„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jimmy Carter er á lokametrunum: „Það er líklegra að ég missi afa áður en ég missi ömmu“

Jimmy Carter er á lokametrunum: „Það er líklegra að ég missi afa áður en ég missi ömmu“
Jimmy og Roselynn Carter

Jimmy Carter, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna og eig­in­kona hans, Rosalynn, eru á „síð­asta kafla“ lífs síns, sam­kvæmt barna­barni þeirra.

Tilkynnt var í febr­úar að hinn 98 ára gamli Jimmy Carter, hefði ákveðið að þiggja heima­hjúkrun á heim­ili sínu í Plains, Georgiu, eftir að hafa þurft ítrekað að heim­sækja sjúkra­hús vegna ýmissa meina.

„Hann er ennþá Jimmy Carter,“ sagði Josh Carter í við­tali við PEOPLE í gær. „Hann er bara þreyttur. Ég meina, hann er næstum því 99 ára gam­all, en hann skilur full­kom­lega [hversu margar árn­að­ar­kveðjur hann hefur fengið] og hefur fundið fyrir kær­leik­anum.“

Þremur mán­uðum eftir að til­kynnt var um heima­hjúkrun for­set­ans fyrr­ver­andi, var eig­in­kona hans, Roselynn Carter, greind með heila­bilun.

„Hún veit enn hver við erum, svona oft­ast, að við séum fjöl­skylda,“ sagði Josh og bætti við að það hafi verið Roselynn sem ákvað að til­kynna um grein­ing­una.

Bætti hann við að það væri „örugg­lega erfitt“ fyrir afa sinn að fylgj­ast með minni eig­in­konu sinnar fjara út en „þau hafa upp­lifað allt sem hægt er að upp­lifa saman. Mér finnst það svo fal­legt að þau séu enn saman.“

„Amma er enn fær um að mynda nýjar minn­ingar,“ bætti Josh við en hann segir að góður næt­ur­svefn hjálpi gegn ein­kenn­unum.

Hjónin, sem eiga fjögur börn, 12 barna­börn og 13 barna­barna­börn, eru reglu­lega í fylgd fjöl­skyldu­með­lims eða umönn­un­ar­að­ila allan dag­inn.

Josh segir að amma sín og afi séu orðin hljóð­ari, sem geri það að verkum að aðrir fjöl­skyldu­með­limir þurfi að hafa ofan af fyrir hjón­unum. „Amma og afi hafa alltaf verið skemmti­kraft­arnir í fjöl­skyld­unni,“ sagði Josh. „En nú er það eig­in­lega í okkar verka­hring að skemmta fólki. Þetta er öðru­vísi, þetta eru öðru­vísi tímar.“

Carter-hjónin fögn­uðu 77 ára brúð­kaups­af­mæli í síð­asta mán­uði og í síð­ustu viku fagn­aði Rosalynn 96 ára afmæli sínu. Öll Carter-fjöl­skyldan und­ir­býr sig nú fyrir hvað sem koma skal í náinni fram­tíð.

„Það er lík­legra að ég missi afa áður en ég missi ömmu,“ sagði Josh og hélt áfram: „Hann fær heima­hjúkrun en hún ekki, og þetta er ein­föld stærð­fræði. Það er greini­legt að við erum á lokakafl­anum.“

Jimmy Carter er sá for­seti Banda­ríkj­anna sem náð hefur hæsta aldr­inum en hann var for­seti eitt tíma­bil, frá 1976 til 1981, þegar Ronald Reagan tók við völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“