„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Elon Musk opnar sig um deiluna við elstu dótturina: „Heldur að allir sem eru ríkir séu illir“

Elon Musk opnar sig um deiluna við elstu dótturina: „Heldur að allir sem eru ríkir séu illir“
Elon Musk, rík­asti maður heims.

Ríkasti maður heims, hinn umdeildi Elon Musk, opnar sig um deil­una á milli hans og 19 ára dóttur hans, sam­kvæmt úrdrætti The Wall Street Journal úr ævi­sögu Musk sem beðið er átekta eftir að komi út, þann 12. sept­em­ber.

Úrdrátt­ur­inn, sem birt­ist í gær, fer að mestu yfir lætin í kringum yfir­töku Musk á Twitter, sem nú ber heitið X. En þar er einnig varpað ljósi á sam­bandi hans við elstu dóttur hans.

„Hey, ég er trans, og nú er nafn mitt Jenna,“ skrif­aði þá 16 ára dóttir Musk í skila­boðum til eig­in­konu bróður Musk, og bætti við „Ekki segja pabba mínum.“

Dómstóll í Kali­forn­íu­ríki heim­il­aði þá 18 ára dóttur Musk, að breyta nafni sínu í Vivian Jenna Wilson en hún hafði þá tekið þá ákvörðun að taka upp skírn­ar­nafn móður sinnar, Justine Musk. Dómarinn við­ur­kenndi einnig að kyn hennar væri kven­kyn og úrskurðað um útgáfu nýs fæð­ing­ar­vott­orðs til að end­ur­spegla breyt­ing­arnar.

Samkvæmt dóms­skjöl­unum, sem People komst yfir, sagði Jenna að ástæðan fyrir breyt­ing­unum væru vegna kyn­vit­undar og þeirrar stað­reyndar að hún hefði engan áhuga á að vera skyld föður sínum lengur, á nokkurn hátt.

„Hún fór handan sós­í­al­ism­ans og varð algjör komm­ún­isti og heldur að allir sem eru ríkir séu illir,“ sagði Musk í úrdrætt­inum sem birt­ist í gær.

Walter Isaacson, sem skrif­aði ævi­sögu Musk, segir í bók­inni: „Deil­urnar særðu hann meira en nokk­urt annað, alveg síðan fyrsta barn hans, Nevada lést“ en barnið lést af völdum vöggu­dauða, aðeins 10 vikna gam­alt.

„Ég hef reynt ýmis­legt,“ sagði Musk um til­raunir sínar til að ná tengslum við dóttur sína, sam­kvæmt úrdrætti bók­ar­innar. „En hún vill ekki eyða tíma með mér.“

Isaacson skrifað að Musk teldi að stjórn­mála­skoð­anir Jennu hefðu verið mót­aðar í fram­sæknum skóla sem hún sótti í Los Angeles.

Musk hefur verið hávær á Twitter (nú X) varð­andi skoð­anir sínar um fornöfn trans­fólks og kynsegin fólks. Eftir að hann var harð­lega gagn­rýndur í des­em­ber 2020 fyrir að gera grín að notkun for­nafna þessa hóps, í Twitter-færslu sem hann eyddi svo, sagði hann að þó hann styddi „algjör­lega“ trans­fólk, þá væru „öll þessi fornöfn fag­ur­fræði­leg martröð.“

Í maí 2022, mán­uði eftir að dóttir hans breytti kyn­inu og nafn­inu fyrir dómi, sagð­ist Musk ætla að kjósa fram­vegis Repúl­blik­ana, sér í lagi Ron DeSantis, en hann skrif­aði frum­varp fyrir lögum sem kall­ast á ensku Parental Rights in Education sem oft­ast er kallað „Ekki segja sam­kyn­hneigð“ lögin.

Ævisaga Musk kemur út 12. sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hinsegin málefni

Samtökin ’78 hafa kært fimm einstaklinga frá 2023: „Við látum reyna á þau lög sem eru í landinu“
Innlent

Samtökin ’78 hafa kært fimm ein­stak­linga frá 2023: „Við látum reyna á þau lög sem eru í land­inu“

Mikið hefur verið fjallað um mál­efni trans fólks á Íslandi á und­an­förnum árum og hefur umræðan að miklu leyti snú­ist um bakslag sem sumir telja hafa mynd­ast í bar­áttu trans fólks. Hluti af þessu bakslagi er orð­ræða ein­stak­linga sem eru lítið hrifnir af til­vist trans fólks og hafa nokkrir þekktir ein­stak­lingar, þar á meðal fram­bjóð­endur til Alþingis, tjáð sig á...
Karen spyr SUS-liða: „Ætli þeir séu glaðir yfir því að búið sé að banna pride fánann?“
Innlenthinsegin málefni

Karen spyr SUS-liða: „Ætli þeir séu glaðir yfir því að búið sé að banna pride fán­ann?“

Karen Kjart­ans­dóttir segir ung­liða Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa „hrúg­ast til Banda­ríkj­anna“ til að fylgj­ast með Trump og spyr hvort þeir séu glaðir með bann pride-fán­ans þar í landi. Stjórn­enda­ráð­gjaf­inn Karen Kjart­ans­dóttir skrif­aði færslu á Facebook í morgun þar sem hún segir ung­liða íslensks stjórn­mála­flokks ekki hafa sparað lýs­ing­ar­orðin er þeir lýstu aðdáun sinni á Trump eftir að hafa farið til Banda­ríkj­anna til...
Lenya Rún um líkamsárásina á ráðstefnugest S78: „Gjörsamlega braut hjartað mitt“
Innlenthinsegin málefni

Lenya Rún um lík­ams­árás­ina á ráð­stefnu­gest S78: „Gjör­sam­lega braut hjartað mitt“

Lenya Rún Taha Karim segir það hafa brotið á sér hjartað að heyra að ráð­stefnu­gest­ur­inn á vegum Sam­tak­anna 78, sem varð fyrir lík­ams­árás, hafi reynt að fela regn­boga­bandið sitt undir jakk­anum sínum. Vara­þing­maður Pírata, Lenya Rún Taha Karim, skrif­aði Facebook-færslu í dag þar sem hún talar um hat­urs­orð­ræðu og beit­ingu laga gegn slíku. „Þeir sem mót­mæla hvað harð­ast beit­ingu við­ur­laga...
Tilkynning frá Hinseginfélagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi“
Innlent

Til­kynn­ing frá Hinseg­in­fé­lagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku sam­fé­lagi“

Hinseg­in­fé­lag Fjöbrauta­skól­ans í Garðabæ var rétt í þessu að gefa frá sér frétta­til­kynn­ingu um bloggskrif Páls Vil­hjálms­sonar. Áréttar félagið í til­kynn­ing­unni að það að vera „hinsegin, trans eða eitt­hvað annað fellur undir sjálf­sögð og eðli­leg mann­rétt­indi.“ Þá falli rétt­ur­inn til tján­ingar á kyn­vit­und, kyn­hlut­verkum og kyn­hneigð, einnig undir sömu rétt­indi. Þau sem varið hafa skrif Páls um hinsegin mál­efni hafa...
Segir Morgunblaðið endurbirta „hommafíbískt blogg“ Páls: „Síðasta fíflið er enn ekki fætt“
Innlenthinsegin málefni

Segir Morg­un­blaðið end­ur­birta „homma­fíbískt blogg“ Páls: „Síðasta fíflið er enn ekki fætt“

Gunnar Smári Egilsson segir Morg­un­blaðið hafa end­ur­birt „homma­fíbískt blogg“ Páls Vil­hjálms­sonar í Stak­steinum og dreift á nán­ast öll heim­ili lands­ins. Í nýjum pistli á Facebook segir Gunnar Smári Egilsson, for­maður Sós­í­alista­flokks Íslands, að bakslag í mann­rétt­inda­málum sé ekki „almennt vanda­mál í sam­fé­lag­inu.“ Samkvæmt Gunnari Smára er virð­ing fyrir rétt­indum fólks þvert á móti að vaxa. „Við það herp­ist hins vegar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“