„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Good shit í tónlistinni – Drekinn er minn Eiríkur Fjalar og fuglinn minn er Saxi læknir“

„Good shit í tónlistinni – Drekinn er minn Eiríkur Fjalar og fuglinn minn er Saxi læknir“
Samúel Reyn­is­son, fjöl­lista­maður. Aðsend mynd.

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann segi njóta matar- og kok­teila­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju.

Segðu okkur aðeins frá þv hvaðan þú kemu, frá æsk­unni, námi og fjöl­skyld­unni þinni. 

Ég er frá Hafn­ar­firði og hef búið þar síðan ég fædd­ist fyrir utan þann tíma sem ég bjó í Danmörku frjá þriggja til fjög­urra ára ald­urs. Ég hef jafn­vel verið svo stað­fastur í Hafn­ar­firð­inum að ég bæði útskrif­að­ist úr Víði­staða­skóla og því næst Flens­borg­ar­skól­anum. Meira að segja hafa allir í minni náinni fjöl­skyldu verið í Flens­borg á ein­hverjum tíma­punkti, en bróðir minn og systir útskrif­uð­ust þaðan, löngu á undan mér. Eftir stúd­ent­inn fór ég í hljóð­tækni­nám Tækni­skól­ans sem fór fram í Stúdíó Sýrlandi og útskrif­að­ist þaðan eftir 1 árs mara­þon-nám.

Hvenær kvikn­aði áhug­inn á tón­list, og hvað varstu að hlusta á þegar þú varst krakki og ung­lingur? 

Tón­list­arsmekk­ur­inn minn var og er mjög sjaldan genre-mið­aður, en sem krakki man ég eftir að hafa t.d. fengið æði fyrir Eminem og Ramm­stein á mis­mun­andi tímum. Áhuginn minn á tón­list hefur mikið komið frá fjöl­skyld­unni minni. Þegar ég hlust­aði af áhuga á það sem t.d. pabbi spil­aði á græj­unum sínum, það sem mamma var með í gangi í bílnum og það sem bróðir minn og systir mín áttu á geisla­diskum. Auk þess sem bróðir minn var í hljóm­sveit­inni Pan sem tók meðal ann­ars þátt í Mús­íktil­raunum árið 2002. Ég man vel eftir að hafa fengið að sjá stúd­íóið þeirra á einum tíma­punkti.

Hvernig tónlist höfðar mest til þín svona þegar á heildina er litið?

Tónlist sem er skrítin höfðar mjög mikið til mín, það er ein­faldasta leiðin til að lýsa því. Tónlist með mik­inn per­sónu­leika og er sitt eigið „thing.“ Það er hægt að gera tón­list sem er af mainstr­eam stíl en hafa hana samt fulla af júník eig­in­leikum og þess vegna fylgist ég alveg með popp-tón­list eins og ég get, þó það sé ekki það sem ég er að gera sjálfur. Það er „good“ shit alls staðar í tón­list.

Hverjir eru í mestu upp­á­haldi – hljóm­sveitir og sól­ó­artistar? Á hvað ertu til dæmis að hlusta á mest í dag? 

Ég er ákafur fylgj­andi King Gizzard and the Lizard Wizard, sem þýðir að þeir halda enn fyrsta sæti sem mest hlust­aða hljóm­sveit á Spotify. Einungis vegna þess að þeir eiga það til að gefa út tón­list nokkru sinnum á ári og ég verð að hlusta á það allt, og oft. Ég er fastur hjálp. En ann­ars er ég alltaf að upp­götva nýtt stöff og end­ur­upp­götva það gamla.

Þú ert menntaður á píanó – var það eitthvað sem þú varst alltaf spenntur fyrir?

Eins og margt annað fólk í tón­list­ar­námi, byrj­aði ég á blokk­flautu í for­skóla og ég gerði það í Tón­list­ar­skóla Hafn­ar­fjarðar. Eftir að ég kláraði tón­list­ar­skól­ann gat ég valið á milli þriggja hljóð­færa í topp 3 sem mig lang­aði að læra á. Ég setti hljóm­borð í fyrsta sæti, píanó í annað sæti og trommur í þriðja. Það er mjög lík­legt að ég hafi skrifað þessi topp 2 vegna þess að amma og afi áttu skemmt­ara sem ég lék mér á og lærði t.d. Gamla Nóa og fleiri sígild stef í sama dúr. Aftur á móti hefði ég seint mátt kaupa mér trommu­sett til að spila á í íbúða­blokk­inni heima svo það var örlítið lang­sótt, en mig lang­aði mikið til að læra á þær.

Hafðirðu hugsað þér að gera píanóleik að þínu starfi?

Í fyrstu, já algjör­lega. En það er stundum erfitt að greina á milli hvað manni finnst skemmti­legt sem áhuga­mál og hvað maður myndi vilja starfa við. Það að semja tón­list og spila á hljóð­færin sjálfur inni­heldur píanó­leik en ein­ungis að hluta. Ég hef kom­ist að því að ég vil helst eyða tíma mínum í að læra á eins mörg hljóð­færi og hægt er og læra að spila á þau nokkuð vel, frekar en að mastera eitt hljóð­færi og gera það að mínu starfi. Sú hæfni sem ég þjálfa mest er að semja eitt­hvað með því sem ég hef og kann á þess­ari stundu.

