„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman.

„Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og svo margt hægt að læra af þeim, bæði um líf þeirra, lífið á jörð­inni almennt og milli lín­anna líka um líf okkar mann­anna,“ segir Illugi í sam­tali við Mannlíf um nýju dýra­bók þeirra feðgina. Á bók­sölu­vef er henni lýst með eft­ir­far­andi hætti:

„Þau eru ægi­leg, hlægi­leg, furðu­leg og for­vitni­leg! Bók stút­full af myndum, fróð­leik og skemmti­legum sögum af dýr­unum. Bráð­skemmti­leg, ill­víg og ófrýni­leg. Ban­eitruð, krútt­leg, örsmá og risa­stór. Útdauð, ómissandi, ótrú­leg og spreng­hlægi­leg!“

Aðspurður segir Illugi að það hafi verið skemmti­legt verk­efni með Veru að skrifa þessa fjör­ugu bók um dýrin. 

Vera og Illugi eru dýrkuð og dáð.

„Í bók­inni er sagt frá skrýtnum dýrum, hættu­legum dýrum, dýrum í útrým­ing­ar­hættu og „þjóð­ar­dýrum“ – en það eru dýrin sem hinar ýmsu þjóðir sam­sama sig við. Svo eru í bók­inni flottar myndir sem lýsa vel þessum undra­dýrum öllum. Þetta er ein­fald­lega bók sem ég get sann­ar­lega mælt með. Þú getur til dæmis ekki ímyndað hvað leti­dýr eru furðu­leg. Þau hanga þarna í trjánum og hreyfa sig næstum ekk­ert og það virkar nú ekki margt spenn­andi við þau. En það er öðru nær. Letidýr eru ótrú­lega spenn­andi skepnur og það var stór­kost­lega gaman að rann­saka líf þeirra og háttu. Ég vona og trúi að okkur hafi tek­ist að koma því og öðrum dásemdum dýr­anna til skila,“ segir Illugi.

Spurningakóngur Íslands

Til­við­bótar við dýra­bók­ina þeirra Illuga og Veru er hann líka með tvær fót­bolta­bækur í versl­unum fyrir jólin.

„Ein er um hetj­urnar á HM og er auð­vitað i fullu gildi þó HM sé liðið. Hin er um Erling Haaland, hina upp­vax­andi stjörnu sem lík­lega verður einn sá allra besti í heimi á næst­unni, ef hann er ekki þegar orð­inn það. Ferill hans er rak­inn og svo eru myndir af þessum ótrú­lega kappa,“ segir Illugi.

Rit­höf­und­ur­inn skemmti­legi er þekktur fyrir spurn­inga­gerð og ekki úr vegi að tala um Illuga sem hálf­gerðan spurn­inga­kon­ung lands­ins. Hann samdi til dæmis til spurnn­ingar og þrautir í tvö skemmti­leg spil fyrir þessi jólin, Gettu betur og Hræri­graut.

„Nú, svo tók ég að mér að semja spurn­ingar í tvö borð­spil sem koma út. Annað er ný útgáfa af Gettu betur spil­inu sem kom fyrst út fyrir 20 árum. Þetta er klass­ískt spurn­inga­spil með hraða­spurn­ingum, bjöllu­spurn­ingum, vís­bend­inga­spurn­ingum og svo fram­vegis, hæfi­leg blanda af léttum spurn­ingum, miðl­ungs­léttum og fáeinum þungum!,“ segir Illugi og bætir við:

Ilugi bjó til spurn­ingar og þrautir í tvö spil um þessi jól.

„Hræri­grautur er aftur á móti leikur að orðum fyrir alla þá sem hafa gaman af íslenskri tungu en raunar líka þá sem hafa jafn­vel ekk­ert gaman af íslensk­unni en elska skemmti­lega og fjöruga keppni. Kepp­endur glíma meðal ann­ars við nýorða­smíði, stafarugl, hengi­mann og tabú. Spilið er í raun hræri­grautur af öllum skemmti­leg­ustu orða­leikj­unum sem við þekkjum, spilið sem fær fólk til að tala, bulla og hlæja.“

Það er aug­ljóst að það er því mikið fjör hjá Illuga þessi jólin, með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu. En skyldi hann sjálfur vera mikið jóla­barn?

„Mér finnst gaman á jólum, já. Fyllist kannski lengur barns­legu jóla­skapi, en finnst mik­il­vægt að fólki líði vel og það skemmti sér þessa daga,“ segir Illugi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Hildigunnur, fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum: „Það er ruglað að vera myndlistarmaður
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Hildigunnur, full­trúi Íslands á Fen­eyj­artví­ær­ingnum: „Það er ruglað að vera mynd­list­ar­maður

„Ég er hrærð og stolt yfir að hafa verið valin og hlakka raunar ótrú­lega til þessa ferða­lags,“ segir Hildigunnur Birg­is­dóttir mynd­list­ar­maður sem á næsta ári verður full­trúi Íslands á Fen­eyj­artví­ær­ingnum. Á hvað ætlar hún að leggja áherslu varð­andi verkin sem verða sett þar upp? „Ég mun halda áfram að vinna að verkum mínum sem hafa í gegnum feril minn hverfst...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu