„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Andrew Tate snýr aftur: „Karlar mega halda framhjá, konur ekki“

Andrew Tate snýr aftur: „Karlar mega halda framhjá, konur ekki“
Andrew Tate.

Hinn umdeildi og víða þekkti Andrew Tate, að öðru nafni „Top G“ er kom­inn aftur á Tik-Tok eftir langt bann. Tate hefur verið umdeildur frá upp­hafi „yfir­töku“ hans á inter­net­inu. Hann var einn af umdeild­ustu mönnum árið 2022.

Fyrrum spark­box­ar­inn hóf Tik-Tok feril sinn snemma árs 2022. Þar birti hann mynd­bönd af skoð­unum sýnum á kynja­hlut­verkum sem mörgum fannst lýsa kven­hatri. Hann varð fljót­lega mjög óvin­sæll hjá flestum en þó ekki hjá mark­hóp Tate, sem voru ung­lings­drengir.

Andrew Tate birti færslu í Telegram hóp hans að hann sé kom­inn aftur á Tik-Tok undir nafn­inu „Scholaresists“. Segir hann í sömu færslu „Sjáum hversu hratt TikTok bannar mig.“

Eins og er hefur hann aðeins birt eitt mynd­band á TikTok sem sýnir hann stunda hraðakstur í Dubai. Segir hann að við megum búast við miklu frá honum á næstu dögum.

Tate, fyrrum atvinnu­maður í spark­boxi, hefur verið búsettur í Rúmeníu síðan 2017. Hefur hann verið bann­aður á flestum sam­fé­lags­miðlum fyrir að sýna kven­hatur og stunda hat­urs­orð­ræðu.

Þann 29. des­em­ber í fyrra var hann og Tristan bróðir hans hand­teknir í Rúmeníu grun­aðir um man­sal, nauðgun og fyrir að stofna skipu­lagðan glæpa­hóp, að sögn sak­sókn­ara. Hann hefur síðan setið í gæslu­varð­haldi en 31. mars var hann lát­inn laus og gert að sæta stofu­fang­elsi. Hann hefur ítrekað haldið því fram að rúm­enskir ​​sak­sókn­arar hafi engar sann­anir og sagt að mál þeirra sé „póli­tískt“ sam­særi sem ætlað er að þagga niður í honum.

Hér fyrir neðan má sjá tíu af umdeild­ustu stað­hæf­ingar Tate.

  1. „Mér finnst konur til­heyra körlum.“
  2. „Konur eru hið full­komna stöðu­tákn. Fólk heldur að ég sé með þessum hórum vegna þess að ég hef gaman af kyn­lífi. Það hefur ekk­ert að gera með ástæð­una fyrir því að ég sé með þessar tíkum. Ég fékk þessar tíkur bara svo allir vissu hver ég væri.“
  3. „Ég fer út að ríða og kem aftur til hennar og mér er alveg sama um hana. Ég elska bara stelpuna mína. Það er ekki fram­hjá­hald, það er æfing.“
  4. „Þung­lyndi er ekki raun­veru­legt. Ef þú finnur fyrir sorg, þá held­urðu áfram. Þú verður alltaf þung­lyndur ef líf þitt er nið­ur­drep­andi. Breyttu því.“
  5. „Karlar mega halda fram­hjá, konur ekki.“
  6. „Þú getur ekki borið ábyrgð á ein­hverju sem hlustar ekki á þig. Þú getur ekki borið ábyrgð á hundi ef hann hlýðir þér ekki, eða barni ef það hlýðir þér ekki, eða konu sem hlýðir þér ekki.“
  7. „Ef þú átt ekki Lambo, þá éturðu skít.“
  8. „Ég kall­aði þennan vírus [COVID-19] gabb frá upp­hafi og allir köll­uðu mig geð­veikan. Veiran er ekki raun­veru­leg. Það er vírus, já. Er hann ban­vænn? Nei. Eru það við­eig­andi við­brögð að leggja niður hag­kerfið? Alls ekki. Trúða­heimur.“
  9. „Ef þú ert vinur minn get­urðu bara ekki verið píka. „Ó nei, ég fékk hjarta­á­fall“, stattu upp. Fjandinn er að þér? Farðu á spít­al­ann seinna. Fáðu þér drykk, sígar­ettu, kaffi­bolla. Fjandinn að fá hjarta­á­fall nálægt mér, litla píkan þín.“
  10. „Ég mun ekki eiga nörd sem barn. Ég neita að láta nörd bera nafnið Tate. Ef sonur minn er nörd, þá þarf annar okkar að deyja, hann eða ég og ég skora á hann í dauð­ann.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“