„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ýmislegt áhugavert fannst í villu Prigozhin – Peningabúnt, sleggja og laglegt hárkollusafn

Ýmislegt áhugavert fannst í villu Prigozhin – Peningabúnt, sleggja og laglegt hárkollusafn
Þetta er nú ekk­ert slor. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Nýjar ljós­myndir hafa verið birtar frá heim­ili Yevgeny Prigozhin, for­ingja Wagner-mála­liða­hóps­ins alræmda.

Ekki er almenni­lega vitað um nákvæma stað­setn­ingu Yevgeny Prigozhin en for­seti Belarús, Alex­ander Lukasjenka sagði í dag að hann væri kom­inn til Rúss­lands. Ekki hefur það feng­ist stað­fest en rúss­nesk yfir­völd segja rann­sókn á máli hans enn í fullum gangi. Eins og frægt er orðið stóð Prigozhin fyrir ein­hvers­konar valda­ránstil­raun fyrir nokkrum vikum þegar Wagner-liðar stefndu ótrauðir í átt að höf­uð­borg Rúss­lands, Moskvu en snéru við þegar ein­ungis 200 kíló­metrar voru eftir.

Það er frétta­mið­il­inn Fontanka sem birti nýverið ljós­myndir sem teknar voru innan úr heim­ili, eða rétt­ara sagt villu Yevgeny Prigozhin í St. Pét­urs­borg.

Það borgar greini­lega vel að vera mála­liði

Á ljós­mynd­unum, sem teknar voru þegar rúss­nesk yfir­völd leit­uðu á eign­inni um dag­inn, sést tals­vert magn vopna, stafla af doll­ara­búntum og í einu her­berg­inu sést sleggja með áletr­un­inni: „Fyrir mik­il­vægar samn­inga­við­ræður“. Frá þessu segir Meduza frétta­vef­ur­inn.

Á vegg einum á heim­il­inu, fundu rann­sak­endur ljós­mynd af afsög­uðum hausum manna. Á öðrum vegg mátti sjá úrval af hverskyns verð­laun og við­ur­kenn­ingar, þar á meðal við­ur­kenn­ingu sem veitt var af borg­ar­stjóra Sankti Pét­urs­borgar, Alex­ander Beglov en hann þeir tveir hafa lengi eldað saman grátt silfur.

Þá má sjá á einni ljós­mynd­inni her­klæðnar sem á hanga medal­íur Prigozhin, sem hann hefur hlotið, meðal ann­ars fyrir að vera „Hetja Rúss­lands“ og „Hetja Dombas-hér­aðs“.

Aukreitis má sjá ljós­mynd af fjöldi hár­kolla í eigu Wagner-for­ingj­ans en þær hefur hann notað til að dul­bú­ast í þeim fjölda verk­efna sem hann hefur innt af hendi fyrir yfir­völd í Rúss­landi. Á Telegram birtu margar frétt­ar­ásir ljós­myndir af honum í ýmsum dul­ar­gervum sem búist er við að hann hafi notað erlendis.

Þar sést hann meðal ann­ars dul­búa sig sem starfs­mann súd­anska varn­ar­mála­ráð­herr­ans, yfir­liðs­for­ingja frá Benghazi, aðstoð­ar­mann erind­reka í Abu Dhabi, ofursta frá Tripoli, kaup­mann frá Sýrlandi og yfir­manns í hernum.

Ef glöggt er að gáð, má sjá að um sama mann­inn er að ræða í öll skiptin.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“