„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Féll niður 30 metra:„Við erum bara heppin að barnið okkar kom heim í framsæti bíls en ekki í kistu“

Féll niður 30 metra:„Við erum bara heppin að barnið okkar kom heim í framsæti bíls en ekki í kistu“

Þrettán ára drengur lifði af þrjá­tíu metra fall við Miklagljúfur í Arizona, Banda­ríkj­unum.

Það tók björg­un­ar­sveitir tvo klukku­tíma að bjarga Wyatt Kaufmann síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, eftir að hann féll fram af brún North Rim í Mikla Gljúfri en það er vin­sæll áninga­staður ferða­manna.

Flogið var með dreng­inn á sjúka­hús með alvar­leg meiðsl en hann hefur nú verið útskrif­aður.

Wyatt sagði fjöl­miðlum að hann hefði fallið þegar hann var að víkja sér undan svo fólk gæti tekið ljós­myndir. Sagðist hann hafa beygt sig og haldið í grjót með annarri hendi en misst takið og byrjað að falla aftur á bak. „Ég man ekki eftir neinu eftir að ég féll,“ sagði hann sjón­varps­stöð­inni KPNX í Phoenic, þar sem hann lá á spít­ala. „Ég man bara eftir að ranka við mér í sjúkra­bíl og svo þyrlu og flug­vél og svo var ég kom­inn hingað.“

Meðal meiðsla sem hann hlaut voru níu brotnir hryggjar­liðir, sprungið milta, hand­leggs­brot og sam­an­fallið lunga.

Tugir við­bragðs­að­ilar tóku þátt í björg­un­inni en Wyatt var komið í öruggt skjól af starfs­liði frá þjóð­garð­inum í Miklagljúfri, sem kom sér niður klett­inn þar sem Wyatt lá, eftir að í ljós kom að þyrlu­á­höfn gæti ekki kom­ist að honum.

Faðir Wyatt, Brian Kaufman, sem var heima hjá sér í Norður-Dakota er slysið varð, sagði við fjöl­miðla: „Við erum bara heppin að barnið okkar kom heim í fram­sæti bíls en ekki í kistu.“

Wyatt var staddur í fjöl­skyldu­ferð til Miklagljúf­urs þegar slysið varð en fjöl­skyldan sagði KPNX að hún ætl­aði sér að fara í nýtt ferða­lag (e. roadtrip) heim frá spít­al­anum, til að skapa nýjar minn­ingar í stað­inn fyrir minn­ing­una um hið hræði­lega fall.

Frétt þessi er unnin upp úr frétt BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“