Hvað með önnur hljóðfæri: Á hversu mörg hljóðfæri spilarðu?

Það væri hægt að gera lista, en ég hef ekki tölu á það eins og er. Í Samosa sé ég um kjarna­hljóð­færi rokktón­listar svo sem gítar, bassa og hljóm­borð. Tölvan sér um tromm­urnar á þessum fyrstu plötum, vegna skorts á trommu­setti, upp­töku­búnað og aðstöðu sem er ekki íbúða­blokk, en ég hef þó nýlega verið að æfa mig á trommur fyrir fram­tíð­ina. Auka­hljóð­færi sem ég hef eða hyggst nota í lögum eru svo munn­harpa, írsk flauta, ukul­ele, dulcimer og meló­dika.

Hvenær ákvaðstu að kýla á dæmið og stofna hljóm­sveit, eða að byrja í hljóm­sveit, og hver var fyrsta hljóm­sveitin þín?

Það eru tvö moment sem ég veit að ollu því að ég vildi semja tón­list. Fyrst byrj­aði ég að gera synthwave tón­list þegar ég var 15 ára, eftir að hafa heill­ast af soundtrackinu í fyrstu seríu af Stranger Things. Þá var ég mikið að leika mér með syntha í FL Studio, án þess að kunna neitt mikið á hljóð­blöndun eða hvernig hljóð­gervlar virka. En ég hafði tón­fræði kunn­átt­una til þess að semja lög og birta þau á YouTube. Tveimur árum eftir það kynnt­ist ég prog rokki, eftir að hafa verið ráð­lagt að hlusta á King Crimson og þá átti ég langa opin­berun framundan. Að vinna á bóka­safni með hell­ing af vín­yl­plötum og geisla­diskum gerði það auð­velt fyrir mig að fara í gegnum lista á net­inu með yfir­lit yfir bestu prog rokk plöt­unum og taka vínyl með mér heim að láni. ‘Close To The Edge’ eftir Yes og ‘2112’ eftir Rush er það næsta sem ég hef kom­ist að því sem kall­ast ‘transcendence’. Þá fékk ég brenn­andi áhuga á “odd” takt­teg­undum og alls konar hljóð­færum sem mig lang­aði að nota í minni eigin tón­list. Að mestu leyti hefur það passion farið fram í mínu eigin svefn­her­bergi en ég hef líka spilað í hljóm­sveitum af og til yfir árin með vinum.

Ertu með fleiri járn í eldinum – project?

Til hliðar við Samosa, er ég mikið að prófa mig áfram í hljóð­hönnun og “scoring”, en ég hef gert hljóð fyrir ýmis verk­efni vina minna, 3d-teikni­myndir og stutt­myndir o.fl. Auk þess að ég gerði end­ur­hönnun á hljóði fyrir trailer­inn á Elden Ring tölvu­leiknum. Þá samdi ég tón­list­ina fyrir hann og setti upp allt hljóðið upp á nýtt. Það er mjög gef­andi ferli sem ég hef mik­inn áhuga á að halda áfram að gera.

Jæja, tölum um Samosa. Segðu mér frá upp­haf­inu og fram til dags­ins í dag um Samosa, hvenær þú fórst af stað og hvernig tón­list erum við að tala um?

Samosa er hug­mynd sem ég byrj­aði að móta þegar ég var í hljóð­tækni­nám­inu 2021 og hef á þessu ári náð að koma af stað. Það sem er í gangi núna er fjór­leikur af smá­skífum eða ‘EP’-plötum sem eru allar nefndar eftir fjórum land­vættum Íslands. Hver plata er öðru­vísi tón­list­ar­stefna og tekur á mis­mun­andi mál­efnum sem hrjá okkur í veru­leik­anum. Ég hef meira að segja skrifað (á ensku) sög­una á bak­við hvert lag á heima­síð­unni minni. Sögurnar tengj­ast allar saman í gegnum eina heila sögu sem fjalla um að ef land­vættir Íslands væru lif­andi í nútíma­legri fantasíu-útgáfu af Íslandi; hverju myndu þau vera ósam­mála um? Það er búið að vera sér­stak­lega skemmti­legt að þróa þennan heim og þessa karakt­era. Dreka­bún­ing­ur­inn fyrir Dragons At Home var keyptur á net­inu en fugla­bún­ing­ur­inn fyrir Birds Of A Figment Sky var aftur á móti saum­aður heima, svo hann er einn sinnar fugla­teg­undar í heim­inum. Mér finnst ég vera að skapa fínt safn af karakt­erum, með miklum inn­blástri frá Peter Gabriel þegar hann var á sviði með Genesis. Eða eins og Laddi, þar sem drek­inn er minn Eiríkur Fjalar og fugl­inn er minn Saxi læknir.

