„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Evrópska Geimferðastofnunin rekur upp herör gegn skítugum nærbuxum á tunglinu

Evrópska Geimferðastofnunin rekur upp herör gegn skítugum nærbuxum á tunglinu

Nú þegar fyr­ir­hug­aðar, mann­aðar ferðir til tungls­ins eru aftur á dag­skrá í fyrsta sinn í yfir 50 ár þarf að huga að ýmsu eins og nýrri línu geim­bún­inga sem þurfa að þola erf­iðar aðstæður.

Evrópska Geim­ferða­stofn­unin, ESA, hefur sett á lagg­irnar verk­efni sem snýr að því að meta og velja heppi­leg efni til að fóðra geim­bún­inga með að innan. Einn liður í því er það sem hefur hlotið heitið BACTeRMA en þar er tek­ist á við það hvernig er hægt að koma í veg fyrir fjölgun örvera í fóðr­inu.

„Ímyndaðu þér að halda nær­bux­unum þínum hreinum; það er frekar auð­velt dags dag­lega þökk sé þvotta­efnis, þvotta­vélum og þurrk­urum,“ útskýrir Malgorzata Holynska sem er verk­fræð­ingur fyrir ESA. „En í híbýlum á tungl­inu eða þaðan af lengra í burtu verður það að þrífa reglu­lega innan úr geim­bún­ing­unum varla mjög hag­kvæmt.“

„Þar fyrir utan má gera ráð fyrir að geim­far­arnir muni deila geim­bún­ingum og þeir svo hafðir í geymslu til langs tíma á milli notk­unar, mögu­lega í kjörað­stæðum fyrir örverur. Þess í stað verðum við að finna aðrar lausnir til að kom­ast hjá því að örverur fjölgi sér.“

Þar sem hefð­bundn­ari efni sem þjóna þessu til­gangi eins og silfur og kopar geta valdið ert­ingi og gætu rýrnað með tím­anum er litið til þess að nota efni sem örverur búa til nátt­úru­lega til þess að verja sig keppi­nautum og umhverf­is­á­hrifum með þeim hætti að efnið inni í bún­ing­unum er litað með efn­inu.

NASA verk­efið Artemis III verður fyrsta mann­aða ferðin til tung­lisns síðan 1972 og er fyr­ir­hugað að það muni taka alls 30 daga. Það virð­ist í sjálfu sér ekki svo langur tími þangað til maður veltir því fyrir sér að þurfa að vera í sömu nær­bux­unum allan tím­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“