„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ungur úkraínskur hælisleitandi fannst meðvitundalaus á enskri strönd: „Hún var yndisleg stelpa“

Ungur úkraínskur hælisleitandi fannst meðvitundalaus á enskri strönd: „Hún var yndisleg stelpa“
Ströndin þar sem stúlkan fannst. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Úkraínsk skóla­stúlka lést á spít­ala eftir að hafa fund­ist með­vit­unda­laus á strönd­inni í Devon­skíri í Englandi. Hún var hæl­is­leit­andi sem flúði stríðið í heima­land­inu ásamt móður sinni.

Lögreglu barst til­kynn­ing um að ung­lingur, sem bjó ásamt móður sinni hjá fjöl­skyldu frá Devon­skíri í Englandi, væri týnd í sjáv­ar­þorp­inu Dawlish, á laug­ar­dags­kvöld.

Leit lög­reglu­þyrlna og strand­gæsl­unnar að stúlkunni var árángur en hún fannst með­vit­unda­laus á strönd­inni og var flutt með sjúkra­flugi til Royal Devon and Exeter sjúkra­húss­ins, þar sem hún lést stuttu síðar.

Ung­lings­stúlkunni hefur verið lýst af sam­nem­endum sem „góðri og umhyggju­samri mann­eskju“. Einn þeirra sagði: „Hún var í skól­anum mínum. Þetta er svo sorg­legt, hún var ynd­is­leg stelpa.“

Annar nem­andi bætti við: „Við vorum bara að fá frétt­irnar í skól­anum mínum af því að hún var líka nem­andi hér og okkur finnst þetta öllum hrylli­legt. Hún var svo góð og umhyggju­söm mann­eskja og það er svo sorg­legt að hún sé dáin.“

Í augna­blik­inu er and­lát hennar með­höndlað sem óút­skýrt en lög­reglan biðlar nú til ein­hvers sem á CCTV eða dyra­bjöllu­mynd­skeið, að koma fram með þau.

Bæjarbúar í áfalli

Bæj­ar­búar í Dawlish eru brugðið yfir þessum skelfi­lega atburði og vilja fá svör.

Carol Evans, 72 ára sjálf­boða­liði í The Children´s Society búð­inni í Dawlish sagði: „Ég er alveg skelf­ingu lostin, mér finnst þetta hræði­legt. Ég vona að það hafi ekki verið ein­hver annar sem olli því. Ég held að fólk yrði mjög brugðið ef svo reyn­ist. Ég hef unnið hér í yfir 10 ár. Maður kynn­ist öllum hér. Ég þekki 99 pró­sent allra í Dawlish. Við höfum ving­ast við fjöldi Úkra­ínskra fjöl­skyldna hér. Margir þeirra hafa þó farið aftur til Úkraínu.“

Hjóla­búð­ar­eig­and­inn Radyk Modrzynsk sagði: „Ég er í sjokki því dóttir mín er einnig 14 ára. Ég mun pott­þétt ræða við hana um stöð­una þegar hún kemur heim úr skól­anum. Þetta hefur vakið hjá mér áhyggjur yfir hennar öryggi líka.“

Þá lýsti eig­andi versl­unnar yfir áhyggjum sínum af fjöl­skyldu stúlkunnar og sagð­ist hafa orðið fyrir „áfalli“ þegar hann heyrði frétt­irnar. Bætti hann við: „Ég á ung­linga líka og ég er bara í áfalli yfir þessu. Við höfum áhyggjur af fjöl­skyldu grey stúlkunnar.“

Einnig tjáði starfs­maður pósts­ins sig um málið: „Eftir allt það sem þessar aum­ingja úkra­ínsku fjöl­skyldur hafa gengið í gegnum í heima­land­inu. Þetta er mjög hræði­legt að heyra.“

Mark Barber, kokkur á barnum í Dawlish sagði: „Ég væri til í aðeins betri upp­lýs­ingar því þær eru nán­ast engar. Ég hef mín eigin börn sem ég hef áhyggjur af. Ég komst að þessu í frétt­unum. Mér er órótt yfir því að þetta sé eitt­hvað sem ég þurfi að hafa áhyggjur af. Við sjáum oft úkra­ínskar fjöl­skyldur koma hingað á bar­inn til að borða. Þetta eru miklar sorg­ar­fréttir.“

Karlkyns við­skipta­vinur á barnum, sem keyrði að landa­mærum Póllands og Úkraínu í byrjun stríðs­ins til að flytja hjálp­ar­gögn til Úkra­ínu­búa, sagði: „Það sem ég sá þar braut hjarta mitt. Ég man þegar ég gaf litlum dreng bangsa en hann hafði glatað öllu. Varðandi stúlk­una, þá sá hún margt í Úkraínu og kom hingað til að lifa betra lífi og þetta ger­ist fyrir hana. Þetta er hræði­legt.“

Von er á nið­ur­stöðum krufn­ingar á fimmtu­dag­inn.

Það var Daily Mail sem fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“