„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Læknir myrti ungbarn sitt og tók eigið líf: „Vissum ekki einu sinni að hún væri ófrísk“

Læknir myrti ungbarn sitt og tók eigið líf: „Vissum ekki einu sinni að hún væri ófrísk“

Virtur læknir í New York fannst látin ásamt nýfæddu barni sínu á heim­ili fjöl­skyld­unnar þar sem lög­reglan hafði tvisvar verið kölluð út í sumar.

Lækn­ir­inn Krystal Cascetta var fer­tug þegar hún ban­aði fjög­urra mán­aða gam­alli dóttur sinni með skot­vopni áður en hún tók eigið líf. For­eldrar hennar voru á heim­il­inu og komu að Krystal og barni hennar látnum. Ekki hefur verið stað­fest hver hringdi á neyð­ar­línu en vitað er að sím­talið kom frá ein­hverjum inni á heim­il­inu. Sá heyrði skot­hvelli innan úr her­bergi Krystal sem hafði læst sig inni. Áður en tæki­færi gafst á að brjóta sér leið inn heyrð­ist annar hvellur.

Í sam­tali við New York Post sagði nágranni fjöl­skyld­unnar frá tíðum útköllum við­bragðs­að­ila á heim­ili Krystal. „Lögregla og sjúkra­flutn­inga­menn voru hér tvisvar, jafn­vel þrisvar núna í sumar.“
Nágrannar segja fjöl­skyld­una hafa haldið sig mikið út af fyrir sig en voru vin­gjarn­leg og kurt­eis þegar þau gáfu sig á tal við aðra. „Þau kynntu sig þegar þau fluttu hingað fyrir tveimur árum. Svo heyrðum við ekki meira frá þeim. Við vissum ekki einu sinni að hún væri ófrísk.“

Eig­in­maður Krystal, Tim Talty, var ekki á heim­il­inu þegar hörm­ung­arnar áttu sér stað. Unga­barnið var eina barn þeirra.
„Lög­reglan í New York rann­sakar nú morð og sjálfs­víg í bænum Somers. Rannsókn á vett­vangi hefur leitt í ljós að um klukkan sjö að morgni hafi Krystal farið inn í her­bergi ung­barns­ins og skotið það til bana. Þá hafi hún snúið vopn­inu að sér sjálfri og tekið eigið líf,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá rann­sókn­ar­að­ilum.

Krystal Cascetta og eig­in­maður hennar Tim Talty.

Krystal var aðstoð­ar­pró­fessor í lækn­is­fræði við Icahn School of Medicene. Hún sér­hæfði sig meðal ann­ars í brjóstakrabba­meini, krabba­meini í æxl­un­ar­færum kvenna, sark­meinum og krabba­meini í melt­ing­ar­færum. Hún útskrif­að­ist sem læknir frá Albany Medical College árið 2009.

„Hún var stjarna í sinni grein, indæl, bráð­gáfuð og góður íþrótta­maður. Ég veit ekki hvað var að ger­ast í lífi hennar sem varð til þess að hún ákvað að enda líf sitt en ég veit að stór hópur af sjúk­lingum og sam­starfs­fólki syrgir. Henni þótti mjög vænt um sjúk­linga sína og ég er þakk­lát fyrir að hafa verið ein af þeim,“ skrif­aði Kambri Crows, vin­kona Krystal á Facebook síðu sinni.

Hægt er að leita hjálpar á bráða­mót­töku geð­þjón­ustu Land­spít­al­ans við and­legum erf­ið­leikum eftir fæð­ingu. Einnig býðst konum hjálp í ung­barna­vernd heilsu­gæsl­unnar.
Sími geðsviðs á Land­spít­ala við Hring­braut: 543-4050

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“