Margir hafa minnst Elísabetar II Englandsdrottningar síðan fregnir af andláti hennar bárust í gær. Frægasti bangsi heims, Paddington er einn þeirra en það gerði hann á hjartnæman hátt á Twitter.
Paddington skrifaði stutta en fallega færslu á Twitter-reikning sinn eftir að fréttir bárust af andláti drottningarinnar í gær. „Þakka þér frú. Fyrir allt.“
Vitnar björnin góðlátlegi þar í sjálfan sig en hann og Elísabet léku saman í myndbandi til að fagna 70 ára valdatíð drottningarinnar, fyrr á árinu. Í myndbandinu sjást þau fá sér te saman og drottningin kom birninum á óvart með sinni eigin marmelaðisamloku.


























Athugasemdir