„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Karll III snuðar Andrés bróður sinn – Vill ekki fá hann sem ráðgjafa hirðarinnar

Karll III snuðar Andrés bróður sinn – Vill ekki fá hann sem ráðgjafa hirðarinnar
Kalli kóngur

Karl III Breta­kon­ungur snuð­aði bróður sinn, Andrés prins með því að bæta hinum systk­inum sínum í ráð­gjafa­hóp sinn en sleppa Andrési.

Karl III.

Tveir af þremur er ekki slæmt

Hinn breski frétta­mið­ill Mirror segir að Andrés prins hafi færst neðar í hinni kon­ung­legu gogg­un­ar­röð þegar bróðir hans, Karl III réði systk­ini þeirra, Önnu prinsessu og Eðvarð Prins, jarl af Wessex sem ráð­gjafa við hirð sína. Það þýðir að þau gætu þurft að leysa kon­ung­inn af við skyldu­störf. Og með þessu úti­lok­aði Karl III Andrés bróður sinn frá slíkum skyldum.

Sagðist hinn nýji kon­ungur vera „afar hlynntur því“ ef ráð­gjöf­unum yrði fjölgað til að koma systk­inum sínum að borð­inu. Þá ku Harrý prins aukreitis halda sæti sínu sem ráð­gjafi, þrátt fyrir fregnir af mögu­legri and­stæðu þess.

Í yfir­lýs­ingu Karls III skrif­aði kon­ung­ur­inn: „Til að tryggja áfram­hald­andi skil­virkni opin­berra starfa, þegar ég er upp­tek­inn, svo sem á meðan ég er að gegna opin­berum störfum erlendis, stað­festi ég að ég væri afar hlynntur því ef þingið teldi það henta þeim ef fjöldi fólks sem gæti verið kall­aður til starfa sem ráð­gjafar rík­is­ins, sam­kvæmt skil­málum Regency Acts 1937 og 1963, sé fjölgað þannig að bæta megi systur minni og bróður, kon­ung­legu prinsess­una og jarl­inn af Wessex og Forfar. Bæði hafa þau áður tekið að sér þetta hlut­verk.“

Anna prinsessa

Eftir að yfir­lýs­ing Karls III var lesin upp á þing­inu kváðu við „Heyr, heyr“ frá bekkjum sal­ar­ins Talið er að breyt­ingin verði gengin í garð fyrir árs­lok en búist er við að kon­ung­ur­inn og drottn­ing hans muni fara utan til skyldu­starfa á nýju ári, sem gæti gerst á sama tíma og prins­inn og prinsessan af Wales verða utan­lands.

Þetta útspil Karls III er talið grafa undan vonir Andrésar prins um að geta aftur snúið aftur í sviðs­ljósið eftir að hafa verið í skugg­anum und­an­farin ár eftir ásak­anir um barn­a­níð. Andrés hafði áður þjónað sem ráð­gjafi rík­is­ins ásamt Bertu Dís prinsessu, Vil­hjálmi prins og Harrý prins.

Andrés prins lét af kon­ung­legum skyldum sínum og var stríp­aður af hern­að­ar­teng­ingum sem og vernd­ara­stöðu sinni, af móður sinni, Elísa­betu Eng­lands­drottn­inu í kjöl­far kyn­lífs­hneykslis fyrr á árinu.

Hinn smánaði prins

Var prins­ins þar sak­aður um barn­a­níð en sú sem sak­aði hann var Virginia Giuffre sem sagði Andrés hafa brotið kyn­ferð­is­lega á henni þegar hún var aðeins 17 ára í gegnum hinn alræmda barn­a­níð­ing, Jeffrey Epstein sem framið var sjálfs­morð á í fang­elsi árið 2019. Prinsinn og Epstein voru nánir vinir um ára­bil. Neitaði Andrés öllum saka­giftum en skrif­aði að lokum undir sátt­ar­samn­ing án þess að játa sekt sína.

Andrés, prins og barn­a­níð­ingur

Síðan þá hefur Andrés sveimað í kringum kon­ungs­fjöl­skyld­una og komið stutt­lega fram opin­ber­lega, til dæmis er hann gekk með móður sinni í minn­ing­ar­at­höfn um föður hans, Filippus prins.

Hinn smán­aði her­togi er sagðu hafa sagt að hann hafi „alltaf trúað því að það sé leið fyrir hann til að snúa aftur“ til sinna fyrra starfa og talið sig enn geta gert kon­ungs­fjöl­skyld­unni gagn þrátt fyrir tengsl hans við hinn dæmda barn­a­níð­ing Epstein og þær ásak­anir um kyn­ferð­is­brot gegn honum.

En á morg­un­fundi rétt fyrir and­lát drottn­ing­ar­innar er Karl III sagður hafa komið Andrési leið­in­lega á óvart með því að til­kynna honum að prins­inn myndi aldrei aftur snúa til opin­berra starfa.

Þegar Karl III tók við krún­unni voru þrír af fimm ráð­gjöfum hans óstarf­andi, þar af einn vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot. Af þeim sökum er talið að kon­ung­ur­inn hygg­ist breyta lög­unum á þann veg að aðeins vinn­andi með­limir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar geti verið ráð­gjafar hirð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Konungsfjölskyldan

Berta Dís prinsessa búin að fæða: „Hún er pínulítil og algjörlega fullkomin“
Menning

Berta Dís prinsessa búin að fæða: „Hún er pínu­lítil og algjör­lega full­komin“

Tilkynnt hefur verið að Berta Dís (e. Beatrice) prinsessa hafi fætt sitt annað barn, þriðja barn eig­in­mans síns, Edoardo Mapelli Mozzi en saman ala þau upp systk­inin Sönnu og Úlf. Barna­barn Elísa­betar drottn­ingar, 36 ára, og eig­in­maður hennar, 40, tóku á móti stúlku sem hlaut nafnið Aþena en hún fædd­ist nokkrum vikum fyrir tím­ann. Nýburinn er litla systir þriggja ára...
Berta Dís prinsessa breytir jólaplönum vegna óléttunnar – Andrés verður einn með sinni fyrrverandi
Heimur

Berta Dís prinsessa breytir jóla­plönum vegna ólétt­unnar – Andrés verður einn með sinni fyrr­ver­andi

Berta Dís, prinsessa af Jórvík mun fagna jól­unum með kon­ungs­fjöl­skyld­unni í Sandring­ham eftir að hafa breytt plönum sínum skyndi­lega. Berta Dís og eig­in­maður hennar Edoardo Mapelli Mozzi eiga von á sínu öðru barni sem er vænt­an­legt snemma næsta vor og ætl­uðu upp­haf­lega að eyða hátíð­inni erlendis með tengda­fjöl­skyldu prinsessunnar. En hin 36 ára gamla prinsessa hefur nýlega verið ráð­lagt af...
Glæný dagrétting um heilsufar Karls III: „Meðferðin heldur áfram á nýju ári“
HeimurKonungsfjölskyldan

Glæný dag­rétt­ing um heilsu­far Karls III: „Með­ferðin heldur áfram á nýju ári“

Krabba­meins­með­ferð Karls III kon­ungs mun halda áfram á nýju ári og hefur verið „á jákvæðri leið“, hafa heim­ildir hall­ar­innar leitt í ljós. Heim­ildir sögðu eft­ir­far­andi í sam­tali við Sky News: „Meðferð hans hefur verið að þró­ast í jákvæða átt og mun með­ferð­ar­lotan halda áfram á nýju ári.“ Buckingham höll til­kynnti að Karl hefði greinst með krabba­mein í febr­úar á þessu...
Ung vinnukona í Buckingham-höll handtekin fyrir óspektir – Braut glös og reyndi að kýla barþjón
Heimur

Ung vinnu­kona í Buckingham-höll hand­tekin fyrir óspektir – Braut glös og reyndi að kýla bar­þjón

Rannsókn mun fara fram eftir fregnir af því að starfs­maður Buckingham-hallar hafi verið hand­tek­inn eftir jóla­boð, bár­ust fjöl­miðlum, að sögn tals­manns hall­ar­innar. Lög­reglan var kölluð að All Bar One í Victoria-stræti í mið­borg Lundúna, eftir klukkan 21 á þriðju­dag, sam­kvæmt fréttum. Hermt er að starfs­maður, sem tal­inn er vera vinnu­kona, hafi reynt að gefa starfs­manni bars­ins hnefa­högg og brotið glös....
Harrý svarar sögusögnum um skilnað: „Fólkið sem ég vorkenni mest eru tröllin“
Heimur

Harrý svarar sögu­sögnum um skilnað: „Fólkið sem ég vor­kenni mest eru tröllin“

Harrý Breta­prins ræddi vanga­veltur um hjóna­bandsvand­ræði hans og eig­in­konu sinnar til sex ára, Meghan Markle, her­toga­ynju af Sussex, sem hann á son­inn Boga og dótt­ur­ina Lísabetu með. Her­tog­inn af Sussex lok­aði á allar vanga­veltur um að hann og eig­in­kona hans til sex ára, Meghan Markle, væru að fara að skilja vegna þess að hjónin mættu í nokkra opin­bera við­burði í...
Vilhjálmur og Katrín minnast 17 ára ljósmyndara: „Hún flaug hátt þar til yfir lauk“
Heimur

Vil­hjálmur og Katrín minn­ast 17 ára ljós­mynd­ara: „Hún flaug hátt þar til yfir lauk“

Prinsinn og prinsessan af Wales minn­ast hinnar „hug­rökku og auð­mjúku“ Liz Hatton, 17 ára ljós­mynd­ara sem lést fyrir skömmu. Hinum hæfi­leik­a­ríka ljós­mynd­ara var boðið til Windsor-kast­ala sem var hluti af óska­lista Hatton, er hún stóð frammi fyrir sjald­gæfri teg­und krabba­meins. Eftir að hafa myndað Vilhjálm við störf, var Liz leidd inn í hlið­ar­her­bergi fyrir óvæntan fund með prinsess­unni af Wales....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“