Hver sá um upptökustjórn og útsetningar og spilar þú á öll hljóðfæri á plötunni?

Ég sá sjálfur um upp­töku­stjórn, útsetn­ingar og hljóð­blöndun en hljóð­jöfnun er gerð af öðrum aðila sem ég sendi tón­list­ina mína til. Mér líður best með það að fá ein­hvern annan til að gera loka yfir­ferð á öllu sem ég ræð við sjálfur, svo það sé aldrei bara einn sem hefur ræður öllu ferl­inu. Sömu­leiðis fæ ég hljóð­færa­leik­ara til mín í upp­tökur, en vin­kona mín spil­aði á þver­flautu í lög­unum Let It Pass og Figment Sky sem í bæði skipti gerði lögin marg­falt betri. Tón­list­inni fylgir mikil mynd­list sem ég nota til að aug­lýsa á net­inu bæði á heima­síð­unni og á sam­fé­lags­miðlum. Allt aug­lýs­ing­ar­efnið er galdrað fram af félaga frá Tyrk­landi. Fyrir hvern land­vætt er gerð ein mynd sem tengj­ast allar í eina for­síðu fyrir Double LP-útgáfu á Land­vætta-smá­skíf­unum. Það mun vera á streym­isveitum sem ein heil plata ásamt aðskildu smá­skífum. Ef ég næ í nægi­legt fjár­magn þá von­andi verða ein­hverjar áþreif­an­legar vín­yl­plötur skreyttar þess­ari  mynd­list.

Hefuru gert myndband eða myndbönd?

Það kemur alltaf á óvart hvernig ferlið þró­ast þegar maður byrjar á lagi. Það byrjar bók­staf­lega alltaf bara á ein­hverju fikti, sem verður að ein­hverri súpu og svo er maður að laga súp­una til í nokkra daga á eftir. Textinn og söng­ur­inn kemur alltaf síð­ast því ég hef minnstu trú á mér í þeim málum en það ein­hvern veg­inn redd­ast alltaf á end­anum, stundum mjög auð­veld­lega en stundum eftir mikið strit. Það eru engin mynd­bönd komin út eins og er, en ég stefni á tökur á einu svo­leiðis fyrir lagið Dragons At Home. Ef allt gengur upp, gæti það komið út um svipað leyti og næsta plata í lok sum­ars.

Hvernig viðtökur hefurðu fengið eftir að þú settir inn á Spotify?

Útgáfa á tón­list frá Samosa mun von­andi aldrei enda, en tón­leikar er góður mögu­leiki í fram­tíð­inni svo fremur sem ég safna saman liði í það. Það er ágæt­lega mikið í gangi í hverju lagi sem ég væri til í að gera rétt á sviði með nóg af hljóð­færa­leik­urum, en það verður bara að koma í ljós.

Hefurðu í hyggju að gera tón­list­ina að þinni atvinnu – verða atvinnu­tón­list­ar­maður? 

Fyrir utan tón­list hef ég sjálf­sagðan áhuga á allri menn­ingu og list­formum. Fantasíu-bók­menntir spila mik­inn þátt í því ama­teur world-build­ing sem er í gangi í Land­vætt­unum, þar á meðal er mik­ill inn­blástur frá Discworld. Auk þess, nýt ég matar- og kok­teila­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju.

Hvernig sérðu fyrir þér Samúel Reynisson eftir tíu ár?

Hann verður von­andi kom­inn hátt í tug af útgefnum plötum, byrj­aður að láta reyna á kvik­mynda­heim­inn og nær að halda flestum plöntum á lífi sem eru ekki ein­göngu þykk­blöð­ungar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Menningarlíf

Lilja Dögg: „Lagt til að starfslaunum listamanna verði fjölgað“
InnlentMenningarlíf

Lilja Dögg: „Lagt til að starfs­launum lista­manna verði fjölgað“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar og við­skipta­ráð­herra, hefur mælt fyrir frum­varpi um tíma­bundna fjölgun starfs­launa til handa sviðs­lista­fólki og tón­list­ar­flytj­endum. Nánar til­tekið er um að ræða, breyt­ingu á lögum um lista­manna­laun, nr. 53/2009. Með frum­varp­inu er lagt til að starfs­launum lista­manna í gegnum launa­sjóð sviðs­lista­fólks verði fjölgað um 50 og þau við­bót­ar­mán­að­ar­laun sér­stak­lega skil­yrt ungu sviðs­lista­fólki undir 35 ára aldri. Svipað...
„Menningarsjokk”
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

„Menn­ing­ar­sjokk”

Menn­ing­ar­lífið hefur tekið stakka­skiptum í far­aldr­inum, en erum við loks­ins farin að sjá líf glæð­ast á ný innan menn­ingar- og lista­heims­ins? Og þó! Ein af mörgum afleið­ingum far­ald­urs­ins hefur verið tak­markað aðgengi að hinni ýmsu afþr­ey­ingu, listum og við­burðum og er fólk farið að þyrsta í aukið menn­ing­ar­líf. Það er hægt að segja að við höfum orðið fyrir nokk­urs konar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu