„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rakel segist oft vera of upptekin af því hvað öðrum finnst

Rakel segist oft vera of upptekin af því hvað öðrum finnst

Rakel Páls­dóttir söng­kona með meiru, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Margir muna eflaust eftir Rakel og hennar hug­ljúfu rödd síðan í Söngvakeppni Sjón­varps­ins, íslensku und­ankeppn­inni fyrir Evr­ó­visjón, en hún tók þátt árið 2017 og 2018.
Nú á dög­unum gaf Rakel frá sér sitt fyrsta jóla­lag, en lagið ber nafnið Jóla­ver­öld vaknar og má hlusta á það í spil­ar­anum hér neðar á síð­unni. Lagið er eftir Gunnar Inga Guð­munds­son og text­ann samdi Nína Richter.
Mannlíf komst að því að Rakel er mennt­aður þroska­þjálfi, henni leið­ast gelt­andi hundar og hana dreymir um að eign­ast sum­ar­hús á Spáni.

Fjöl­skyldu­hagir? Í sam­búð með þrjú börn.

Menntun/atvinna? Starfa sem þroska­þjálfi í sér­deild í grunn­skóla.

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Bachelorette og heim­ild­ar­þættir.

Leikari? Julie Walters og Whoopi Goldberg.

Rit­höf­undur? Enginn sér­stakur.

Bók eða bíó? Bíó.

Besti matur? Pasta með rjóma­ostasósu.

Kók eða Pepsí? Bæði.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Stykk­is­hólmur og Hawaii.

Hvað er skemmti­legt? Að vera í vinn­unni, að ferð­ast og að syngja.

Hvað er leið­in­legt? Ókurt­eist fólk.

Hvaða flokkur? Stjórn­mála­flokkur? Pass.

Hvaða skemmti­staður? Enginn sér­stakur. Djamma mjöööög lítið. Bara ein­hver staður með góðri tón­list.

Kostir? Jákvæð, stund­vís, skipu­lögð, hæfi­leik­a­rík og skemmti­leg (fékk aðstoð vinnu­fé­laga).

Lestir? Óþol­in­móð, oft upp­tekin af því hvað öðrum finnst og fljót­fær.

Hver er fynd­inn? Pabbi minn, alltaf.

Hver er leið­in­legur? Geltandi hundur.

Trúir þú á drauga? Nei.

Stærsta augna­blikið? Fæðing dætra minna.

Mestu von­brigðin? Covid.

Hver er draum­ur­inn? Að eiga sum­ar­hús á Spáni.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að mæta loks­ins á æfingu aftur í Metabolic.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei alls ekki. Svo ef maður nær ein­hverjum mark­miðum, þá setur maður sér ný.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Nei ég er alveg glötuð að muna svona brand­ara.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Æj það er svona atvik þar sem ég hélt, að maður sem ég þekki ekki mikið, en ætl­aði að heilsa, ætl­aði að knúsa mig og ég opna armana og knúsa hann en þá var hann bara að rétta út hend­urnar til að laga erm­ina eða klæða sig í jakka. Já svona vand­ræða­legt knús sem átti ekki að verða knús.

Sorg­leg­asta stundin? Allt sem er sorg­legt eins og and­lát nákom­inna.

Mesta gleðin? Allir sigrar sem börnin mín vinna.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að verja tíma með fjöl­skyldu, hlúa að and­legri og lík­am­legri heilsu og njóta hverrar stundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stækkunarglerið

Bjarkey elskar að dansa – Fyndnasta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn
Menning

Bjarkey elskar að dansa – Fyndn­asta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra er undir stækk­un­ar­gleri Sjóarans. Hún hefur alla jafna í mörg horn að líta og seg­ist eiga það til að ofhugsa hlut­ina. Hún segir ískalt fjalla­vatn vera besta drykk­inn og er lítið fyrir kók og pepsí. Bjarkey Olsen er að eigin sögn rök­föst Excel-kona. Fjöl­skyldu­hagir? Afskap­lega vel gift honum Helga mínum Jóhanns­syni. Börnin okkar eru Tímon Davíð,...
Baldur varð bóndi 13 ára gamall: „Felix er frábær heimilis DJ“
Menning

Baldur varð bóndi 13 ára gam­all: „Felix er frá­bær heim­ilis DJ“

Baldur Þór­halls­son er mjög heima­kær og kann ekki aðeins á þvotta­vél, heldur þurrkara líka. Hann er alæta á tón­list og segir Felix frá­bæran „heim­ilis Dj“. Upp­á­halds ljóð Baldurs er ljóð eftir maka hans, Felix Bergsson og stærstu stund­irnar í lífi hans eru barn­eign­irnar og barna­börnin. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Ég er alinn upp á bænum Ægissíðu í Rang­ár­valla­sýslu og er mjög...
Konan segir Ástþór „sérstaklega rómantískan“: „Mér leiðast þvottavélar en er hrifin af þvottakonum“
Menning

Konan segir Ástþór „sér­stak­lega róm­an­tískan“: „Mér leið­ast þvotta­vélar en er hrifin af þvotta­konum“

Ástþór Magn­ús­son er að sögn eig­in­konu hans alveg sér­stak­lega róm­an­tískur. Hann vill gefa þjóð­inni ávísun ef hann kemst á Bessa­staði og ætlar að leita frið­ar­samn­inga við Rússa, verði hann kos­inn for­seti. Þá leið­ist Ástþóri þvotta­vélar en er hrif­inn af þvotta­konum sem hugsa um hann. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Þing­vellir. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Nei. Hvaða breyt­ingar viltu...
Helstu vonbrigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“
Menning

Helstu von­brigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“

Ólafur Ragnar Grímsson er upp­á­halds for­seti Viktors Trausta­sonar, for­seta­fram­bjóð­anda. Helsta fyr­ir­mynd hans er kvik­mynda­k­arakter og hann borðar þorra­mat en bara þegar hann er í boði. Þá vill hann breikka þjóð­veg­inn og heldur upp á ljóðið Slysa­skot í Palest­ínu. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Kólus­botnar. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Í stjórn­ar­skrá er engin krafa um það að for­seti sitji...
Halla safnaði fyrir bílprófi með því að þvo af fjölskyldunni: „Skylda að dansa af og til“
Menning

Halla safn­aði fyrir bíl­prófi með því að þvo af fjöl­skyld­unni: „Skylda að dansa af og til“

Halla Hrund Loga­dóttir safn­aði fyrir bíl­próf­inu með því að þvo af fjöl­skyld­unni. Hún segir að það sé nauð­syn­legt að dansa annað slagið og sér róm­an­tík­ina í hvers­dags­leik­anum. Þá er hún sólgin í harð­fisk. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Sveitin mín á Síðu, þó að landið okkar í heild sé ger­semi. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Ég myndi telja tvö...
Steinunn hefur neytt ólöglegra fíkniefna: „Vil tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar“
Menning

Steinunn hefur neytt ólög­legra fíkni­efna: „Vil tryggja yfir­ráð yfir auð­lindum okkar“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er afskap­lega róm­an­tísk að eigin sögn. Hún við­ur­kennir að hafa neytt ólög­legra fíkni­efna á ævinni og seg­ist hafa lært að meta augna­blikið þegar hún meðal ann­ars fylgdi Stefáni Karli sínum í dauða­stríði hans. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Þeir eru nokkrir, Strandir eins og þær leggja sig, N-Þing­eyj­ar­sýsla, hálendi Íslands og auð­vitað allar almenn­ings­sund­laugar lands­ins. Á for­seti að sitja...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu