„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fimm barna móðir myrt á vinsælli gönguleið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“

Fimm barna móðir myrt á vinsælli gönguleið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“
Kærustuparið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lög­reglan í Maryland, sem rann­sakar morðið á fimm barna móð­ur­inni Rachel Morin, sem fannst látin á sunnu­dag­inn á vin­sælli göngu­leið, sagði Fox News Digital að hún hefði verið myrt og biðl­aði til almenn­ings sem gætu vitað eitt­hvað um málið, að stíga fram.

„Þetta var ekki slys eða sjálfs­víg. Þetta er ill­virki af hálfu ann­ars,“ sagði Jeff Gahler lög­reglu­stjóri.

Morin, sem var 37 ára, fór af heim­ili sínu klukkan 18:30 á laug­ar­dag­inn til að fara í göngutúr á Ma and Pa göngu­leið­inni í Bel Air, Maryland, um það bil 48 kíló­metra frá Baltimore.

„Hún lifði mjög virku lífi,“ sagði lög­reglu­stjór­inn. „Það var ekk­ert óvenju­legt við það að hún færi út í göngu.“

Þegar hin fimm barna móðir kom ekki aftur úr göng­unni hringdi kær­asti hennar, Richard Tobin í lög­regl­una klukkan 23:30 og til­kynnti um hvarf hennar.

Stuttu eftir 01:00 fann mann­eskja lík Morin sem lá við hlið stígs­ins. Ekki vildi Gahler gefa upp nákvæma hvar hún fannst en sagði að það hafi verið í þéttu skóg­lendi, öðru hvoru megin við göngu­leið­ina, þar sem áður fyrr lágu lestar­teinar. Sagði Gahler að rann­sak­endur viti ekki enn hvort Morin hafi verið drepin af handa­hófi eða hvort hún hafi verið fyr­ir­fram valið skot­mark.

Bætti hann við að hún hafi gengið þessa slóð reglu­lega, sem part af æfing­ar­rútínu. „Þetta gæti hafa verið ein­hver sem vissi af rútínu hennar og vissi hvar hún yrði um þetta leyti eða þetta gæti verið ein­hver ókunn­ugur.“

Morðið hefur vakið mik­inn óhug í hinum rólega bæ, sem telur aðeins 10.000 íbúa. „Við erum sýsla þar sem mjög lítið er um glæpi,“ sagði Gahler lög­reglu­stjóri en heim­ili hans stendur við göngu­leið­ina. „Samfélag okkar er rétti­lega mjög áhyggju­fullt.“

Lög­reglan fann bif­reið Morin á Williams-stræti, við upp­haf göngu­leið­ar­innar en bif­reiðin hefur verið tekin í vörslu lög­regl­unnar til frek­ari rann­sóknar.

„Við höfum engin mynd­skeið frá bíla­stæð­inu frá kvöld­inu sem morðið var framið,“ sagði Gahler. Lög­reglu­stjór­inn bað almenn­ing að vera ekki með vanga­veltur á net­inu og hvatti þá sem gætu verið með upp­lýs­ingar um málið að hringja í lög­regl­una í stað þess að skrifa á sam­fé­lags­miðla. „Við minnum sam­fé­lag okkar á að ef þú heldur að þú hafir séð eitt­hvað, sem gæti tengst mál­inu, að þá viljum við tala við þig.“

Yfirvöld bíða nið­ur­stöðu krufn­ingar.

Nýr kær­asti Morin rauf þögn­ina á sunnu­dag­inn á Facebook eftir að net­spek­ingar höfðu velt fyrir sér hvort hann gæti tengst morð­inu. „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt, leyfið fjöl­skyld­unni og mér að syrgja. Já ég á slæma for­tíð en ég hef líka verið edrú í 15 mán­uði og hef breyst sem mann­eskja. Gerið það,“ skrif­aði Tobin.

Tobin, sem er 27 ára, hefur áður verið hand­tek­inn fyrir skemmd­ar­verk, lík­ams­árás, fyrir að brjóta nálg­un­ar­bann og fleiri kæra, sam­kvæmt dóms­skrám Maryland. Lög­reglan hefur hvort nefnt hann sem aðila grun­aðan um morðið né sakað hann um eitt­hvað refsi­vert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“