„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Úkraínumenn bjóða DeSantis til landins eftir að hann kallaði stríðið „landamæradeilu“

Úkraínumenn bjóða DeSantis til landins eftir að hann kallaði stríðið „landamæradeilu“
Ron DeSantis

Yfirvöld í Úkraínu hafa boðið rík­is­stjóra Flórída, Ron DeSantis í heim­sókn, eftir að Repúp­lík­an­inn kall­aði inn­rás­ar­stríð Rúss­lands, „landamæra­deilu“.

DeSantis þykir afar lík­legur til þess að bjóða sig fram til for­seta Banda­ríkj­anna árið 2024 en hann sagði þetta er hann svar­aði spurn­ingum sem sendar voru á mögu­lega fram­bjóð­endur Repúblík­ana.

Hinn fyrrum þing­maður sagði að áfram­hald­andi aðstoð Banda­ríkj­anna við Úkraínu væri ekki meðal „mik­il­vægra þjóð­ar­hags­muna“ lands­ins. Gefur þetta svar sterk­lega til kynna að hann hygg­ist minnka aðstoð­ina, verði hann for­seti.

Með þessu kom í ljós að hann sé sam­mála fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna og helsti keppi­naut­ur­inn um útnefn­ingu repúblik­ana, Donald Trump, sem hefur and­mælt stuðn­ingi til Kænu­garðs og gagn­rýnt hvernig stjórn Bidens hefur tekið á stríð­inu.

Athuga­semdir þeirra tveggja sýna þá gjá sem er í Repúlíkana­flokknum á milli ein­angr­un­ar­sinna sem eru efins um hern­að­ar­að­stoð, og stefnu­mót­unar hjá flokknum, um aðstoð til Kænu­garðs.

DeSantis var að svara spurn­ingum Tucke Carlson hjá Fox-sjón­varps­stöð­inni er hann sagði: „Banda­ríkin hafa marga mik­il­væga þjóð­ar­hags­muni að gæta … en að flækj­ast enn frekar í landamæra­deilu milli Úkraínu og Rúss­lands er ekki einn þeirra.“

Hinn 44 ára DeSantis hefur ekki gefið það út opin­ber­lega að hann muni bjóða sig fram gegn Trump en hefur verið að taka öll nauð­syn­leg skref til að und­ir­búa það.

Þegar Trump svar­aði sömu spurn­ingu, um það hvort stuðn­ingur Banda­ríkj­anna við Kænugarð væri nauð­syn­legur fyrir Washington, sagði hann: „Nei, það er það fyrir Evrópu. En ekki fyrir Banda­ríkin.“

Tals­maður utan­rík­is­ráðu­neytis Úkraínu, Oleg Niko­lenko, gagn­rýni athuga­semdir DeSantis og tví­taði heim­sókn­ar­boð til rík­is­stjór­ans á þriðju­dag.

„Við erum viss að fyrrum yfir­maður í hernum, DeSantis sjái mun á stríði og deilum, þegar hann er sendur á víg­völl­inn,“ sagði Niko­lenko og hélt áfram: „Við bjóðum honum til Úkraínu svo hann öðlist dýpri skiln­ing á stærð inn­rás­ar­stríðs Rúss­lands og þá ógn sem það er við hags­muni Banda­ríkj­anna.“

Banda­ríkin er það land sem styrkt hefur Úkraínu mest fjár­hags­lega frá því að stríðið hófst. Styrkirnir borgar fyrir dróna, skrið­dreka, eld­flaugar og fleiri skot­vopna­kerfi sem og að veita þjálf­unar, flutn­ings- og upp­lýs­inga­stuðn­ing.

Mann­úð­ar­að­stoð Banda­ríkj­anna hefur náð yfir fæðu­að­stoð, öruggt drykkj­ar­vatn, sjúkra­gögn og fleiri nauð­synjar sem Úkraína skortir vegna stríðs­ins. Fjár­hags­stuðn­ing­ur­inn hefur einnig hjálpað yfir­völdum í land­inu við að borga emb­ættimönnum laun, sem og heil­brigð­is­starfs­mönnum og kenn­urum.

Fréttin er unnin upp úr frétt BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“