„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Telja að kynóður hákarl hafi rifið ferðamenn í sundur

Telja að kynóður hákarl hafi rifið ferðamenn í sundur

Tvær hákarla­árásir hafa orðið við strendur Egypta­lands með stuttu milli­bili. Báðar end­uðu þær með dauða fórn­ar­lambanna, sem voru hrein­lega rifin í sundur af rán­dýr­inu. Sér­fræð­ingar segja hugs­an­legt að árás­irnar teng­ist fengi­tíma, en aðrir telja að hætta á slíku skap­ist vegna dýra­hræja sem kastað sé í sjó­inn af skipum.

Það var á vin­sælum ferða­manna­stað við Rauða­hafið að tvær konur voru tættar í sundur af hákörlum, með ein­ungis tveggja daga milli­bili. Þetta kemur fram hjá breska blað­inu The Sun.

Árás­irnar áttu sér báðar stað við Sahl Hasheesh-flóa í nágrenni borg­ar­innar Hurghada í Egypta­landi, í 96 kíló­metra fjar­lægð frá vin­sæla ferða­manna­staðnum Sharm El Sheikh. 68 ára kona sem var þar í fríi lést eftir að hákarl réð­ist á hana þegar hún var á sundi í sjónum og tætti af henni hand­legg og fót­legg. Einungis tveimur dögum síðar fannst rúm­ensk kona látin eftir árás hákarls. Um 600 metrar voru á milli stað­anna þar sem ráð­ist var á fyrri kon­una og þar sem sú seinni fannst.

Árásir hákarla eru afar sjald­gæfar í Rauða­haf­inu og því rýna sér­fræð­ingar nú í málið. Umhverf­is­nefnd á svæð­inu telur árás­irnar tengj­ast fengi­tíma hákarla og að um „kynóðan“ hákarl hafi verið að ræða.

Fengi­tími hákarla stendur yfir frá miðjum apríl fram til enda júlí. Á þeim tíma geta hákarl­arnir orðið árás­ar­hneigðir. Sér­fræð­ingar telja mögu­legt að árás­irnar hafi verið framdar af sama hákarl­inum.

Sam Purkis, sér­fræð­ingur hjá Háskól­anum í Miami sagð­ist í sam­tali við The Sun telja það lík­legra að eitt­hvað hafi valdið því að fleiri hákarlar komu svo nálægt yfir­borð­inu á sama tíma­bili. Í því sam­hengi nefndi hann að vöru­flutn­inga­skip hafi fleygt dýra­hræjum í Rauða­hafið.

„Það leiðir hákarla að yfir­borð­inu að róta eftir æti, sem kemur þeim í návígi við fólk á sundi,“ segir hann.

Rauða­hafið hefur þá sér­stöðu að vera afar djúpt, nálægt strönd­unum. „Það þýðir að stærri dýr koma nær strönd­unum, í sam­an­burði við grynnri sjó nálægt strand­línum,“ segir Purkis.

„Flestir hákarlar halda sig í opnum höfum, ekki nálægt ströndum, þannig að mann­fólk myndi yfir­leitt ekki kom­ast í návígi við þá, en Rauða hafið er öðru­vísi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“