„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tók Má tíma að átta sig á samkynhneigðinni: „Versta sem maður gerir er að fela það“

Tók Má tíma að átta sig á samkynhneigðinni: „Versta sem maður gerir er að fela það“
Már Gunn­ars­son

Már Gunn­ars­son sund­maður hefur gert það gott á Ólymp­íu­leikum fatl­aðra í Tókýó og hefur þegar komst tví­vegis í úrslit og var sek­úndu frá gull­verð­launum í 100 metra baksundi. Már á eftir að keppa í einni grein og það gerir hann á föstu­dag­inn. Dvöl hans í Japan lýkur eftir nokkra daga og segir hann að það sem standi upp úr sé í raun­inni þetta verk­efni sem er búið að vera í vinnslu í langan tíma. „Þetta er auð­vitað risa­stór keppni en er í sjálfu sér í grunn­inn eins og öll önnur sund­mót nema bara mun stærra.“

Og Már hefur ýmis­legt lært í tengslum við þessa risa­stóru keppni. „Það teng­ist und­ir­bún­ingnum fyrir keppn­ina og tím­ann sem fór í að und­ir­búa mig sem og það að stíga yfir hindr­anir og kom­ast fram hjá þeim eða troða sér undir þær til að ná loka­mark­mið­inu og svo áður en maður veit af er þetta bara búið. Þessu verður nátt­úr­lega þannig séð lokið eftir þessa viku og það markar áveðin tíma­mót þegar svona verk­efni er búið sem maður hefur unnið að í rosa­lega langan tíma. Þá er kom­inn tími til að finna ný mark­mið og stefna annað.“

Þessu verður nátt­úr­lega þannig séð lokið eftir þessa viku og það markar áveðin tíma­mót þegar svona verk­efni er búið sem maður hefur unnið að í rosa­lega langan tíma.

Már er spurður um ný mark­mið og hvert hann stefni. „Ég fer fyrst heim í smá­frí og síðan verður tím­inn örlítið að leiða það í ljós. Ég hugsa að það séu margar dyr opnar fyrir mig. Ég gæti auð­vitað sett fullt strik á Ólymp­íu­leika fatl­aðra í París árið 2024 þar sem ég tel að ég myndi eiga góða mögu­leika á að ná verð­launum í 100 metra baksundi. Síðan er það nátt­úr­lega mús­íkin sem er í mínu hjarta sem ég þarf líka að sinna. Þannig að ég þarf aðeins að skipu­leggja mig þegar ég kem heim. Ég þarf að púsla þessu saman og ákveða í hvaða átt ég vil fara.“

Már hefur vakið athygli á tón­list­ar­svið­inu sem söngv­ari og laga­höf­undur. „Ég gaf út geisla­disk árið 2019 sem var tek­inn upp í Póllandi. Þetta er sam­an­safn af lögum sem ég hef samið í gegnum tíð­ina. Ég og Isold, systir mín, unnum árði 2019 jóla­laga­keppnip Rásar 2. Síðan hef ég verið að vinna að fleiri verk­efnum eins og lagið Barn sem við Iva end­ur­gerðum í fyrra sem varð eitt vin­sælasta lagið á Íslandi síð­asta sumar. Svo hef ég verið að koma fram og troðið upp á stöðum hér og þar og haldið mína eigin tón­leika. Stærstu tón­leik­arnir sem ég hélt voru í Stapa árið 2020 rétt fyrir Covid. Þá flutti ég inn 9 tón­list­ar­menn frá Póllandi sem voru með mér á svið­inu og það var hrika­lega skemmti­legt.“

Hvað með áhersl­urnar þegar hann semur tón­list? „Ég er ennþá pínu leit­andi þar og ég hef verið að gera frekar fjöl­breytta hluti. Ég hugsa samt að rauði þráð­ur­inn séu alltaf stórar lag­línur. Ég á það til að vera frekar fyr­ir­ferð­ar­mik­ill þegar ég sem tón­list og mikið af þessu sem ég hef gert er pínu söng­leikja­legt. En þetta er í þróun og ég er spenntur fyrir því hvert áfram­hald­andi til­raun­inr munu leiða mig.“

Ég á það til að vera frekar fyr­ir­ferð­ar­mik­ill þegar ég sem tón­list og mikið af þessu sem ég hef gert er pínu söng­leikja­legt.

Sumarið var fljótt að líða og nú er komið haust sam­kvæmt daga­tal­inu. Og Már mun fá leið­sögu­hund í sept­em­ber og hann seg­ist ekki geta beðið eftir að fá hann. „Svo er ég að fara í tón­list­ar­skóla í Reykavík, MÍT. Ég er að vinna við lag sem ég ætla að senda í Söngvakeppni sjón­varps­ins, ég og systir mín, Ísold, erum að plana að gefa út lag og ég og Iva, vin­kona mín, erum einnig að plana að gefa út lag. Svo hef ég verið að tala upp lög með sin­fón­íu­hljóm­sveit í Póllandi. Síðan munu örugg­lega fleiri skemmti­leg verk­efni koma til mín.“

Ferli sem ég þurfti að fara í gegnum

Sundið og tón­listin. Þetta tvennt á jú hjarta Más sem fædd­ist með um 10% sjón og nú segir hann að um hálft pró­sent sé að ræða og sé það varla mæl­an­legt. Hann seg­ist almennt vera með gott jafn­að­ar­geð og að hann hafi í sjálfu sér aldrei pælt í að hann sé blindur. „Auðvitað spil­aði það samt inn í og hefur litað líf mitt rosa­lega mikið. Ég væri ekki sá ein­stak­lingur sem ég er í dag ef ekki væri fyrir sjón­ina mín. Við fjöl­skyldan fluttum til Lúx­em­borgar árið 2006 þar sem við bjuggum í sex ár til að ég gæti fengið kennslu við hæfi; myndi læra að lesa blindra­letur og ganga með staf og færi að læra á tölvur og tól. Það hafði áhrif á mig að búa þar en það var ekki alltaf auð­velt þar sem ég var bæði blindi gaur­inn og útlend­ing­ur­inn í bekknum.“

Það hafði áhrif á mig að búa þar en það var ekki alltaf auð­velt þar sem ég var bæði blindi gaur­inn og útlend­ing­ur­inn í bekknum.

Már er spurður hvað sé það erf­ið­asta sem hann hefur upp­lifað. „Ég ætla að segja að það sé tvennt. Það er ann­ars vegar að kom­ast inn á ung­lings­árin og díla við til­finn­ingar eins og ást­ar­sorg og það að fá höfnun og eitt­hvað svona ung­linga­drama. Svo er það hins vegar missir fjöl­skyldu­með­lima og vina.“

Ástin. Már er sam­kyn­hneigður og segir hann að það hafi tekið sig smá­tíma að átta sig á því að hann væri sam­kyn­hneigður. „Maður var ekk­ert að tala mikið um þetta fyrst og mér fannst það kannski vera óþarfi. Ef ég væri gagn­kyn­hneigður þá hefði ég ekki farið til for­eldra minna og sagst vera það. Mér finnst ég ekki þurfa að vera með ein­hverja til­kynn­inga­skyldu varð­andi það hvort ég vilji hitta stráka eða stelpur. Mér fannst vera óþægi­legt að tala um ef ég var að deita ein­hvern og segja hvort þetta væri deit eða kær­asti. Og það var eitt­hvað sem ég þurfti svo­lítið að vinna í.

Það hefði samt örugg­lega líka verið smátabú ef ég hefði átt kær­ustu. Þannig að kannski er þetta algjör­lega eðli­legt hjá öllum. En þetta var eitt­hvað ferli sem ég þurfti að fara í gegnum og mér þykir miklu auð­veld­ara að tala um þetta í dag og sér­stak­lega eftir að ég fór að tala meira um það en þá finnst mér það bara vera fínt. Stundum þarf maður að yfir­stíga ein­hverjar hindr­anir og þá er besta leiðin að tala um það; ekki fela það eða setja það ein­hvers staðar á „hold“. Ég hugsa að það sé það versta sem maður getur gert.“

Ef ég væri gagn­kyn­hneigður þá hefði ég ekki farið til for­eldra minna og sagst vera það. Mér finnst ég ekki þurfa að vera með ein­hverja til­kynn­inga­skyldu varð­andi það hvort ég vilji hitta stráka eða stelpur.

Hvað er ástin í huga Más? „Er það ekki bara gagn­kvæm virð­ing og að fólki líði vel saman?“

Már er á lausu. Hann er spurður hvernig drauma­prins­inn sé. „Ég er með rosa­lega for­dóma gagn­vart sam­böndum þar sem er mik­ill ald­urs­munur en ég hugsa að það teng­ist van­þroska í mér. Ég sé mig ekki fyrir mér með ein­hverjum 15 árum eldri. Mín drauma­típa væri örugg­lega heilseyptur karakter á mínum aldri sem veit hvað hann vill í líf­inu og er góð og heil­brigð per­sóna. Ég held að það sé það mik­il­væg­asta í grunn­inn.“

Tón­list­ar­mað­ur­inn er spurður hvort hann eigi eitt­hvað upp­á­halds róm­an­tískt lag. „Já, það er lagið „In the Stars“ sem ég samdi þegar ég fór fyrst að tala um að ég væri sam­kyn­hneigður.“

Ég samdi lagið og lag­lín­una og sendi það síðan á góðan vin sem redd­aði fyrir mig texta. „In the stars I see you belong to me“. „Þetta er alveg rómó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu