„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Gunnarsson: „Ég skildi nú ekkert í því af hverju var verið að gera mig að dómsmálaráðherra“

Jón Gunnarsson: „Ég skildi nú ekkert í því af hverju var verið að gera mig að dómsmálaráðherra“
Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra var gestur Reynis í síð­asta þætti Mann­lífs­ins

Í nýjasta við­tali Mann­lífs­ins ræðir Reynir Trausta­son við Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra Íslands. Þar skrafa þeir meðal ann­ars um feril Jóns og stöðu hans í póli­tík­inni og Reynir bendir á að oft hafi gustað um hann. „Já, já. Það er nú ekk­ert sem ég er að sækj­ast sér­stak­lega eftir,“ svarar dóms­mála­ráð­herra

Þú bognar ekk­ert undan þessu?

„Nei, nei, nei, ég er nú orð­inn svo sjó­aður. Ég er búinn að vera 16 ár á þingi. Það hafa nú alveg komið tímar á þeim ferli þar sem ég hef tekið eitt­hvað nærri mér sem sagt hefur verið. Mér hefur stundum fund­ist ómak­lega að manni vegið. En svo þroskast þú í þessu sem og öðru og þjálfast. En póli­tíkin getur á köflum verið óvægin og kannski meira núna í seinni tíð að þetta hreyfi við barna­börn­unum mínum þegar að eitt­hvað mikið gengur á og skít­kastið er sem mest,“ svarar Jón sponskur á svip­inn.

Jón hefur á síð­ustu miss­erum setið undir harðri gagn­rýni vegna nokk­urra mála og spyr Reynir hann út í sölu flug­vélar Land­helg­is­gæsl­unnar TF-SIF, en málið náði hámæli og að end­ingu var ákvörðun um söl­una dregin til baka. Aðspurður hvort að málið hafi verið misök svarar Jón: 

„Nei, nei, nei, alls ekki.“ Áminntur að hann hafi bakkað með ákvörð­un­ina útskýrir dóms­mála­ráð­herra hugsi: „Já, það var póli­tískt upp­hlaup út af þessu eins og oft verður í svona málum og til­fin­ing­arnar bera menn ofur­liði – vil ég segja. En ég setti mér þrjú mark­mið þegar ég kom í Dóms­mála­ráðu­neytið. – En skildi nú ekk­ert af hverju var verið að gera mig að dóms­mála­ráð­herra,“ 

Þátta­stjórn­andi skellir upp úr og Jón útskýrir að hann sé ólög­lærður og aldrei verið í Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd á þing­inu og að reynsla hans hafi legið á öðrum sviðum. En að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi samt sem áður séð ein­hvern hag í reynslu og þekk­ingu Jóns á lög­gæslu, almanna­varna og Land­helg­is­gæsl­unnar

Markmiðin þrjú

Jón vindur sér aftur að mark­mið­unum sem hann hafði sett sér þegar hann tók við Dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

„Við skildum fara inn í þessar megin stofn­anir ráðu­neyt­is­ins og skoða hvað við gætum gert betur til þess að efla þjón­ustu við borg­ar­ana – í fyrsta lagi. Í öðru lagi að við værum að skoða útgjöldin og hvort við værum að nýta skattfé borg­ar­anna  með sem skil­virkustum hætti. – Og í þriðja lagi að allar þær breyt­ingar sem staðið væri fyrir myndi vera að við værum að efna þau fyr­ir­heit sem gefin hafa verið um að fjölga opin­berum störfum úti á landi,“ útskýrir Jón og segir þetta hafa verið leið­ar­ljós hans í vinnu og verkum. Strax hafi verið stofn­aður vinnu­hópur í lög­gæsl­unni undur forrystu Vil­hjálms Árna­sonar alþings­manns, þar sem farið var í alls­herjar þarfa­grein­ingu sem skilað hefur gríð­ar­legri styrk­ingu lög­regl­unnar. Það sama átti við um Land­helg­is­gæsl­una. 

„Það er auð­vitað okkar skylda sem erum í fram­kvæmda­vald­inu að fara sem best með fé skatt­borgar­anna en á sama tíma kemur aldrei til greina […] að ég mun aldrei gefa afslátt af við­bragðs- og björg­un­ar­getu Land­helg­is­gæsl­unnar frekar en ann­arra björg­un­ar­að­ila í land­inu,“

Það varð nú mikið upp­nám og meira að segja for­stjóri Gæsl­unnar var ekki sáttur.

Jón situr hljóðan og svarar neit­andi en bendir jafn­framt: „Tillagan var nú samt frá honum komin.“ Óskað hafði verið eftir hug­myndum frá for­stjóra sem væru hvað sárs­auka­minnstar til að ná saman rekstri stofn­un­ar­innar svo hann stæð­ist fjár­lögin og fjár­heim­il­i­dir.

Hér má sjá við­talið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu