„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pólsk mæðgin drukknuðu er þau féllu útbyrðis í ferju á Eystrarsaltinu – Morðrannsókn hafin

Pólsk mæðgin drukknuðu er þau féllu útbyrðis í ferju á Eystrarsaltinu – Morðrannsókn hafin
Stena Line ferjan Mynd: Getty Image

Sjö ára drengur lést eftir að hann féll útbyrðir í far­þega­ferju á Eystra­salt­inu. Móðir hans lést einnig eftir að hún stökk í sjó­inn til að bjargar honum.

Hinn hrylli­legi atburður gerð­ist í gær að sjö ára gam­all drengur féll útbyrðis 20 metra ofan í Eystra­saltið og móðir hans á eftir honum en þau lét­ust bæði. Þetta er haft eftir sænsku sigl­inga­stofn­un­inni.

Samkvæmt frétt ABC News hafa sænsk yfir­völd hafið frum­rann­sókn á mál­inu sem ein­hverra hluta vegna er rann­sakað sem morð­mál, þó eng­inn sé með rétt­ar­stöðu grun­aðs í mál­inu.

Mæðginin, sem bæði voru pólskir rík­is­borg­arar, voru að sigla með Stena Spirit ferj­unni frá Gdynia í Póllandi til Karl­skrona í Svíþjóð, er harm­leik­ur­inn átti sér stað.

Áhöfn ferj­unnar sendu út neyð­ar­beiðni og snéru ferj­unni við. Atl­ant­hafs­banka­lagið sendi skip og þyrlur í örvænt­ing­ar­fullri til­raun til að bjarga mæðgin­unum en það gerðu sænsk yfir­völd einnig.

Hin 36 ára kona og sjö ára sonur hennar voru flutt með þyrlu á spít­ala í Karl­skrona en þar voru þau úrskurðuð látin.

Tals­maður pólsku lög­regl­unnar, Mariusz Ciarka sagði hér­aðsmiðlu að það hafi verið ómögu­legt að bjarga lífi þeirra beggja.

„Því miður, fengum við þær upp­lýs­ingar í morgun frá Svíum að við þyrftum að koma þessum skelfi­legu fréttum til fjöl­skyld­unnar, að bæði drengur og móð­irin eru látin.“

Eins og áður hefur komið fram féll dreng­ur­inn útbyrðis 20 metra í ískalt hafið. Tals­maður Stena Line, Agnieszka Zembrzycka sagði TVN 24: „Í augna­blik­inu höfum við engar upp­lýs­ingar um það hvort þetta hafi gerst vegna bil­unar í ferj­unni. Við erum að vinna með lög­regl­unni og öðrum yfir­völdum við að kom­ast að því hvað olli slys­inu.“

Biðlaði sænska lög­reglan til pól­skra far­þegar, í gegnum pólska rík­is­fjöl­mið­ils­ins PAP, að veita upp­lýs­ingar sem gætu varpað ljósi á það hvernig slysið gerð­ist.

Frétt Mirror var einnig notuð við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Banaslys

Konan sem lést í banaslysinu á Vesturlandsvegi talin hafa sofnað undir stýri
Innlent#Banaslys

Konan sem lést í banaslys­inu á Vest­ur­lands­vegi talin hafa sofnað undir stýri

Kona á sjö­tugs­aldri, sem lést í bílslysi norðan við Akranes í des­em­ber í fyrra, var senni­lega sof­andi eða með skerta með­vit­und áður en slysið varð, sam­kvæmt Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa. Á þriðja tím­anum eftir hádegi fimmtu­dag­inn 13. des­em­ber á síð­asta ári, varð banaslysið á Vest­ur­lands­vegi, stuttu frá vega­mót­unum við Skipa­nes­veg norðan Akraness. Toyota Yaris var ekki yfir á vinstri veg­ar­helm­ing þar sem...
Banaslys á Sæbraut í nótt: „Framkoma sumra í nótt dapurleg“
Innlent#Banaslys

Banaslys á Sæbraut í nótt: „Framkoma sumra í nótt dap­ur­leg“

Banaslys varð á Sæbraut í Reykja­vík í nótt, en þar var fólks­bif­reið ekið norður Sæbraut, á milli Súð­ar­vogs og Klepps­mýr­ar­vegar, og á gang­andi veg­far­anda sem var á leið yfir göt­una til aust­urs. Til­kynn­ing um slysið barst tíu mín­útum eftir mið­nætti og héldu við­bragðs­að­ilar strax á vett­vang, en því miður var veg­far­and­inn lát­inn er að var komið. Lokað var fyrir umferð...
Kínverskur lögreglumaður lést í bílslysinu við Fossá – Eiginkonan flutt á sjúkrahús
Innlent#Banaslys

Kín­verskur lög­reglu­maður lést í bílslys­inu við Fossá – Eig­in­konan flutt á sjúkra­hús

Maðurinn sem lést í bílslys­inu við Fossá á Skaga í gær er lög­reglu­maður frá Hong Kong. Eig­in­kona manns­ins er einnig lög­reglu­maður en hún með honum í bílnum. Vísir segir frá mál­inu og vitnar í kín­verska frétta­mið­il­inn South China morn­ing post en þar segir að hjónin hafi verið í fríi hér á landi og hafi tekið bíl á leigu svo þau...
Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Urriðaholti
Innlent

Karl­maður á fer­tugs­aldri lést í vinnu­slysi í Urriða­holti

Banaslys varð á bygg­ing­ar­svæði í Urriða­holti í Garðabæ í gær. Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að karl­maður á fer­tugs­aldri hafi lát­ist í vinnu­slysi á bygg­ing­ar­svæði í Urriða­holti í Garðabæ í gær. Um er að ræða erlendan rík­is­borg­ara en ekki er hægt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. Í til­kynn­ingu lög­regl­unnar segir einnig að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu...
Tólf ára stúlka hrapaði til bana á hóteli á Spáni – Fjölskyldan svaf í næsta herbergi
Heimur#Banaslys

Tólf ára stúlka hrap­aði til bana á hót­eli á Spáni – Fjöl­skyldan svaf í næsta her­bergi

Tólf ára stúlka lést er hún féll tæpa 20 metra fram af svölum á hót­eli á Majorca, á meðan fjöl­skylda hennar svaf í næsta her­bergi. Stúlkan, sem var frá Írlandi, lést um klukkan hálf sjö í morgun, þegar hún féll fram af svölu á þriggja stjörnu fjöl­skyldu­hót­el­inu Club Mac í Puerto de Alcudia á norð­austur Majorca. Ætt­ingjar hennar eru sagðir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“