„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Síberískur sjaman í áframhaldandi nauðungarvistun á geðdeild – Ætlaði að hrekja Pútín frá völdum

Síberískur sjaman í áframhaldandi nauðungarvistun á geðdeild – Ætlaði að hrekja Pútín frá völdum

Dómstóll í Uss­uri­isk í Rúss­landi, hefur nú fram­lengt nauð­ung­ar­vistun sjam­ans frá Yakut, á geð­deild en hann var hand­tek­inn og sendur í slíka vistun árið 2021.

Sjaman­inn eða töfra­lækn­ir­inn Aleksandr Gabyshev, lagði af stað gang­andi til Moskvu-borgar frá Síberíu árið 2019 en til­gang­ur­inn með henni var að hrekja Vladimír Pútín frá Kremlin, með þessum mót­mælum. Vakti ganga hans mikla athygli í Rúss­landi en lög­reglan stöðv­aði för hans reglu­lega þar til honum var komið fyrir í nauð­ung­ar­vistun á geð­deild árið 2021. Lögmaður hans, Aleksei Pryan­is­hnikov sagði fjöl­miðlum frá því í gær að rétt­ur­inn hafi ákveðið að fram­lengja nauð­ung­ar­vist­un­ina fram að miðjum júní. Sagði hann einnig að rétt­ur­inn hafi neitað beiðni verj­anda sjam­ans um að hann yrðri skoð­aður af geð­læknum á Serbsky lækna­stof­unni í Moskvu.

„Við teljum að læknar á geð­lækn­inga­stof­unni í Uss­uri­isk séu að kom­ast að óhlut­bundnum nið­ur­stöðum um félags­legan ósam­rým­an­leika Gabys­hevs, þegar þeir rétt­læta nauð­syn þess að fram­lengja með­ferð hans. Á sama tíma eru þeir sam­mála um að hann hafi ekki látið í ljós neina árás­ar­girni, hvorki í garð sjálfs sín né ann­arra,“ sagði lög­mað­ur­inn.

Síðast var með­ferð­inni fram­lengt í októ­ber.

Gabyshev var stöðv­aður trekk í trekk af yfir­völdum árið 2019 er hann hóf göngu sína frá Síber­íska heima­svæði sínu í lýð­veld­inu Sakha, sem er stærsta umdæmi Rúss­lands. Hóf hann göng­una með hinn opin­bera til­gang að hrekja Pútín frá völdum. Árið 2021 var hann svo sendur í nauð­ug­ar­vistun eftir að dóms­stóll hafði dæmt hann „and­lega óhæfan“.

Við yfir­heyrslu var hann sak­aður um að hafa framið „ofbeld­is­brot gegn lög­reglu­manni“, er hann var fjar­lægður gegn vilja sínum og sendur í geð­rann­sókn, í jan­úar 2021. Lög­fræð­ingar og stuðn­ings­menn Gabys­hevs mót­mæltu úrskurð­inum og segja að kyrr­setn­ing hans sé til­raun til að þagga niður andóf.

Mann­rétt­inda­sam­tökin The Memorial Human Rights Center í Rúss­landi segja Gabyshev vera póli­tískan fanga og Amnesty International hefur hafið átak þar sem kallað er eftir því að honum verði sleppt.

Sjamanar hafa þjónað sam­fé­lögum í Síberu um aldri, sem heil­arar og spá­sagn­ar­menn. Á Sovíet-tím­anum voru dul­spek­ingar bældir niður en í nokkrum eina­gruðum svæðum Síberu hafa þeir verið að ná aftur vopnum sínum.

Það var Radio Free Europe sem sagði frá þessu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Slóvakar minnast morðsins á rannsóknarblaðamanninum Ján Kuciak: „Slóvakía er Evrópa“
HeimurMótmæli

Slóvakar minn­ast morðs­ins á rann­sókn­ar­blaða­mann­inum Ján Kuciak: „Slóvakía er Evrópa“

Mótmæli sem kölluð eru „Slóvakía er Evrópa“ fara fram á morgun, 21. febr­úar til að minn­ast þess að sjö ár eru liðin frá morð­inu á Ján Kuciak og Martinu Kušnírová. Friður til Úkraínu sam­tökin mun vinna með félag­inu For a Decent Slovakia við að skipu­leggja „Slóvakía er Evrópa“ mót­mæla­fund­inn sem áætl­aður er á morgun 21. febr­úar í Brat­islava til að...
Aðalmeðferð máls mótmælenda gegn íslenska ríkinu hefst á föstudag – Hvetja fólk til að fjölmenna
InnlentMótmæli

Aðal­með­ferð máls mót­mæl­enda gegn íslenska rík­inu hefst á föstu­dag – Hvetja fólk til að fjöl­menna

No Borders Iceland hvetur fólk til að fjöl­menna í dóm­sal við aðal­með­ferð máls mót­mæl­enda gegn íslenska rík­inu gegn rík­inu vegna til­efn­is­lausra árása og ofbeldis lög­reglu. Samtökin No Borders Iceland biðlar til fólks að fjöl­menna í dóm­sal næst­kom­andi föstu­dag en þá hefst aðal­með­ferð máls fólks sem mót­mæltu þjóð­ar­morði Ísraela á Palest­ínu­mönnum, vegna til­hæfu­lausra árása og ofbeldis lög­reglu en lög­reglan þótti að...
Dansari truflaði atriði Kendrick Lamar með fána Palestínu og Súdan – MYNDSKEIÐ
HeimurMótmæli

Dansari trufl­aði atriði Kendrick Lamar með fána Palest­ínu og Súdan – MYNDSKEIÐ

Aðgerð­ar­sinni reyndi að stela sen­unni þegar rapp­ar­inn Kendrick Lamar tróð upp í hálf­leik Ofur­skálar­innar sem haldin var í New Orleans í Louisiana-fylki Banda­ríkj­anna. Maður, sem ekki hefur verið nafn­greindur hljóp inn á svæðið þar sem dans­arar sem fylgdu Lamar í atriði hans, og veif­aði fána Palest­ínu og Súdan og hljóp fram og til baka, þar til hann var tækl­aður af...
Fimm samtök boða mótmæli við bandaríska sendiráðið: „Ofbeldið læðist að okkur eins og þoka“
InnlentMótmæli

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið: „Ofbeldið læð­ist að okkur eins og þoka“

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið. Á morgun, laug­ar­dag­inn 8. febr­úar er boðað til mót­mæla við banda­ríska sendi­ráðið á Engja­teigi 7, Reykja­vík. Fimm sam­tök standa á bak­við mót­mælin sem hefj­ast klukkan 14:00 en þar á meðal eru sam­tökin No Borders Iceland og Félagið Ísland-Palest­ína. Í lýs­ingu á við­burð­inum á Facebook segir að ótal mann­rétt­indi hafi nú þegar verið framin...
Fjölmargir mættu á kröfufund til stuðnings Palestínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“
Innlent

Fjöl­margir mættu á kröfufund til stuðn­ings Palest­ínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“

Um þús­und manns safn­að­ist saman við Hlemm í dag og gengu sam­stöðu­göngu á Aust­ur­völl til stuðn­ings Palest­ínu. Fjöl­margir mættu á kröfufund­inn.Mynd: Björgvin Gunn­ars­son Félagið Ísland-Palest­ína boð­aði til sam­stöðu­göngu frá Hlemmi að Aust­ur­velli klukkan 14:00 í dag en um þús­und manns mætti en á Aust­ur­velli var síðan hald­inn kröfufundur. Á fund­inum var þess kraf­ist að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra, standi við...
Kröfufundur vegna þjóðarmorðsins í Palestínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin loforð!“
Innlent

Kröfufundur vegna þjóð­ar­morðs­ins í Palest­ínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin lof­orð!“

Félagið Ísland-Palest­ína boðar sam­stöðu­göngu með palest­ínsku þjóð­inni í dag klukkan 14:00. Gengið verður frá Hlemmi að Aust­ur­velli í sam­stöðu með palest­ínsku þjóð­inni og þess kraf­ist að nýja rík­is­stjórnin efni gefin lof­orð og grípi til aðgerða gegn þjóð­ar­morði Ísraels í Palest­ínu. Á Aust­ur­velli verður síðan sam­stöðu- og kröfufundur. Í við­burð­ar­lýs­ingu Félags­ins Ísland-Palest­ína segir eft­ir­far­andi: „Í bar­átt­unni gegn þjóð­ar­morð­inu höfum við öll...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“