„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þekktum rússneskum söngvara slaufað: „Villimennskan! Ljótleikinn! Svikin!“

Þekktum rússneskum söngvara slaufað: „Villimennskan! Ljótleikinn! Svikin!“

Þekktur rúss­neskur söngv­ari á það á hættu að verða slaufað vegna mynd­skeiðs sem birt­ist á sam­fé­lags­miðlum. Þar virð­ist hann styðja mál­stað Úkraínu í stríð­inu við Rússland.

Valery Meladze er gríð­ar­lega vin­sæll í Rúss­landi þar sem hann býr en hann er hefur þann heiður að vera „verð­ugur lista­maður rúss­neska rík­is­ins.“ Fram kemur á hinum rúss­neska vef­miðli Medusa að mynd­skeið hafi birst á sam­fé­lags­miðl­unum um helg­ina sem sýndi Meladze bregð­ast við orð­unum „dýrð sé Úkraínu“ þar sem hann skemmti á gamlárs­kvöldspartýi í Dubai. Í mynd­skeið­inu sést Meladze halda ræðu en mað­ur­inn á bak­við síma­upp­tök­una kallar til hans „dýrð sé Úkraínu (Úkr. Slava Ukraine)“. Söngv­ar­inn dró þá hljóð­nem­ann frá and­liti sínu og virð­ist mynda orðin „dýrð sé hetj­unum!“ með vörum sínum. Fagnar þá mynda­véla­mað­ur­inn en Meladze biður hann þá að róa sig og segir svo „við erum ópóli­tísk hér í dag.“

Stuttu eftir inn­rás­ina í Úkraínu for­dæmdi Meladze fram­ferði Rúss­lands og var fjöldi áætl­aðra tón­leika hans innan Rúss­lands aflýst í kjöl­farið.

Ráðamenn í Rúss­landi voru fljótir að bregð­ast við nýja mynd­skeið­inu. Yelena Afana­syeva, þing­kona frá Orenburg-hér­aði Rúss­lands skrif­aði færslu á sam­fé­lags­miðli þar sem hún lét eft­ir­far­andi orð falla:

„Villi­mennskan! Ljót­leik­inn! Svikin! Vegna stuðn­ing hans við Band­er­ít­anna ætti Meladze að missa rík­is­borg­ara­rétt sinn. Á meðan þegnar okkar deyja fyrir rúss­neskan almenn­ing með því að verja rúss­nesk svæði, leyfir sumt fólk sér að gefa nas­ista­kveðjur með úkra­ínskum nas­istum. Þetta er óásætt­an­legt.“

Formaður Sann­gjarnt Rússland-flokks­ins, Sergey Mironov sagði:

„Í veislu utan land­stein­anna lýsti söngv­ar­inn Valery Meladze yfir stuðn­ingi við slag­orð úkra­ínskra þjóð­ern­is­sinna. Jájá, hann afsak­aði sig eftir á. En að vera í veislu í útlöndum og taka þátt í að söngla glæp­sam­leg slag­orð – er það eitt­hvað ópóli­tískt?“

Hegðun hans er víta­verð. Sannur rúss­neskur lista­maður getur ekki og ætti ekki að hegða sér svona. Hann er að reyna að fá bæði, halda kök­unni og borða hana líka. Það er kom­inn tími til að velja hlið. Það má reyndar sjá á hegðun hans, að þessi „lista­maður“ er nú þegar búinn að velja sér hlið. Ég sting upp á að Meladze verður sviptur öllum verð­launum sínum. Það er sann­gjarnt og rétt að gera.

Þá tjáði sig einnig Yelena Drapeko, þing­maður frá St. Pét­urs­borg:

„Ég styð það að lýsa honum sem „erlendum njó­sn­ara.“ En það væri betra fyrir hann að fara úr landi og vera bann­aður í gjörvöllu Rúss­landi.“

Samkvæmt Telegram-rásinni Mash, hafa sam­tökin Her verj­enda föð­ur­lands­ins (e. Army of Father­land Def­end­ers), til­kynnt Meladze til rann­sókn­ar­nefndar Rúss­lands og til rík­is­sak­sókn­ara og krefj­ast þess að söngv­ar­inn fái ekki að snúa aftur til Rúss­lands. Samtökin vilja einnig að alrík­is­yf­ir­völd lands­ins rann­saki hvort Meladze hafi hlotið rúss­neskan rík­is­borg­ara­rétt á lög­legan máta en söngv­ar­inn er fæddur í Georgíu á Sovíet-tím­anum.

Meladze brást við við­brögð­unum í gær á Telegram:

„Fólk, ég vil vera viss um að þið heyrið í mér og skiljið mín orð. Eins og margir aðrir hef ég burð­ast með þunga þanka og sorg, síð­ustu 10 mán­uði. Það vill svo til að tvær þjóðir sem ég elska inni­lega, eiga í úti­stöðum þar sem fólk er að deyja. ÉG GET EKKI OG VIL EKKI HATA NOKKURN OG ÉG ER EKKI AÐ REYNA AÐ KOMA TIL MÓTS VIÐ NEINN. Ég vil bara að þessar deilur endi og að sam­komu­lag náist milli þess­ara ríkja. Og svo það megi ger­ast, er ég til­bú­inn að gefa allt sem ég get.“

Hér fyrir neðan má hlusta á stærsta smell Meladze:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“