„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Útvarpsstjóri Russia Today rekinn eftir ógeðsleg ummæli: „Ég er forviða, hvað get ég annað sagt?“

Útvarpsstjóri Russia Today rekinn eftir ógeðsleg ummæli: „Ég er forviða, hvað get ég annað sagt?“
Útvarps­stjór­inn brottrekni Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rúss­neski rík­is­fjöl­mið­ill­inn RT hefur rekið útvarps­stjór­ann Anton Krasov­sky eftir að hann kall­aði eftir því að rúss­nesku­mæl­andi börn í Úkraínu sem væru á móti Rúss­landi, yrðu drekkt og brennd í einni útsend­ingu sinni.

Rit­stjóri RT, Marga­rita Simonyan sagði frá mál­inu á Telegram 24. októ­ber síð­ast­liðnum. Kallaði hún athuga­semdir Krasov­sky „brjál­aðar og ógeðs­legar.“

„Kannski mun Anton útskýra hverslags tíma­bundna geð­veiki olli þessum [athuga­semdum] og af hverju þær komu út úr munni hans. Það er erfitt að trúa því að börn ættu að vera drekkt. Á þess­ari stundu hef ég sagt upp sam­starfi okkar, þar sem hvorki ég né restin hjá RT getur einu sinni hugsað sér að innan okkar raða sé slík geð­veiki. Ég er for­viða, hvað get ég annað sagt? Til barn­anna í Úkraínu og í Donbas og til allra barna: Ég vil að allt þetta endi eins fljótt og auðið er og ég vil að þau geti lifað í friði og lært á því sínu móð­ur­tungu­máli.“

Anton Krasov­sky kall­aði eftir því að börnin yrðu drekkt, í þætti sínum Antonyms þann 20 októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar var hann að taka við­tal við rit­höf­und­inn Sergey Lukyanenko. Í við­tal­inu lýsti rit­höf­und­ur­inn því þegar hann var barn á níunda ára­tug síð­ustu aldar og fór til Úkraínu. Þar hafi hann hitt börn sem sögðu „Úkraína er her­setið af Rússum.“ Hann vakti athygli á að „þau voru hund­rað pró­sent Rússar, rúss­nesku­mæl­andi börn.“

Krasov­sky svar­aði: „Þessum börnum hefði átt að hrein­lega drekkja í Tysyna ánni, þar sem end­urnar synda (til­vísun í Úkra­ínskt þjóð­lag). Hrein­lega drekkja þessum börnum. Drekkja! Nákvæm­lega í Tysyna. Þetta er ekki í þínum stíl, þið eruð sið­menntað fólk, þið fantasíu-rit­höf­undar. Þetta er okkar aðferð. Um leið og þau segja „Rússar her­setja Úkraínu“, henda þeim í ánna í ofsa­fengna og hrotta­lega strauma.“

Lukyanenko svar­aði með því að benda á refsi­að­ferðir forn Rússa „Hefð var fyrir því að refsa fólki með trjá­greinum.“ Greip Krasov­sky þá orðið: „Troðum þeim bara inn í greni­hús og brennum það.“

Eftir að þátt­ur­inn fór í loftið skrif­aði Krasov­sky á Telegram að hann hefði átt „ynd­is­lega beina útsend­ingu með Sergey Lukyanenko,“ en stuttu seinna eyddi hann færsl­unni.

Eftir að Simonyan gaf sína yfir­lýs­ingu út bað Kasovsky hana afsök­unar sem og öllum þeim sem „misstu það“ og álitu orð hans „brjáluð, óhugs­andi og hrika­leg.“ Bætti hann við: „Hlustið, ég skamm­ast mín mjög á því að hafa ein­hverra hluta vegna ekki séð þessi mörk. Um börn. En þetta gerð­ist svona; Þú ert í miðri útsend­ingu og þú missir þig aðeins. Og þú getur ekki stoppað. Ég vona að þið fyr­ir­gefið mér.“

Fjallað var um málið á hinum útlæga rúss­neska miðli Meduza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“