„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ótrúleg saga manns, sem var á flótta í 40 ár: „Ég trúði því bara hreinlega ekki“

Ótrúleg saga manns, sem var á flótta í 40 ár: „Ég trúði því bara hreinlega ekki“

Jón Hjalta­son, sagn­fræð­ingur á Akureyri, stendur í ströngu þessa dag­ana við útgáfu þriggja bóka. Sem er út af fyrir sig frétta­efni. Einn höf­undur, þrjár bækur, og það um sömu jól.

Þar er ævi­saga Markúsar Ívars­sonar, flótta­manns í 40 ár, Þessir Akur­eyr­ingar sem er úrval grín­sagna um „íbúa bæj­ar­ins þar sem góða veðrið var fundið upp“. Alltaf sami veð­ur­hrok­inn í þessum Akur­eyr­ingum! Þriðja ritið ber nafnið Ótrúlegt en satt – Saga Akur­eyrar í öðru­vísi ljósi, stundum skemmti­legu, stundum sorg­legu, jafn­vel vand­ræða­legu en alltaf fróð­legu.

Var í tæp 40 ár eftirlýstur af yfirvöldum

Ævisaga Markúsar Ívars­sonar er ansi merki­leg, en hann basl­aði hálfa ævina í Eyja­firði, var vinnu­maður og bóndi og átti 15 börn með átta konum. Markús sat fangi í þrjú ár í Kaup­manna­höfn og var í tæp 40 ár eft­ir­lýstur af yfir­völdum. Lengst af útlegð­ar­innar bjó Markús á Snæ­fells­nesi og gekkst undir nafn­inu Sigurður Jónsson.

Eft­ir­far­andi umsögn skrif­aði Helgi Skúli Kjart­ans­son um ævi­sögu Markúsar. „Merki­legt er það við aðferð Jóns Hjalta­sonar hvernig hann getur lagst svo djúpt í heim­ilda­könnun sem hann hefur sýni­lega gert, og leyft þó hvergi rann­sókn­inni að stela sen­unni af frá­sögn­inni. Frásögn sem rekur ekki aðeins lífs­hlaup þessa maka­lausa Markúsar, grip­deildir hans og barn­eignir, heldur umfram allt sam­skipta­sögu hans við íslenskt sam­fé­lag. Samfélag þar sem svo óstýri­látur maður gat þrátt fyrir allt tekið sér oln­boga­rými til að lifa sínu ósam­þykkta lífi. Stór­merki­legt!“

En af hverju Markús?

„Hann fang­aði fyrst athygli mína þegar ég var að skrifa Sögu Akur­eyrar fyrir þó nokkrum árum síðan,“ segir Jón, höf­undur bók­ar­innar og heldur áfram. „Og ég trúði því bara

Jón Hjalta­son, sagn­fræð­ingur og höf­undur bókanna þriggja.

hrein­lega ekki að mað­ur­inn hafði verið eft­ir­lýstur, á flótta undan rétt­vís­inni, nær hálfa ævina.“

Markús var eft­ir­lýstur frá árinu 1881 og náði tvisvar það ár að flýja undan lag­anna vörðum. Seinna skiptið tókst honum að strjúka úr fang­elsi og náð­ist hann ekki eftir það.

„Það vakn­aði hjá mér áhugi að rekja sögu Markúsar og gefa í leið inn­sýn í til­veru for­feðra okkar með eins per­sónu­legum hætti og mögu­legt er.“

Þetta hlýtur að hafa tekið sinn tíma?

„Jú þetta er búið að vera margra ára heim­ild­ar­vinna, sem ég loks gaf mér tíma til að vinna úr. En vissu­lega hef ég hlotið aðstoð góðs fólks við að rekja ferðir og ættir Markúsar, því verður að halda til haga.“

Hreinskilni í fyrirrúmi -mögulega of mikil?

Hið óvana­lega við þessa útgáfu – fyrir utan vita­skuld að einn maður stendur að ritun bókanna – er hrein­skilni höf­undar, Jóns Hjalta­sonar sagn­fræð­ings. Í bók­inni, Ótrúlegt en satt, játar hann heimsku sína og glöp. Og gengur svo jafn­vel enn lengra í af-karl­mennsk­unni þegar hann í gam­an­sagna­bók­inni, Þessum Akur­eyr­ingum, gerir lítið úr leynd­ar­lim sínum og gefur í skyn stutt­leika hans. Sann­ar­lega hressi­leg lesn­ing, verðum við að játa, og skemmti­leg svona í aðdrag­anda jóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu