„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hlýtur Twitter sömu örlög og MySpace?

Hlýtur Twitter sömu örlög og MySpace?

Twitter hefur hótað sam­fé­lags­ris­anum Meta lög­sókn eftir að Meta setti örbloggsappið „Threads“ á markað. Threads er á margan hátt líkt Twitter en Twitter telur að Meta hafi ráðið til sín fyrrum starfs­menn sína og nýtt þá til að flýta þróun á nýja for­rit­inu en Meta hafna því.

Lög­fræð­ingur á vegum Twitter, Alex Spiro, sendi for­stjóra Meta, Mark Zuckerberg, bréf með ásök­unum um stuld á upp­lýs­ingum með fyrr­greindum ráðn­ingum starfs­manna. Bréfið var fyrst birt á Semafor, en í bréf­inu kemur einnig fram að Twitter muni nýta sér rétt sinn til að verja hug­verk sín.

Litið er á að hót­unin sé til marks um að Twitter líti á Threads sem raun­veru­lega ógn á mark­aðnum. Twitter setti nýlega tak­mark­anir á hversu mörg tíst not­endur geta skoðað á hverjum degi sem hefur komið illa við kaun­inn á ansi mörgum not­endum. Elon Musk sagði í fyrstu að þetta væri til þess að hamla fyr­ir­tækjum í að nota Twitter til að þjálfa gervi­greind­ar­mód­elin sín en gera má því skóna að aðgerð­irnar hafi líka verið til þess að tak­marka aðgang sam­keppn­is­að­ila að efni og mögu­lega til að hvetja not­endur til áskrifta þar sem áskrift­arnot­endur hafa ríf­legri heim­ildir til að neyta efnis Twitter.

Threads, ólíkt mörgum öðrum sem hafa reynt að keppa við Twitter, fékk gríð­ar­lega jákvæðar mót­tökur en yfir 30 milljón not­endur nýskráðu sig fyrsta dag­inn. Threads er sam­tengt Instagram og til að stofna Threads aðgang er Instagram aðgangur nauð­syn sem gerir það að verkum að Threads hefur strax aðgang að þeim gríð­ar­lega fjölda fólks sem þegar notar Instagram.

Blaða­maður á vegum The Guardian, Kari Paul, birti grein um fyrstu upp­lifun sína af app­inu en þar lýsir hún því að Threads og Twitter séu á margan hátt svipuð en Threads bjóði upp á þægi­legt not­enda­við­mót og hafi fært hana til þess tíma áður en Musk keypti Twitter í októ­ber á síð­asta ári fyrir 44 millj­arða dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“