöðugt til taks að fara með ef hann þurfti í ferða­lög eða á henni að halda. Hún reyndi í nokkur ár allt hvað hún gat að þókn­ast honum og á þeim tíma sá ég glóð­ina deyja í augum hennar og per­sónu­leik­ann bæl­ast sífellt meira.

Dag nokkurn hringdi sím­inn minn á borð­inu í vinn­unni. Ég svar­aði og í fyrstu skildi ég ekki hvað gekk á. Ég heyrði bara ekka og kjökur. Litli dreng­ur­inn minn, barna­barnið mitt var í sím­anum. Stjúpi hans hafði tekið brjál­æðiskast og gengið í skrokk á móður hans. Hún var á spít­ala og hann staddur á bið­stof­unni að bíða frétta. Einhver góður maður hafði rétt honum síma og sagt honum að hringja í ein­hvern sem gæti hjálpað honum. Við lá að ég tryllt­ist en ég vissi að það myndi gera illt verra. Ég tal­aði rólega við dreng­inn minn og sagði honum að afi og amma væru að koma. Smátt og smátt stillt­ist grát­ur­inn. Ég fékk svo að tala við mann­inn sem lán­aði honum sím­ann og hann tók niður síma­núm­erið mitt og fleiri upp­lýs­ingar fyrir lækn­ana og hjúkr­un­ar­fólkið. Fljót­lega fékk ég sím­tal frá dóttur minni. Hún var marin, bólgin og blá en óbrotin.

„Tengda­sonur minn fyrr­ver­andi reyndi mikið að nýta sér ástandið til að fá hana aftur með sér út en nú kom styrkur fiðr­ild­is­ins míns í ljós. Hún hélt sínu striki.“

Ég fékk flug fyrir okkur dag­inn eftir út, mjög dýra miða en það var þess virði. Við komum mátu­lega til að afstýra því að dóttir mín fyr­ir­gæfi tengda­syni mínum sem þá lá iðr­andi og aumur heima. Við pökk­uðum niður eigum þeirra mæðgina og skiln­að­ar­ferlið hófst. Rétt eftir að heim kom upp­götv­aði dóttir mín að hún var ófrísk eftir þennan mann. Lítil stúlka kom í heim­inn um svipað leyti og skiln­að­ur­inn gekk í gegn. Tengda­sonur minn fyrr­ver­andi reyndi mikið að nýta sér ástandið til að fá hana aftur með sér út en nú kom styrkur fiðr­ild­is­ins míns í ljós. Hún hélt sínu striki. Fyrrum eig­in­maður hennar og barns­faðir er stór­eigna­maður og hún gat komið undir sig fót­unum og keypt íbúð hér eftir fjár­skiptin. Margt hefur líka breyst, gamla eirð­ar­leysið er horfið og hún hefur fundið kraft­inum og til­finn­ing­arót­inu far­veg í list­sköpun. Ég er óskap­lega hreykin af henni og oft lít ég á hana í dag og hugsa: Það þurfa ekki allir að velja beinu og venju­legu braut­ina. Kráku­stíg­arnir geta verið góðir líka.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu