„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Starfsemi Villikatta í uppnámi á Akranesi: „Því staðan er mjög slæm“ – Söfnun

Starfsemi Villikatta í uppnámi á Akranesi: „Því staðan er mjög slæm“ – Söfnun
Kisa Mynd: Villikettir.is

Hálfgert neyð­ar­á­stand ríkir á Akranesi í mál­efnum villikatta í bænum. Vest­ur­lands­deild Villikatta sendi nýverið frá sér til­kynn­ingu.

Fram kemur í Skaga­fréttum að félagið Villi­kettir hafi verið stofnað árið 2014 en til­gangur félags­ins er að standa vörð um dýra­vernd fyrir villi­ketti á Íslandi. Á Akranesi er fjöldi sjálf­boða­liða í félag­inu sem lætur sér vel­ferð katt­anna sig miklu varða en fram kemur í til­kynn­ingu frá hópnum að mikið verk sé að vinna á svæð­inu.

Félagið hefur haft til umráða skrif­stofugám frá Stál­smiðj­unni en nú er ástandið þannig að það rými er raf­magns­laust og þess vegna ónot­hæft. Fjöldi katta á verð­gangi á Akranesi er tals­verður en öll fóst­ur­heim­ili eru full. Starf félags­ins er því í upp­námi án hús­næðis. Frá árinu 2018 hafa sjálf­boða­liðar komið að 57 verk­efnum  þar sem villi­kettir hafa fengið aðstoð frá félag­inu. Á öllu Vest­ur­landi hafa verk­efnin verið um 110 frá byrjun.

Þá kemur fram í til­kynn­ing­unni að félagið hafi fundað með bæj­ar­yf­ir­völdum á Akranesi um lausn til fram­tíða á mál­efnum villikatta en engin nið­ur­staða hafi enn feng­ist í þeim við­ræðum.

„Allir kettir sem koma til okkar fara til dýra­læknis og fá aðhlynn­ingu. Án hús­næðis þá reyn­ist sú vinna tölu­vert erf­ið­ari – það virð­ist vera mikið magn af kisum á ver­gang sem þurfa aðstoð. Félagið hefur fengið góðan stuðn­ing frá íbúum á Akranesi – það ber að þakka. Félagið telur að Akra­nes­kaup­staður gæti komið til móts við þetta verk­efni – því staðan er mjög slæm.“

Félagið bendir á að hægt er að styðja við rekstur þess með því að versla á Jóla­mark­aði sem verður við Akratorg í des­em­ber en einnig er hægt að leggja beint inn á reikn­ing félags­ins:

Reikn­ingur Villikatta Vest­ur­lands
0133 – 26 – 005536
710314 – 1790

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Landið

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Landið

Karlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Landið

Helga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“

Landið

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir