„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

John Kirby kom sér undan erfiðum spurningum um Joe Biden: „Af hverju gerir hann þetta?“

John Kirby kom sér undan erfiðum spurningum um Joe Biden: „Af hverju gerir hann þetta?“
Joe Biden Banda­ríkja­for­seti

John Kirby sveigði sig fim­lega undan því að svara spurn­ingum um ósannar full­yrð­ingar Joe Biden, á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu.

John Kirby, sem ber hinn langa titil: Umsjón­ar­maður stefnu­mót­andi fjar­skipta Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs Hvíta Hússins, svar­aði spurn­ingum á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu í gær. Reyndar svar­aði hann ekki öllum spurn­ingum heldur kom hann sér fim­lega undan erf­iðri spurn­ingu frá Jeff Mordock hjá Washington Times. Spurn­ingin snéri að ósönnum full­yrð­ingum Banda­ríkja­for­seta, sem Biden hefur komið með að und­an­förnu. Þannig hélt Joe Biden því fram er hann heim­sótti her­menn í Alaska á mánu­dag­inn, að hann hefði heim­sótt rústir tví­bura­t­urn­anna dag­inn eftir að þeir hrundu þann 11. sept­em­ber 2001. Einnig sagði hann að afi hans hefði dáið nokkrum dögum fyrir fæð­ingu hans, á sama sjúkra­hús­inu. Þá sagð­ist hann aukreit­ist hafa orðið vitni að því er brúin í Pitts­burgh hrundi í fyrra. Allar þessar stað­hæf­ingar eru rangar.

„For­set­inn laug því að hafa verið við Ground Zero dag­inn eftir árás­irnar 11. sept­em­ber, hélt því rang­lega fram að hann hefði séð Pitts­burgh brúnna hrynja, sagði að afi sinn hefði lát­ist á sjúkra­húsi nokkrum dögum áður en hann fædd­ist á sama sjúkra­húsi. Hvað er í gangi með for­set­ann?“ spurði Jeff Mordock.

Kirby, sem er fyrrum aðmíráll í sjó­her Banda­ríkj­anna, kom sér undan spurn­ing­unni á fim­legan hátt, svo fim­legan að íslenskir stjórn­mála­menn myndu jafn­vel roðna.

„For­set­inn var djúpt snort­inn og stoltur að geta eitt 11. sept­em­ber með her­mönnum í Alaska og fjöl­skydum þeirra og fannst hann heiðr­aður af nær­veru þeirra og af því tæki­færi að fá að koma með mik­il­vægar athuga­semdir um hvers vegna við þurfum að halda áfram að minn­ast þessa dags. Og hann gerði það,“ svar­aði Kirby. Og hélt áfram. „Og hann tal­aði um heim­sókn sína á Ground Zero, sem hann fór í um það bil viku eftir árás­irnar, og sá hvernig allt leit út, hvernig allt lyktaði og hvernig allt var. Og það hafði mikil áhrif á hann, líkt og það hafði á fjöldi Amer­ík­ana þennan hræði­lega dag.“

Hinn átt­ræði Biden, lýsti á lif­andi hátt, sen­unni á Ground Zero, degi eftir hrun tví­bura­t­urn­anna er hann ræddi við her­þjón­ustu­menn í Anchorage í Alaska, í athöfn á 22 ára afmæli hryðju­verka­árásanna. „Ground Zero í New York. Ég man þegar ég stóð þar dag­inn eftir og leit á bygg­ing­una. Mér leið eins og ég væri að horfa á hlið hel­vítis,“ sagði Biden í athöfn­inni.

Morcok var ósáttur við svarið Kirby og benti aftur á að Biden „hefði ítrekað sagt hluti sem ekki áttu sér stað, hluti sem auð­velt var að afsanna.“ Bætti hann svo við: „Af hverju gerir hann þetta?“

Kirby svar­aði þá: „For­set­inn var þakk­látur að fá að eyða tíma með þessum fjöl­skyldum og þessum her­mönnum.“

Mynd­skeiðið má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“