„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðmóðir Vilhjálms prins sagði af sér eftir rasísk ummæli: „Nei en hvaðan kemurðu raunverulega?“

Guðmóðir Vilhjálms prins sagði af sér eftir rasísk ummæli: „Nei en hvaðan kemurðu raunverulega?“
Drottn­ingin og lafðin rasíska

Buckingham-höll stað­festi í dag að Lafði Súsanna Hussey (e. Susan) hafi sagt upp störfum við hirð Karls III Bret­lands­kon­ungs, eftir að hafa orðið upp­vís af „mjög sorg­legum ummælum“ í sam­tali við for­mann góða­gerða­sam­tak­anna Sistah Space, Ngozi Fulani við kon­ung­lega athöfn í vik­unni.

Hin breska Ngozi Fulani

Lafði Súsanna hefur beðist afsök­unar að sögn BBC og sagt upp störfum eftir að hafa spurt breskan for­mann góð­gerða­sam­taka, hvaðan hún væri „raun­veru­lega“ en hún er dökk á hör­und.

Ngozi Fulani, stofn­andi góð­gerða­sam­tak­anna Sistah Space, var spurð ítrekað um upp­runa sinn á góð­gerð­ar­við­burði í höll­inni á þriðju­dag­inn. Sagðist hún hafa verið í „algjöru sjokki“ er hún hlust­aði á ummæli guð­móður Vil­hjálms krón­prins.

Höllin hefur sagt ummælin „óásætt­an­leg og afar sorg­leg.“

Tals­maður Vil­hjálms krón­prins sagði að „ras­ismi á ekki heima í sam­fé­lagi okkar. Athuga­semd­irnar voru óásætt­an­leg og það er rétt ákvörðun hjá við­kom­andi að stíga strax til hliðar.“

Lafði Hussey, sem er 83 ára, var náinn trún­að­ar­maður Elísa­betar Bret­lands­drottn­ingar heit­innar og fylgdi henni í jarð­ar­för Fil­ippusar eig­in­manns drottn­ing­ar­innar í fyrra.

Samtalið

Fulani sagði í við­tali við Independent, að vanda­málið væri „stærra en einn ein­stak­lingur. Þetta er stofn­ana ras­ismi. Ég var í sjokki eftir að þetta gerð­ist og allir sem þekkja mig vita að ég læt ekki bjóða mér neitt kjaftæði.“

Hér fyrir neðan má sjá sam­talið afdríf­a­ríka, eftir minni Fulani:

Lafði SH: „Hvaðan ertu?“
Fulani: „Sistah Space.“
Lafði SH: „Nei, hvaðan kem­urðu?“
Fulani: „Við erum með bæki­stöðvar í Hackney.“
Lafði SH: „Nei, hvaða part Afríku kemur þú frá?“
Fulani: „Ég veit það ekki, þau skildu ekki eftir nein gögn.“
Lafði SH: „Jæja, þú hlýtur að vita hvaðan þú ert, ég dvaldi um tíma í Frakk­landi. Hvaðan ertu?“
Fulani: „Héðan, frá Bret­landi.“
Lafði SH: „Nei, en af hvaða þjóð­erni ertu?“
Fulani: „Ég er fædd hér og er bresk.“
Lafði SH: „Nei en hvaðan kem­urðu raun­veru­lega, hvaðan kemur þitt fólk?“
Fulani: „Mitt fólk“, lafði, hvað er þetta?“
Lafði SH: „Ó, ég sé að það verður erfitt fyrir mig að draga úr þér hvaðan þú ert. Hvenær komstu fyrst hingað?“
Fulani: „Lafði! Ég er breskur rík­is­borg­ari, for­eldrar mínir komu hingað á sjötta ára­tugnum þegar …“
Lafði SH: „Ah, ég vissi að við næðum þessu á end­anum, þú ert kar­ab­ísk!“
Fulani: „Nei lafði, ég er af afrískum rótum, kar­ab­ískum upp­runa og bresku þjóð­erni.“
Lafði SH: „Ó, þannig að þú ert frá …“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

konungsfólk

Marius Høiby handtekinn grunaður um nauðgun: Réttargæslumaður Ingunnar verjandi meints fórnarlambs
Heimurkonungsfólk

Marius Høiby hand­tek­inn grun­aður um nauðgun: Rétt­ar­gæslu­maður Ingunnar verj­andi meints fórn­ar­lambs

Lög­reglan í Osló hefur nú víkkað út rann­sókn sína á Marius Borg Høiby og hand­tók hann í gær vegna meintrar nauðg­unar. Samkvæmt Netta­visen átti nauðg­unin að hafa átt sér stað í vor á þessu ári. Høiby er stjúp­sonur krón­prins Noregs. Lögmaður meints fórn­ar­lambs er Hege Salomon, en hún er einnig rétt­ar­gæslu­maður Ingunnar Björns­dóttur, dós­ents í lyfja­fræði við Osló­ar­há­skóla, sem stungin...
Ótrúlegt augnablik Ólínu með Elísabetu: „Læddist dauðstressuð til að smeygja mér úr sokkabuxunum“
Menning

Ótrúlegt augna­blik Ólínu með Elísa­betu: „Læddist dauð­stressuð til að smeygja mér úr sokka­bux­unum“

Ólína Þor­varð­ar­dóttir, þjóð­fræð­ingur og rit­höf­undur, átti ógleym­an­legt augna­blik með Elísa­betu II Eng­lands­drottn­ingu heit­inni þegar hún kom hingað í opin­bera heim­sókn árið 1990. Henni finnst drottn­ingin ein­fald­lega hafa verið merkasti þjóð­höfð­ingi Evrópu, fyrr og síðar og er glöð yfir því að hafa átt þetta ógleym­an­lega atvik með drottn­ing­unni. Frá upp­lifun sinni segir Ólína á Facebook og svo hljóðar frá­sögn hennar: „Elísabet...
Segir Andrew látast vera samvinnuþýður
Heimurkonungsfólk

Segir Andrew lát­ast vera sam­vinnu­þýður

Sak­sókn­ari í máli kyn­ferð­is­af­brota­manns­ins og auð­kýf­ings­ins Jeffrey Epstein segir Andrew Breta­prins lát­ast vera sam­vinnu­þýður þegar kemur að rann­sókn máls­ins þegar hann í raun hefur ekki veitt rann­sak­endum neinar upp­lýs­ingar. Banda­ríski sak­sókn­ar­inn Geoffrey Berman segir Andrew ítrekað hafa hafnað beiðni hans um við­tal vegna rann­sóknar á máli Epstein. Lögmenn Andrews sendu frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem þeir hafna því...
Heimurkonungsfólk

Sögu­legir skór Elísa­betar í nýrri útgáfu

Glæsi­legir skór sem Elísabet Bret­lands­drottn­ing klædd­ist þegar hún tók við bresku krún­unni þann 2. júní 1953 hafa nú verið end­ur­hann­aðir og settir á markað á nýjan leik. Gylltu skórnir sem Elísabet klædd­ist við krýn­ing­ar­at­höfn­ina voru úr smiðju franska skó­hönn­uð­ar­ins Roger Henri Vivier (1907 – 1998). Hann sagði skóna eiga að vera „skart­gripi fyrir fæt­urna“. Núna, 67 árum síðar, eru skórnir...
Hræddur um að hundar muni finna fyrir aðskilnaðarkvíða þegar eigendurnir snúa aftur til vinnu
Innlent

Hræddur um að hundar muni finna fyrir aðskiln­að­ar­kvíða þegar eig­end­urnir snúa aftur til vinnu

Vegna útbreiðslu COVID-19 hefur fólki víða um heim verið gert að halda sig heima eftir bestu getu. Margt fólk vinnur heiman frá sér og er því heima nán­ast öllum stundum. Roger Mugford, hunda­þjálf­ari Elísa­betar Bret­lands­drottn­ingar, segir flesta hunda vera ham­ingju­sama með þessa miklu heima­veru eig­enda sinna en hann telur heima­ver­una geta haft þær afleið­ingar að margir hundar muni finna fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“