„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fimm hákarlaárásir með stuttu millibili við New York: „Hann náði í kálfann á mér“

Fimm hákarlaárásir með stuttu millibili við New York: „Hann náði í kálfann á mér“

Ferða­maður var bit­inn af hákarli við strendur Long Island í vik­unni, ein­ungis nokkrum klukku­stundum eftir að ein­stak­lingur á brim­bretti varð fyrir árás á sama svæði. Þar með hafa verið fimm hákarla­árásir í New York á ein­ungis tveimur vikum.

Á vef The Sun kemur fram að brim­bretta­mað­ur­inn Shawn Donnely kastað­ist af bretti sínu þegar Tíg­ur­háfur réð­ist á hann undan ströndum Smith Point Beach á mið­viku­dag.

„Hann náði í vinstri kálfann á mér. Þegar ég var að detta af brett­inu sá ég ugg­ann og bakið á honum.“ Bit hákarls­ins á kálfa Donnely skildi eftir sig rúm­lega tíu sentí­metra sár. Honum tókst að koma sér í land með næstu öldu.

Síðar þennan sama dag var ferða­maður að vaða í sjónum við Seaview strönd­ina þegar hákarl réð­ist á hann. Samkvæmt lög­reglu á svæð­inu kom hákarl­inn aftan að ferða­mann­inum og beit hann í vinstri úln­lið og rasskinnar. Maðurinn gat gengið en var þó flogið á spít­ala vegna meiðsl­anna, sem voru ekki lífs­hættu­leg.

Tveir líf­verðir sem voru við störf á nær­liggj­andi ströndum urðu einnig fyrir hákarla­árásum fyrr í mán­uð­inum. Annar þeirra, Zach Gallo, var við æfingar á Smith Point Beach þegar hann var bit­inn sunnu­dag­inn 3. júlí. Hann hafði verið í hlut­verki ein­stak­lings í háska í sjónum á æfing­unni þegar hann fann fyrir snörpum sárs­auka. Hann sagð­ist hafa fundið gúmmí­kennda áferð og þannig áttað sig á því að hann væri í návist hákarls. Hann kýldi hákarl­inn til þess að verj­ast árásinni og komst í land.

Þann 7. júlí var annar líf­vörður, John Mullins, við æfingar á nær­liggj­andi strönd þegar hann varð fyrir árás hákarls.

Annar maður hlaut sár eftir kynni við hákarl þann 30. júní síð­ast­lið­inn þegar hann var að synda við Jones Beach.

Á mið­viku­dag var sund bannað við Smith Point Beach vegna hættu­legra sjáv­ar­dýra.

Bitið eftir hákarl­inn á Zach Gallo.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“