„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Banamaður Daníels iðraðist einskis: „Ári áður rændi hann gullmeni sem mamma Daníels gaf honum“

Banamaður Daníels iðraðist einskis: „Ári áður rændi hann gullmeni sem mamma Daníels gaf honum“
Eiríkur hefur misst tvö börn sín.

Eiríkur Sig­ur­björns­son missti Daníel, son sinn um pásk­ana á þessu ári. Ekið var yfir Daníel fyrir utan heim­ili kær­ustu hans. Eiríkur telur að ekki hafi verið um óvilja­verk að ræða. Vitni að atvik­unu dró frá­sögn sína til baka. Eiríkur gerir þennan harm­leik í hlað­varp­inu Mann­lífið með Reyni Trausta­syni. Hann segir að Daníel hafi lifað „riskí“ lífi. Hann hafði verið í neyslu en snúið við blað­inu og verið edrú í sjö mán­uði þegar hann féll skömmu áður en hann dó.

„Freist­ing­arnar voru svo miklar að Daníel féll. Hann átti að fara í með­ferð eða hitta lækni á föstu­deg­inum langa, en hann var í neyslu um nótt­ina. Vinkona hans, kærasta hans, vakn­aði og tók eftir að hann var ekki á staðnum. Hún kíkti út og sá hvar hann lá í blóði sínu. Þetta er alveg hræði­legt,“ segir Eiríkur.

Bana­maður Daníels var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald en leystur út eftir fjóra til fimm daga. Fjöl­skylda hins látna taldi að atvikið, ef það var slys, hlyti að vera hræði­legt áfall fyrir þann sem varð Daníel að bana.

„Okkur datt í hug hvort við ættum að ræða við hann og hugga hann, ef þetta hefði verið slys. En nokkrum dögum síðar var hann far­inn að dilla sér á fullu, selja eit­ur­lyf og gera alls konar kúnstir án þess að sýna nokkra iðrun. Þetta veit lög­reglan,“ segir Eiríkur.

Daníel lést í blóma lífs­ins.

Kærasta Daníels var búin að lifa mjög erf­iða tíma en loks­ins hafði hún fundið þann sem hún elskaði. Eiríkur segir að Daníel hafi verið búinn að gefa henni von, verið góður við hana og stappað stál­inu í hana.

„Stúlka sem tal­aði við hana sagði að móðir sín hefði orðið vitni að þessu og sagði henni í smá­at­riðum það sem móðir hennar hafði sagt henni. Hún sagði að það hefði verið ógeðs­legt að sjá mann­inn í sömu peys­unni þegar vett­vangs­rann­sókn var gerð og þegar hann framdi þetta ódæði. Hún sagði að þetta hefði ekki verið slys. Daníel datt niður og mað­ur­inn keyrði yfir hann og bakk­aði síðan yfir hann. Kærasta Daníels vildi hitta mömmu stúlkunnar, sem var til í það, en svo þegar þær hitt­ust þá sagð­ist konan aldrei hafa séð þetta. Fólk er hrætt. En hvernig vissi hún að mað­ur­inn hafði verið í sömu peys­unni?“

Eiríkur segir að það hafi legið fyrir að illindi voru á milli Eiríks og bana­manns­ins.

„Já, það sem varpar efa á að þetta hafi verið óvilja­verk er að akkúrat ári áður, upp á dag, þá rændi þessi náungi gull­meni sem mamma Daníels hafði gefið honum. Upp á dag. Daníel var aldrei sáttur við það og vildi fá það til baka en honum hafði verið hótað dag­ana á undan og var tölu­vert smeykur. Hann sagði á áfanga­heim­il­inu, sem hann var, að honum hefði verið hótað. Það hafði farið að renna af honum þarna um morg­un­inn og hann þurfti meira. Þá kom þessi sendi­boði sem aug­lýsti á Instagram eða hvað það heitir og Daníel sá það og þá var það akkúrat mað­ur­inn sem hafði rænt af honum ári áður,“ segir Eiríkur.

Hann sagð­ist vilja fyr­ir­gefa bana­manni sonar síns en til þess yrði að koma til iðrun.

„Það eru margir sem leið­ast út á óheilla­braut en innst inni vilja þeir lifa öðru­vísi lífi og ég hugsa og get sagt það hérna að ef þessi við­kom­andi ein­stak­lingur iðr­að­ist, breytti til, gengi á Guðs vegi, ját­aði og beidd­ist fyr­ir­gefn­ingar þá væri ég fyrsti maður til að rétta fram hönd­ina og reyna að hjálpa honum, vegna þess að ég hef reynslu af því að hjálpa þeim sem eru komnir í þennan far­veg. Ég myndi fyr­ir­gefa honum. En eins og staðan er í dag þá gengur hann ekki á Guðs vegi og fyrr eða síðar verður hann öðrum og sjálfum sér til skaða ef hann er ekki stopp­aður af.“

Viðtalið í heild sinni er að finna hér í prent­aðri útgáfu og hlað­varpið er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarblað Mannlífs

Nýtt blað Mannlífs er komið út
InnlentHelgarblað Mannlífs

Nýtt blað Mannlífs er komið út

Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs er rætt við Guðrúnu Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra. Í við­tal­inu ræðir hún meðal ann­ars æsk­una, föð­ur­miss­inn og hvers vegna leiðir hennar lágu í mann­fræði­nám, stjórn­mála­fræði og á fjöll. Venju sam­kvæmt eru neyt­anda­málin tekin fyrir, margir áhuga­verðir pistlar og fullt af fróð­legu og for­vitni­legu efni. Nálgast má ein­tak af blað­inu í versl­unum Bónus, N1 Ártúns­höfða og hér á vefnum.
Jón Ásgeir: „Þetta snýst dálítið um DNA í fyrirtækjunum“
InnlentHelgarblað Mannlífs

Jón Ásgeir: „Þetta snýst dálítið um DNA í fyr­ir­tækj­unum“

„Það var ekk­ert stór­kost­lega öðru­vísi. Maður breytti ekki aðferða­fræð­inni sér­stak­lega. Það var hins vegar gaman að koma í þessi fyr­ir­tæki.“ segir Jón Ásgeir Jóhann­es­son aðspurður hvernig það hefði verið að verða for­stjóri í alþjóð­legu fyr­ir­tæki á sínum tíma. Viðtalið við Jón birt­ist í nýju helg­ar­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér. „Ég var oft að tala við stjórn­endur...
Nýtt tölublað Mannlífs er komið út!
InnlentHelgarblað Mannlífs

Nýtt tölu­blað Mannlífs er komið út!

Nýtt tölu­blað Mannlífs er komið út. Athafna­mað­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son er í for­síðu­við­tali blaðs­ins og þar fer hann yfir hæðir og lægðir í ferli sínum sem íslenskur kaup­maður og fjár­festir. Hann deilir með les­endum ævin­týri sínu og föður hans heit­inum, við stofnun lág­vöru­keðj­unar Bónus. Jón Ásgeir missti gott sem allt í hrun­inu – en loks er farið að lygna. Neyt­and­inn...
Nýtt tölublað Mannlífs er komið út
InnlentHelgarblað Mannlífs

Nýtt tölu­blað Mannlífs er komið út

Nýtt og frítt tölu­blað Mannlífs er komið út og að þessu sinni er les­endum boðið upp á ferða­lag um íslenska nátt­úru. Í blað­inu má finna glæsi­legt við­tal við Ólöfu Síverts­sen for­seta Ferða­fé­lag Íslands, sem kosin var í sætið í mars síð­ast­liðnum eftir miklar deilur innan félags­ins. Þá er rætt við fjall­göngugarp­inn Einar Skúlason, stofn­anda göngu­klúbbs­ins Vesens og ver­gangs – og...
Aníta Briem um Ameríku: „Þar fékk maður að kynnast svolítið öðru lífi“
InnlentHelgarblað Mannlífs

Aníta Briem um Ameríku: „Þar fékk maður að kynn­ast svo­lítið öðru lífi“

„Mér fannst þetta allt frekar kjána­legt, því þetta hlut­verk sem ég var beðin að koma fyrir og fljúga þarna í aðra heims­álfu, fannst mér skrítið því ég var viss um að ein­hver hefði gert mis­tök. Ég var tutt­ugu og eins eða tveggja og þetta var hlut­verk fyrir ein­hverja konu sem átti að hafa komið á kopp sinni eigin lækna­mið­stöð,“ segir...
Lestu nýtt helgarblað Mannlífs og þú gætir unnið óvæntan glaðning!
InnlentHelgarblað Mannlífs

Lestu nýtt helg­ar­blað Mannlífs og þú gætir unnið óvæntan glaðn­ing!

Glænýtt og spenn­andi helg­ar­blað Mannlífs er komið út en blaðið er hægt að lesa hér á vefnum. Í blað­inu má að finna ýmis spenn­andi við­töl, bak­sýn­is­speg­il­inn, lífs­reynslu­sög­una og margt fleira. For­síðu­við­talið að þessu sinni er við Anítu Briem, sem segir meðal ann­ars frá æsk­unni, ein­elt­inu sem hún varð fyrir og Ameríku ævin­týr­inu. Vilt þú vinna Búbblu Bröns hjá Monkey’s fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu