„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Afsögn Boris Johnson: „Ég óska honum samsvarandi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum“

Afsögn Boris Johnson: „Ég óska honum samsvarandi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum“
Boris Johnson með síld.

Öll spjót hafa staðið að Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, und­an­farið og mik­ill þrýst­ingur á að hann segi af sér. Er það vegna raða hneyksl­is­mála og umdeildra ákvarð­ana, sem má segja að hafi byrjað með gleð­skap sem hald­inn var í bústað Johnson og höf­uð­stöðvum rík­is­stjórn­ar­innar í Downingstræti 10 í júní árið 2020, þegar strangt sam­komu­bann var í gildi í Bretandi.

Johnson hefur nú til­kynnt yfir­vof­andi afsögn sína sem for­maður Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra. RÚV greinir frá þessu.

Frétta­stofur BBC og Sky hafa greint frá því að Boris Johnson hyggi á afsögn sem for­maður Íhalds­flokks­ins í dag. Hann er þó sagður ætla sér að sitja sem for­sæt­is­ráð­herra fram á haust. Miklar vend­ingar hafa verið í stjórn­málum í Bret­landi und­an­farið. 57 ráð­herrar og aðrir áhrifa­menn úr bæði rík­is­stjórn og flokki Johnson hafa sagt af sér.

Von er á yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráð­herr­ans í dag, en talið er að hann sitji áfram í starf­inu þar til eft­ir­maður hans hefur verið val­inn, en lands­fundur Íhalds­flokks­ins er í októ­ber.

Miklar deilur hafa verið innan flokks­ins und­an­farið, sem snú­ast um for­sæt­is­ráð­herr­ann sjálfan. Nadhim Zahawi, fjár­mála­ráð­herra bresku rík­is­stjórn­ar­innar sem Johnson skip­aði í emb­ætti fyrir aðeins tveimur sól­ar­hringum, sendi frá sér bréf í morgun þar sem hann hvatti Johnson til að segja af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Sam­fé­lags­miðlar hafa ekki síður en frétta­miðlar logað í kringum Boris Johnson und­an­farið. Þannig skrif­aði Jenny Stevens til að mynda á Twitter í gær:

„Þegar Boris Johnson sagði mér upp (í Ráð­hús­inu), var ég kölluð inn í stórt her­bergi þar sem hann stóð með möppu og las kæru­leys­is­lega upp starfs­heiti og „verður eytt“ í fram­hald­inu. Ég vona að honum verði sýnd svipuð kurt­eisi.“

Færslan hefur fengið tölu­verða athygli og upp­skorið mikil við­brögð. Libby Holden skrifar athuga­semd við hana:

„Þetta var sann­ar­lega hræði­legur tími. Ég trúi því varla að það séu komin 15 ár síðan. Ég óska honum bara sam­svar­andi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“