„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rögnvaldur fékk mikið sjokk við að veikjast: „Ég finn af og til brjálæðislega mikla reykingalykt“

Rögnvaldur fékk mikið sjokk við að veikjast: „Ég finn af og til brjálæðislega mikla reykingalykt“
Rögn­valdur Ólafsson. Mynd/ Róbert Reyn­is­son.

„Það versta var sjokkið að kveikja á því bíddu erum við veik?“

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn greind­ist með kór­ónu­veiruna í októ­ber á síð­asta ári. Hann segir það hafa verið mikið áfall, sér­stak­lega í ljósi starfs síns og konu sinnar. En Rögn­valdur er giftur Helgu Rós Más­dóttur, deild­ar­stjóra bráða­deildar Land­spít­al­ans. Segir hann að sökum stöðu þeirra hjóna hafi þau farið gíf­ur­lega var­lega og passað allar sótt­varnir löngu áður en settar voru á sótt­varnar aðgerðir.

„Við vorum löngu búin að setja bann á heim­sóknir til okkar, við fórum ekki að hitta neinn og strák­arnir okkar fengu voða lítið að hitta vini sína. Við vorum ábyggi­lega ein af þeim fyrstu sem nýttum okkur það að geta verslað á net­inu og fengið sent heim, það voru ein­stöku búð­ar­ferðir og þá var það yfir­leitt ég sem fór í búð­ina því konan mín þurfti að passa sig enn betur en ég. Þannig það var sjokk.“

Segir hann sína fyrstu hugsun þegar ljóst var að hann væri smit­aður hafa verið: Hvernig í ósköp­unum hef ég smit­ast? Og ótt­að­ist hann að hefða smitað aðra í deild almanna­varna.

„Er ég að fara setja almanna­varna­deild­ina á hlið­ina? Eða er bráða­deildin að fara á hlið­ina út af okkur? En sem betur fer greind­ist eng­inn annar út frá okkur, en þetta var veru­legt sjokk.“

Ekki kom strax í ljós hvernig smitið hafði borist inn á heim­ilið, en þau hjónin veikt­ust með eins dags milli­bili og því ljóst að þau voru útsett á sama tíma og ekki  um „eitt­hvað random smit út í búð“ að ræða, eins og Rögn­valdur orðar það.

Síðar kom á dag­inn að smitið hafði komið af leik­skóla sonar þeirra. „Það kom í ljós með rað­grein­ingu að yngsti strák­ur­inn okkar hafði greinst fyrstur áður en nokkur annar fékk þetta og var algjör­lega ein­kenna­laus. Síðan kom í ljós að hinir tveir höfðu líka smit­ast.“

Segir Rögn­valdur að aðeins sárafá börn hafi veikst á leik­skóla drengj­anna, aðal­lega hafi það verið starfs­fólk sem smit­að­ist. „En akkúrat þessi gaur hérna er algjör keligaur og er alltaf í fang­inu á manni, ég hugsa að hann sé að gera það sama í leik­skól­anum. Honum finnst eflaust gott að vera í fang­inu á leik­skóla­kenn­ur­unum, því kannski ekk­ert skrítið að hann hafi veikst,“ segir Rögn­valdur og hlær.

Hann segir fjöl­skyld­una hafa þó sloppið frekar vel út úr veik­ind­unum. Ein­kennin hafi til þess að gera verið væg. „Ég fékk þessa vöðva­verki sem margir kann­ast við, haus­verk og hósta. Svo missti ég bragð- og lykt­ar­skyn og það var svipað hjá kon­unni minni.“

Hefur hann orðið var við einhver eftirköst?

„Ég finn af og til brjál­æð­is­lega mikla reyk­inga­lykt, eins og ein­hver haldi ösku­bakka upp við nefið á mér. Eitthvað sem ég vildi alveg vera án,“ segir hann og hlær. „En ég get samt ekki kvartað.“

Keyrði sig út

„Ég fatt­aði það samt eftir á að ég hefði ábyggi­lega þurft lengri tíma að jafna mig. En það er erfitt að liggja heima vit­andi að þá er meira álag á félög­unum, þannig að um leið og ég gat dreif ég mig í vinn­una.“

Skömmu eftir að Rögn­valdur snéri aftur veikt­ist Víðir. Segir hann Víði hafa þurft að sinna starfi þeirra beggja á meðan hann lá veikur og þarna hafi hlut­verk­unum verið snúið við. Nú var komið að Rögn­valdi að sinna starfi Víðis sam­hliða sínu eigin starfi.

„Hann var lengi að jafna sig og kom til baka í vik­unni sem að aur­skriðan féll á Seyð­is­firði, þannig hann byrj­aði eig­in­lega of skarpt og keyrði sig út og fór aftur í veik­inda­leyfi.“

Segist Rögn­valdur gjör­sam­lega hafa verið búinn á því þegar Víðir kom til baka. „Ég fékk eig­in­lega ekk­ert sum­ar­frí í fyrra, ég var búinn að plana sex vikur, en ég held að ég hafi kannski náð tveimur vikum, það var alltaf verið að kalla mig inn út af ein­hverju. Þannig að ég átti inni frí og tók það út í febr­úar. Í febr­úar var bara sum­ar­fríið mitt.“

Rögn­valdur seg­ist hafa kúp­lað sig algjör­lega út, slökkt á til­kynn­ingum í sím­anum, ekki svarað síma né tölvu­pósti. „Það var mjög næs, ég þurfti virki­lega á því að halda. Strák­arnir voru líka í skól­anum og konan í vinn­unni þannig að ég var bara einn með sjálfum mér, það var bara fínn félags­skapur í smá tíma,“ segir hann glott­andi. „Fín til­finn­ing að þurfa ekki að gera neitt, ekki hugsa um neitt, engar kröfur á mér. Ég gerði ekki einu sinni neitt heima  þótt það væri nóg að gera, ekki til­tekt eða mála eða byggja neitt. Ég bara gerði ekki neitt í heilan mánuð,“ segir hann og aug­ljóst að mán­uður án nokk­urra ábyrgða var kær­kom­inn. „Ég ætl­aði reyndar að vera í sex vikur en síðan var ég kall­aður inn, þegar Reykja­nesið fór að hrist­ast enn meira og svo nátt­úr­lega fór að gjósa. Þannig ég á ennþá inni slatta af fríi,“ segir Rögn­valdur kím­inn og von­ast til að geta nýtt frí­dag­ana þetta sum­arið.

Lítill glamúr

Rögn­valdur segir starf almanna­varna í far­aldr­inum meðal ann­ars hafa snú­ist um að  upp­færa vef­síður og ýmis skjöl almanna­varna, leið­bein­ingar bæði hér á landi og jafn­vel úti í heimi, fyrir fólk sem hugð­ist koma hingað til lands. „Þannig að það er alveg brjál­æð­is­lega mikil kerfis- og papp­írs­vinna og vesen í kringum þetta allt saman, plús allar þýð­ing­arnar í kringum þetta líka. Segir hann í raun lít­inn glamúr yfir þessu starfi og lýsir því, með brosi út í annað, sem veg­samaðri skrif­stofu­vinnu.

En hvernig er þá að vera skyndilega orðinn þekkt andlit í samfélaginu?

Telur Rögn­valdur sig lík­leg­ast ekki vera svo þekktan, að minnsta kosti ekk­ert í lík­indum við hið upp­runa­lega þrí­eyki. „Ég hef sloppið held ég, ég hef að minnsta kosti ekki lent í sama áreiti og þau. Vinnu­fé­lag­arnir eru alltaf að grín­ast með að þetta sé þrí­eykið og Batman.
En ég svo sem tek eftir því núna að fólk kannski horfir tvisvar þegar maður er úti í búð, en ég er ekk­ert viss um að fólk tengi endi­lega við hvaðan það kann­ast við mig.“
Segist hann sjálfur kann­ast við slíkt  ver­andi mjög ómann­glöggur. „Þegar ég var ungur lög­reglu­maður bjó ég á Ísafirði og rakst á mann í Kaup­fé­lag­inu og heils­aði, því það var ein­hver sem ég kann­að­ist við. Ég hugs­aði mögu­lega var hann með mér í skóla eða kannski unnið með mér ein­hvern tím­ann eða eitt­hvað. Svo fatt­aði ég seinna um dag­inn að ég hefði hand­tekið mann­inn helg­ina áður fyrir ölv­un­arakstur,“ segir Rögn­valdur hlæj­andi.

„Ah þarna kom teng­ingin. Eftir þetta hætti ég eig­in­leg að heilsa fólki að fyrra­bragði.“

Aðspurður hvað hafi komið honum mest á óvart við far­ald­ur­inn hér á landi gefur hann sér drjúga stund til umhugs­unar.

„Góð spurn­ing, kannski við­brögð fólks,“ svarar Rögn­valdur. „Þegar maður horfir á þessar amer­ísku stór­slysa­myndir þar sem fólk hleypur öskr­andi um, bað­andi höndum út í loftið, það hefur ekki verið mín upp­lifun af ham­förum hingað til.“ Sjálfur hefur hann upp­lifað snjó­flóðin á Súðavík og Flateyri, en þá starf­aði hann sem lög­reglu­maður á Ísafirði, ásamt því að vera við­rið­inn allar stórar krísur hér á landi síð­ast­liðin 16 ár í stöfum sínum hjá almanna­vörnum.

„Og það sem ég upp­lifi í svo­leiðis er að það kemur þessi stóíska ró yfir fólk og það þjappar sér saman og hjálp­ast að. Slíkt hef ég margoft séð. Aldrei þetta haus­lausa hlaupa-um-dæmi.“

Rögn­valdur segir þó einnig að þessi hræðslu­á­róður gagn­vart bólu­setn­ingum og sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum sem aðeins hefur gert vart við sig hér á landi, hafi komið sér á óvart. „Þetta andóf við bólu­setn­ingum  finnst mér skrítið, eins og þetta sé ein­hver póli­tísk stefna ein­hvers. Þetta eru bara vís­indi. Það er byggt  á stað­reyndum og á því sem hefur sýnt sig að virkar. Ég held að þetta sé það sem hefur kannski komið mér mest á óvart,“ segir hann og heldur áfram. „Og raun­inni hvernig heim­ur­inn er orð­inn í dag, hvað það er í raun orðið auð­velt að villa um fyrir fólki með fals upp­lýs­ingum. Og það er hluti af ástæð­unni að upp­lýs­inga­fund­irnir urðu svona margir og voru haldnir dag­lega á löngu tíma­bili, einmitt til réttar upp­lýs­ingar kæmust á fram­færi. Af því að við fundum það að um leið og við stigum til hliðar eða tókum frí þegar var mikið að gera, þá birt­ust um leið ein­hverjir aðrir á svið­inu sem héldu á lofti ein­hverju sem var bara ekki rétt.“

Segir hann það fljót­lega hafa sýnt sig sem gagn­leg­ustu leið­ina til að fá fólk með sér í lið að hamra nógu oft á því hvað best væri að gera og útskýra leið­ina sem valin var hverju sinni. „Sem sagt að halda fólki öllum stundum upp­lýstu,“ segir Rögn­valdur alvar­legur í bragði og heldur áfram. „Mottóið hjá almanna­vörnum er að ef við vitum eitt­hvað þá segjum við frá því. Við erum ekki að liggja á eða þegja yfir ein­hverjum upp­lýs­ingum. Þó það sé vont og leið­in­legt að heyra það þá segjum við það samt. Það held ég sé hluti af því af hverju fólk treysti okkur og líka gott sam­starf við fjöl­miðla. Þeir hafa gott aðgengi að okkur, við svörum næstum und­an­tekn­ing­ar­laust ef ein­hver hringir.“

Rögn­valdur segir það hafa komið ber­sýni­lega í ljós í öðrum löndum hve slæm áhrif það getur haft þegar slík and­ófs umræða tekur yfir með þeim afleið­ingum að réttar upp­lýs­ingar drukkni.

„Klass­ískt dæmi með Anthony Faucy  og Trump. Þegar for­set­inn er far­inn að gagn­rýna sér­fræð­ing­inn, hvað á fólk þá að halda? Þú ert að setja fólk í skelfi­lega aðstöðu sem er kannski með ein­hvern efa eða hrætt. Það eru nátt­úr­lega allir hræddir, ótta­slegnir og kvíðnir yfir hvað er í gangi. Og þegar þú ert með svo­leiðis jarð­veg þá er rosa­lega auð­velt að sá efa­semda­fræjum og vekja upp andóf og vesen. Þá veltir maður því oft fyrir sér til hvers? Í hvaða til­gangi?“

En hvað hefur covid slagurinn kennt okkur?

„Það borgar sig að vera und­ir­bú­inn,“ segir Rögn­valdur  bros­leitur. „Ég veit alla­veg­ana að það er lær­dómur sem margar af nágranna­þjóð­unum hafa dregið af þessu öllu saman. Sú hugsun að eiga lager af hlutum var búin og eng­inn taldi lengur þörf á því að eiga lager, en ég hugsa að þetta hafi hrist upp í mörgum að end­ur­hugsa það.“

Ólíkt mörgum öðrum þjóðum átti Ísland góðan lager af til að mynda hlífð­ar­bún­aði. Rögn­valdur segir allar fram­leiðslu­leiðir í heim­inum vera orðnar það góðar að eftir að pöntun sé lögð inn sértu iðu­lega kom­inn með varn­ing­inn í hend­urnar tveimur, þremur dögum seinna. „Margir gerðu bara ráð fyrir þessu í sínum plönum. En svo þegar allur heim­ur­inn er að kaupa sömu vör­una á sama tíma þá nátt­úr­lega kemur hlykkur á alla aðdrætti. Þá kom sér vel að við áttum stóran lager, þannig að við vorum í ágætis málum og vorum ekki í sömu panikk og aðrir.“

Þá segir hann það hafa komið ber­sýni­lega í ljós í far­aldr­inum hve miklu máli upp­lýs­inga­gjöfin skipti.

„Að gefa réttar upp­lýs­ingar og treysta fólki til þess að taka rétta ákvörðun á þeim grunni. Eins og það er eng­inn skikk­aður í bólu­setn­ingu, fólk hefur val. Á meðan sum lönd skikka fólk til þess að gera það og jafn­vel fang­els­is­refs­ing eða sektir ef þú mætir ekki.“

Rögn­valdur segir far­ald­ur­inn einnig hafa kennt okkur að treysta á okkar fólk. „Það hefur líka sýnt sig að við vorum trú okkar stefnu eða sótt­varna­læknis, hann þekkir fræðin mjög vel. Samkvæmt þeim var alveg ljóst hvað virkar og við héldum okkur bara við það. Við vorum ekk­ert að fara á taugum þótt aðrar þjóðir væru að gera aðra hluti, við bara héldum okkar stefnu og gerðum það sem okkur fannst passa fyrir Ísland og okkar sam­fé­lag og héldum okkur við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu